20.04.1966
Sameinað þing: 38. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (2703)
60. mál, lækkun kosningaaldurs
Frsm. (Sigurður Ingimundarson):
Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa þáltill. til athugunar á nokkrum fundum og leitað umsagnar þeirra æskulýðsfélaga, sem eru innan Æskulýðssamþands Íslands. Flest félögin hafa lýst stuðningi sínum við till., þ. á m. æskulýðssambönd allra stjórnmálaflokkanna, en Íslenzkir ungtemplarar og Samband bindindisfélaga í skólum eru andvíg till.
Allshn. hefur efnislega orðið sammála um að mæla með samþykkt till. með þeirri breytingu, að í stað „athugunar um lækkun kosningaaldurs í 18 ár“ komi: athugun um lækkun kosningaaldurs, — og með þeirri viðbót, að jafnframt skuli endurskoðaðar aðrar aldurstakmarkanir laga á réttindum unga fólksins, og er þá fyrst og fremst átt við fjárræðisaldur og hjúskaparaldur.
Ég er einn af meðflm. till., og ég vil fagna þeirri víðtæku samstöðu, sem hefur orðið um málið í allshn., þrátt fyrir þá breytingu, sem orðið hefur til samkomulags um orðalag.
Viðbótina um það, að jafnframt skuli endurskoðaðar aðrar aldurstakmarkanir laga á réttindum unga fólksins, tel ég beinlínis til bóta og raunar ekki nema beina afleiðingu af meginefni till. En sjálf breytingin, að í stað „18 ára kosningaaldurs“ komi: lækkun kosningaaldurs, er í sjálfu sér ekki óeðlileg, þar sem þáltill. gerir ráð fyrir því, að kosin sé Í manna mþn. til þess að athuga þetta mál og henni falið að skila áliti fyrir næsta reglulegt Alþingi. Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá, að sannreynt sé í mþn., sem í eiga sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna, hversu víðtæka samstöðu megi skapa um málið og hversu langt sú samstaða leyfir, að gengið sé í lækkun kosningaaldursins. Niðurstaða þeirrar n. verður að sjálfsögðu þyngri á vogaskálunum en ósk flm. þáltill. og því engin ástæða til þess að gera ágreining um orðalag till., þar sem samstaða er um að athuga, hversu rétt sé að ganga langt í þá átt, sem till. gerir ráð fyrir.
Í grg. fyrir þáltill. er gerð grein fyrir þeim þjóðfélagslegu breytingum, sem gera það eðlilegt, að kosningaaldur sé nú lækkaður, og hv. 1. flm. till. gerði það enn ýtarlegur í framsöguræðu sinni. Við þann málflutning hef ég litlu að bæta, en ég vil þó, að eitt atriði sé sérstaklega athugað í þessu sambandi.
Það kom nýlega fram í alþjóðlegum skýrslum, að Ísland væri þriðja þjóðin, sem hefði hæstar þjóðartekjur á mann í Evrópu, næst á eftir Svíþjóð og Sviss. Ég skal ekki fullyrða neitt um það, hvern þátt landkostir lands vors eiga í þeirri staðreynd og þá fyrst og fremst fiskimiðin, en ég vil fullyrða, að tækniþekking og verkmenning þjóðarinnar hefur ekki skapað okkur þennan háa sess. Ég hygg, að þetta glæsilega þriðja sæti okkar um velmegun meðal Evrópuþjóðanna eigi m.a. að minnsta kosti rætur sínar að rekja til þáttlöku unga fólksins í atvinnulífinu um aðalbjargræðistíma þjóðarinnar. Við erum góðu heilli lausir við herskyldu, og árlegur skólatími er hér nokkru styttri en annars staðar tíðkast, miðað við þá góðu aðstöðu, sem við höfum til árstíðabundinnar þátttöku skólaæskunnar í framleiðslustörfum þjóðarinnar. Stéttamunur er hér ekki meiri en svo, að það þykir sjálfsagt, að allir framhaldsskólanemendur fari til sumarstarfa, taki þátt í lífsbaráttu þjóðarinnar. Þetta er okkar aðalsmerki og góður grundvöllur gagnkvæms skilnings og lýðræðislegs þroska. Æska íslenzku þjóðarinnar býr við hagkvæm þroskaskilyrði til menntunar og heilbrigðrar þátttöku í atvinnulífinu og hefur góða aðstöðu til þess að öðlast snemma skilning á réttindum og skyldum einstaklingsins í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Ef aðrar þjóðir hafa ástæðu til þess að lækka kosningaaldur niður fyrir 21 ár, þá höfum við það líka. Þetta hafa sumar þjóðir þegar gert, og hefur það verið rakið í grg. með till.
Ég vil að lokum upplýsa, að fyrir þingi Norðurlandaráðs 1963 lá till. um áskorun á ríkisstj. Norðurlanda um lækkun kosningaaldurs. Till. var að vísu meðal aðaldeilumála þingsins. N., sem um málið fjallaði, lagðist gegn henni, en hún var samt samþ. með 29:27 atkv. Þetta sýnir okkur ljóslega, hvert stefnir í þessu efni. Málinu vex fylgi, og kosningaaldur verður lækkaður á Norðurlöndunum í náinni framtíð.
Við eigum að verða fyrstir Norðurlandaþjóðanna til þess að stíga þetta skref. Við eigum elzta löggjafarþingið og rótgróinn arf lýðræðislegrar hugsjónar. Við eigum að verða fyrstir til þess að sýna unga fólkinu það traust og þá örvun til ábyrgrar aðildar að jákvæðri þróun þjóðfélagsins, sem felst í þeirri rýmkun kosningaaldursins, sem í till. felst.
Það er því lagt til, herra forseti, að till. verði samþ. með þeim breyt., sem allshn. leggur til á þskj. 461.