25.03.1966
Sameinað þing: 33. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (2758)
159. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Það er auðskilið mál, að stjórnarandstöðuflokkar vilji koma ríkisstjórn frá völdum. En til þess þarf meira en óskhyggju. Núv. stjórnarsamstarf hefur staðið óslitið lengur en áður hefur þekkzt um samvinnu flokka hér á landi. Orsökin er sú, að saman hafa farið full heilindi í samstarfi og fastmótuð heildarstefna, sem hlotið hefur staðfestingu þjóðarinnar í almennum kosningum. Ekkert gefur stjórnarandstöðunni ástæðu til að halda, að sú samstaða hafi bilað, og verður því vantrauststill. þessi naumast skilin á annan veg en að stjórnarandstöðuforingjarnir séu að kanna eigið lið og fá það staðfest, sem er ríkisstj. sízt til óþæginda, að allir þingmenn stjórnarandstöðunnar séu andvígir efnahagsmálastefnu ríkisstj. og sér í lagi því stóra átaki, sem nú er verið að gera til að stuðla að atvinnuöryggi hinnar uppvaxandi kynslóðar í landinu.
Núverandi stjórnarandstöðuflokkar vita gerla, hvernig fer, þegar flokkar efna til stjórnarsamstarfs á þeim einum grundvelli að vera í stjórn. Allur valdaferill vinstri stjórnarinnar mótaðist af sundurlyndi og þar af leiðandi fálmkenndum aðgerðum. Öll stjórnarandstaða Framsóknar og Alþb. undanfarin 6 ár hefur markazt af ótrúlegu stefnuleysi og ábyrgðarlausum málflutningi innan þings og utan, og hafa framsóknarmenn þar oft verið sýnu verri. Í byrjun var því haldið fram, að stjórnin stefndi markvisst að atvinnuleysi, og lengi opnuðu foringjar Framsóknar ekki svo sinn munn, að þeir fordæmdu ekki samdráttarstefnu ríkisstj. Nú hins vegar er það veigamesta röksemdin fyrir því, að ríkisstj. eigi að fara frá, að hún hafi misst alla stjórn á framkvæmdum og fjárfestingu í landinu og nú sé framsóknarmönnum og Alþb.-mönnum einum treystandi til þess að taka upp nógu kröftuga samdráttarstefnu. Aðeins að einu leyti hafa stjórnarandstæðingar fylgt ákveðinni línu, sem þeir hafa aldrei farið út af, og það er að taka í hverju máli þá afstöðu, er þeir töldu vinsælasta hjá þeim, er hlut átti að máli. Það má því á vissan hátt segja, að þeir hafi verið reglusamir í óreglunni. Það hefur jafnvel gengið svo langt, að framsóknarmenn hafa í kjaradeilum vissra lálaunastétta fordæmt harðlega gerðardómslausn, þótt þeir hafi staðið að flestum gerðardómsákvörðunum síðustu áratuga og um láglaunafólk hafi verið að ræða.
Ríkisstj. hefur óspart verið fordæmd fyrir vaxandi dýrtíð, en aldrei hafa launþegar borið fram svo háar kaupkröfur, að andstöðuflokkarnir hafi ekki sameinazt um að telja þær sjálfsagðar, og að dómi framsóknarmanna hefur hlutur hænda yfirleitt verið fyrir borð borinn við ákvörðun búvöruverðs.
