20.04.1966
Sameinað þing: 38. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (2726)

166. mál, framleiðsla sjávarafurða

Flm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þessi till., sem ég flyt hér um athugun á aukinni fjölbreytni í framleiðslu sjávarafurða og eflingu þeirra iðngreina, sem vinna útflutningsverðmæti úr sjávarafla, felur það í sér, að Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að skipa þriggja manna n. til þess að gera ýtarlegar athuganir á því, á hvern hátt verði bezt að því unnið að koma á aukinni fjölbreytni í framleiðslu sjávarafurða og bæta nýtingu sjávaraflans með því að efla þær iðngreinar, sem vinna úr honum þær vörur, sem skapa mest útflutningsverðmæti. Jafnframt á n. að kynna sér það og gera till. um það, ef tök eru á, að komið verði í framkvæmd nýjum vinnsluaðferðum, svo sem frystiþurrkun og geislun með geislavirkum efnum.

Sjávarútvegurinn gegnir forustuhlutverki í íslenzku atvinnulífi, og við munum um ófyrirsjáanlega framtið verða að styðjast við sjávarútveginn sem okkar aðalatvinnuveg, þó að við eðlilega ætlum okkur að koma á fjölbreyttara atvinnulífi og eiga ekki afkomu okkar næstum eingöngu undir einni atvinnugrein. En jafnhliða því að koma upp fleiri atvinnugreinum verðum við að hugsa alvarlega um, á hvern hátt við getum bezt tryggt grundvöll sjávarútvegsins. Við getum engan veginn lagt á það höfuðáherzlu að auka sífellt aflamagnið, því að það hlýtur að vera takmörkunum háð. Við höfum á undanförnum árum byggt glæsilegan fiskiskipaflota, eins og bezt sést á því, að fyrir rúmlega tveimur áratugum, eða árið 1944, áttum við 61 fiskiskip yfir 100 rúml., samtals 15200 rúml., og 560 fiskiskip með þilfari undir 100 rúml., samtals 11700 rúml. Samanlagður fiskiskipastóll okkar var þá 621 skip og samanlögð stærð þeirra 26900 rúml. 20 árum síðar, árið 1964, áttum við 204 fiskiskip yfir 100 rúml., samtals 56600 rúml., og 648 fiskiskip með þilfari undir 100 rúml., samtals 21700 rúml. Samanlagður fiskiskipastóll okkar það ár var því 852 skip og samanlögð stærð þeirra 78300 rúml. Á þessum 20 árum hefur rúmlestafjöldi íslenzka fiskiskipastólsins hækkað úr 26900 rúml. í 78300 rúml. eða um 191%. En þessar tölur segja okkur ekki allt. Fyrir tveimur áratugum var floti okkar að verulegu leyti gömul skip og úr sér gengin. En floti okkar nú er að miklu leyti nýleg skip, búin fullkomnustu tækjum, hæði hvað öryggi snertir og veiðiskap, Það má því fullyrða, að hér hefur orðið mikil breyting og möguleikar á öflun hráefnis hafa fyllilega fylgt þróun tímans á þessum árum tækniframfara.

Aflamagnið sýnir, að svo hefur einnig verið. Árið 1944 var heildaraflamagnið 461904 tonn. Þar af var síld 221843 tonn, og var það ár mikið síldarár. Á árinu 1964 var heildaraflamagnið komið upp í 971514 tonn, en þar af var síld og loðna 553036 tonn. Á s.l. ári, árinu 1965, var heildaraflamagnið meira en nokkru sinni fyrr, eða 1198304 tonn, þar af síld og loðna 812612 tonn. Þó er eftirtektarvert, að bolfisksaflinn hefur minnkað frá árinu 1964 til 1965, og margt bendir til, að yfirstandandi vertíð verði enn þá lakari en s.l. ár.

