09.12.1965
Neðri deild: 27. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
89. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil með örfáum orðum gera grein fyrir afstöðu minni til þess stjfrv., sem hér er til umr. og lagt hefur verið fram á þskj. 149, frv. til l. um breyt. á l. um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála o.fl.
Enn þá einu sinni höfum við fengið að sjá hugvitssemi hæstv. ríkisstj. í skattálögum í verki. Frv. frá henni um það efni er hér enn þá einu sinni til umr. Að þessu sinni er það gjaldeyrisskattur. Lagt er til, að í viðbót við það gjald, sem nú er innheimt af gjaldeyris- og innflutningsleyfum samkv. heimild í l. um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála frá 1960, skuli nú taka allt að ½% í gjald af allri gjaldeyrissölu bankanna. Samkv. aths. frv. hefur álagið á þann hluta gjaldeyrissölunnar, sem háður er leyfum, numið á s.l. ári 6.9 millj. kr., en nýjar tekjur samkv. þessu frv. eru áætlaðar 35 millj. kr. Hér er því að verulegu leyti um nýjan skatt að ræða.
Það má heita, að sú regla sé orðin algild, að hverju nýju stjórnarfrv. fylgi nýr skattur, og þau gjöld, sem lögð hafa verið á í tíð núv. hæstv. ríkisstj., eru fleiri en svo, að ég treysti mér til að nefna þau öll eftir minni. En ég get þó nefnt nokkur, sem ég man eftir í svipinn. Það er margföldun á söluskatti. Það er nýr skattur á bændur, svokallaður bændaskattur. Það er nýr launaskattur á alla þá, sem laun greiða. Það er iðnlánasjóðsgjald, sem hefur verið stóraukið. Það er ríkisábyrgðasjóðsgjald. Það er vegaskattur, margfaldur, bæði benzínskatturinn margfaldaður og nýr vegaskattur á Reykjanesbraut. Það er aðgangseyrir að veitingahúsum. Það er skattur á allt byggingarefni, sement, timbur og steypustyrktarjárn. Í meðförum á hv. Alþ. er stórhækkun á fasteignaskatti og þessi gjaldeyrisskattur, og einn er boðaður enn, ráðstafanir til þess að mæta raforkuverðinu.
Þrátt fyrir þetta allt saman eru þó beinir skattar enn þá mjög háir. Þrátt fyrir þær stefnuyfirlýsingar, sem gefnar hafa verið um það, að hverfa skyldi frá leið beinu skattanna og yfir í leið hinna óbeinu skatta, er það samt sem áður staðreynd, að beinir skattar eru enn þá mjög háir. Og ég býst við, að hv. þm. séu ekki búnir að gleyma álögum þeirra, t.d. árið 1964, og því, sem þá gekk á hér í þjóðfélaginu. Þessi mikla skattheimta er orðin gersamlega óþolandi. Gjaldþoli alls þorra manna, þ. e. þeirra, sem telja rétt fram og greiða skatta og skyldur samkv. lögum, er fullkomlega ofboðið, þótt til séu hins vegar aðilar í þjóðfélaginu, sem komast létt út úr þessum viðskiptum sínum við það opinbera og slá um sig með ríkmannlegu líferni. Fyrir utan svo þetta, svo alvarlegt sem það er, fylgir skattafarganinu þvílík ógnarskriffinnska, að öllu tekur fram, sem hér hefur þekkzt, og höfum við þó séð sitt af hverju í því efni. Í raun réttri má segja, að menn séu ófrjálsir. Við hvert fótmál bíður útrétt hönd skattheimtumannanna, sem breytist í refsiarm laganna, ef ekki er greitt af hendi það, sem upp er sett.
Því miður eru engar horfur á því, að hér verði látið staðar numið, þó að þetta frv. nái fram að ganga, því að ég tók svo eftir hjá hæstv. samgmrh. í gær og raunar áður líka, að hann segði það, að n. væri skipuð til þess að rannsaka nýjar skattaleiðir í sambandi við vegamálin. Ég hygg, að hæstv. ráðh. hafi sagt, að n. yrði skipuð til að athuga nýjar leiðir til að mæta útgjöldum í vegamálum. Annars bera þingtíðindi náttúrlega vott um það, hvað sagt hefur verið hér, og ég hef þau ekki við höndina.