Varðandi fjármálastefnuna hafa rækilega verið kistulagðar allar fyrri kenningar formanns Framsfl. og enginn gengið vasklegar fram í að moka yfir þær en hann sjálfur. Vissulega hafa fjárlög hækkað mikið ár frá ári af ýmsum ástæðum, sem ekki er tími til að ræða nú. Þetta hafa stjórnarandstæðingar fordæmt. En samhliða ásökunum um hækkandi ríkisútgjöld hafa þeir árlega borið fram till. um stórkostleg ný útgjöld, sem stundum hafa numið hundruðum millj., en svo greitt atkv. sem einn maður gegn allri tekjuöflun. Lengi vel var rökstuðningur fyrir þeirri afstöðu sá, að ríkissjóður hefði svo miklar umframtekjur, að út úr flæddi. Þegar svo hallarekstur verður hjá ríkissjóði á árinu 1964, er í bili blaðinu snúið við og Framsfl. flytur aðeins eina hækkunartill. við fjárlagafrv. fyrir árið 1966, en raunar mjög myndarlega, greiðir þó jafnframt atkv. og andstöðuflokkarnir báðir gegn öllum ráðstöfunum ríkisstj. til að jafna hallann á ríkisbúskapnum. Þegar spurt er: Hvað viljið þið þá gera, góðu herrar? — þá er svarað: Það er ekki okkar skylda að benda á það. Okkar réttur er sá að berjast fyrir meira fé til góðra mála og gegn allri skattaáþján. — Og nú hafa framsóknarmenn aftur náð sér á strik eftir hjásetuna við fjárlögin, því að fyrir fáum dögum lögðu þeir fram frv. um að taka af ríkissjóði 120 millj. kr. tekjur og leggja til vegasjóðs, af því að þar er um gott og vinsælt mál að ræða, og í sama dúr leggja framsóknarmenn í Nd. til, að samþ. verði frv. um hægri akstur, en felld niður ákvæði frv. um sérstaka fjáröflun til að standa straum af þeim mikla kostnaði, er nema mun um 50 millj. kr. Hér eru aðeins nefnd tvö nýjustu dæmi um framfarabaráttu Framsfl., því að mörg önnur mál eiga þeir fyrir þessu þingi, er valda mundu ríkissjóði stórfelldum nýjum útgjöldum án nokkurs tekjuauka. Og til þess að láta ekki alveg sitt eftir liggja í ábyrgri fjármálastjórn sagði formaður Alþb. á þingi fyrir fáum kvöldum, að auðvitað væri sjálfsagt að veita útgerðinni 80 millj. kr. ríkisaðstoð, en ástæðulaust væri að afla fjár í því skyni, heldur ætti þara eintaldlega að ákveða, að ríkissjóður skyldi greiða þetta, án neinna nýrra tekna.
Stjórnarandstæðingar átelja ríkisstj. mjög fyrir það, hversu marga sérskatta hún hafi á lagt síðustu árin. En þeim láist að skýra frá því, að þeir hafa verið fylgjandi öllum þeim ráðstöfunum, sem skattar þessir áttu að standa straum af. Stofulánadeild landbúnaðarins varð að efla, en það mátti ekki leggja á búvörugjald. Iðnlánasjóð varð að auka stórlega, en það mátti ekki leggja á iðnlánasjóðsgjald. Jafnvægissjóð á að mynda með því einfalda ráði að taka til hans 2% ríkistekna, þó að það sé enginn afgangur. Þannig mætti telja lengi kvölds dæmi um fjármálastefnu hinnar ábyrgu stjórnarandstöðu. Um flest umbótamál ríkisstj. hefur verið sagt, að þau gengju of skammt.
Það er dæmalaust einfalt að vera stórtækur í umbótamálum í stjórnarandstöðu, og svona málflutningur getur máske gengið, ef flokkar treysta því að fá aldrei stjórnarforustu. En þeir, sem taka hinn margbreytilega áróður stjórnarandstæðinga alvarlega, mega sannarlega ætla, að ekki verði amalegt að lifa í landinu, ef þessir tveir flokkar fá völdin. Stóraukin útgjöld til alls konar merkilegra umbótamála, minni skattar, hærri laun, lægri vextir, nóg lánsfé, meiri byggingar, minni þensla, minni verðbólga, — allt þetta og raunar enn glæsilegri tilvera bíður þjóðarinnar og umfram allt æskunnar, segir aðalhugsjónasmiður Tímans, ef þjóðin vill bara gera svo vel að feta í fótspor formanns og ritara Framsfl. einu leiðina, „hina leiðina“. Eina skýringin, sem fengizt hefur á þessari dularfulla leið, er sú, að hún merki röðun framkvæmda og þó án fjárfestingareftirlits. Þá er vissulega ekki um neitt óþekkt ráð að ræða, því að framkvæmda og fjáröflunaráætlanir ríkisstj. síðustu 4 árin hafa einmitt miðað að því að beina framkvæmdafé landsmanna að mikilsverðustu verkefnunum.
