01.03.1966
Efri deild: 44. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (2379)
124. mál, listamannalaun og Listasjóður
Flm. (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Í Egils sögu Skalla-Grímssonar, þar sem lýst er lífinu við hirð Haralds konungs hárfagra, segir á þessa leið:
„Af öllum hirðmönnum virði konungur mest skáld sin. Þau skipuðu annað öndvegi.“
Mér hefur alltaf fundizt þetta athyglisverð og skemmtileg mynd, sem þarna er brugðið upp í einni setningu af Haraldi konungi og hirð hans, og að þessi mynd sé Haraldi bárfagra til sæmdar. Að vísu geri ég ekki ráð fyrir, að þarna hafi eintóm óeigingirni eða listnautn valdið. Það var siður hirðskálda þá að mæra konunga í ljóði og hlutu laun fyrir. Þessa hefur Haraldur konungur sjálfsagt viljað njóta hjá skáldum sínum. En þær sæmdir, sem hann veitti skáldunum, eru vottur þess, að hann kunni að meta áhrifamátt skáldskapar, svo sem margir þjóðhöfðingjar og fyrirmenn á fyrri öldum. Skemmtileg hefur mér líka fundizt frásögn Heimskringlu af því, hvernig Íslendingar á þjóðveldisöld guldu Norðmanninum Eyvindi skáldaspilli bragarlaun, en Eyvindur var, eins og mörgum er kunnugt, höfuðskáld Norðmanna á 10. öld. Í Heimskringlu segir:
„Eyvindur orti drápu um Íslendinga, en þeir launuðu svo, að hver bóndi gaf honum skattpening. Sá stóð þrjá penninga silfurs og hvítur í skor. En er silfrið kom fram á Alþingi, réðu menn þar af að fá smiði til þess að skíra silfrið. Síðan var gjör af feldardálkur, en þar af var greitt smíðakaupið. Þá stóð dálkurinn fimm tugi marka.“
Hér hygg ég, að getið sé um hin fyrstu skáldalaun, sem Íslendingar lögðu fram sameiginlega, hvort sem það var nú Alþ. eða almenn samtök, sem hafa staðið að þessari ráðstöfun.
Á flestum eða öllum öldum íslenzkrar sögu munu þess finnast dæmi, að skáld og listhagir menn hafi hlotið einhver iðgjöld íþróttar sinnar, en jafnan voru það þá einstaklingar, sem inntu þau af hendi, allt fram á síðustu öld, þá mun þjóðarheildin ekki hafa átt þar hlut að máli. Það mun vera í fyrsta skipti árið 1819, sem íslenzkt skáld hlýtur viðurkenningu úr sjóði, sem telja mætti almannasjóð, en það ár veitti konungur séra Jóni Þorlákssyni á Bægisá 40 ríkisdala árlegan styrk í sæmdarskyni fyrir skáldskap. En bið aldna og fátæka skáld naut þessa stuðnings ekki lengi. Jón á Bægisá andaðist í októbermánuði þetta sama haust. Síðan mun það ekki hafa komið fyrir, að skáldskapur íslenzks manns væri launaður úr opinberum sjóði, fyrr en nokkuð löngu eftir að Alþ. hafði fengið fjárveitingavaldið í sínar hendur árið 1874. En sá atburður, er Alþ. launaði fyrst listamenn, gerðist, að ég hygg, árið 1891. Þá eru samþykktar tvær slíkar fjárveitingar. Var önnur þeirra skáldalaun til séra Matthíasar Jochumssonar, 600 kr. og 400 kr. til Torfhildar Þorsteinsdóttur Hólm til ritstarfa. Ég hef haft gaman af því að rifja upp orðalag flm. á þessum tveimur fyrstu till. um fjárveitingar til listamanna, því að mér þykir það orðalag benda nokkuð til þess, að fyrir flm. hafi vakað svipuð hugsun og ég tel meginuppistöðu í því frv., sem hér er til umr. og ég flyt nú, að annars vegar beri að heiðra ágæta og viðurkennda listamenn fyrir unnin afrek, hins vegar að veita starfsstyrki þeim listamönnum, sem yngri eru og óráðnari, en líklegir þykja til góðra hluta. Hins má svo geta, svo sem eins og innan sviga, að Alþ. var ákaflega varfærið fyrr á árum, og í sambandi við till. um skáldalaun til séra Matthíasar, þegar hún var flutt í fyrsta sinn 1891, risu upp þm., sem töldu afar varhugavert að fara inn á slíka braut að veita skáldalaun. Um þetta var nokkuð deilt, og endirinn varð sá, að orðið „skáldalaun“ var fellt niður og samþ. fjárveiting, 600 kr., til séra Matthíasar Jochumssonar, en sleppt öllum skýringum á því, fyrir hvaða verðleika fjárhæðin var veitt.
