17.12.1965
Neðri deild: 36. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (262)
93. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef ekki orðið sammála hv. meðnm. mínum í fjhn. um þetta frv.
Nú munu vera í lögum um tollskrá allmargar undanþágur frá greiðslu aðflutningsgjalda. Er heimilt skv. þeim ákvæðum að fella niður eða lækka gjöld í ýmsum tilfellum. En þar eru ákveðnir þeir hlutir eða þær vörutegundir, sem heimilt er að létta gjöldum af. Þannig á þetta að vera að mínu áliti. Ef rétt þykir að fjölga þessum undanþágum um greiðslu aðflutningsgjalda, á Alþingi að setja um það lög, þar sem það sé fram tekið, af hvaða hlutum eða vörum sé heimilt að lækka gjöld eða fella niður. Hitt tel ég ekki rétt, að veita hæstv. ríkisstj. vald til að ákveða undanþágurnar á þann hátt, sem lagt er til í frv., sem hér liggur fyrir. Þess vegna er það till. mín til hv. d., að frv. verði fellt.