25.03.1966
Sameinað þing: 33. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (2759)
159. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Vantraust á ríkisstj. á djúpan hljómgrunn íbrjóstum þjóðarinnar. Væri þjóðin nú spurð, væri stjórnin fallin. Hennar líf treinist nú aðeins fyrir tilverknað handjárnaðs þingliðs. Ef aðeins 2 þm. í þingliði stjórnarinnar reyndust þeir menn að hlýða kalli sannfæringar og samvizku, væri stjórnin vissulega fallin.
Það er fyrsta skylda þingræðisstjórnar í lýðræðislandi, ef hún kemur ekki fram aðalmálum stefnu sinnar, að biðjast þá lausnar. Þessari frumskyldu hefur núv. ríkisstj. brugðizt. Hún komst fyrir löngu í algerar ógöngur og þrot með framkvæmd stefnu sinnar. Síðan hefur hún verið máttlaus, reikul og ráðalaus og allt sigið fyrir henni sífellt meir á ógæfuhlið. Allt þetta hefur verið rækilega rakið og fullsannað af stjórnarandstæðingum í þessum umr.
Sjórnarstefnan er orðin gatslitin og stagbætt flík með bót á bót ofan. Allt er orðið vafið styrkjum og uppbótum til bráðabirgða. Allir framleiðsluatvinnuvegir þjóðarinnar stynja undir afleiðingum stjórnarstefnunnar, og hörðustu fylgismenn Sjálfstfl. í forustulíði atvinnulífsins rekja harmatölur sínar og raunir í heyranda hljóði og lýsa sök á hendur ríkisstj. ýmist í sjálfu Morgunblaðinu eða í blöðum stjórnarandstæðinga. Svona ógæfulega getur ekki farið ímesta góðæri, sem yfir land og þjóð hefur komið, nema stjórnarstefnan sé alröng í grundvallaratriðum, og það er hún. Ástand atvinnuveganna er órækasta sönnun þess.
Þá er skattníðslan á almenningi og ranglætið í skattamálum vegna útbreiddra skattsvika hinna stóru slíkt, að fádæmum gegnir. Ég tek aðeins eitt dæmi. Verkamaður fékk nýlega bréf frá skattstofunni. Skattskýrsla hans sýndi, að hann hefði haft 132 þús. kr. til framfæris sér og fjölskyldu sinni, þ.e. að frádregnum sköttum og útsvari. Og nú var boðskapur embættismennskunnar þessi: Á þessu getur þú ekki lifað, góði minn. Þér verða áætlaðar tekjur og skattur, ef ekki koma upplýsingar, sem gera þetta skiljanlegt. —
En nú skal upplýst, að verkamannskaupið er 41.74 kr. á klst. eða 333.92 kr. á dag fyrir 8 stunda vinnu. Sé unnið alla virka daga ársins, þ.e.a.s. 300 daga, eru verkamannstekjur 100176 kr. Hvernig skyldi hann nú eiga að fara að því að lifa á þessari upphæð? Það virðist óráðin gáta. En vinni hann 2 tíma í aukavinnu hvern virkan dag ársins, verða tekjur hans 142500 kr. Að frádregnum sjúkrasjóðsgjöldum og öðrum slíkum gjöldum stendur hann einmitt í sporum verkamannsins, sem skattstofan sendi áminningarbréfið með 132 þús. kr. til framfæris fjölskyldunni. Sjálfsagt er það rétt, að erfitt sé að framfleyta fjölskyldu af slíkum tekjum, en þannig eru nú verkamannakjörin. Svívirðan liggur hins vegar í hinu, að honum átti að áætla skatt, honum var hótað hörðu, og það sýnir einmitt, að hér er gengið fastar fram íeltingarleik við fátæklinga en við skattsvikarana allt í kringum þá.
