17.02.1966
Neðri deild: 42. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (2527)
94. mál, almannatryggingar
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Á þskj. 179 flyt ég sem 2. flm. ásamt Inga R. Helgasyni, sem var varamaður á Alþ, um skeið, en er nú horfinn af þingi, frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar. Í 39. gr. l. um almannatryggingar eru taldir upp þeir aðilar, sem slysatryggðir eru samkv. l., en það eru í fyrsta lagi launþegar, í öðru lagi nemendur við iðnnám, í þriðja lagi stjórnendur aflvéla og ökutækja, í fjórða lagi útgerðarmenn, sem sjálfir eru skipverjar, og í fimmta lagi þeir, sem vinna að björgun manna.
Í l. gr. frv. okkar er gert ráð fyrir, að nýr liður, f-liður, bætist við þessa upptalningu, svo hljóðandi:
„Íþróttafólk, sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni, og orðið er 16 ára.“
Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir, að íþróttafélög greiði 1/4 hluta iðgjalds, en ríkissjóður 3/4, en nánari ákvæði um slysatryggingar íþróttafólks og skiptingu iðgjalda skuli sett í reglugerð í samráði við Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.
Þetta mál, að íþróttafólk njóti slysatrygginga almannatrygginganna, flutti Hermann Guðmundsson fyrst á Alþ., en síðan fluttum við sömu flm. og nú frv. um sama efni, en i nokkuð breyttri mynd, árið 1961. Þá var málinu vísað til heilbr. og félmn., sem var sammála um nauðsyn þess, að íþróttafólk sé örugglega slysatryggt, og Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands lögðu eindregið til, að frv. yrði samþ. En á þeim tíma, sem heilbr.-og félmn. hafði málið til meðferðar, voru l. um almannatryggingar í endurskoðun hjá sérstakri n., og eins op segir orðrétt í nál. heilbr.- og félmn., féllust allir nm. á að fara þess á leit við hæstv. félmrh., að hann ritaði n. bréf og legði fyrir hana að gera einnig till. um slysatryggingu íþróttafólks. Þegar endurskoðun l. um almannatryggingar var lokið og frv. um breyt. lagt fram árið 1962, kom hins vegar í ljós, að engar till. voru gerðar um úrbætur í slysatryggingamálum íþróttafólks og því ætlað að búa við sama öryggisleysið og fyrr. Vegna hins takmarkaða skilnings hv. Alb. á þessu brýna hagsmunamáli íþróttafólks hafa samtökin komið sér upp eigin slysatryggingasjóði til þess að bæta nokkuð úr, en þá heimild, sem í l. um almannatryggingar felst um slysatryggingar íþróttafólks undir hinum frjálsu tryggingum Tryggingastofnunarinnar, hafa íþróttasamtökin ekki talið sig hafa fjárhagslegt bolmagn til að nota, þau hafa ekki talið sér fært að taka þeim kjörum, sem Tryggingastofnunin hefur boðið í frjálsum slysatryggingum, og þess vegna stofnað eigin slysatryggingasjóð, sem getur þó ekki fullnægt nema hluta af tryggingaþörfinni. Einkum er málið örðugt utan Reykjavíkur af fjárhagslegum ástæðum.
Við flm. teljum, að það sé ósæmandi með öllu, að íslenzkt íþróttafólk skuli ekki búa við fullkomið öryggi um slysatryggingar, og teljum það hlutverk ríkisins að koma til móts við samtök íþróttaæskunnar, til þess að þessi vandi verði leystur á þann veg, að íþróttafólk njóti vegna slysa við æfingar, sýningar og keppni sambærilegra trygginga og launþegar, að því er varðar greiðslu sjúkrakostnaðar, dagpeninga, örorkubóta og dánarbóta. Með samþykkt þessa frv. yrði sómasamlega fyrir þessum málum séð og íþróttafólki tryggður sá réttur og það öryggi, sem sanngjarnt má teljast.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn