29.04.1966
Neðri deild: 81. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í C-deild Alþingistíðinda. (2589)
190. mál, stjórnarskipunarlög
Flm. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ræða hv. 2. þm. Sunnl. sýnir okkur, hve mikil þörf er á því, að um þetta sé sett í raun og veru ekki bara löggjöf, heldur ótvíræð ákvæði í stjórnarskránni.
Ég býst við, að það megi mikið um það deila, hver sá raunverulegi hugsunarháttur hafi verið í þeim gömlu gjörningum, sem gjörðir hafa verið fyrr á öldum, þegar sagt hefur verið, að jörð eigi afrétt. Við verðum að gá að því, að sjálft hugtakið um eignarrétt hefur breytzt svo ákaflega mikið á þessum tíma. Það að eiga afrétt getur eins þýtt að eiga réttinn til beitar, eiga réttinn til veiða og annað slíkt. En eins og eignarrétturinn, einstaklingseignarrétturinn er hugsaður nú á tímum, mundi bann ótakmarkaður þýða um leið, að viðkomandi, t.d. hreppur, ætti þá máske lika réttinn til þess að selja parta úr þessu. Við skulum bara hugsa okkur, að þarna ætti að rísa upp borg og einn hreppur ætti að eiga allar þessar lóðir og geta selt þetta fyrir margar milljónir, bara vegna þess, að hann hefði einu sinni í fyrndinni átt afrétt, átt beitirétt á þessum stað. Það eru þessir hlutir, sem við erum að hugsa um, þegar við hugsum okkur Íslendinga sem 3—4 millj. þjóð, þar sem búið væri að breyta með tæknilegum framförum aðstöðunni þannig, að það væri farið að byggja þar, sem nú eru afréttir og annað slíkt, og rækta þar og allt annað þess háttar. Sjálfir Hveravellir gætu orðið stórt orlofsheimili í framtíðinni fyrir þúsundir manna með glerþökum yfir. Það er þessi tími, sem við verðum að hugsa um, og þá vitum við, að sá hugsunarháttur á undanförnum öldum, þegar menn áttu veiðirétt, áttu beitarrétt, áttu afrétt, það var hugsunin um notkunarréttinn á þessu til ákveðinna hluta, til beitar, til veiða og til annars slíks. Og þegar við hugsum fram í framtíðina um allt aðra notkun í þessu sambandi, þurfum við að sjá til þess, einmitt áður en þetta fer að verða mjög brýnt mál og stórkostlegt fjárhagsmál, að það sé búið að útkljá þetta þannig, að það sé þjóðin, sem á þetta, en núverandi hreppar, t.d. einstakar jarðir, sem þarna eiga eða eru taldar eiga afrétt og annað slíkt, annaðhvort fái fullar bætur, eins og nú mundi vera metið, það er ekki neitt óskaplegt verðmæti i þessu, en héldu t.d. alveg rétti til beitarinnar, til veiða og annars slíks. Það þarf að gera skilgreiningu á milli þessara mismunandi hugtaka eignarréttar í þessu sambandi, eignarréttar, notkunarréttar og annars slíks.
Auðvitað, ef við breytum svona í stjórnarskrá, er ekki hægt að gera það með öðru móti en greiða hverjum þeim fullar bætur, sem þarna missir eitthvað, við skulum segja t.d., ef við tækjum einhvern rétt af einhverjum. En ég álít ekki einu sinni nauðsynlegt að taka neinn rétt. Það er ekki nauðsynlegt núna að taka neinn beitarrétt, taka neinn þannig afrétt af neinum hreppum eða bæjum, þeir mega halda jafnt þeim rétti sem áður. Það er bara réttur til þessarar notkunar á þessu landi, en ekki eignarrétturinn til þess að afsala þessu landi undir byggð, undir framleiðslu, afsala auðlindunum þar í eða hagnýta þær. Og einmitt vegna þess, hve þetta er raunverulega óljóst, — ef ég man rétt, minnir mig, að annaðhvort Möðrudalur eða Grímsstaðir á Fjöllum eigi jafnvel ítök sunnan við Vatnajökul frá þeim tímum, sem vegir voru alltíðfarnir yfir þveran Vatnajökul, þar sem nú er hulið ís, yfir þau skörð, — og það eru eldgömul ákvæði til, sem eiga ekkert skylt við eignarréttinn, eins og við hugsum hann nú á tímum, það er gamall afnotaréttur, þá væri engin ástæða til þess að gera hann grundvöll að einhverjum gífurlegum braskrétti nú á tímum, þegar allt þetta fer að komast í öðruvísi verð.
Þess vegna er ég þakklátur hv. 2. þm. Sunnl. fyrir að koma inn á þetta. Þessi mál eru mjög flókin í dag, og hæstiréttur er hvað eftir annað að dæma, eins og nú síðast um veiðivötnin þarna, — er það ekki norður við Mýrdalsjökul? (ÁÞ: Á Landmannaafrétti.) Já, á Landmannaafrétti. Þetta getur sem sé verið alveg undir tilviljun komið, því að mér er ósköp vel kunnugt um, að í hæstarétti sjálfum hafa verið miklar deilur uppi um þetta og hæstaréttardómararnir sjálfir á mjög mismunandi skoðun. Og þetta er þó sannarlega hlutur, sem á að ákveða af hálfu Alþ. með stjórnarskránni, hvernig skuli vera, þannig að það geti ekki verið neinni tilviljun undirorpið.