16.11.1965
Neðri deild: 18. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (2389)

67. mál, bátaábyrgðarfélög

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það til l. um bátaábyrgðarfélög, sem hér er flutt, er eins og fyrra dagskrármálið, um Samábyrgðina, einnig samið af Jóni Erlingi Þorlákssyni tryggingafræðingi.

Svo sem fram kemur í grg. frv. og áður er minnzt á varðandi frv. um Samábyrgðina, á þetta frv. einnig rót sína að rekja til aðalfundar L.Í.Ú., sem haldinn var dagana 26.—28. nóv. 1964, en sú ályktun er prentuð með frv.

Ég tel ástæðu til þess eftir ræðu hv. 5. þm. Austf. hér áðan að endurtaka það, sem ég sagði í minni framsöguræðu varðandi það frv., sem einnig á við um þetta, að ríkisstj. er vel kunnugt um það, að um þessa ályktun var ekki einhugur innan L. Í. Ú., og það var alls ekki hugmynd mín að leyna því, að svo væri. Hins vegar er það eigi að síður staðreynd, að þessi ályktun, sem er undirrót þessara frv. beggja, var samþ. og er það opinbera álit, sem enn þá liggur fyrir frá þessum samtökum.

Varðandi önnur þau vandamál sjávarútvegsins, sem hv. þm. minntist á, skal ég ekki gefa tilefni til þess að ræða þau frekar undir þessum dagskrárlið. Að því kemur áreiðanlega síðar, að betur má um þau atriði ræða.

Varðandi þetta frv. er það að segja, að hér er um mjög yfirgripsmikið og vandasamt mál að ræða, þannig að eins og áskorun Landssambandsins gekk út á, tókst ekki að leggja frv. þetta fram á því þingi, sem þá var óskað eftir, og var það ekki fullbúið fyrr en nú. Samkv. gildandi l. nær skyldutrygging hjá bátaábyrgðarfélögum aðeins til skipa allt að 100 rúml. Meginhluti þeirra nýju skipa, sem á s.l. árum hafa verið smíðuð fyrir Íslendinga, er yfir þessari stærð, og er með frv. ætlazt til, að rúmlestaviðmiðunin verði nú allt að 400 rúml. Rökstuðningurinn fyrir þessari breytingu er fyrst og fremst sá, að telja megi öruggt, þegar hliðsjón er höfð af þróun undanfarinna ára, að meginþorri nýrra skipa verði yfir 100 rúmlestir. Í dag er meginhluti þessara skipa vátryggður hjá einkafélögum í svonefndri frjálsri tryggingu.

Samkv. því yfirliti, sem frv. fylgir, eru 9 bátaábyrgðarfélög starfandi í landinu og hjá þeim eru skráð 682 skip og er vátryggingarverð þeirra 1 milljarður 221 millj. 875 þús. kr. Tala þeirra skipa, sem hins vegar eru skráð hjá einkafélögum, er 155, en vátryggingarverð þeirra er 1 milljarður 479 millj. 546 þús. kr.

Framangreindar tölur sýna ljóslega þann aðstöðumun, sem skapazt hefur vegna stærðarbreytingar flotans á undanförnum árum, og bátaábyrgðarfélögin gegna af þessum ástæðum ekki nema að nokkru leyti því hlutverki, sem þeim var í upphafi ætlað með setningu núgildandi laga. Með frv. þessu, ef að lögum verður, er gert ráð fyrir allmiklu víðtækara starfssviði bátaútgerðarfélaganna en nú er. Skyldutrygging bátaútgerðarfélaganna bætir t.d. ekki véltjón og fleiri atriði, sem aftur eru tryggð að hluta hjá stærri skipunum, sem tryggð eru fyrir allt að 100%. Vátryggingarskilmálar um skyldutryggingu skipanna eru hins vegar ákveðnir með l. frá 1947 og eru nú úreltir i mörgum greinum, þar sem m.a. er gert ráð fyrir, að skipseigandi hafi 10% af verði skips í eigin áhættu. Útgerðarmenn hafa með kjarasamningum undanfarandi ára við sjómannasamtökin skuldbundið sig til þess að kaupa sérstaka slysatryggingu að upphæð 200 þús. kr. á hvern skipverja ásamt ábyrgðartryggingu að upphæð 1 millj. kr. og 250 þús. kr. fyrir hvert einstakt tjón, með hámarksgreiðslu 500 þús. kr. til hvers einstaklings. Í dag kaupa útgerðarmenn þessar tryggingar hjá einkafélögum og þá eðlilega oftast hjá því félagi, sem tryggir skipið, ef um er að ræða skip í svonefndri frjálsri tryggingu. Telja verður æskilegra, að sjálf ábyrgðarfélögin gætu tekið þessa umsömdu aukatryggingu að sér, ef l. verður breytt, svo sem frv. þetta gerir ráð fyrir, og ættu þá að geta boðið þær tryggingar á hagstæðari kjörum. Með slíkri breytingu frá fyrra starfssviði félaganna ætti einnig að aukast hagræði fyrir útgerðarmenn um að geta haft allar tryggingar skips og skipverja á einum og sama stað í stað þess að eiga þau viðskipti við marga aðila. Höfundur frv. telur það álitamál, hvort rétt sé að ákveða tryggingarskilmála í l., þar sem of þungt verði í vöfum að breyta þessu eftir því sem aðstæður krefjast, sér í lagi ef sömu skilmálar geta ekki gilt fyrir öll skipin, en það þykir nú þegar sýnilegt, að þar verði að gera nokkurn mun á.

Hér hefur í sem fæstum orðum verið minnzt á helztu atriði frv. Ég tel, eins og um hið fyrra frv., um Samábyrgðina, að ekki sé þörf á að rekja efni einstakra greina, svo ljóslega sem þær breytingar, sem í þeim felast, eru fram settar í aths. um frv. Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. sjútvn.