En hafi menn haldið, að syndamælir stjórnarinnar væri fullur orðinn, skal nú út af flóa. Á mánudaginn kemur tekur hæstv. iðnmrh., Jóhann Hafstein, handskrift sína og undirritar með fyrirvara um samþykkt Alþ. síðar samninga við erlendan auðhring, Swiss Aluminium, um risastóra alúmíníumbræðslu, sem rísa skal við Straumsvík hjá Hafnarfirði. Þess hefur greinilega orðíð vart, að menn í öllum landshlutum, öllum stéttum og flokkum bara ugg íbrjósti vegna þessa máls og þeirrar gerbreyttu stefnu, sem það boðar í íslenzku atvinnulífi gagnvart erlendu auðmagni. Menn sjá, að málið getur orðið örlagarikt fyrir framtíð þjóðarinnar. Aðvörunarraddir berast að úr öllum áttum, en stjórnin daufheyrist við, veit sig raunar í minni hl. með þjóðinni, en virðist samt ætla að treysta á flokksagann og handjárnin í þingsölunum. Margir helztu forustumenn í sjávarútvegi og fiskiðnaði hafa varað við og mótmælt fyrirhuguðum alúmíníumsamningum. Búnaðarþing, sem skipað er rosknum og ráðsettum bændahöfðingjum, gerði samþykkt gegn alúmínlummálinu og taldi málið óheillavænlegt, ef framkvæmt yrði. Einstakir bændur hafa líka látið til sín heyra, og eru þeir yfirleitt ekki taldir öfgamenn. Einn þeirra segir:
„Nú er í alúmíníummálinu kropið fyrir þjóðernislausri ófreskju, sem ekki þekkir annað siðalögmál, sem sé gullinu æðra. Henni eigum við nú að fórna með samningi um aldarfjórðungs skeið dýrmætustu vatnsréttindum landsins, fá henni börn okkar til að mala meira gull og enn meira, en þola innstreymi erlends úrkastslýðs ella, og fá henni með þessu aðstöðu til að segja fyrir, hvernig við skulum sitja og standa í landi okkar. Milljarðafyrirtæki lætur nefnilega ekki afskiptalaust, hverjir fara með völd í landinu. Þjálusta og þægustu mennirnir hljóta velþóknun þeirra, sem hjartað og pyngjan eru eitt. Gegn þessu eigum við að fá milljónatölu ísl. kr. allháa, en verðlitla nú, verðminni að ári, e.t.v. verðlausa áður en lýkur leigutímanum. Þetta allt eru tortryggilegustu viðskipti, sem átt hafa sér stað á Íslandi. Öðrum megin gullgræðgin og þorstinn óslökkvandi, hins vegar lítilþægnin, ósjálfstæðið, auðmýktin og nokkrir silfurpeningar.“
Þetta segir bóndinn. Hjá honum kveður við líkan tón og hjá Sigurði Líndal í Morgunblaðinu í fyrradag, sem skrifaði snjalla hugvekju um öfuga sjálfstæðisbaráttu, sem nú sé í hávegum höfð.
Síðan gerir bóndinn samanburð á þessum samningum og nýgerðum alúmíníumsamningi sama auðhrings við Norðmenn. Hann segir:
„Sannanirnar fyrir því, hvað samningarnir eru hraksmánarlegir, eru lagðar okkur upp í hendur. Samanburður þess, hvað Norðmönnum er boðið í sömu andrá og af sömu aðilum og Íslendingum, sýnir sig. Andskotanum er ekki réttur litli fingurinn, heldur höndin öll við fyrstu kveðjur, og hver efast þá um, að hann þrífi líka hina?“
Þið heyrið af þessu, góðir hlustendur, að þessum gáfaða bónda er heitt í hamsi. Orð hans eru einlæg og alvöruþrungin aðvörun fyrir slys. Og þannig finnur þjóðin til í þessu máli, það má stjórnin vita. En varnaðarorðin berast víðar að. Alþýðusamband Norðurlands hefur lýst yfir eindreginni andstöðu við málið. Hið sama hefur fjöldi einstakra verkalýðsfélaga gert, þ. á m. verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík, og A.S.Í. hefur vandlega fylgzt með undirbúningi þessa máls, kannað öll gögn þess undireins og tiltæk voru, rætt vinnumálahlið þess við umboðsmann alúmíníumhringsins og haft um það fleiri en eina umr. á fundum miðstjórnar. Síðan tók miðstjórn A.S.Í. rökstudda afstöðu til málsins með ályktun, sem ég tel að eigi fyllsta erindi til þjóðarinnar. Ályktun A.S.Í. er á þessa leið:
