06.12.1965
Neðri deild: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (2498)
50. mál, afnám laga um verkfall opinberra starfsmanna o.fl.
Flm. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir og flutt hefur verið áður í þessari hv. d., fer fram á, að afnumin verði 50 ára gömul kúgunarlög. Það var 1915, 3. nóv., sem þau lög voru undirskrifuð, sem bönnuðu opinberum starfsmönnum að gera verkfall. Það eru lög frá þeim tíma áður en A.S.Í. varð til, áður en verkalýðshreyfingin hér á Íslandi tók að rísa og verða eitt sterkasta vald okkar þjóðfélags. Opinberir starfsmenn hafa hins vegar allan tímann, að vísu undir dálítið ólíkum kjörum, orðið að búa við það að vera sviptir þeim verkfallsrétti, sem verkamenn almennt, þeir sem ekki eru í þjónustu ríkisins, hafa aflað sér og hafa getað hagnýtt sér á undanförnum 5 áratugum til þess að bæta sín kjör. Afleiðingin hefur orðið sú, að kannske með einni einustu undantekningu hafa opinberir starfsmenn orðið að feta í fótspor verkamannanna. Verkamenn hafa orðið að heyja harða og langa baráttu fyrir að bæta sín kjör með löngum samningaumleitunum eða með harðvítugum verkföllum, og á eftir, kannske jafnvel mörgum árum á eftir, hafa opinberir starfsmenn stundum einnig fengið sitt. Aðeins í eitt einasta skipti hefur það komið fyrir, í sambandi við kjaradóminn 1963, að hjá opinberum starfsmönnum var tekið nokkurt stökk í þessum efnum, án þess að þeir hafi sjálfir enn þá verkfallsrétt.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, sem nú er orðið meira en tveggja áratuga gamalt, hefur allan þann tíma, sem það hefur verið til. barizt fyrir því, að hinir opinberu starfsmenn fengju í fyrsta lagi samningsrétt og í öðru lagi verkfallsrétt. Þeir hafa eftir langar deilur fengið það í gegn, að þeir hafa fengið nokkurn samningsrétt, m.ö.o. rétt til þess að ræða við hinar opinberu stofnanir, ríkisvald og bæjarfélögin, og að lokum var svo sett löggjöfin um kjaradóm, þar sem því var slegið föstu, með hverjum hætti slikir samningar skyldu fara fram. En þetta er aðeins rétturinn til þess að semja, en ekki rétturinn til þess að gera verkföll, svo framarlega sem þeim líkaði ekki það, sem út úr þeim samningum kæmi. Í þessum l. fólst, að það skyldi vera sérstakur dómur, kjaradómur, sérstakur gerðardómur, sem skyldi kveða upp ákvæðin um bæði flokkaskiptinguna hjá hinum opinberu starfsmönnum og eins um það, hvaða laun þeir skyldu fá.
1963, þegar þessi kjaradómur í fyrsta skipti tók til starfa, glæddust nokkrar vonir hjá starfsmönnum hins opinhera um, að þeim mundi í framtíðinni verða sýnt nokkurt réttlæti. Það voru ýmsir, sem jafnvel sögðu: Það er nú í raun og veru enn þá betra að sætta sig við svona kjaradóm heldur en eiga í löngum og hörðum verkföllum til þess að fá fram kauphækkanir. — Og ýmsir menn héldu, að það væru komnir nýir tímar, þar sem ríkisvaldið færi að verða réttlátara gagnvart þeim, sem hefðu ekki réttinn til þess að geta barizt við það. En það leið ekki á löngu áður en menn urðu fyrir vonbrigðum í þessum efnum, og ég býst við, að þau vonbrigði, sem menn urðu fyrir í sambandi við þann kjaradóm, sem kveðinn var upp nú, hafi þó verið einna sárust í þessu sambandi. Með þeim kjaradómi, sem kveðinn var upp nú fyrir 1. des., var ákveðið, að helmingur þeirra starfsmanna, þeir sem flokkast undir flokkana frá 1—14, helmingurinn líklega af öllum starfsmönnum ríkisins, skyldi ekki hafa til hnífs og skeiðar, eins og kallað var í gamla daga. Það var ákveðið að skammta þeim laun, sem hvað byrjunarlaun snertir voru undir 10 þús. kr. á mánuði. 