Ég vil segja það, að ég virði hæstv. ráðh. það fullkomlega til vorkunnar, að þeirra hugmyndir séu til þurrðar gengnar í þessum efnum, svo mjög sem á þær hefur reynt að undanförnu. En ég hygg, að flestum muni finnast, að nú sé nóg komið og að hæstv. ríkisstj. ætti að sjá að sér og gæta meira hófs í álagningarákafanum en gert hefur verið og snúa sér að því verki, sem fram að þessu mest hefur verið í orði, að vinna bug á dýrtíðaraukningunni, í stað þess að magna verðbólguna með þvílíkum ráðstöfunum eins og hér eru lagðar til, því að það ætti að vera hæstv. ríkisstj. ljóst, eins og auðvitað landsmönnum öllum, að ef ekki tekst að brjóta algerlega í blað um þá þróun, er allt hitt unnið fyrir gýg, eins og sagt hefur verið. Um það eru víst allir sammála.
Það er sannarlega hörmulegt til þess að vita, að við þau ytri skilyrði, sem þjóðin hefur búið við að undanförnu, einmuna góðæri til lands og sjávar, metafla og hátt verðlag á útflutningsafurðum, þrátt fyrir stórlækkuð framlög til verklegra framkvæmda, skuli hæstv. ríkisstj. ekki sjá aðra möguleika til þess að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög en þá að bæta einum skattinum enn ofan á alla hina.
Þessi nýi skattur, — það er skylt að viðurkenna, — á í rauninni að koma í staðinn fyrir annan skatt, sem ráðgerður hafði verið, svonefndan farmiðaskatt eða farmiðagjald. Í sambandi við fjárlagafrv. var ráðgert að innheimta 1500 kr. af hverjum farseðli til og frá landinu. Sú gjaldheimta átti að færa ríkissjóði tekjur, er næmu 25 millj. kr. á næsta ári. Þessi skattur varð strax ákaflega óvinsæll, og ég hygg, að það sé mjög vægt til orða tekið hjá hæstv. fjmrh. áðan, þegar hann sagði, að um hann hefðu verið nokkuð skiptar skoðanir. Ég hef a.m.k. mjög fáa formælendur hitt fyrir þeim skatti. Og staðreynd er hitt, að mótmæli gegn honum bárust víða að og þ. á m. frá ýmsum þeim aðilum, sem mikið eiga í húfi í sambandi við slík ferðalög, eins og þarna var ráðgert að skattleggja. Það var jafnvel farið að tala um átthagafjötra í þessu sambandi, og ýmis fleiri miður falleg orð voru látin falla af þessu tilefni. Hér á hv. Alþ. var einnig áköf andstaða gegn þessum skatti og raunar, að ég hygg, sterkar líkur, að ekki sé sagt vissa, fyrir því, að frv. um hann mundi ekki ná fram að ganga. Þessi mikla andstaða hefur nú greinilega valdið því, að hæstv. ríkisstj. hefur séð sitt óvænna og er horfin frá þessu ráði. Ég tel henni það sízt til ámælis að endurskoða afstöðu sína með hliðsjón af þeim undirtektum, sem ráðstafanir hennar fá hjá almenningi, og vil segja, að málum væri betur komið á margan hátt, ef hæstv. ríkisstj. viðhefði þá reglu í fleiri tilvikum heldur en hún hefur þegar haft. Þessari hæstv. ríkisstj. verður trúlega fátt fremur til gildis talið síðar meir en það að hafa þó einstaka sinnum tekið mark á almenningsálitinu og horfið frá villu síns vegar, eins og t.d., þegar hún hætti við kaupbindingarlögin haustið 1963 eða þegar afturkölluð voru brbl. um síldarverðið á s.l. sumri, svo að ég nefni eitthvað af því, sem bezt hefur til tekizt hjá þessari hæstv. ríkisstj. Það er mannlegt að skjátlast, og það er engin skömm að því að játa mistök sín, ekki