25.03.1966
Sameinað þing: 33. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (2753)

159. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Háttvirtu hlustendur. Vegna þess, hve tíminn er takmarkaður í þessum umr., mun ég einskorða mál mitt við samningagerð ríkisstj. um álbræðslu á Íslandi, en meðráðherrar fjalla um önnur mál. Ég mun hafa þann hátt á, jafnframt því sem ég vík að efni ræðu hv. 1. þm. Austf., Eysteins Jónssonar, varðandi þetta mál, að svara þm. stjórnarandstöðunnar fyrir fram, svo líklegt þykir mér, að lítið nýtt muni fram koma í málflutningi þeirra.

Stjórnarflokkarnir höfðu gert stjórnarandstöðunni grein fyrir, að frv. til laga um álbræðslu yrði lagt fram í þinginu í næstu viku og að stjórnarflokkarnir óskuðu eftir útvarpsumr. um málið. Á þessu stigi kaus stjórnarandstaðan að bera fram vantraust áður og óska útvarpsumr. um það. Þm. stjórnarandstöðunnar hafa að vísu allir fengið afhenta fyrirhugaða samninga um álbræðslu, en í trúnaði, þar til málið yrði formlega lagt fyrir Alþingi. Af þessum sökum ræði ég ekki einstakar greinar samninganna, en fjalla um málið almennt.

Andstæðingarnir munu segja í fyrsta lagi, að við vanmetum aðrar atvinnugreinar. Gegn þessu talar allsherjaruppbygging síðustu ára, hvar sem er litið í atvinnulífinu, enda mun tilkoma nýs atvinnuvegar styðja hina eldri, en ekki lama. Enda sagði Eysteinn Jónsson áðan, að í öllum áttum væru framtaksamir menn með stórar fyrirætlanir í þjóðlífinu og þjóðfélaginu. Ræðupartur Eysteins Jónssonar hér áðan um vanmat okkar á öðrum atvinnugreinum var sáraómerkileg tugga á því, sem Tíminn hefur verið að klifa á undanfarið, og hreinlega ekki svaraverður.

Í öðru lagi er sagt, að álbræðslan muni taka vinnuaflið frá öðrum atvinnugreinum. Jafnhaldlaus rök eru fyrir þessari mótbáru. Gert er ráð fyrir því, að álbræðsla geti tekið til starfa á árinu 1969 og verði síðan stækkuð upp í full afköst, sem náist á árinu 1975. Þá er gert ráð fyrir, að um 450 manns muni starfa við fyrirtækið. Á tíu ára tímabilinu til 1975 er hins vegar gert ráð fyrir því, að fjölgun vinnandi fólks í landinu muni nema tæpum 17 þús. manns. Álbræðslan mun þannig aðeins taka til sín 3% vinnandi fólks á landinu íþjónustu álbræðslu, en árið 1975 yrði um 1/2% vinnandi fólks á landinu í þjónustu álbræðslu.

Allir sjá, að þetta skiptir litlu máli fyrir mannaflaþörf annarra atvinnugreina og sennilega allra sízt sjávarútvegs, þar sem mannaflaþörfin fer mjög lítið vaxandi, en stærri og afkastameiri framleiðslutæki og aukin tækni eru nú meginundirstaða þeirrar framleiðsluaukningar, sem þar á sér stað.

Að sjálfsögðu skapast nokkur vandamál með vinnuafl, meðan verksmiðjan er í byggingu, og þó mest á árinu 1967. Úr slíku vandamáli mætti m.a. leysa, ef menn vildu, þar sem um tímabundið viðfangsefni er að ræða, með erlendu vinnuafli, eins og íslenzk löggjöf gerir ráð fyrir og við höfum oft áður gripið til. Aðrar ráðstafanir koma að sjálfsögðu til álita, og hefur ríkisstj. það mál til vandlegrar athugunar.

