05.04.1966
Efri deild: 61. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í C-deild Alþingistíðinda. (2661)
170. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Flm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., um breyt. á l. nr. 40 frá 1960, um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti, hef ég ásamt hv. 1. þm. Vesturl., 4. þm. Norðurl. e. og 9. landsk. þm. leyft mér að flytja á þskj. 392. Mál það, sem hér um ræðir, er hv. þdm. kunnugt frá fyrri umr. um málið, en samhljóða frv. var flutt á síðasta þingi, en hlaut þá eigi fullnaðarafgreiðslu. Ég vil þó leyfa mér að þakka þann skilning, sem málið mætti í þessari hv. d., þar sem það hlaut afgreiðslu d. með nær samhljóða samþykki.
Síðan mál þetta var hér síðast til umr., hafa komið til nýjar upplýsingar, upplýsingar, sem draga ekki úr þeirri nauðsyn að gera þær ráðstafanir, sem frv. þetta felur í sér, en það er að banna allar dragnótaveiðar í Faxaflóa. Í 4. tölublaði tímaritsins Ægis er grein eftir Jón Jónsson fiskifræðin , sem hann nefnir. „Ástand fiskistofnanna við Ísland“. En efni greinarinnar er byggt á skýrslu, sem samin var á s.l. ári af nefnd færustu sérfræðinga á þessu sviði. Í upphafi greinarinnar segir, að ástand fiskistofnanna í Norður-Atlantshafi hafi um nokkurt skeið verið mönnum áhyggjuefni, þar sem með vaxandi sókn séu margir þeirra farnir að láta á sjá. Það, sem þó mestum áhyggjum virðist valda í þessu sambandi, er sú staðreynd, að meira sé tekið úr íslenzka þorskstofninum en hann virðist þola. Í öðru lagi veldur það sérstökum áhyggjum, hve stór hluti af þorskveiðinni er ókynþroska fiskur.
Í skýrslunni kemur það fram, að í sumum tilfellum er hundraðshluti þess afla, sem þannig veiðist, allt að 81.6%. Það er álit fiskifræðinganna, að haldbezta ráðið til að hamla gegn þessari óheillaþróun sé að auka möskvastærðina í botnvörpunni frá því, sem nú er. Varðandi stærð þorskstofnsins kemur það glöggt í ljós, hvert stefnir. Með því að bera saman stóraukna þátttöku í fiskveiðunum annars vegar og aflamagnið hins vegar er myndin sú, að á 10 ára tímabili, 1954—1964, er aukin sókn í fiskveiðarnar, sem nemur 87%, en á sama tíma minnkar aflamagnið um tæplega 22%. Þó er talið, að hér geti verið um óhagstæðan samanburð að ræða, þar sem á þessu tímabili kom til stóraukin tækni í veiðiútbúnaði, bæði á veiðarfærum og fullkomnari fiskileitartækjum. En þetta hvort tveggja eykur veiðihæfni fiskibátanna og ætti því að óbreyttu að skila meira aflamagni en áður.
Til þess að tryggja betur viðhald fiskistofnanna hefur komið fram sú hugmynd og till. hjá íslenzkum sjómönnum og útgerðarmönnum að friða fyrir öllum veiðum ákveðin svæði um hrygningartímann, þar sem vitað er, að um er að ræða góðar klakstöðvar. Undir þessa till. hafa fiskifræðingar vorir ekki viljað taka, en benda hins vegar á, að ef hægt sé að sýna fram á með vísindalegum rökum, að nauðsynlegt sé að takmarka veiðina á hrygningarfiskinum, sé raunveruleg skömmtun á veiðinni það eina, sem til greina kemur, og að veiði sé þá hætt, þegar ákveðnu marki hefur verið náð. Á þessu eru þó þeir annmarkar m.a., að þar sem um 80% af þorskafla Íslendinga veiðist á vetrarvertíðinni, verður erfitt að koma við slíkri framkvæmd, og mér er nær að halda, að slíkt sé nær óframkvæmanlegt.
Í þeirri grein, sem ég hef hér nokkuð vikið að og birtist í 4. tbl. Ægis, er einnig að finna athyglisverðar upplýsingar varðandi ýsustofninn hér við land, en þar segir m.a., með leyfi forseta :
„Á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina var ýsustofninn við Ísland talinn sígilt dæmi um ofveiddan fiskstofn, ásamt skarkola- og lúðustofninum. Eins og sést greinilega á 4. mynd, þá féll heildarýsuveiðin úr 60 þús. tonnum niður í 28 þús. tonn á tímabilinu 1928—1937, og veiði Íslendinga minnkaði úr 11 þús. tonnum í 4 þús. tonn á sama tíma. Sé athugaður aflinn á sóknareiningu, verður hrörnun stofnsins enn greinilegri, því að á umræddu tímabili minnkaði afli Breta úr 414 tonnum í 131 tonn, miðað við milljón tonntíma, og á sama tíma minnkaði dagsafli þýzkra togara úr 0.8 tonnum í 0.5 tonn.
Miðað við þetta ástand stofnsins, þá eru viðbrögð hans gagnvart veiðunum eftir stríð mjög athyglisverð. Strax eftir stríðið jókst heildarveiðin hröðum skrefum, úr 33 þús. tonnum árið 1946 í 76 þús. tonn árið 1949, en næstu 3 árin hrakaði veiðinni mjög og var aflinn kominn niður í 46 þús. tonn árið 1952. Þetta ár loka Íslendingar Faxaflóa og ýmsum öðrum þýðingarmiklum uppeldisstöðvum fyrir ýsu, og það bregður nú svo við, að heildaraflinn og afli Íslendinga hefur aukizt jafnt og þétt síðan og var kominn upp í 100 þús. tonn árið 1964, og var þá ýsan orðin í öðru sæti bolfiska á Íslandsmiðum.