Það er eðlilegt, að þeirri spurningu sé oft varpað fram, hvort við getum vænzt þess í framtíðinni, að aflamagnið fari vaxandi, án þess að fiskistofninn sé skertur. Vissulega hljóta að vera takmörk sett fyrir því, hversu mikið má moka upp af sjávarafla, svo að stofninn verði ekki skertur, og margir vilja halda því fram, að við höfum þegar gengið of langt með mikilli veiði. Þess vegna er ekki óeðlilegt, að a.m.k. þeir, sem tiltölulega lítið þekkja til þessa atvinnuvegar, trúi því, að honum fari hnignandi á næstu árum. Það er skoðun mín, að svo þurfi ekki að vera. Þó að aflamagnið aukist ekki frá því, sem nú er, höfum við mikla möguleika til þess að auka fjölbreytni í vinnslu sjávarafla og fara inn á víðtækara svið, vinna meira úr aflanum hér heima og gera hann að verðmeiri útflutningsvöru.

Sú grein fiskiðnaðar, sem tekið hefur mestum breytingum og hefur á undanförnum árum verið stærsti þátturinn í útflutningsverzlun okkar, er hraðfrystiiðnaðurinn. Ég get ekki stillt mig um að rekja í örstuttu máli byrjunarsögu þessarar greinar fiskiðnaðarins. Á árunum 1934—1935 fór mjög vaxandi áhugi á hraðfrystingu fisks, og var þá fiskimálanefnd sett á stofn. Eitt helzta verkefni hennar var að starfa að eflingu fiskiðnaðar í landinu. Á árunum 1934—1937 skapaðist mikið vöruaðlögunarvandamál hjá okkur Íslendingum, einkum vegna verðfalls á fiskinum og borgarastyrjaldarinnar á Spáni. Ríkisvaldið gerði á þessum tíma í samvinnu við framleiðendur mikið til þess að leysa þessi vandamál, og einn merkasti þátturinn í því var stofnun og starf fiskimálanefndar. Reynt var að afla markaða fyrir saltfiskinn í Suður-Ameríku, efla sem mest fiskiðnaðinn í landinu, og í því efni voru hraðfrystihúsin merkasti þátturinn og sá, sem borið hefur ríkulegastan ávöxt. Þegar n. hóf starf sitt, voru aðeins tvö hraðfrystihús starfandi landinu og voru þau bæði í Reykjavík. Á fyrstu árum sínum lét fiskimálanefnd frysta nokkurt magn af fiski til að gera sölutilraunir með. N. seldi freðfisk bæði til Evrópu og Ameríku, en þessar tilraunir gengu illa, og tapaðist fé á þeim. Gekk svo fram um nokkurt skeið eða þar til fiskimálanefnd gerði samning um sölu freðfisksins við enskt fisksölufyrirtæki í Grimsby. Þessi samningur var gerður árið 1936, og markaði hann alger tímamót í þessari grein og hraðfrystiiðnaði yfirleitt. Með þessu var opnaður markaður fyrir hraðfrystan fisk í Bretlandi, þó að salan væri ekki mikil fyrstu árin, en þessi markaður fór sívaxandi og svo að segja allur freðfiskurinn var seldur til Bretlands til loka heimsstyrjaldarinnar síðari.

Fiskimálanefnd kom sér upp eigin hraðfrystistöð. Hún keypti frystihús, stækkaði það og flutti í betri húsakynni. Þetta hús var nokkurs konar tilraunastöð og skóli í hraðfrystingu, þar sem ýmis tæki og vélar voru reynd og fólki kennd vinnubrögð við hraðfrystinguna. Þeirri þekkingu, sem þarna fékkst, var siðan miðlað til annarra, sem reistu hraðfrystistöðvar. N. eignaðist líka eigið kæliskip, en rekstur þess gekk ekki vel, og ollu því m.a. ýmis óhöpp. Í stuttu máli má segja, að framkvæmdir fiskimálanefndar á sviði hraðfrystingar hafi verið fólgnar í eftirfarandi:

1) N. aflaði hraðfrysta fiskinum markaðar, annaðist sölu hans og reyndi að tryggja gæði framleiðslunnar.

2) N. var ráðgefandi um störf og gerð frystihúsa, vélar og tæki, keypti nauðsynjar handa húsunum. Hún tók fisk í geymslu fyrir hús, er litlar geymslur höfðu, og var forsjá margra húsa í upphafi.

3) N. útvegaði verkvant fólk til þess að leiðbeina við hraðfrystingu í nýjum húsum.