Í þriðja lagi er sagt, og það sagði Eysteinn Jónsson áðan, að rafmagnssamningurinn sé óhagstæður. Hann bar það fyrir sig, að Ingólfur Jónsson hefði sagt á þingi í fyrra, að enda þótt virkjað væri við Búrfell án álbræðslu, þá mundi rafmagnið aðeins verða lítið eitt dýrara. Kann að vera, að Ingólfur Jónsson hafi látið slík orð falla. Eitthvað hefði nú verið viðkunnanlegra, að Eysteinn Jónsson hefði komið með einhverja útreikninga í þessu sambandi af eigin hálfu, en á s.l. þingi lágu ekki fyrir þeir útreikningar, sem liggja fyrir núna, og ekki sú vissa, sem nú er fyrir í þessu efni. Það hafa verið lagðir fram og þm. látnir í té í þingmannanefndinni ýtarlegir útreikningar Landsvirkjunar á því, að Búrfellsvirkjun í Þjórsá er miklu hagstæðari með álbræðslu en án hennar. Eysteinn Jónsson vitnaði til og var að tala um, að það væru útreikningar mínir um raforkuverðið. Ég hef enga útreikninga gert á raforkuverðinu. Það eru sérfræðingar, sem hafa gert þessa útreikninga, og Landsvirkjun hefur látíð þessa útreikninga í té. Samt sem áður leyfir Eysteinn Jónsson sér að segja, að dæmi mitt sé skreytt og skrumkennt. Menn berja höfðinu við steininn. En samkvæmt þeim útreikningum, sem frá sérfræðingum liggja fyrir, er svo miklu hagstæðara að virkja með álbræðslu, að raforkuverðið til almennings mundi á árunum 1969—1975 verða 62% hærra, ef álbræðsla væri ekki byggð, 22% hærra á árunum 1976—1980, en 12% á árunum 1981—1985, og yfir allt tímabilið frá 1969—1985 mundi raforkuverð til almennings þurfa að vera nærri 30% hærra að meðaltali, ef Búrfellsvirkjun væri framkvæmd án rafmagnssamnings við álbræðslu.

Sé litið á áætlaða rekstrarafkomu Landsvirkjunar fram til ársins 1985, eins og hún mundi vera skv. hvorri leiðinni fyrir sig, með eða án álbræðslu, kemur í ljós, að samanlagður tekjuafgangur Landsvirkjunar til ársins 1985 mundi án vaxta — án vaxta, og ég tek það sérstaklega fram — verða 700 millj. kr. meiri, ef gerður yrði rafmagnssamningurinn við álbræðslu.

Ég hef að vísu sagt einnig annað, að kostnaðarverð viðbótarorku með álbræðslu, miðað við kostnað án álbræðslu, væri svo miklu hagstæðara, að safnazt mundu á árunum 1969—1985 í sjóð um 860 millj. kr., ef munurinn væri árlega lagður á 6% vexti. Bæði dæmin eru jafnrétt.

Allt eru þetta óhrekjandi staðreyndir, enda er engin tilraun gerð til þess að hrekja þessar tölur, þó að þær hafi verið settar fram opinberlega.

Ef allur hagnaðarmismunurinn á því að byggja Búrfellsvirkjun með álbræðslu í stað þess að byggja hana án hennar væri lagður í nýja stórvirkjun í vatnsföllum landsins á móti 50% lánsfjáröflun annars staðar frá, þá mundi það nokkurn veginn nægja t.d. fyrir virkjun Dettifoss.

Fyrstu 25 árin yrðu tekjur af raforkusölu til álbræðslu um 400 millj. kr. hærri en samanlagðar greiðslur vaxta og afborgana af Búrfellsvirkjuninni allri ásamt varastöðvunum. Samt er sagt, að rafmagnssamningurinn rísi ekki undir kostnaði af þeim hluta virkjunar, er ætlaður væri í álbræðslu.

Einnig er sagt, að ekki sé tekið tillit til varastöðvanna, þó að kostnaðurinn af byggingu og rekstri þeirra sé með í útreikningunum og það dyljist engum, sem vita vill. Það er sagt, að ekkert sé að marka áætlanirnar, því að verðhækkanir og verðbólga muni leiða til þess, að kostnaðurinn af Búrfellsvirkjun hækki svo mikið. Samt er það vitað, að nú er ekki lengur byggt á áætlunum, heldur að langmestu leyti á föstum kostnaði, sem fyrir liggur, eftir að tilboð hafa borizt í Búrfellsvirkjun, og við vitum, hver kostnaðurinn muni vera.