Síðan 1891 hefur Alþ. veitt íslenzkum skáldum og síðar öðrum listamönnum stuðning með fjárveitingum, þótt ekki hafi það alltaf gengið orðalaust, og margvislegur háttur hefur verið á hafður um úthlutun þessa fjár. Áratugum saman stóðu hvimleiðar deilur á Alþ. um listamannafé og um verðleika einstakra listamanna. Slíkra deilna hefur lítt gætt hér á Alþ. s.l. ár. Það stafar af tvennu. Segja má, að fyrir löngu sé það almennt viðurkennt, bæði af þingi og þjóð, að listamenn og listastörf beri að styðja, þótt enn geti menn greint á um fjárhæðir, sem verja skuli af almannafé í þessu skyni. En í öðru lagi hefur Alþ. losað sig við þann vanda að skipta fénu og falið sérstakri n. Hafa deilurnar um þessi mál því að mestu leyti verið fluttar út úr þinginu og fara nú einkum fram í blöðum.
Um nokkuð langt skeið, held ég, að margir hafi gert sér það ljóst, að nauðsynlegt er, að komið verði á fastari og hentugri skipan en verið hefur um úthlutun listamannalauna, svo og um annan opinberan stuðning við listsköpun í landinu. Enn risa á hverju ári harðar deilur um skiptingu þess fjár, sem veitt er á fjárl. til listamanna. Sjálfsagt verður seint eða aldrei fundið það fyrirkomulag þessara mála, að lítilli eða engri gagnrýni sæti. Slík mál eru viðkvæm og það er torvelt að koma við algerlega hlutlægu mati, þar sem smekkur og tilfinning ráða jafnmiklu og hér hlýtur jafnan að verða. En þó vil ég leyfa mér að fullyrða, að hin megna óánægja með úthlutun listamannafjár og hinar sífelldu deilur, sem sú úthlutun veldur, eigi að töluverðu og jafnvel að verulegu leyti rót sína að rekja til þess, að Alþ. hefur látið undir höfuð leggjast að marka ákveðna og skynsamlega stefnu um meðferð listamannafjár og tryggja það eftir föngum, svo sem gert verður með löggjöf, að framlag ríkissjóðs verði lyftistöng fyrir listsköpun í landinu og í annan stað samboðið þeim viðurkenndu listamönnum, sem heiðurslauna er ætlað að njóta.
Úthlutun listamannafjár hefur á liðnum tímum verið í höndum ýmissa aðila. Lengi var hún, eins og ég áðan sagði, í höndum Alþ. sjálfs, þá um skeið á vegum menntamálaráðs, skamma hríð var hún framkvæmd af fulltrúum úr hópi listamanna og loks allmörg hin síðustu ár á vegum þingkjörinnar n. Segja má, að engin þessara úthlutunaraðferða hafi þótt gefast sérlega vel. Þó ber, held ég, flestum saman um, að torfundið verði öllu óhentugra fyrirkomulag en nú er, þar sem eins konar fulltrúar þingflokkanna koma árlega saman til að annast aðeins eina úthlutun koma saman í fáeina daga til þess að skipta fénu, án þess að hafa nein lagafyrirmæli eða fastar reglur við að styðjast. Og eftir að þessi þingkjörna n. hefur setið á rökstólum í fáeina daga og gengið frá úthlutun, skilst mér, að hún telji starfa sínum lokið, telji sig í rauninni úr sögunni. Að vísu kunna sömu menn að verða kosnir í nýja úthlutunarnefnd næsta ár að einhverju eða jafnvel öllu leyti. Þó hlýtur það að vera alisendis óvíst, enda hefur það lengi verið viðkvæði nálega allra, einnig nm. sjálfra, að þetta fyrirkomulag sé ekki til frambúðar. Það þurfi að gera verulega og skjóta bragarbót á þessu fyrirkomulagi.