heldur fyrir ríkisstj., og þá ekki heldur í þessu tilfelli að viðurkenna, að farmiðaskatturinn hafi verið bæði ranglátur og óþarfur. En í stað þess að játa þetta, er nú sagt, að fallið sé frá skattinum vegna ýmissa tæknilegra örðugleika við innheimtuna og af því að vegna undanþáguákvæðanna hafi verið erfitt að áætla, hvað hann mundi gefa af sér. Þessar skýringar, hygg ég, að séu settar fram til þess að leyna hinni raunverulegu ástæðu, nefnilega þeirri, að hugmyndin var svo óvinsæl, að kjarkinn brast, þegar til átti að taka. Ég hygg, að það sé hin raunverulega ástæða fyrir því, að þessi gjaldheimta er felld niður. Ég tel óhugsandi, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki gert sér grein fyrir því, áður en hugmyndin var sett fram og tekjur áætlaðar í fjárlfrv., hvaða möguleikar væru á því að innheimta þetta gjald. Ég trúi því ekki. Annað væri að mínum dómi fullkomlega ósæmandi undirbúningur og svo ólík vinnubrögð því, sem menn eiga að venjast frá hæstv. núv. fjmrh., að ég a.m.k. trúi því ekki, að hann hafi hent svo illa undirbúinni hugmynd fram og tekið hana inn í frv. sitt til fjárl., fyrsta frv., sem hann leggur fyrir Alþ.
Í Morgunblaðinu sá ég það í gær í viðtali við hæstv. fjmrh., að skatturinn væri óframkvæmanlegur, vegna þess að það væri ekki hægt að vita fyrir fram, hvaða tekjur hann mundi gefa. Þetta er náttúrlega ástæða, sem ekki getur staðizt, enda hefur hún greinilega verið endurskoðuð, ef Morgunblaðið hefur þá haft rétt eftir. Ég skal ekkert fullyrða um það, það hafa komið fyrir prentvillur þar. En sé rétt haft eftir, er vitað mál, að þessi ástæða er ekki frambærileg, enda er hætt við hana. Annars væri náttúrlega öll skattheimta útilokuð. Hver veit t.d., hvað tekjuskatturinn gefur fyrir næsta ár? Hver veit, hvað söluskatturinn gefur? Það fer eftir veltunni. Hver veit, hvað verðtollurinn gefur? Það fer eftir innflutningnum. Ég er hræddur um, að það færi „að kárna reiðar gaman“ hjá skattheimtumönnum ríkissjóðs, ef þessi ástæða ætti að útiloka alla gjaldheimtu. Og eins er það með þennan nýja skatt núna, gjaldeyrisskattinn. Það er ekki hægt að segja nákvæmlega til um það, hve hár hann verður á næsta ári. Það fer eftir því, hve mikinn gjaldeyri bankarnir selja. Og þannig er þetta um alla þá skattheimtu, sem miðuð er við hundraðshluta af einhverjum tilteknum viðskiptum. Það er áætlunarupphæð, sem verður að reikna með á fjárl., og það er ekki hætt við skattheimtuna vegna þess, að áætlanir standist ekki, að innheimtar tekjur verði annaðhvort eitthvað meiri eða minni en áætlað var.
Í aths. á þskj. 149 segir, að áætla megi, tekjur af þessu nýja gjaldi um 35 millj. kr. á næsta ári. Sú upphæð mun vera fundin þannig, að reiknað er ½% gjald af áætlaðri gjaldeyrissölu næsta árs. En á ekki ríkissjóður í vændum meiri tekjur en þetta, ½% af þessari dvergsmíð? Kemur ekki söluskattur, 7½%, ofan á þetta gjald í vöruverðinu? Ég sé ekki, að það sé minnzt á þetta í aths. frv., en það væri mjög fróðlegt fyrir hv. þm. að fá það upplýst, hvað hæstv. fjmrh. hefur reiknað með miklum tekjuauka í bú sitt af þessum ástæðum, annaðhvort núna við þessa 1. umr. eða við meðferð frv. í hv. fjhn.
