16.12.1965
Neðri deild: 34. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

51. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Frsm. meiri hl. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 190, hefur fjhn. athugað frv., en ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. n. leggur til, að það verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Ed., en minni hl. vill, að frv. verði fellt.

Frv. fjallar um hækkun á svonefndum aukatekjum ríkissjóðs, sem ákveðnar hafa verið með l. nr. 40 frá 1954, en innheimtar hafa verið með 50% álagi skv. heimild í 21. gr. l. nr. 4 frá 1960, um efnahagsmál.

Með tilliti til þess, að ríkissjóður þarf nú auknar tekjur og orðið hefur alhliða hækkun á verðlagi og kaupgjaldi í landinu, þykir nú ástæða til að hækka nefnda tekjuliði aukatekjulaganna. Meiri hl. fjhn. hefur fallizt á þetta sjónarmið og leggur því eindregið til, að frv. verði samþ. óbreytt.