Um listamálin, listaúthlutunarmálin sérstaklega, hafa verið flutt ófá frv. á undanförnum 15 —20 árum, jafnvel hafa verið flutt um þau efni stjfrv. En ekkert þessara frv. hefur náð fram að ganga. Ég hef kynnt mér öll þessi frv., þau sem flutt hafa verið síðustu 20 árin, og enn fremur ýmsar álitsgerðir og till., sem komið hafa fram utan þings, einkum frá listamönnunum sjálfum og samtökum þeirra. Ég hef við samningu þess frv., sem ég hef leyft mér að leggja fyrir hv. Alþ. um þessi mál, notfært mér margt, sem ég taldi gott og gagnlegt, úr hinum eldri frv. og till., þ. á m. ýmis atriði úr frv. hv. 1. þm. Norðurl. e., Karls Kristjánssonar, því frv., sem var hér á dagskrá næst á undan.
Ekki get ég þó sagt, að ég hafi lagt neitt hinna eldri frv. til grundvallar þessu, heldur er það frábrugðið þeim öllum í ýmsum veigamiklum atriðum. M.a. hefur mér þótt ástæða til að leggja ríka áherzlu á það, að æskilegt er og raunar sjálfsagt, að skipulagður verði af opinberri hálfu stuðningur við listsköpun í landinu í ýmsu öðru formi en með beinni úthlutun launa eða styrkja til ákveðins fjölda listamanna.
Ég er þeirrar skoðunar, að ný og bætt skipan þessara mála sé ekki einungis æskileg frá sjónarmiði listamanna sjálfra, heldur ekki síður frá sjónarmiði þjóðarinnar í heild, þeirra, sem njóta eiga verka listamannanna. Hér þarf að vísu að auka það fé, sem veitt er til stuðnings íslenzku listalífi. En ég er sannfærður um, að því aðeins kemur slík aukning listafjár að verulegum notum, að breytt sé til bóta um reglur og starfshætti við skiptingu fjárins. Deiling þess til um eða yfir 120 einstaklinga, allt niður í 15 þús. kr. styrki, held ég að sé næsta óheppileg. Og jafnvel þótt heildarfjárveitingin verði aukin verulega, tel ég, að fækka eigi til muna þeim, sem njóta árlegra listlauna. En það á að muna um stuðninginn, þegar hann er veittur, og föst árleg listamannalaun geta naumast komið til álita nema til handa takmörkuðum hópi. En takist að setja fastar reglur um fjölþættari og raunhæfari stuðning við starfandi listamenn en nú á sér stað, hygg ég, að auðveldara verði að fá Alþ. til þess að styrkja listir og listamenn með auknum fjárframlögum.
Mér er kunnugt um, að hæstv. núverandi menntmrh. hefur hug á því að koma á nýrri skipan þessara mála. Hann hefur áður, bæði sem þm. og síðar sem ráðh., flutt frv. um listamannalaun, og nú ekki alls fyrir löngu lýsti hann yfir því, að hann hefði hug á að undirbúa löggjöf um þetta efni. Frv. mitt er ekki flutt vegna þess, að ég sé í neinu kapphlaupi við hæstv. ráðh. né heldur við hv. 1. þm. Norðurl. e. eða neinn annan um lausn þessa máls. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að frv. mitt sé hin eina hugsanlega lausn þess. En ég vildi leggja þetta frv. fram sem eins konar umræðugrundvöll, sem framlag af minni hálfu til þeirra umræðna, sem nú og á næstunni fara væntanlega fram um þessi mikilsverðu efni. Ég hef lengi og nokkuð mikið hugsað um þau mál, sem hér er um að ræða. Ég hef átt tal um þau fyrr og síðar við ýmsa listamenn og áhugamenn um listir. Árangur þeirra hugleiðinga og athugana er þetta frv.
