30.03.1966
Sameinað þing: 34. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (2691)

66. mál, garðyrkjuskóli á Akureyri

Frsm. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Þetta mál, sem hér er til umr. nú, var flutt á þingi í fyrra, en dagaði þá uppi í þinglokin. Þá fjallaði fjvn. um málið og var efnislega meðmælt till., en lagði hins vegar til, að henni yrði breytt að orðalagi. Og nú hefur málið verið tekið upp aftur á þessu þingi og þá í því formi, sem fjvn. lagði til í fyrra, og er skemmst af því að segja, að fjvn. hefur ekkí breytt afstöðu sinni til þessa máls og leggur til, að till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir á þskj. 78. En eins og orðalag till. ber með sér, er stefnt að því að láta nú í sumar gera athugun á því, hvort ekki sé grundvöllur fyrir stofnun garðyrkjuskóla á Akureyri eða í nágrenni Akureyrar.

Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að það sé verulegur áhugi á því á Norðurlandi, að garðyrkjuskóli megi rísa á Akureyri. M.a. hafa kvenfélögin norðanlands látið þetta mál mjög til sín taka og hvatt til aðgerða í því, enda er málið að nokkru leyti flutt fyrir áskorun frá þeim samtökum.

Aðstæður til garðyrkjukennslu á Akureyri eru góðar. Þar er ræktunaráhugi og ræktunarmenning, sem stendur traustum fótum, og kennslukraftar eru fyrir hendi til þess að kenna þær greinar, sem þörf er á í slíkum skóla. Og einnig má benda á það, að á Akureyri er „grasgarður“ svokallaður, sem óhætt er að segja að sé eins og lifandi kennslutæki við slíka stofnun.

Ég vil geta þess, sem raunar hefur komið fram, þegar þetta mál var til umr. hér fyrr á þingtímanum, að garðyrkjukennsla fór fram á Akureyri um mjög langt skeið, ég hygg ein 30 ár, hér áður fyrr á vegum Ræktunarfélags Norðurlands, og ef garðyrkjuskóli yrði aftur stofnaður á Akureyri, er raunverulega um að ræða endurreisn fyrri starfsemi í þessari grein, og færi vel á því, að slík endurreisn mætti verða að veruleika. Ef þessi till. verður samþ., hygg ég, að þar sé um að ræða mjög mikilsverðan áfanga á þeirri braut, að aftur verði tekin upp garðyrkjukennsla á Akureyri.

Ég vil að lokum sem einn flm. þakka meðnm. mínum í fjvn. fyrir ágætar undirtektir undir þetta mál og vænti þess, að málið eigi greiðan gang í gegnum þingið. En sem sagt,fjvn. leggur til, að málið verði samþ. eins og það var sett fram nú og er í því horfi, sem fjvn. lagði til í fyrra.