4) N. veitti allflestum frystistöðvunum lán til að koma upp húsum þeirra, auka þau og stækka og til vélakaupa.

Fyrstu tilraunir fiskimálanefndar með sölu freðfisks gengu mjög illa. Sérstaklega voru vonbrigðin mikil með Ameríkumarkaðinn árið 1937. Þessi markaður er nú bezti markaður okkar fyrir freðfisk og hefur verið á undanförnum árum.

Sögu hraðfrystiiðnaðarins síðar er óþarfi að rekja að sinni.

Hvað viðkemur niðursuðunni, hefur þessi iðngrein aldrei orðið aðnjótandi stórrar og markvissrar fyrirgreiðslu, eins og frystiiðnaðurinn, eins og ég er búinn að geta um hér á undan. Margar sundurlausar tilraunir hafa verið gerðar í þessa átt, en oftast af miklum vanefnum. Fiskimálanefnd átti á sínum tíma aðild að stofnun niðursuðu- og niðurlagningarverksmiðju í Reykjavík, en sleppti síðan af henni hendinni. Síðan hafa verið gerðar tilraunir til að byggja upp einstakar verksmiðjur víða um land, en með mjög misjöfnum árangri og án nokkurs heildarramma. Enda er ekki hægt með réttu að tala um neinn íslenzkan niðursuðuiðnað, sem heitið getur í dag. Ef borið er saman við ýmsar aðrar þjóðir, sem stunda sjávarútveg að verulegu leyti, sjáum við þetta enn greinilegar. Árin 1961—1964 var hlutur niðursuðu í útflutningsverðmæti sjávarafurða hjá Íslendingum aðeins 0.6%, en hjá Norðmönnum 17.7% og hjá Dönum 7.1%, og hjá ýmsum öðrum þjóðum er þetta hlutfall enn þá hærra, eins og t.d. Japönum, en þar er niðursoðið fiskmeti allt að 40% af heildarútflutningi þeirra af sjávarafurðum. Ef við svo berum saman verðmæti útflutnings sjávarafurða þessara þjóða, miðað við einingu, er áberandi, að þær bera meira úr býtum en við.

Næst verður þá fyrir að spyrja, hvaða möguleika við höfum á því að byggja upp slíkan iðnað. Undirstaða alls iðnaðar hlýtur alltaf að vera gott og nægilegt hráefni. Á þessu sviði erum við Íslendingar sérlega vel settir. Við ráðum yfir eða gætum ráðið yfir miklu magni af hráefni í þessa vinnslu. Má þar telja þorsk- og ufsahrogn, grásleppuhrogn, þorsklifur, síld af öllum stærðum, krækling, kúfisk, kolkrabba, rækjur, humar, grálúðu, hámeri, háf, hvalkjöt og ýmislegt fleira. Það er fróðlegt að nefna nokkur dæmi um það, í hve stórum stíl aðrar þjóðir hagnýta sér ýmis af þessum hráefnum, sem við alls ekki berum við að nota. Árið 1962 fluttu Hollendingar út 68 þús. tonn af kræklingi, og sama ár öfluðu Danir 13500 tonna af sömu vöru. Bandaríkjamenn fluttu út 1962 3500 tonn af niðursoðnum kolkrabba, og niðursoðinn kúfiskur frá Bandaríkjunum er boðinn til sölu í verzlunum hér í Reykjavík. Það er ekki heldur neitt nýtt fyrirhæri, að nýjar vinnsluaðferðir og veiðiaðferðir valdi því, að afli, sem áður var talinn einskis nýtur, verði að mjög verðmætri útflutningsvöru. Áður fyrr var allur fiskur nema þorskur kallaður tros, því að hann var ekki hæfur í saltfisk, trosið. Nú eru margar aðrar fisktegundir verðmætari en þorskurinn. Eitt eftirtektarverðasta dæmið er þó leturhumarinn, sem til skamms tíma var alls ekki nýttur. Ef sjómenn fengu hann í veiðarfæri sín, var honum hið bráðusta varpað fyrir borð. Á síðustu árum eða frá 1961—1964 hefur útflutningsverðmæti humars og afurða úr honum aukizt úr 26.4 millj. kr. upp í 105.5 millj. kr. Enn fremur er það athyglisvert, hversu ýmsar aðrar þjóðir sækjast eftir þessum hálfunnu eða lítt unnu vörum frá okkur sem hráefni í eigin verksmiðjur.

Hér er ekki ástæða til að fara mikið út í þann verksmiðjukost, sem fyrir hendi er í dag. En óhætt er að fullyrða, að bæði húsrými og vélakostur mundi nægja fyrir stóraukna framleiðslu, ef önnur skilyrði væru fyrir hendi. Það, sem háir þessum iðnaði, er í fyrsta lagi skortur á fé, bæði stofnfé og eins rekstrarfé. Engin lánastofnun telur það sitt hlutverk að lána hagkvæm stofnlán til niðursuðuiðnaðar, og engin framleiðsla þessa iðnaðar er talin vel hæf, nema hún sé seld fyrir fram. Þá er og enn þá erfiðara að fá lánsfé til kaupa á umbúðum, hjálparefnum og hráefni, og engin samstillt samtök hafa enn getað myndazt um slik innkaup. Af þessu leiðir, að engin skipuleg söluframkvæmd hefur getað skapazt, því að söluframkvæmd, sem alltaf á að byggjast á hráefni í sjónum, en ekki tilbúinni vöru, getur aldrei orðið raunhæf, þegar um fullunna vöru er að ræða. Auk alls þessa ber svo að gæta, að söluframkvæmd verður að ske í harðri samkeppni við gömul og gróin erlend fyrirtæki, sem í heimalandi sínu njóta oft alls konar fyrirgreiðslu hins opinbera, njóta miklu þægilegri um búðaöflunar og í mörgu tilfelli hagkvæmari tollakjara en hliðstæður iðnaður hér á landi.

Þá vaknar sú spurning, til hvers sé hér að vinna. Þó að þessu sé nú að nokkru svarað hér að framan, er fróðlegt að taka tvö dæmi, sem engan veginn eru neinir loftkastalar. Ef 2200 tonn af þorskhrognum væru soðin niður í stað þess að flytja þau út frosin eða söltuð sem hráefni fyrir aðrar þjóðir, eins og nú er gert í ríkum mæli, mundi útflutningsverðmæti þeirra aukast úr ca. 38.5 millj. kr. í ca. 80 millj. kr. Að frádreginni hækkun á umbúðakostnaði við niðursuðuna nemur nettó-verðmætisaukningin um 21.6 millj. kr. Annað dæmi á sama hátt, grásleppuhrogn, ef 2200 tunnur af þeim væru lögð niður í glös í stað þess að selja þau óunnin, söltuð í tunnur, sem fara beint í vinnslu í erlendum verksmiðjum, eins og nú er að mestu gert, mundi verðmæti þeirra aukast úr ca. 11 millj. kr. í ca. 24 millj. kr., og að frádreginni hækkun á umbúðakostnaði nemur nettó-verðmætisaukningin um 8 millj. kr. Hér ber þess að gæta, að einungis eru hér tekin tvö lítil dæmi, sem hægt væri að framkvæma án nokkurrar verulegrar fjárfestingar í vélum eða byggingum. Dæmi þessi sýna ljóslega, hvernig með betri nýtingu er hægt að auka útflutningsverðmæti þess hráefnis, sem við þegar öflum, án þess að höggva árlega stærra og stærra skarð í þær hráefnislindir, sem við eigum völ á. Í báðum ofangreindum dæmum er magn það, sem miðað er við, aðeins lítill hluti þess hráefnis, sem við árlega öflum af viðkomandi tegundum.

Eitt lítið dæmi: um 1000 kg af síld, sem unnin væru á 3 mismunandi vegu. Í síldarverksmiðju sem mjöl og lýsi væri verðmæti þess 3000 kr. Í síldarsöltun að frádregnum umbúðakostnaði væri verðmætið 7000 kr. Í niðurlagningu að frádregnum umbúðakostnaði væri verðmæti þess 15 þús. krónur.