Þar sem frv. fylgir nokkuð ýtarleg grg., tel ég ekki ástæðu til að fjölyrða um einstök atriði þess. Ég ætla því að láta nægja að benda stuttlega á fimm meginatriði, sem ég tel að felist í þessu frv.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir nýrri skipan úthlutunarnefndar, sem jafnframt fjall um þann stuðning við listsköpun og listtúlkun í landinu, sem veittur kann að verða í öðru formi en með beinum fjárveitingum til einstakra listamanna. Hér er vafalaust um eitt mikilsverðasta atriðið að ræða, að því er varðar alla skipun þessara mála. Mitt sjónarmið er þetta: Hér þarf að vera starfandi föst n., sem kosin sé til nokkurra ára í senn. Þar skulu eiga sæti fulltrúar frá samtökum listamanna, fulltrúar frá ríkisvaldinu og fulltrúar frá hlutlausum og tiltölulega óháðum aðila. Ég legg því til í frv. þessu, að stjórn Bandalags íslenzkra listamanna kjósi 3 menn í n., menntamálaráð kjósi 2, en háskólaráð Háskóla Íslands 2. Þá er ákvæði um það, að enginn þessara þriggja aðila skal vera bundinn af því að velja í n. menn úr sínum hópi. Um Bandalag ísl. listamanna geri ég beinlínis ráð fyrir því, að það verði ekki starfandi listamenn eða menn, sem kunna að hafa hagsmuna að gæta við úthlutun listlauna, heldur tilnefni það eins konar trúnaðarmenn sína og þá gjarnan utan eigin raða. Ég tel, að þetta fyrirkomulag sé að mörgu leyti einfaldara og heppilegra en margar úthlutunarnefndir, t.a.m. 4, hver fyrir sína listgrein. Aftur á móti mundi ég telja mjög líklegt og jafnvel sennilegt, að slík nefnd veldi sér ráðunauta, sem gerðu tillögur til hennar varðandi hinar einstöku listgreinar, en nefndin sjálf tæki endanlegar ákvarðanir og bæri formlega ábyrgð á úthlutuninni í heild, það væri ein nefnd, sem það gerði.
Annað mikilsvert atriði þessa frv. er það, að þar er gert ráð fyrir þeirri breytingu, að fremstu og viðurkenndustu listamenn þjóðarinnar hverju sinni, þeir menn, sem réttmætt þykir að heiðra, njóti allverulegra fastra listamannalauna, en séu ekki eða geti verið árlegt bitbein og háðir ákvörðun úthlutunarnefndar hverju sinni. Flestir, sem rætt hafa um úthlutun listamannalauna, eru, að ég hygg, sammála um nauðsynina á því að koma þessum hætti á, enda held ég, að segja megi, að það hafi verið kjarni þeirra frv. og tillagna, sem fram hafa komið um listlaunamál á síðari árum.
Þriðja mikilvæga atriðið í þessu frv. og ein helzta nýjungin er sú að tryggja nokkrum hópi listamanna allverulega starfsstyrki, styrki, sem ætlunin er að þeir njóti í 2 ár a.m.k., en í 3 ár hið lengsta samfellt hverju sinni. Mér er kunnugt um, að nágrannaþjóðir okkar hafa tekið upp slíka starfsstyrki til listamanna og það í vaxandi mæli. Skal ég í því sambandi nefna bæði Norðmenn og Breta, sem mér er kunnugt um að hafa tekið upp að veita af almannafé slíka styrki og telja, að það hafi gefið mjög góða raun. Þeir menn, sem ég geri ráð fyrir að hljóti slíka starfsstyrki, eru í fyrsta lagi þeir, sem þegar hafa sýnt, að þeir eru líklegir til afreka og ástæða er til að veita aðstöðu til þess að vinna að listsköpun, þ.e.a.s. listamenn, sem eru í fullu starfsfjöri og mikils kann að mega af vænta, ef þeim er veitt aðstaða til þess að sinna list sinni. En jafnframt og ekki síður tel ég að eigi að veita slíka starfsstyrki ungum mönnum, sem sýnt hafa ótvírætt, að þeir séu efnilegir listamenn, og verður þá að ráðast, hvernig fer, en tækifæri á að veita þeim að mínum dómi í þessu formi, að veita þeim allriflega starfsstyrki í 2 eða 3 ár, en láta síðan sjá, hvaða árangur það ber.
