03.03.1966
Efri deild: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)

110. mál, heimild til að veita nýjum iðju- og iðnaðarfyrirtækjum skattfríðindi

Helgi Bergs:

Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs í þessu máli, átti ég ekki von á því, að umr. yrði svo snarlega frestað. Ég ætlaði aðeins að gera örstutta aths. í tilefni af því, að umr. voru hafnar um þetta mál, og ef það hefur orðið til þess, að það hefur dregizt í marga daga að koma málinu til n., þá hefði ég víst heldur látið það ógert.

Ég vildi gjarnan fá leyfi til að fagna því, að hv. flm. þessa frv. hafa haft frumkvæði í því efni, sem hér er um að ræða, nefnilega að ýta undir það með opinberum stuðningi, að ný iðnaðar- og iðnfyrirtæki geti vaxið upp og komizt á fót úti um land. Það er ánægjuefni, og það þarf þess vegna að taka þessu frv. með vinsemd og athuga það vandlega. Það kom í sjálfu sér ekki heldur á óvart, þó að það félli í hlut hæstv. fjmrh. að gera nokkrar aths. við frv. Það tilheyrir sjálfsagt því virðulega starfi. En ekki dettur mér í hug að draga í efa, að hann muni einnig hafa áhuga, eins og við hinir, á því grundvallaratriði, sem þetta frv. byggist á.

Þegar þjóðfélagið ætlar að fara að stuðla að því með opinberum stuðningi, að þessir hlutir geti gerzt úti um landið, hlýtur auðvitað sú spurning að vakna, í hvaða formi sá opinberi stuðningur eigi frekast að vera, í hvaða formi hann komi þar að mestu gagni þeim tilgangi, sem honum er ætlaður. Það eru sérstaklega tvö atriði, sem ég kem auga á í þessu sambandi, sem gætu bent til þess, að finna mætti hentugra form en hér er gert ráð fyrir fyrir þessum opinbera stuðningi. Í fyrsta lagi er það svo, að stuðningur, sem kemur fram sem skattafrádráttur eftir allt að 5 ár, er ekki jafngóður stuðningur og sá, sem getur komið á erfiðasta tíma í upphafi, þegar verið er að koma fyrirtækinu á laggirnar, og í öðru lagi efast ég um, að það mundu vera mjög mörg fyrirtæki, sem stuðningur í þessu formi gæti komið að verulegu gagni, vegna þess að mörg, jafnvel mjög efnileg fyrirtæki, munu oft ekki hafa neinn verulegan tekjuafgang á fyrstu árunum, sérstaklega þegar þess er gætt, að afskriftareglur eru hér hjá okkur frekar frjálslegar í sumum efnum á fyrstu árum slíks rekstrar.

Á þessu vildi ég aðeins vekja athygli, ekki til þess að gera lítið úr þessu frv. eða draga úr áhuga á því, heldur til þess að vekja umhugsun hjá hv. þdm. um þessi atriði. Og ég vil í því sambandi segja frá því, sem ég veit ekki, hvort hv. þm. hafa tekið eftir, að á undanförnum mánuðum hafa verið í Bretlandi mjög miklar umr. um málefni af þessu tagi, raunar alveg hliðstætt mál. Árið 1954 ákvað íhaldsstjórnin þar í landi með löggjöf að veita nýjum fyrirtækjum stuðning í formi skattaívilnana. Sú löggjöf hefur alltaf sætt mikilli gagnrýni af hálfu Verkamannaflokksins, sem einkum mun hafa byggt gagnrýni sina á þessum tveimur atriðum, sem ég nefndi áðan. Og í hvítri bók, sem brezka jafnaðarmannastjórnin gaf út nú í janúarmánuði, er boðuð grundvallarbreyting á þessum stuðningi, einmitt í þá stefnu að láta hann koma öðruvísi fram en sem skattaívilnun eftir árabil.

Ég mundi þess vegna vilja óska þess, að n., sem fær þetta mál til meðferðar, hugleiði mjög vandlega, í hvaða formi sú aðstoð, sem lögð er til hér, kæmi að beztum notum, og vil endurtaka ánægju mína yfir því, að þetta frumkvæði skuli vera komið frá hv. flm. þessa frv.