Til að gera sér nokkra hugmynd um markaðsmöguleika fyrir slíkar vörur má geta þess, að árið 1963 fluttu eftirtalin lönd inn niðursoðnar sjávarafurðir, sem hér segir: Efnahagsbandalagslöndin fyrir 3100 millj. ísl. kr., Bretland fyrir 1700 millj. ísl. kr. og Bandaríkin árið 1962 fyrir 3100 millj. ísl. kr. Flestir markaðssérfræðingar virðast vera á þeirri skoðun, að matvæli í því formi, sem þau eru auðveldast matreidd, en þar skara einmitt niðursuðuvörurnar fram úr, eigi stöðugt vaxandi vinsældum að fagna.

Ég minnist í till. einnig á tvær nýjar aðferðir við vinnslu matvæla, þ.e. frystiþurrkun og geislun með geislavirkum efnum. Tilraunir munu nú vera í undirbúningi með frystiþurrkun hér á landi, og hefur Rannsóknastofnun iðnaðarins fest kaup á tæki til þess að gera ákveðnar tilraunir í sambandi við frystiþurrkun, og eru það tveir sérfræðingar í þjónustu Rannsóknastofnunar iðnaðarins, báðir efnafræðingar, sem vinna að þessum tilraunum. Þetta er fyrsti vísirinn að því að kynna sér frystiþurrkun hér á landi. En frystiþurrkunin er í því fólgin, að matvælin eru þurrkuð frosin, án þess að þau þiðni. Vinnsluaðferð þessi er þegar notuð í framleiðslu t.d. í Bandaríkjunum, Danmörku og Bretlandi, og þegar í dag sjást innflutt frystiþurrkuð matvæli í verzlunum hér á landi. Við geislun með geislavirkum efnum eru matvælin með því gerilsneydd og geymsluþol þeirra þar með a.m.k. aukið verulega. Báðar þessar vinnsluaðferðir eru jöfnum höndum notaðar fyrir landbúnaðar- og sjávarafurðir, og tel ég ekki óeðlilegt, að n. sú, sem till. mín gerir ráð fyrir, ef hún verður að veruleika, kynnti sér einnig, hvernig hægt væri að hagnýta þær enn fremur á sviði landbúnaðarafurða.

Ég hef gert að umtalsefni nauðsyn þess að auka fjölbreytni í framleiðslu sjávarafurða og eflingu þeirra iðngreina, sem vinna útflutningsverðmæti úr sjávarafurðum, og legg á það ríka áherzlu með flutningi þessarar till. til þál., að þær leiðir, sem ég hef bent á, verði vandlega kannaðar og vel fylgzt með þróun annarra fiskveiðiþjóða um verkun og vinnslu sjávarafurða. Við megum ekki slá slöku við og verðum að vinna stöðugt að nýjum tilraunum á þessum sviðum og stefna að því að vera í röð þeirra þjóða, sem lengst eru komnar í tækniþróun á sviði matvælaframleiðslu. En þetta eitt er ekki nóg. Við þurfum einnig að selja vörur okkar og tryggja okkur sem hagkvæmasta samninga og gera okkur ljóst, hver staða okkar er í þessum efnum. Þróunin í viðskiptamálum Evrópu hefur orðið með þeim hætti, að allar Evrópuþjóðir eru nú aðilar að viðskiptabandalögum nema þrjár: Ísland, Spánn og Albanía. Það er skoðun mín, að við Íslendingar eigum hiklaust að gerast aðilar að Fríverzlunarbandalaginu, EFTA. Við getum á engan hátt staðið utan við viðskiptabandalög til lengdar, og við verðum að gera okkur það ljóst, að innan ekki langs tíma verðum við hraktir af þeim mörkuðum, sem við höfum nú í VesturEvrópulöndum, með því að innflutningstollar EFTA-landanna og Efnahagsbandalags Evrópu á vörum frá þjóðum utan þessara bandalaga fara sífellt hækkandi, á sama tíma sem þessar þjóðir stefna óðfluga að því, að tollar sín á milli fari lækkandi og verði engir innan ekki langs tíma. Á sama tíma og þjóðir Evrópu gerast aðilar að viðskiptabandalögum, hlýtur það að vera varhugavert fyrir þessa litlu þjóð að sitja hjá og hafast ekki að í neinni alvöru, vegna þess að hún er sundurþykk og yfirleitt þeir aðilar, sem þessi mál varða mestu, eru að verulegu leyti skoðanalausir allt fram að þessu. Við eigum þó að vera þess minnugir, hvernig ástandi útflutningsmála okkar var komið, þegar kreppan skall á og við vorum varnarlausir vegna einhliða framleiðslu og einhliða markaðslanda. Ég tel, að erfiðleikar þeir og annmarkar þeir, sem taldir eru á aðild okkar að slíkum samtökum, vaxi ýmsum óþarflega í augum, en í því sambandi er aðallega minnzt á þrennt, þ.e. vandamál iðnaðarins, viðskiptin við jafnkeypislöndin og áhrif tollalækkana á fjárhag ríkisins.