Einnig er þess að geta, að álbræðslan mundi greiða alla raforkuna, sem hún kaupir, í dollurum allan tímann, svo að vaxi verðbólgan í landinu, krónan minnki og verði jafnvel felld, þá hækkar greiðslan fyrir rafmagnið að krónutali, vegna þess að hún er gengistryggð eða í traustustu erlendri mynt.

Einnig er sagt, að ekki sé reiknað með kostnaði af ísvandamálinu. Nú liggur fyrir skýrsla Landsvirkjunar um það, að þetta vandamál hefur verið leyst á vísindalegum grundvelli í sambandi við ýtarlegar rannsóknir Vatns- og hafnarannsóknarstofnunar tækniháskólans norska í Þrándheimi og á grundvelli skýrslu og þeirrar formúlu, sem norsku ísafræðingarnir dr. Devin og Kanavin hafa gert, en íslenzkir verkfræðingar og amerískir hafa ráðið fram úr hinum tæknilega vanda. Vitna ég til skýrslu Landsvirkjunar og annarra upplýsinga, sem birzt hafa almenningi.

Ég hef nú minnzt á þrjú atriði, sem mótbárur andstæðinganna eru byggðar á: viðhorfið til annarra atvinnugreina, vinnuaflið og raforkusamninginn. En þeir munu í fjórða lagi segja, að það sé hættulegt að hleypa erlendu fjármagni inn í landið, það heyrðum við áðan, þjóðfrelsinu stafi af því voði og við fyrirgerum sjálfstæðinu. Ef menn treysta ekki sjálfum sér, treysta ekki Íslendingum í samskiptum við erlenda, þá er kannske ekki von, að menn haldi, að við séum menn til að varðveita sjálfstæði okkar. Við Íslendingar höfum á undanförnum árum í sívaxandi mæli átt pólitísk samskipti við erlenda aðila á erlendum vettvangi, í Atlantshafsbandalagi, í Evrópuráði, Norðurlandaráði og í vettvangi Sameinuðu þjóðanna, í margháttuðum milliríkjaskiptum, og ég fullyrði, að við höfum alls staðar haldið okkar hlut og varðveitt okkar sóma. Er ástæða til að ætla, að við séum ekki menn til þess að semja við erlenda aðila um rekstur eins fyrirtækis hér á landi, sem þar að auki er skorinn mjög þröngur stakkur um aðstöðu hérlendis og mun ekki njóta nema takmarkaðra réttinda, enda ekki sótzt eftir nema takmörkuðum réttindum, eins og samningar munu bera með sér?

Mér finnst, að þeir með minnimáttarkenndina eigi að láta huggast.

Svo einkennilega vill líka til, að sumir þeirra voru ekkert hræddir við þessi erlendu áhrif, ef álbræðslan væri staðsett við Eyjafjörð eða annars staðar utan þéttbýlisins. Bréf þingflokks Framsfl. til iðnmrh. 8. des. 1964 ber m.a. þetta með sér. Eftir að þingflokkurinn hafði haft til athugunar skýrslur ríkisstj., sem honum voru afhentar 23. nóv. sama ár, þar sem í voru ráðagerðir um hina erlendu álbræðslu í sambandi við stórvirkjun, þá segir í bréfi Framsfl. m.a.: „Flokkurinn telur rétt, að athugaðir séu í sambandi við stórvirkjun möguleikar á því að koma upp alúminíumverksmiðju.“ Og hér er átt við álbræðslu þeirra erlendu aðila, sem nú er samið við. Hitt var að vísu jafnframt tekið fram í bréfi flokksins, að flokkurinn legði á það megináherzlu, að hann teldi, að slíkri verksmiðju bæri, ef til kæmi, að velja stað með það fyrir augum, að starfsemi hennar stuðlaði að jafnvægi í byggð landsins, en verksmiðjan er jafnt eign erlends fyrirtækis, hvar sem hún er staðsett.

