02.03.1966
Neðri deild: 52. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í C-deild Alþingistíðinda. (2543)

132. mál, sala fjögurra jarða í Neshreppi utan Ennis

Flm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Á þskj. 278 hef ég ásamt hv. 3. og hv. 5. þm. Vesturl. flutt frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja Neshreppi utan Ennis fjórar jarðir í Neshreppi fyrir það verð, sem um semst eða verður ákveðið samkv. mati dómkvaddra manna.

Kauptúnið Hellissandur er myndað á landi nokkurra smájarða í Neshreppi utan Ennis, þ. á m. jarða þeirra, sem við flm. að beiðni hreppsn. óskum eftir að hið háa Alþ. samþykki að verði seldar hreppsfélaginu. Það verður ekki á móti mælt, að það eru eðlileg viðbrögð hjá hreppsnefndinni að vinna að því að fá eignarrétt á þeim jörðum, sem kauptúnið að Hellissandi er byggt á, og þar með verði horfið frá þeirri venju, að jarðirnar séu byggðar einstaklingum, sem á undanförnum áratugum hafa selt íbúum Hellissands á leigu lóðir undir íbúðarhús sín. Það er raunar eðlilegt, að sveitarstjórnarmenn æski þess, að hreppsfélagið verði eigandi að löndum þeim, sem mynda byggðina í kauptúninu. Ábúendur greindra jarða hafa viðurkennt þetta sjónarmið hreppsnefndarinnar með þeirri jákvæðu afstöðu sinni til sölu jarðanna að gefa samþykki sitt og mæla með því, að Neshreppi utan Ennis verði seldar jarðirnar, eins og fskj. I—IV., sem prentuð eru með frv., bera með sér.

Um síðustu aldamót voru tveir einstaklingar eigendur að landi því, sem Stykkishólmskauptún er byggt á. Skömmu eftir aldamótin gáfu þessir einstaklingar hreppsnefnd Stykkishólms kost á kaupum á landinu, og tel ég, að það hafi verið ómetanlegt happ fyrir íbúa Stykkishólmshrepps, að hreppurinn eignaðist landið ásamt meðfylgjandi eyjum, sem á þeim tíma var enn í eigu nefndra einstaklinga.

Herra forseti. Ég vil mælast til þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og til hv. landbn.