14 af þeim flokkum, sem opinberir starfsmenn tilheyra, eru dæmdir til þess að eiga að búa við laun, sem eru undir 10 þús. kr. á mánuði, á þeim tíma, sem útgjöld vísitölufjölskyldunnar hér í Reykjavík eru samkv. opinberum skýrslum 116 þús. kr. á ári, og er þá reiknað með húsnæði, sem er 1000 kr. á mánuði. Það kváðu vera teljandi þær fjölskyldur hér í Reykjavík, sem sleppa með 1000 kr. á mánuði í húsnæði, en aftur á móti allmiklu fleiri, sem verða að borga 7 þús. kr. á mánuði í húsnæði eða m.ö.o. borga í húsnæðiskostnað einan saman það, sem slagar hátt upp í það, sem fjölskyldu fjögurra manna er ætlað að lifa af á ári. Það er þess vegna gefið mál, að hjá þorranum af opinberum starfsmönnum er mikil reiði og mikil vonbrigði út af þeim kjaradómi, sem nú hefur verið kveðinn upp, enda var það viðkvæðið, eins og menn geta séð jafnt í Morgunblaðinu sem Tímanum og verkalýðsblöðunum, frá hinum opinberu starfsmönnum og þeirra forustumönnum kvað aðeins eitt við, eftir að þessi dómur var kveðinn upp: Nú dugir ekkert annað en verkfallsrétturinn. — Og þetta er ekki aðeins rétt frá sjónarmiði opinberra starfsmanna, frá þeirra hagsmunasjónarmiði. Þetta er orðin líka nauðsyn fyrir þjóðfélagið sem slíkt, fyrir ríkið og fyrir bæjarfélögin. Til þess að halda áfram ríkisrekstri og bæjarrekstri og halda uppi því þjóðfélagsbákni, sem skapað hefur verið og nauðsynlegt er, verður að breyta þarna til. Ef haldið er áfram eins og nú er, eigum við á hættu uppsagnir í fjöldanum öllum af þessum starfsgreinum, og þetta er nú þegar byrjað og það á þeim sviðum, sem eru kannske einna viðkvæmust, sem sé með því, að nokkrir læknar hafa sagt upp sínum stöðum, og það ástand bætist þá ofan á, að sum sjúkrahúsin verða nú vart rekin, m.a. vegna þess, hvernig búið er að þeim hvað samninga snertir, þannig að þeir sjúklingar, sem eru svo óheppnir að lenda þangað inn, fá ekki þau almennu mannréttindi, sem menn annars hafa í þjóðfélagi, að almannatryggingarnar greiði nokkurn veginn kostnaðinn af sjúkrahúsvistinni.
Það er að vísu ekkert nýtt, að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, eins og forustumenn þess núna lýsa yfir, berjist fyrir fullum verkfallsrétti. Þetta hefur verið svo um langt árabil. Strax 1945, á 4. þingi BSRB, var þess krafizt, að opinberir starfsmenn fengju fullan rétt til verkfalla, alveg eins og aðrir verkamenn, aðrir launþegar höfðu þá þegar aflað sér. 1948, á 10. þingi BSRB, var samþykkt samsvarandi áskorun, og það var sérstaklega tekið fram í þeirri áskorun með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:
„Þingið,“ þ.e. 10. þing BSRB, „lítur svo á, að lögin frá 1915 séu ósamboðin hinu íslenzka lýðveldi, þar sem þau setja opinbera starfsmenn skör lægra um mannréttindi en aðra þegna þjóðfélagsins.“
Á almennum fundi, sem opinberir starfsmenn héldu, voru gerðar hinar sömu kröfur, kröfur til þess, að opinberir starfsmenn fái að njóta þeirra réttinda, sem felast í l. um stéttarfélög og vinnudeilur, vegna þess að hliðstæð löggjöf um opinbera starfsmenn sé mjög afturhaldssöm og algerlega ósamboðin lýðræðisþjóðfélagi. Og þá var á þeim fundi skorað á Alþ. að taka til greina ítrekaðar kröfur þings BSRB um afnám l. nr. 33 frá 3. nóv. 1915, um verkfall opinberra starfsmanna. 1950 samþykkir 13. þing BSRB enn að leggja ríka áherzlu á, að numin verði úr gildi l. nr. 33 frá 1915, um verkfall opinberra starfsmanna, og réttur þeirra gerður sambærilegur við þann rétt, sem önnur stéttarfélög njóti í þessum efnum. 1952 var enn gerð samsvarandi samþykkt á 15. þingi starfsmanna ríkis og bæja. 1954 var á 16. þingi þeirra lýst yfir, að það væri óviðunandi, að opinberum starfsmönnum væri meinaður réttur til að semja um laun sín og kjör með hliðstæðum hætti og aðrar launastéttir. Telur þingið það svo alvarlega skerðingu mannréttinda, að það sé ósamboðið íslenzka lýðveldinu. Og þá er samþykkt, með leyfi hæstv. forseta, svo hljóðandi :
„Þess vegna heitir þingið á ríkisstj. og Alþ. að afnema þegar í stað allar takmarkanir á slíkum samningsrétti opinberra starfsmanna og ganga siðan til samninga við BSRB um launakjör starfsmanna ríkisins.“
Og 1960 eru á 20. þingi BSRB gerðar samsvarandi kröfur einu sinni enn þá. M.ö.o.: í meira en 20 ár hafa á þingum BSRB sífellt verið gerðar kröfur um, að þeir fái að njóta sömu mannréttinda og verkamenn í okkar þjóðfélagi hafa aflað sér. Þessar samþykktir hafa svo verið gerðar nú í tvo áratugi, og þetta hefur verið eins og að berja höfðinu við steininn. Alþ. og ríkisstj., hverjar sem þær hafa verið, hafa ekki sinnt þessu. Nú er hins vegar svo komið, að þetta getur ekki gengið lengur þannig áfram. Ástandið, sem blasir við núna, verður alveg óþolandi fyrir okkar þjóðfélag. Uppsagnirnar eru nú að byrja.
Ég vil minna á það í því sambandi, að það var ein stétt, sem hófst handa fyrir nokkrum árum og byrjaði með svona uppsögnum í svo stórum stíl, að það leit út fyrir, að skólarnir — það var hjá kennurunum — vissir skólar mundu verða að hætta starfi. Og þá loks brá ríkið við og bætti hag kennaranna allverulega. Og það er eins og það opinbera eða jafnvel kjaradómur hafi síðan verið nokkuð hræddur við kennarana, þannig að hann tæki virkilega tillit til þeirra, af því að þeir hafa einu sinni sýnt, að þeir þyrðu að fara í stórfelldar, skipulagðar uppsagnir eða jafnvel allt að því ólögleg verkföll, svo að ég vil spyrja: Er það nauðsynlegt, að það komi til þess, eins og þegar hefur orðið, að það verði farið út í annaðhvort meira eða minna ólögleg verkföll eða þá verði farið út í það að skipuleggja uppsagnir í stórum stíl, menn skapi samtök um slíkt? Ætlar þjóðfélagið að bíða eftir því í staðinn fyrir að framkvæma réttlæti í þessum efnum?
Ég vil vekja athygli á því í því sambandi, að einmitt í þeim kjaradómi, sem nú hefur verið kveðinn upp, er alveg greinilegt, að það er mjög lítt hirt um kjör tæknimenntaðra manna. Ég býst við, að í kjaradómi sitji a.m.k. nokkuð af mönnum, sem eru meira embættismenn upp á gamla mátann og skilja ekki þá breytingu, sem er að verða í okkar þjóðfélagi, eins gífurlegt gildi og þessi tæknimenntun kemur til með að hafa, þar sem við getum gengið út frá því, að það liði varla áratugur eða lítið meir, þangað til svo að segja helmingurinn af öllum þeim, sem nú eru kallaðir verkamenn, a.m.k. hinir yngri, verði tæknimenntaðir menn á einn eða annan máta. Þá er alveg óhugsandi að ætla að reka nútímaþjóðfélag án þessara tæknimenntuðu manna og ætla að reyna að halda þeim þannig niðri, að þeim finnist kjör sín óþolandi. Það er ekki til neins. Það er sama sem ýmist að reyna að reka þessa menn af landi burt eða reka þá út í einkabraskið.