Sama kemur fram í ályktun bæjarstjórnar Akureyrar frá sínum tíma, þegar ályktað var að skora á ríkisstj., að samið yrði við útlendinga um að reisa álbræðslu við Eyjafjörð. Sama kemur reyndar einnig fram í ályktun hinna ágætu forustumanna Þingeyinga, sem héldu fund í janúarmánuði og gerðu ályktun varðandi þetta mál, en í þeirri ályktun felst einmitt, að það sé rétt, eins og þar segir, að semja við erlenda aðila um stórbrotna atvinnuuppbyggingu, ef slíkur atvinnurekstur er staðsettur þannig, að það stuðli að búsetu og fjármagnsmyndun í þeim landshlutum, þar sem nauðsyn er að efla byggð vegna jafnvægis í þjóðarbúskapnum, eins og sagði í ályktuninni. Það er sem sé engin minnimáttarkennd í Þingeyingum, enda munu þeir þegar hafa ráðið við sig að styðja og gerast hluthafar í kísilgúrverksmiðju við Mývatn í samfélagi við amerískt fyrirtæki, ef samningar takist, og telja sér til hagræðis, að alerlent fyrirtæki til sölu á kísilgúrnum yrði staðsett og til heimilis í Húsavík.

Þá kem ég að fimmtu mótbárunni, að það hefði átt að staðsetja bræðsluna annars staðar og þá helzt fyrir norðan. Ríkisstj. lagði áherzlu á, að kannaðir væru til hlítar möguleikar á því að staðsetja verksmiðjuna fyrir norðan og þá helzt við Eyjafjörð, vegna þess hve ríkisstj. telur mikilvægt, að gætt sé jafnvægis, svo sem verða má, milli byggðarlaga. Aðstaða til þess reyndist ekki vera fyrir hendi vegna þess, hve það hefði orðið miklu kostnaðarsamara, virkjun þar hundruðum milljóna króna dýrari og bygging álhræðslu einnig kostnaðarsamari.

Ríkisstj. ákvað hins vegar, þegar ekki var fyrir hendi fjárhagsleg aðstaða til þess, að verksmiðjan yrði byggð fyrir norðan, að undirbúa fyrir Alþingi frv. til 1. um atvinnujöfnunarsjóð eða framkvæmdasjóð strjálbýlisins, sem hefði þann tilgang að veita lán og styrki til framkvæmda í þeim landshlutum, þar sem brýn þörf er fjölhættara atvinnulífs og skilyrði að öðru leyti fyrir hendi til arðbærra framkvæmda, er séu til þess fallnar að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Frv. um þessa sjóðsmyndun verður lagt fyrir Alþingi. En einn megintekjustofn sjóðsins yrði skattgreiðslur frá álbræðslu, ef reist yrði. Mun fjmrh. gera nánar grein fyrir þessu máli í þessum umr. Þetta teljum við skynsamlegra sjónarmið og líklegra til þess að verða landsmönnum að liði almennt heldur en sú ráðstöfun að leggja hundruð milljóna króna byrði á þjóðina til þess eins að geta staðsett álbræðsluna á tilteknum stað.

Þið munuð í sjötta lagi heyra þær mótbárur stjórnarandstöðunnar, að bygging álbræðslu nú sé ekki tímabær, enda þótt hún gæti síðar meir orðið til mikillar blessunar fyrir landslýðinn. Vist er eitt, að við höfum ekkí tíma til að fresta virkjun fallvatnanna. Búrfellsvirkjunina yrðum við þá að ráðast í án álbræðslu með stórkostlegu fjárhagslegu óhagræði fyrir okkur sjálfa, eins og ég hef áður geri grein fyrir. Eru menn svo alveg vissir um, ef við frestum nú samningum um álbræðslu, að þeir stæðu okkur til boða síðar? Ég skal ekkert um það fullyrða, en fróðir menn telja, að það kunni að vera stutt í land, að önnur orka en vatnsaflið verði ódýrari til framleiðslu rafmagns, og er þar átt við kjarnorku.