Í fjórða lagi felur þetta frv. í sér það mikilsverða ákvæði, að stofnaður skuli fastur listasjóður og sé honum ætluð ákveðin árleg fjárveiting á fjárlögum. Úr þessum listasjóði er hugmyndin að úthluta áðurgreindum starfsstyrkjum, en auk þess nokkrum öðrum lægri styrkjum, sem eru ekki heldur hugsaðir sem föst listamannalaun, heldur í mörgum tilfellum sem viðurkenning eða hvatning. Ýmist yrðu þeir veittir einu sinni eða oftar sama manni eftir atvikum. Slík fjárveiting kæmi þá að vissu leyti í stað lægstu launaflokkanna skv. því úthlutunarkerfi, sem nú er. En þeim listasjóði, sem ég legg til að verði myndaður skv. II. kafla þessa frv., er jafnframt ætlað að sinna öðrum og fjölþættari verkefnum en útdeilingu persónulegra styrkja. Í 12. gr. frv. eru nefnd 5 atriði, sem ég legg til að sjóðurinn eigi að styrkja eða megi styrkja. Þar er þó engan veginn um tæmandi upptalningu að ræða, heldur nánast nefnd nokkur dæmi þess, hvernig slíkur fastur sjóður gæti stutt listamenn og listsköpun með nokkuð fjölbreytilegum hætti. Meðal þess, sem þarna er nefnt, vil ég aðeins benda á tvennt. Það er sú hugmynd, að komið verði upp af hálfu hins opinbera eða þá þessa listasjóðs, ef hann kæmist á, hentugum íbúðum eða litlum húsum á hagkvæmum stöðum, þar sem listamönnum væri síðan boðið að dveljast um lengri eða skemmri tíma, meðan þeir væru að störfum við að sinna sinni list, að rithöfundur, sem þarf að öðlast ró og næði til að ljúka verki, sem hann er að vinna að, geti átt þess kost að taka sig upp og dveljast á rólegum og skemmtilegum stað í 1, 2 eða 3 mánuði og hið sama gildi um tónskáldið eða listmálarann, sem vildi sinna slíku. Ég hygg, að þetta gæti komið mörgum að góðu gagni. Í annan stað vildi ég benda á, að eitt af verkefnum listasjóðs ætti að mínu viti að vera að stuðla að listkynningu, sem listamennirnir sjálfir önnuðust að mestu eða jafnvel öllu leyti. Um þá hugmynd langar mig til að fara fáeinum orðum, þar sem ég tel, að hún sé eitt af binum mikilvægari verkefnum, sem slíkur sjóður ætti og þyrfti að sinna.
Það hefur verið rætt um það oft á undanförnum árum og ritað, að nauðsyn sé á að auka jafnvægi í byggð landsins. Um það hafa verið fluttar ýmsar tillögur og nokkur viðleitni höfð uppi til að stemma stigu víð hinum öra flutningi fólks úr fámenni til þéttbýlis. Í þessari viðleitni og tillagnagerð hefur einkum verið lögð áherzla á umbætur í atvinnu-, samgöngu- og raforkumálum. Þetta eru vissulega allt mikilvæg atriði. En hinu má þó sízt gleyma, að jafnvægið á sviði menningarmála, ef svo mætti að orði komast, þ.e.a.s. aðstaðan til menntunar, til listnautnar og til heilbrigðs tómstunda- og skemmtanalífs er sízt minna atriði en fjárhagsleg afkoma fólks og almenn lífsþægindi. Mörgum mönnum í strjálbýlinu er þetta fullkomlega ljóst og hefur verið lengi. Vottur þess eru m.a. sívaxandi kröfur um fjölgun menntastofnana og um bætta aðstöðu til náms úti um land. Aukinn áhugi á eflingu tónlistar og leiklistarstarfsemi, sem nú gætir víða úti á landsbyggðinni, ber þess einnig merki, að uppi er viðleitni til að iðka menningarlegt tómstundastarf í strjálbýlinu. Félagsheimili þau, sem reist hafa verið víðs vegar um land á síðari árum, eru enn eitt tákn þess, að mönnum er ljós sú þörf, að sem flestir geti notið félags- og tómstundalífs. Þessi hús eru mörg hver hin veglegustu, enda hafa þau kostað mikið fé. Án efa hafa mörg þeirra þegar stuðlað að auknu og bættu félagslífi. Hinu er þó ekki að leyna, að enn sem komið er skortir töluvert á, að þau séu notuð til hlítar, með þeim hætti, sem hægt væri og æskilegt væri, þ.e.a.s. að vera miðstöð fjölþættrar menningarstarfsemi hvert í sinni byggð eða héraði. Þessu veldur að sjálfsögðu margt, sem ég skal ekki fara frekar út í hér. En ég tel alveg víst, að hin mörgu og myndarlegu félagsheimili gætu orðið stórum meiri lyftistöng í menningarlegum efnum heldur en þau eru þegar orðin, ef til kæmi skipulegur stuðningur við slíka viðleitni af hálfu hins opinbera. Ég tel það mjög mikilvægt, að hér verði ráðin bót á. Það mikla fé, sem ríkið, bæjarog sveitarfélög og samtök fólksins hafa lagt í það að koma upp myndarlegum félagsheimilum, þarf að ávaxtast betur en verið hefur, og það getur áreiðanlega gert það. Með góðu skipulagi og hóflegum tilkostnaði, sem ekki þyrfti að nema stærri upphæð árlega en nemur einhverju broti af kostnaði við byggingu eins félagsheimilis, á að vera kleift að flytja góða og fjölþætta list um landið og koma þannig til móts við þær óskir fólks í strjálbýlinu, sem nú gætir í vaxandi mæli, að félagsheimilin geti orðið réttnefndar menningarmiðstöðvar í ríkari mæli en nú er. Gleðilegur vottur þess, að skilningur á gildi og menningarhlutverki félagsheimila færist í vöxt, kom m.a. fram nú í haust, þegar nýtt félagsheimili hóf starfsemi sína með því að efna til raunverulegrar listahátíðar, sem stóð í viku.