Að sjálfsögðu mundu skapast ýmsar tilfærslur innan iðnaðarins. En ég tel, að með aðstoð til vinnuhagræðingar, lækkun aðflutningsgjalda á hráefni umfram fullunna vöru o. fl. væri auðvelt að leysa vandann.

Hvað viðkemur viðskiptum við jafnkeypislöndin, má fyrst geta þess, að ýmis þeirra hafa óskað þess, að hætt yrði við núverandi viðskiptafyrirkomulag og viðskiptin afreiknuð í frjálsum gjaldeyri. Þetta hefur verið þróunin í þessum málum a.m.k. síðustu 15 árin. Annað er hitt, að þessi viðskipti hafa nú í dag miklu minni þýðingu en þau höfðu fyrir nokkrum árum. Árið 1959 námu þessi viðskipti 1/3 af heildarútflutningsviðskiptum okkar, en árið 1965 ekki nema aðeins 1/7 hluta þeirra.

Hvað viðkemur þriðja atriðinu, áhrifunum á tekjur ríkissjóðs, er tvímælalaust hægt að bæta það upp á annan hátt, t.d. með söluskatti, sem legðist jafnt á erlendar vörur sem innlendar.

Ég hef nú hér rakið nokkuð þau vandamál, sem skapast við aðild okkar að slíkum samtökum. En nú skulum við líta nokkuð á, hvaða vandamál skapast við að standa utan við þau.

Vegna tollhækkana og jafnvel þess, að núverandi tollkvótar falla í burtu, stöndum við svo illa að vígi í samkeppninni, að telja má víst, að við verðum alveg hraktir út af þessum mörkuðum. Má þegar sjá þessa þróun í útflutningsverzlun okkar á viðskiptunum við Bretland og V-Þýzkaland. Árið 1961 tóku Bretar 23.6% af útflutningi okkar, en árið 1964 ekki nema 17.5%. Árið 1961 tóku Þjóðverjar 10.5%, en árið 1964 ekki nema 8.6%. Spurningin verður þá einfaldlega sú. hvort við höfum efni á því að treysta eingöngu á aðra markaði. Þá ber þess að geta, að mörg viðskiptalönd okkar, Austur-Evrópuríki, svo sem Rússland og Pólland o.fl., stefna markvisst að því að auka fiskveiðar sínar og verða sjálfum sér næg á því sviði, og þá eru ekki aðrir markaðir eftir en Bandaríkin og svo ýmis af þróunarlöndunum.

Ég ætla ekki að eyða lengri tíma í framsögu fyrir þessari till. Það mætti tala nm þessi mál miklu lengra mál, en ég ætla að fara að ljúka þessum orðum. Tilgangur minn með þessari till. er að vekja athygli á því, að það hefur ekki verið nóg gert af því að efla nýjar iðngreinar á sviði sjávarafurða, og það, sem ég átti við með því að minna á upphaf baráttunnar fyrir að koma hraðfrysta fiskinum á markað erlendis, er það, að fyrir mér vakir, hvort ekki sé aftur hægt að gera stórt átak til þess að tryggja framgang niðursuðuiðnaðarins á Íslandi. Sá er tilgangur minn með þessari till., sem ég vænti að hv. alþm. taki vel og telji hana þess virði, að slík nefnd, sem till. gerir ráð fyrir, verði stofnuð og hún kanni þessi mál, því að hér er um mikilvæg mál að ræða og mikið starf að vinna.

Herra forseti. Að lokum legg ég til, að þessari till. verði vísað til hv. fjvn.