Ég hef nú farið nokkrum orðum um ýmsar þær helztu mótbárur gegn byggingu álbræðslu, sem þið heyrið fram koma hér í umr. í kvöld og hafið heyrt dálítið þegar í stað. Ýmist eru þær veigalitlar eða beinlínis rangar, af því að menn vita ekki eða vilja ekki vita staðreyndir í málinu.

Eftir að hafa svarað mótbárum andstæðinganna gegn því, að reist verði álbræðsla á Íslandi, væri eðlilegt að spyrja: Hvers vegna er talið rétt að reisa álbræðslu, og hver eru meginrökin með því? Hugleiðingar um stóriðju á Íslandi í einu eða öðru formi eru sprottnar af nauðsyn þess að tryggja nógu mikinn vöxt þjóðarbúskapar okkar. Samhliða hefur verið talið, að stóriðja í formi orkufreks iðnaðar, eins og álbræðsla er, sé forsenda þess, að við getum hafið stórvirkjanir í fallvötnum landsins, sem taldar eru hagkvæmastar og gefa landsmönnum því kost á ódýrasta rafmagni. Ég skal nefna nokkur dæmi um augljósan hag okkar: 1) Það mundi hafa mjög hagstæð áhrif á þróun raforkumála í landinu, orkuvinnslu í fallvötnum landsins. 2) Það mundi hafa mjög hagstæð áhrif á gjaldeyrisöflun okkar og þjóðartekjur. 3) Skattgreiðslur álbræðslu yrðu verulegar og gætu lagt grundvöll að fjáröflun til styrktar atvinnuþróun í landinu, þar sem þess væri sérstaklega þörf til þess að auka jafnvægi milli byggðarlaga. 4) Álbræðsla hérlendis er líkleg til þess að hafa örvandi áhrif á almenna iðnvæðingu í landinu. 5) Með byggingu álbræðslu við Straumsvík sunnan Hafnarfjarðar yrði byggð stór og örugg höfn, sem gæti komið að margvislegum öðrum notum en fyrir álbræðsluna sjálfa, bæði meðan álbræðslan er starfrækt og einnig síðar, eftir að starfrækslu hennar væri lokið. 6) Með því að leyfa erlendum aðilum að reisa álbræðslu fyrir eigið áhættufé er frá engum öðrum tekið neitt fjármagn, en þvert á móti mundi bygging álbræðslunnar og rekstur hennar hafa hagstæð áhrif á öflun fjármagns til annarra framkvæmda og annarra atvinnugreina.

Ég vík nú nánar að hverju þessara atriða. Hinn mikil hagnaður, sem í því felst að gera samning við álbræðslu nú um sölu á rafmagni, liggur einfaldlega í því að geta miklu fyrr en ella nýtt til tekjuöflunar fyrir þjóðarbúið stórfellda raforkuframleiðslu, sem ella væri ekki markaður fyrir. Þetta mun svo aftur hafa í för með sér örari uppbyggingu rafmagnsframleiðslunnar í framtíðinni, ásamt þeim margvíslegu efnahagslegu tækifærum, sem í því felast. Um 22 árum eftir að Búrfellsvirkjunin við Þjórsá tæki til starfa með raforkusölu til álbræðslu verða öll lán hennar fullgreidd, svo að allar tekjur frá álbræðslunni vegna raforkusölu, að frádregnum tiltölulega litlum árlegum rekstrarkostnaði, mundu þá vera hreinn greiðsluafgangur fyrir raforkukerfið, en gert er ráð fyrir því, að álbræðslan muni greiða fyrir rafmagnið á annað hundrað milljónir króna árlega.