Nei, þessi skattur er að því leyti til verri en sá, sem hætt var við, að hann kemur beint inn í verðlagið. Hann leggst á alla vöru, jafnt nauðsynlega sem óþarfa, og hefur alveg sömu áhrif og gengislækkun á vöruverðið, nákvæmlega sömu áhrif, tekur á sig söluskattinn, og álagning smásölunnar og stórsölunnar leggst á hærri stofn og hækkar þar af leiðandi. Prósentan er að vísu ekki há, 0.5% þykir ekki há tala nú til dags. En þó er hér um að ræða enn þá eina ráðstöfun, sem eykur verðbólguþensluna og gerir efnahagsmálin enn þá óviðráðanlegri en þau voru fyrir, og var þó ekki á það bætandi.
Ég tel þennan skatt mjög óheppilegan og alveg greinilega og óumdeilanlega þess eðlis, sem hæstv. fjmrh. sjálfur hefur nefnt almenna skattahækkun. En eitt af því fyrsta, sem ég man eftir frá honum sem ráðh., var einmitt mjög alvarleg aðvörun við því, að slíkar skattheimtur bæri mjög að varast, og þau orð geta víst flestir tekið undir af heilum hug, eins og málum er komið. En þetta sýnir auðvitað, að hæstv. fjmrh. hefur mátt reyna það eins og svo margur annar, að hægara er að gefa heilræðin en að halda þau. Og nú hefur hann staðið að því að leggja hér fram frv. um almenna skattahækkun, því að þótt það kæmi í hlut hæstv. bankamálaráðh, að mæla fyrir frv., er málið greinilega hæstv. fjmrh. það skylt, að hann lét ekki framsögu hæstv. bankamálaráðh. eina duga.
Ég vil leyfa mér að halda því fram, um það verður sjálfsagt deilt, en ég vil leyfa mér að halda því fram, að jafnhliða því, sem þessi skattur er svo óheppilegur, sem ég hér hef verið að reyna að lýsa, sé hann einnig óþarfur. Þessi skattur á, eins og margoft hefur verið tekið fram, bæði af hæstv. ráðh. og nú mér, að koma í staðinn fyrir farmiðagjaldið svokallaða, en tekjur af því voru áætlaðar 25 millj. kr. Á fjárlfrv. eftir 2. umr. er, að ég hygg, hagstæður greiðslujöfnuður um 10 millj. kr. Þegar við höfum í huga, að niðurstöðutölur fjárlfrv., heildarniðurstöðutölurnar, eru um 4 milljarðar kr., er ljóst, að hér er um hreina smámuni að ræða, hreina smámuni, sem á vantar, og að mjög miklar líkur eru fyrir því, að tekjur séu það varlega áætlaðar, að þær gefi a.m.k. þessa fjárhæð umfram áætlun, til þess að hægt sé að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög, þótt ekkert annað kæmi til. Til viðbótar því hygg ég óumdeilanlegt, að í svo stórum gjaldabálki sé hægt að spara þessa fjárhæð, ef vilji til þess er virkilega fyrir hendi. Fjárlagaafgreiðslu er ekki lokið. 3. umr. er eftir. Það er enn þá hægt að endurskoða fjárlfrv. með það fyrir augum að ná endunum saman, án þess að grípa þurfi til þess óyndisúrræðis að fara enn á ný inn á leið almennra skattahækkana.
Ég tel því sjálfsagt fyrir hæstv. ríkisstj. að hverfa frá þessari skattheimtu eins og hinni fyrri, meðan tími er til, stilla sig um það að hella olíu á verðbólgueldinn meira en orðið er, en nota þetta tækifæri til þess að byrja að fikra sig út úr dýrtíðarvandanum. Það verður áreiðanlega nógu erfitt, þó að ekki sé lengra haldið inn í þann myrkvið. Ég vil leyfa mér að vona enn þá, að þessi verði niðurstaðan, að við nánari athugun gerist það, sem gerðist um farmiðaskattinn, að hæstv. ríkisstj. sjái, að þessi leið er ekki heppileg. En ef hæstv. ríkisstj. og stuðningslið hennar ætlar sér að lögfesta þetta gjald þrátt fyrir þær afleiðingar, sem það hefur, mun ég og fleiri flokksbræður mínir hér greiða atkv. á móti því.