Ég vildi í því sambandi, ef það sæist nokkur af þm. Alþfl. hérna inni, sérstaklega skjóta því að þeim, hvort það sé ekki rétt fyrir þann flokk, sem eins og okkar berst fyrir því að auka ríkisreksturinn, að athuga sinn gang, áður en það sé farið að reka starfsmennina frá ríkinu og yfir í einkabraskið. Með þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið, a.m.k. á þeim sviðum, þar sem samkeppni kemur þarna til greina, er raunverulega, eins og nú er búið að þessu, óbeint verið að vinna að því að reyna að drepa niður ríkisreksturinn og draga úr honum. Við verðum að gá að því, hver aðstöðumunurinn er núna í þjóðfélaginu á milli einkabrasksins og ríkisfyrirtækjanna. Einkabraskið nýtur sérstakra sérréttinda til skattsvika með aðstoð núv. ríkisstj. Það getur heitið sínum starfsmönnum aðstöðu til þess að stela undan skatti. Það getur veitt þeim ýmis fríðindi, sem hvergi koma fram til skatts, og allt þetta er látið viðgangast, vegna þess að þessir skattsvikarar eru um leið þeir, sem greiða drýgst í sjóð Sjálfstfl. Einkabraskið, hvernig svo sem flett er ofan af því, hvernig svo sem heitið er ár eftir ár, að það skuli verða gerð breyting á skattalöggjöfinni, halda sömu skattsvikin áfram. Braskfyrirtæki, sem þykjast ekki þess umkomin að geta greitt einu sinni það, sem kallað var vinnukonuútsvar, bjóða í starfsmenn frá ríkisbönkunum, þannig að ríkisbankarnir eru í standandi vandræðum með að halda þeim mönnum, sem þar þykja einna efnilegastir sem starfsmenn. Þessi sömu braskfyrirtæki, sem fá alla sína peninga frá ríkinu, frá þessum bönkum, þykjast alltaf vera í vandræðum með að standa í skilum með sínar skuldir, borga svo að segja ekkert til ríkisins, þau geta hins vegar yfirboðið starfsmennina hjá þessum sömu ríkisbönkum. Svona er farið að í þessum málum nú sem stendur.
Ég býst við, að það sé sama fyrirkomulagið hvað læknana snertir, þegar 7 læknar nú eru búnir að segja upp við landsspítalann. Ætli það sé ekki þægilegra fyrir ýmsa þá lækna, sem nú eru hjá ríkinu, að vera í einhverju prívatbraski og sleppa við það að þurfa að telja fram nema lítinn hluta af sínum tekjum til skatts? Við vitum, að þeir menn, sem starfa hjá ríkinu nú, verða fyrst og fremst að bera skattana, en þeir, sem eru í einhvers konar einkabraski, losna við þetta. Svona er ekki hægt að halda hlutunum áfram, og ríkisstj., sem lætur hlutina ganga svona, setur allt þjóðfélagið á ringulreið.
Ég álit þess vegna, þegar nú er búið að sýna sig, að kjaradómur er alls ófær til að skapa nokkurt réttlæti í þessum efnum, og allar vonir, sem einhverjir menn kunna að hafa gert sér um það, hafa gersamlega brugðizt, þá er nauðsynlegt, að þau lög séu afnumin og þó að menn afnemi þau ekki strax, séu lögin a.m.k., sem banna verkfall opinberra starfsmanna, afnumin og það sé þá hægt að gera verkfall á þennan kjaradóm, ef ríkisvaldinu þykir betra að halda honum enn þá um nokkurt skeið.
Ég álit, þegar þetta frv. nú fer til n., að þeirri n., sem það fer til, beri að athuga það, og það mun ekki verða liðið, að það komi ekki aftur fram hér í þessari hv. d., þannig að það verði um það greidd atkv., og það eru nægar ráðstafanir, sem hægt er að gera af okkar hálfu til þess að tryggja slíkt. M.a. mundi vafalaust verða gripið til þess að krefjast útvarpsumr. við 2. umr. um þetta mál til þess að láta ekki grafa það í n., eins og er farið að tíðkast nú í svo ríkum mæli, að það er þinginu til stórskammar, enda þarf ekki annað en að líta í blöðin nú til þess að sjá, hvernig virðing Alþ. með þeim starfsháttum, sem nú eiga sér stað, fer dagminnkandi.