Eysteinn Jónsson sagði hér áðan, að allt fjármagnið færi út úr landinu. Jú, það er alveg rétt, hagnaðurinn fer út úr landinu. En hann kom líka utan frá til þess að reisa verksmiðjuna og reka hana og hafa áhættuna af því að reka hana. Svo spyr Eysteinn Jónsson: Hvernig lízt mönnum á að byggja bátaflotann svona, að allur hagnaðurinn fari út úr landinu? Hafa útlendingar byggt okkar bátaflota? Nei, það eru landsmenn sjálfir, og þess ve5na njóta þeir hagnaðarins af því. Svona finnst mér, að menn þurfi ekki að spyrja og ekki vera með svona látalæti.

Ef litið er á gjaldeyris- og þjóðartekjur í sambandi við álbræðsluna, koma til álita eftirfarandi atriði: Hreinar gjaldeyristekjur af 60 þús. tonna álbræðslu reiknast 300—320 millj. kr. Miðað við mannaflaþörf við rekstur hennar reiknast hreinar gjaldeyristekjur á mann um 700 þús. kr. á ári. Sennilega eru samsvarandi tölur í sjávarútveginum um 250—300 þús. kr. á mann á ári. Miðað við reynslu okkar er líklegt, að þjóðartekjur séu um fjórum sinnum meiri en hreinar gjaldeyristekjur, sem þær grundvallast á. Skv. þessu má ætla, að álbræðslan skapi svigrúm til aukinnar aukningar þjóðartekna, er nemi allt að 1200 millj. kr., sem dreifast um hagkerfið í heild. Skattgreiðslur álbræðslunnar eru verulegar. Aðalskattgreiðslan fer fram í formi framleiðslugjalds á hvert tonn málms, sem framleiddur er. Það er misskilningur, að álbræðslunni sé ætlað að njóta skattfríðinda. Framleiðslugjaldið er reiknað á grundvelli gildandi skattalaga og miðað við það, hvað fyrirtækinu mundi verða geri að greiða samkvæmt þeim. Það hefur hins vegar verið talið hagræði, að skattgreiðslan færi fram í þessu formi. Er það álit bæði innlendra sérfræðinga á þessu sviði og einnig erlendra, sem leitað hefur verið um álits þar að lútandi. Þetta fyrirkomulag hefur ekki heldur orðið neitt deiluatriði í þessu máli við undirbúning þess. Miðað við full afköst, 60 þús. tonn á ári, yrði skattgjaldið rúmar 50 millj. kr. fyrst, en færi hækkandi skv. ákvæðum samningsins, þar sem greiðslan á tonn lækkar verulega, eftir því sem á líður og afskriftartími verksmiðjunnar er á enda, en hæst kemst skattgjaldið eftir 15 ár í 35 dollara á tonn. Skattgjaldið gæti þá úr því orðið allt að 100 millj. kr. á ári. Eins og ég hef áður gert grein fyrir, er gert ráð fyrir, að það renni til atvinnujöfnunarsjóðs, sem á að vinna að atvinnuaukningu til jafnvægis íbyggð landsins, eins og það er orðað, að frádregnum þeim hluta þess, sem rennur til heimasveitar, þ.e. Hafnarfjarðar, og iðnlánasjóðsgjaldi.

Samhliða uppbyggingu álbræðslu yrði byggð höfn við Straumsvík, og hið erlenda fyrirtæki borgar kostnaðinn af henni. Er hún hluti Hafnarfjarðarhafnar, sem nú tekur einnig yfir þetta svæði. Samhvæmt ráðgerðum samningi greiðir álbræðslan, eins og ég sagði, kostnaðinn við byggingu hafnarinnar, ábyrgist viðhaldskostnaðinn og hefur þá forgangsrétt til notkunar hafnarinnar. Áætlanir um kostnað þessarar hafnarbyggingar í dag munu nema um 100 millj. kr., en reynist kostnaðurinn meiri, greiðir álbræðslan hann engu að síður á 25 ára tímabili.

Hafnarfjörður hefði að sjálfsögðu mestan beinan hag af þessari hafnargerð, en ég tel, að hún mundi í framtíðinni að öðru leyti hafa mikið þjóðhagslegt gildi.