Mig hefur oft furðað á því, að jafngáfaður maður og formaður Framsfl. skuli hafa forustu um jafneinstæðan hentistefnu- og hráskinnaleik og flokkur hans hefur leikið síðustu árin. Hann sýnist vera kominn á þá skoðun, að sjónhverfingar og töfrabrögð séu lykillinu að valdastólunum, enda verður naumast önnur skýring fundin á fjármálastefnu hans en að hann sé farinn að stunda hina gömlu gullgerðarkúnst eða treysti á að finna töfrakassa, sem aldrei tæmist, þó að ekkert sé í hann látið. En hætt er við, að þar verði sá mæti maður fyrir vonbrigðum, og árangur af brögðum síðustu ára er varla uppörvandi: fyrst hræðslubandalagshugmyndin, þá kenning þeirra um landauðn og jafnvel glötun íslenzks þjóðernis, ef kjördæmin yrðu stækkuð, í síðustu kosningum „þriðja leiðin“, sem aldrei fékkst skilgreind, og hinn dæmalausi áróður um það, að framlengja ætti veiðiheimild Breta innan landhelgi og ofurselja Íslendinga Efnahagsbandalagi Evrópu, ef stjórnarflokkarnir fengju meiri hluta. Þótt nokkuð áynnist sums staðar í bili, var meiri hluti kjósenda í öllum þessum tilfellum það glöggskyggn að sjá í gegnum blekkingavefinn. En það virðist hér sem oftar, að menn læri lítið af reynslunni, og nú gerist það sorglega, að margir úr forustuliði Framsóknar tala sannarlega gegn betri vitund. Það á að reyna að gera álmálið að þjóðernismáli og ala á eðlisbundnum ótta við erlend áhrif við tilkomu einnar verksmiðju í erlendri eigu. Nú á öll landsbyggðin aftur að vera í voða, af því að það rís við Hafnarfjörð iðjuver, sem veitir 4—5 hundruð manns atvinnu. Nú hamast margir góðir og gegnir Framsóknarmenn við það að grafa sem lengst í djúp gleymskunnar ræður og greinar um blessun stóriðju og erlent fjármagn. Margendurteknar yfirlýsingar um Dettifossvirkjun og stóriðju í því sambandi henta nú ekki áróðrinum. En þeim mönnum, sem af einlægni vildu vinna að því máll og halda því fram, að álbræðsluna eigi að reisa við Eyjafjörð, vil ég segja það, að eindreginn vilji stjórnarvalda var fyrir því að beita sér fyrir þeirri lausn málsins, ef fært þætti kostnaðar vegna. Og gerðar hafa verið fullkomlega hlutlausar áætlanir og samanburður á kostnaði við staðsetningu nyrðra eða syðra. Kostnaðaraukinn við staðsetningu nyrðra, hvort heldur með virkjun Dettifoss eða við Búrfell, var allt of mikill til þess, að sú leið væri fær, ekki vegna Svisslendinga, heldur okkar vegna. Það er svo vert að hafa í huga, að þótt Búrfell sé virkjað fyrst og álbræðsla reist við Hafnarfjörð, mun það án efa flýta virkjun Dettifoss og leggja grundvöll að stóriðju nyrðra, ef menn óska.
Ríkisstj. hefur fullan skilning á nauðsyn þess að koma í veg fyrir óeðlilega röskun byggðarinnar. En sannleikurinn er sá, að tilflutningur fólks úr strjálbýli til þéttbýlis stafar ekki eingöngu og jafnvel ekki fyrst og fremst af atvinnulegum, heldur félagslegum og menningarlegum ástæðum. Aldrei áður hefur jafnmiklu fé verið varið til framkvæmda víðs vegar úti um land og nú síðustu árin, og fyrst nú hafa kerfisbundin átök verið gerð í því skyni. Ríkisstj. mun næstu daga leggja fyrir Alþ. frv. um myndun sjóðs, sem á næstu árum getur haft til ráðstöfunar hundruð millj. kr., sérstaklega til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Þegar þess er gætt, að á næsta áratug má ætla, að vinnufæru fólki fjölgi um 16—17 þús. manns, sjá menn í senn, hversu fjarstæðar eru kenningarnar um, að bygging og starfræksla álbræðslu umturni þjóðfélaginu, og hversu ábyrgðarlaust það er gagnvart hinni uppvaxandi kynslóð að gera ekki ný átök til eflingar atvinnulífi þjóðarinn til að tryggja afkomuöryggi hinna mörgu nýju vinnufæru borgara. Vissulega dettur engum í hug að efla ekki með öllum skynsamlegum hætti núverandi atvinnuvegi. En miðað við reynslu og horfur væri fullkomið ábyrgðarleysi af stjórnarvöldum að treysta því, að núverandi atvinnugreinar, sem einmitt þarf að tæknivæða enn þeir, geti tekið við allri fjölgun vinnandi fólks.