Árin 1958 og 1959 gerðu menntamálaráð og ríkisútvarpið í sameiningu tilraun til listkynningar. Sú listkynning hlaut heitið „List um landið“. Tilgangurinn var sá að senda hvers konar lifandi list sem viðast út um bæi og sveitir, orðsins list, tónlist og myndlist. Sýningar úrvalsverka úr Listasafni Íslands voru haldnar á fáeinum stöðum, auk þess sem listfræðingur hélt fyrirlestra um myndlist. Kirkjutónlist var flutt allvíða á Suðvesturlandi. Gerður var út leiðangur um Suður- og Austurland, flutt stutt ópera, sunginn einsöngur og skáld lásu ljóð sín. Um Norðurland ferðuðust rithöfundar, sem lásu úr eigin verkum, og óperusöngvari hélt tónleika. Loks fór einn leiðangur um Vestfirði, þar sem boðið var upp á píanóleik, einsöng og ljóðalestur. Hvarvetna var vandað mjög til dagskrár og hinir færustu listamenn til fengnir. Þessi tilraun þótti, að ég hygg, takast vel. Aðsókn var víða góð og móttökur hvarvetna ágætar. Aðgangseyrir að þessum samkomum var seldur, en á hóflegu verði. Mun láta nærri, að hann hafi staðið undir 60% heildarkostnaðar. Hallann báru menntamálaráð og ríkisútvarpið, að hálfu hvor aðili, og ég vil segja, að sá halli hafi verið ótrúlega lítill miðað við umfang þessarar starfsemi og tilkostnað, sem var vitanlega allmikill. Ég tel, að þessu líka starfsemi beri að taka upp að nýju, og ég sé ekki betur en það væri verðugt og tilvalið verkefni fyrir listasjóð, ef stofnaður yrði, að standa fyrir slíku. Þess skal getið, að mér er kunnugt um, að Bretar hafa fyrir nokkru stofnað listasjóð hjá sér, en sá sjóður vinnur að eflingu lista á mjög breiðum grundvelli og hefur þegar unnið mikilvægt og merkilegt starf.
Ég vil svo að lokum leggja á það áherzlu, að ég tel, að Alþ. geti ekki skotið því á frest öllu lengur að setja löggjöf um þessi listamál. Í rauninni hefur það dregizt allt of lengi, dregizt svo lengi, að það er orðið Alþ. til vansa. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að ég hafi í þessu frv. bent á hina einu réttu leið. Þar eru vitanlega ýmis álitamál, og eitt og annað stendur þar vafalaust til bóta. Ég skal þó geta þess hins vegar, að ég hef nú nýlega rætt við ýmsa listamenn um þetta frv. og hef yfirleitt fengið mjög góðar undirtektir, að því er varðar meginstefnu þess. Því er ekki að leyna, að frv. gerir ráð fyrir allverulega auknum fjárstuðningi við listir og listamenn eða fullri tvöföldun þess framlags, sem nú er varið til listamannalauna. En þegar alls er gætt, tel ég, að hér sé hóflega í sakirnar farið. Og ég er þeirrar skoðunar, að hvorki þing né þjóð muni telja eftir 7—8 millj. kr. sem árlegt framlag til fjölhliða listastuðnings, ef það er jafnframt tryggt eftir föngum, að þessir fjármunir nýtist vel og verði lyftistöng fyrir listsköpun og listkynningu í landinu.
Ég legg svo til, herra forseti, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.