Í skýrslu nefndarinnar segir berum orðum, að þessa aukningu fiskveiðanna megi þakka lokun Faxaflóa og annarra uppeldisstöðva, svo og þeirri aukningu í möskvastærð, sem orðið hefur síðan. Í ýsustofninum eru tíðar sveiflur í styrkleika árganganna, sem orsakað geta skammæjar sveiflur í aflamagni, en það er ekki ástæða til þess að ætla, að árgangarnir séu almennt neitt sterkari nú en fyrir friðunina. Hins vegar vex ýsan mjög ört hér við land. 30 cm langur fiskur tvöfaldar t.d. þyngd sína innan eins árs, og minni fiskur vex enn örar. Hin heillavænlegu áhrif af lokun þýðingarmikilla uppeldisstöðva, eins og t.d. Faxaflóa, koma því fram á þann hátt, að fiskurinn fær að vaxa í friði 2—3 árum lengur en áður. Náttúrleg dánartala, þ.e. það, sem deyr af öðrum orsökum en veiðunum, er 20%—30% á ári. Heildarþyngdaraukning ýsuárgangsins er því um 75% á ári, þar sem engar veiðar eru stundaðar. Ýsan er nú yfirleitt ekki veiðibær fyrr en 40—45 cm löng, og þá er hlutfallslegur vöxtur hennar orðinn minni, eða ca. 70% á ári. Séu dregin frá eðlileg afföll, þá er árleg þyngdaraukning ekki nema um 30% og gróðinn því orðinn mun minni af frekari friðun.“
Þessi niðurstaða sérfræðinganna talar skýru máli, og um það verður ekki deilt, að Faxaflóinn er ein allra þýðingarmesta uppeldisstöðin við strendur Íslands. Kemur þar til m.a., að Faxaflóinn liggur svo nærri aðalhrygningarstöðvunum við suðurströnd landsins og þangað er ungviðinu næst að leita skjóls, enda eru þar frá náttúrunnar hendi öll hin ákjósanlegustu skilyrði til vaxtar og þroska fyrir uppfæðinginn.
Í þessu sambandi má á það benda, að á engu hafsvæði hér við land hafa verið gerðar jafnýtarlegar vísindarannsóknir i þessum efnum og í Faxaflóa. Niðurstöður þeirra rannsókna, sem gerðar voru, á meðan við höfðum aðeins 3 mílna landhelgi, vöktu á sínum tíma alþjóðaathygli. En þar kom greinilega fram, hve geysilega mikill munur var á vaxtarskilyrðum ungfisksins utan og innan landhelgislinunnar.
Eins og fram kemur í skýrslu fiskifræðinganna varðandi ýsustofninn, verða hér alger straumhvörf eftir 1952, en það ár loka Íslendingar Faxaflóa og ýmsum öðrum þýðingarmiklum uppeldisstöðvum fyrir öllum botnvörpuveiðum. Bregður þá svo við, að heildaraflinn fer jafnt og stöðugt vaxandi. Þessi hagstæða þróun í Faxaflóa hélzt einnig hvað aðra fiskistofna snerti, og það varð til þess, að dragnótin var leyfð að nýju. Dragnótaveiðarnar gáfu að vísu nokkra raun í byrjun, á meðan þær veiðar nutu ávaxtanna af friðuninni, en brátt dró úr þeim veiðum einnig og því meira sem lengur hefur liðið. Má í því sambandi benda á þá staðreynd, að á árinu 1964, aðeins 4 árum eftir að dragnótaveiðarnar voru leyfðar að nýju, var afli dragnótabátanna orðinn svo rýr hér í Faxaflóa,að útgerð þeirra hlaut sérstakan styrk úr aflatryggingasjóði. Á s.l. vertíð er einnig svo komið fyrir dragnótaveiðunum við Suðurland, að bátarnir munu njóta styrks úr þessum sama sjóði.
Enda þótt frv. það, sem hér liggur fyrir, nái aðeins til Faxaflóa, er flm. ljóst, að slíkar ráðstafanir þarf einnig að gera á fleiri stöðum hér
við land. En sökum legu Faxaflóa og staðhátta allra er hér mest í húfi, og þess vegna má það ekki dragast lengur, að hér verði bót á ráðin á þann hátt, sem lagt er til í frv. þessu.
Hættan af dragnótaveiðunum í jafnþýðingarmikilli uppeldisstöð og Faxaflóinn er felst ekki fyrst og fremst í veiði nytjafiska, heldur hinu gegndarlausa ungviðisdrápi, sem þessum veiðum fylgir. Það tjón, sem landsmönnum er búið af þessum veiðum í Faxaflóa, verður ekki með tölum talið. Þetta tjón tekur einnig til fleiri en þeirra, sem við flóann búa eða þar í nánd. Fiskurinn, sem fær frið og næði til þess að vaxa upp í Faxaflóa, dreifist, er hann stækkar, um öll fiskisvæði við strendur landsins. Um þetta er örugg vissa, sem byggð er á áratuga rannsóknum hinna
færustu sérfræðinga. Hér þarf því að spyrna við fótum og bægja frá þeirri augljósu hættu, sem við blasir, en það verður ekki gert með öðrum hætti betur en þeim að banna með öllu dragnóta og hvers konar botnvörpuveiðar í Faxaflóa.
Herra forseti. Ég mun svo ljúka máli mínu, en legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr.. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.