Það er dálítið kaldhæðnislegt, að stjórn landssamtaka verkalýðsins skuli mótmæla tilkomu nýs stóriðjuvers. Þá var þó skiljanlegri á sínum tíma andstaðan gegn kolakrananum, þótt óskynsamleg væri. Á sama tíma mega afskipti búnaðarþings teljast furðuleg, þegar þess er gætt, að sízt eru horfur á því, að landbúnaðurinn geti á næstu árum veitt fleira fólki atvinnu. Þótt full atvinna sé í landinu, lífskjör almennings hafi aldrei verið betri, framleiðsluaukning meiri en í flestum öðrum löndum og hlutur ríkissjóðs í þjóðartekjunum minni en viðast annars staðar, er engum ljósara en ríkisstj. sjálfri, að við ýmsar hættur er að fást í efnahagsmálum. Þótt tekizt hafi að halda áfram að bæta aðstöðuna út á við, hefur verðbólgan aukizt hættulega mikið. Verðbólga er nú mjög vaxandi vandamál íflestum nálægum löndum, og mun það tíðindum sæta, að á s.l. ári urðu verðlagshækkanir meiri í Danmörku en hér. Þótt hækkandi verðlag í viðskiptalöndum okkar geri vissulega ekki viðskiptaaðstöðu okkar betri, dregur það ekki úr nauðsyn þess að sporna gegn verðbólgunni.
Dýrtíðin er meinsemd, sem allir í orði virðast einhuga um, að þurfi að stöðva, en því miður verður minna úr andstöðunni oft, þegar á hólminn er komið. Stjórnarandstæðingar halda því óspart á lofti, að verðbólgan sé ríkisstj. að kenna. Þetta er vitanlega fullkomin fjarstæða. Verðbólgan hefur verið eitt erfiðasta vandamál ríkisstj. allra flokka í meira en tvo áratugi. Orsakir hennar eru ýmsar, en meginþættirnir eru kaupgjaldið og búvöruverðið. Í þessari baráttu hafa ýmis ráð verið reynd, bæði frjálst samkomulag og lögþvinganir í ýmsum myndum. Það er skoðun ríkisstj., að eina farsæla leiðin út úr þessum vanda sé samkomulag við áhrifaríkustu aðilana um raunhæfar og sanngjarnar aðgerðir í launa og verðlagsmálum, grundvallaðar á viðurkenningu staðreynda og fullum heilindum. Þróun kjarasamninga síðustu tveggja ára gefur vissar vonir um, að sá skilningur sé að aukast, og með auknum rannsóknum á eðli efnahagsþróunarinnar, sem mjög hefur þokað í jákvæða átt síðustu árin, á að vera auðið fyrir alla þá, sem í alvöru vilja sporna gegn verðbólgunni, að finna lausn vandans með alþjóðarhagsmuni fyrir augum.
Menn verða að venja sig af að skoða verðlags og kaupgjaldsmál gegnum pólitísk gleraugu, heldur frá raunhæfu hagsmunasjónarmiði þjóðfélagsstéttanna og þjóðarheildarinnar. Að vísu rekum við okkur þar á hinn mikla vanda að finna skiptigrundvöll þjóðartekna, en allra aðila vegna verður að finna hann.
Alger uppgjöf fyrir efnahagsvandamálunum hrakti núv. stjórnarandstöðuflokka úr stjórnarsessi haustið 1958. Síðan hefur öll orka þeirra beinzt að því að finna einhver úrræði til að koma ríkisstj., sem tók við þrotabúi þeirra, frá völdum. Hins vegar hefur þeim á 6 ára hvíldartíma gersamlega láðst sú sjálfsagða skylda stjórnarandstöðu að marka ákveðna stefnu, svo að þjóðin vissi, hvað við tæki, ef þeim væri fengin forustan. Það eru auðvitað alltaf til ævintýramenn, sem vilja kanna ókunna stigu, en meginhluti fólks vill vita, hvert það leggur leið sína, þegar afkoma þess og framtíð er í húfi. Er þess því naumast að vænta, að almennt sé fólk fúst til að fylgja leiðsögumanni, sem síðast skildi við það á barmi hengiflugs, þótt leiðsögumaðurinn siðar reyni að lokka það inn á „þriðju leiðina“ eða „hina leiðina“, meðan honum vefst jafngersamlega tunga um tönn að gera grein fyrir, hvert leiðin liggur. Ætli fólk kjósi þá ekki fremur að sinni að fylgja þeim, sem forðuðu því frá hengifluginu og hafa síðan leitt það um vegu, sem enn sem komið er a.m.k. hafa legið til aukinnar farsældar og frjálsræðis, jafnvel þótt mönnum kunni að þykja sú leið ekki ætíð nægilega auðfarin? — Góða nótt.