Það liggur mjög nærri að álykta, að bygging og rekstur álbræðslu mundi geta haft veruleg áhrif til góðs á eflingu iðnvæðingar almennt í landinu. Skapast mundu tækifæri til þess að koma upp í landinu vinnslu úr áli, einkum til innanlandsnotkunar. Eitt af því, sem háir íslenzkum iðnaði, er hráefniskostnaður, þar sem flest hráefni eru hér innflutt og mun dýrari en í þeim iðnaðarlöndum, sem við er keppt. Mér er kunnugt um, að íslenzkir iðnrekendur tengja töluverðar vonir við byggingu álbræðslu frá því sjónarmiði, að hún geti skapað mikilvæg ný tækifæri, sem í því fælust, að ál gæti orðið hér jafnódýrt eða ódýrara en í nágrannalöndunum.

Loks er að því að víkja, að allt fjármagnið til byggingar álbræðslu kæmi frá erlendum aðilum, allt að 2500 millj. kr. eða þar um bil. Það er því frá engum innlendum aðila tekið né heldur hagnýttir til þess lánsmöguleikar, sem draga mundu úr öðrum lánsmöguleikum til eflingar íslenzku atvinnulífi. Þvert á móti er það augljóst, að bygging álbræðslunnar með þeim kostum, sem henni eru samfara, mikilli gjaldeyrisöflun, verulegri aukningu þjóðartekna, mundi skapa nýja möguleika til aukinnar lánsfjáröflunar af hálfu Íslendinga sjálfra öðrum atvinnugreinum til uppbyggingar og hagræðis.

Auðvitað verður ekki fram hjá því komizt, að nokkur áhætta gæti verið því samfara fyrir Íslendinga, að byggð yrði hér álbræðsla. Í allri samningagerðinni við hina erlendu aðila hefur af Íslendinga hálfu verið leitazt við að draga sem mest úr sérhverri slíkri áhættu. Lögð hefur verið áherzla á það, að hið svissneska fyrirtæki tæki á sig miklar skuldbindingar í þessu sambandi, svo að hagur Íslendinga væri sem bezt tryggður og tekjur af álbræðslunni fyrir íslenzka þjóðarbúið öruggar og jafnar.

Mikilvægast í þessu málefni eru ákvæðin um lágmarksgreiðslur fyrir raforku, sem þýðir, að álhræðslan er skuldbundin til þess að greiða fyrir þá raforku, sem um er samið að selja henni, hvort sem hún þarf á henni að halda eða ekki. Gilda þessi ákvæði, á meðan samningurinn er í gildi.

Í öðru lagi yrði hið svissneska fyrirtæki skuldbundið til þess að lækka aldrei framleiðslu álbræðslunnar á Íslandi meira hlutfallslega en annarra álbræðslna sinna að samanlögðu. Þetta þýðir, að lækkun framleiðslu vegna sölutregðu t.d. mun aldrei bitna á álbræðslunni á Íslandi umfram aðrar, sem í eigu fyrirtækisins eru.

Þessi ákvæði, um fasta lágmarksgreiðslu fyrir raforku og stöðuga framleiðslu, eiga að tryggja það, eins og bezt verður á kosið, að atvinnu- og skattgreiðslur og aðrar tekjur af álbræðslunni verði jafnar og öruggar.

Ég tel óhætt að fullyrða, að skuldbindingar hins svissneska fyrirtækís séu yfirleitt miklu meiri en almennt tíðkast um atvinnurekstur útlendinga og óvenjulega fast um búið, að fyrirtækið skili öruggum tekjum í þjóðarbúið. Það er ekki ósennilegt, að hægt hefði verið að fá einhver af hinum fjárhagslegu atriðum samninganna eitthvað hagstæðari, ef slakað hefði verið á hinum hörðu kröfum um skuldbindingar af hálfu hins erlenda fyrirtækis. Það hefur hins vegar verið eindregið mat ríkisstj. og annarra, sem um mál þetta hafa fjallað, að nauðsynlegt væri að forðast alla áhættu í þessum efnum, svo sem kostur væri, svo að þessi framkvæmd yrði til þess að auka öryggið í þjóðartekjum Íslendinga, en ekki til þess að draga úr því.