Ef frv. eins og þetta verður ekki samþ., hvað gerist þá? Dettur mönnum í hug, að starfsmenn hins opinbera muni sætta sig við það ástand, sem nú er að skapast? Ég býst við, að fæstum detti það í hug. Það, sem gerist, er, að það verða ýmist ólögleg verkföll eða uppsagnir, og ef það verða ólögleg verkföll, veit ég ekki, hvort ríkinu lízt sérstaklega girnilegt að fara út í það, sem Útvegsbankinn var að gera um daginn, að fara að sekta sína starfsmenn. Það eru til ýmsar aðferðir til að ná sér niðri, ef farið er að beita slíku. Það er þess vegna óhjákvæmilegt, að á þessum hlutum verði nú breyting. Það er tími til kominn, eftir að þessi þrælalög eru búin að gilda gagnvart opinberum starfsmönnum í 50 ár.
Það er líka annað atriði, sem opinberir starfsmenn fara vafalaust að athuga í mjög ríkum mæli, svo fremi sem þess er ekki neinn kostur að fá fram með venjulegum tilraunum til samninga breytingar á þeirra slæmu kjörum, og ef engar undirtektir koma fram undir það að samþykkja lög eins og þessi, er viðbúið, að opinberir starfsmenn og þeirra bandalag verði að fara að beita sér harðar á því pólitíska sviði en þeir gera nú. Það geta engin launþegasamtök unað því til lengdar, að þau séu svipt einföldustu mannréttindum, án þess að fara að láta til sín taka, gera samtök um slíkt á hinu pólitíska sviði í kosningum. Og það mun áreiðanlega vera eitt af því, sem BSRB kemur til með að athuga, svo framarlega sem það er ómögulegt að koma vitinu fyrir valdhafa þessa þjóðfélags.
Það hefur stundum skeð úti í löndum, að verkamenn hafa gert verkföll, allsherjarverkföll, til þess að knýja fram kosningarrétt sér til handa. Það getur líka verið, að þeir starfsmenn, sem sviptir eru mannréttindum eins og verkfallsréttinum, áliti tíma til kominn fyrir sig að beita sínum mannréttindum hvað kosningarréttinn snertir skipulega til þess að reyna að afla sér þeirra réttinda, sem í verkfallsréttinum felast. Ég skal nú ekki segja, hvað meiri hl. hér á Alþ. fæst til þess að gera í þessum efnum, en hitt er óhjákvæmilegt, að hann verði látinn skera úr um það og hann verði látinn sýna sina afstöðu í þessum málum.
Því hefur stundum verið haldið fram, þegar þessi mál hafa verið rædd, að það sé ómögulegt að veita opinberum starfsmönnum verkfallsrétt, vegna þess að t.d. læknar eða hjúkrunarkonur og aðrir slíkir megi helzt ekki geta gert verkfall. Í sambandi við það mál höfum við flm. þessa máls sett í 2. gr. þessa frv. ákvæði um það, að ríkisstj. skuli í samráði við stjórn BSRB og stjórnir þeirra sérfélaga, sem málið sérstaklega varðar, undirbúa frv. til l. um réttindi og skyldur starfsmanna, sem gegna þess háttar störfum, að framkvæmd þeirra varðar líf og heilsu almennings, það frv. skuli miða að því að tryggja rétt þessa starfsfólks til hagsmunabaráttu eins og frekast samræmist öryggi um líf og heilsu almennings. Þessi 2. gr. á við það, að t.d. læknum og hjúkrunarfólki séu skapaðar — við getum kallað það sérstakar leikreglur í þeim harðvítuga baráttuleik, sem verkföllin eru. Ég efast ekki um, að það sé tiltölulega auðvelt mál að komast að samningum við slík félög, því að þau eru yfirleitt ekki inni á því að misbeita því valdi, sem þau hafa, þannig að hvað þessar hugsanlegu mótbárur snertir væri með þessari 2. gr. alveg séð fyrir lífsöryggi manna í slíku.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að að lokinni þessari 1. umr. sé þessu máli vísað til 2. umr. og hv. heilbr.-og félmn.