Mál þetta hefur átt langan aðdraganda og kostað mikinn undirbúning. Ríkisstj. hefur kappkostað að láta Alþingi fylgjast vel með undirbúningi málsins og hverju hefur fram undið á hverjum tíma. Á s.l. ári hefur þingmannanefnd, valin af þingflokkunum, unnið að undirbúningi málsins til meðferðar hér í þinginu, en hún hefur verið skipuð tveimur fulltrúum allra þingflokka, en sjálfur hef ég haft með höndum formennsku þessarar nefndar. Þessi þingmannanefnd hefur haldið alls 26 fundi, og hún hefur á hverjum tíma haft aðgang að öllum gögnum þessa máls, bæði varðandi orkumál og álbræðslu. Hún hefur haft aðstöðu til þess að kynna sér nokkuð eðli og rekstur álbræðslu og kynna sér uppbyggingu og starfsemi hins svissneska álfyrirtækis. Hún hefur yfirfarið öll samningsuppköst aðalsamningsins og verið kynnt efni fylgisamninga. Hún hefur starfað eins og hver önnur þingmannanefnd að undirbúningi málsins, án hliðsjónar af afstöðu þm. í grundvallaratriðum til þess, hvort þeir teldu æskilegt, að þetta mál næði fram að ganga eða ekki.

Ég sé ástæðu til þess að þakka þingmannanefndinni fyrir störf hennar og ágætt samstarf við n. frá öndverðu. Mér er vel ljóst, að starfsemi hennar hefur á margan hátt leitt til góðs og umbóta í þeirri samningagerð, sem við höfum haft með höndum, og það er því meiri ástæða til þess, að starfsemi þingmannanefndarinnar njóti fullrar viðurkenningar af minni hálfu, þar sem ég í öndverðu var nokkuð efins um, að þátttaka allra þingflokka í henni mundi verða til þess að greiða fyrir undirbúningi málsins. Svo hefur engu að síður orðið, eins og ég sagði. Um það á hins vegar enginn misskilningur að ríkja, að sumir nm. hafa frá öndverðu verið andvígir grundvallaratriðum málsins, og síðar hefur komið í ljós, að andstaða þeirra við málið var víðtækari en mér fannst ástæða til að ætla.

Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Ég beini að lokum orðum mínum til æskufólks þessa lands, sem á að erfa landið. Meðan ætlað er, að samningurinn við hið svissneska fyrirtæki sé í gildi, mun íbúatala Íslendinga tvöfaldast. Hér mun upp úr aldamótum búa 400 þús. manna þjóð. Ég viðurkenni, að ég er bjartsýnn á framtíð þessarar litlu þjóðar, en sú bjartsýni helgast einnig af því, að við séum á hverjum tíma menn til þess að hagnýta sérstaka möguleika, sem að því stefna að treysta efnahagskerfi þjóðarinnar, og þorum m.a., ef svo ber undir, að gera samninga við erlenda aðila í sambandi við áhættufjármagn og tæknikunnáttu, ef við teljum, að þeir komi þjóðinni að gagni. Það hefur ekki ætið verið vöxtur í íslenzku atvinnulífi. Það hefur ekki ætíð verið vinnuaflsskortur hjá þessari litlu þjóð. Þeir, sem minnast atvinnuleysisáranna, hafa ef til vill ríkari ástæðu til þess en aðrir að leggja sig fram um það að gera hverjar þær ráðstafanir, sem teljast mega líklegar til þess að bægja vágesti atvinnuleysis og örbirgðar frá dyrum þjóðarinnar. Við erum að vísu litíl þjóð í harðbýlu landi, en þessi litla þjóð á mikla möguleika í ónotuðum auðlindum landsins, í vatnsafli og jarðvarma, í gróðurmold og fengsælum fiskimíðum. Íslenzka þjóðin býr yfir miklum framtíðarmöguleikum. Á því veltur, að við hagnýtum þá með hagsýni, bjartsýni og djörfung á hverjum tíma.