„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur, að hugsanleg samþykkt á fyrirhuguðum samningi íslenzka ríkisins og Swiss Aluminium um stofnun alúmíníumverksmiðju hér á landi mundi marka nýja og hættulega stefnu í íslenzkum atvinnumálum, þar sem horfið yrði í ríkum mæli frá þeim skráðu og óskráðu lögmálum, sem fylgt hefur verið fram til þessa, sem sé þeim, að íslenzk atvinnufyrirtæki væru byggð á íslenzku framtaki, fjármagni í eign Íslendinga eða undir þeirra ráðstöfunarvaldi og að öllu á íslenzkum lagagrundvelli, en horfið að því að veita erlendum aðilum óskoruð yfirráð yfir stórfyrirtækjum á íslenzkri grund og gera útlendinga þannig að sterkum áhrifaaðila í atvinnulífi þjóðarinnar og efnahagsþróun landsins og veita þessum aðilum að auki margs konar og mikilvæg forréttindi umfram íslenzka atvinnurekendur og jafnvel undan liggja þá í mörgum greinum íslenzkri lögsögu. Vill miðstjórn A.S.Í. beina sterkum aðvörunarorðum sínum til allrar alþýðu, til þjóðarinnar og til löggjafarvaldsins gegn þessari grundvallarstefnubreytingu í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar og lýsir eindreginni andstöðu sinni gegn henni. Með tilvísun til þeirrar túlkunar, sem frammi er höfð af forvigísmönnum hinnar erlendu stóriðju, þeirri, að með samningum við Swiss Aluminlum sé aðeins um að ræða upphaf annarra og meiri framkvæmda, sem í sömu átt stefna, er því ekki aðeins um að ræða einangraða framkvæmd, heldur fyrsta spor í þá átt að skerða efnahagslegt sjálfsforræði þjóðarinnar með vaxandi erlendri íhlutun í atvinnulífinu. Miðstjórn A. S. Í. telur, að fyrir liggi nú óyggjandi upplýsingar um fjölmörg fyrirhuguð samningsatriði við Swiss Aluminium, sem leiða hljóti til þeirrar niðurstöðu, að samningunum beri algerlega að hafna af hálfu Íslendinga. Í því sambandi vill miðstjórnin m.a. benda á eftirfarandi:
1. Raforkuverð til alúminíumbræðslunnar yrði lægra en nokkurs staðar þekkist í Vestur-Evrópu og vafalaust undir kostnaðarverði, ef litið er til framleiðslukostnaðar íslenzkrar raforku til langs tíma eða þess tíma, sem samningurinn á að gilda. Samningurinn mundi því hækka orkukostnað íslenzkra atvinnugreina, og annarra íslenzkra orkunotenda.
2. Framkvæmdir og rekstur alúminíumhringsins yrðu hafnar á tímum verðþenslu og vinnuaflsskorts í undirstöðuatvinnugreinum landsmanna og hefðu því vafalaust áhrif í þá átt að torvelda æskilega þróun þeirra og tefja almennar framfarir og framkvæmd, auk þess sem þær mundu magna verðbólgu og þannig skerða lífskjör alls almennings beint og óbeint.
3. Með tilkomu hinna erlendu stórframkvæmda væri innflutningur erlends vinnuafls jafnframt fyrirhugaður í meiri eða minni mæli og raunar beinlínis um hann samið. En slíkt hlyti að leiða af sér áður óþekkt vandamál á vinnumarkaðnum.
Hið erlenda fyrirtæki yrði sakir stærðar sinnar og fjármagns mikill áhrifaaðili um kjaramál vinnumarkaðarins og þannig beinn þátttakandi í öllum átökum um arðskiptingu í íslenzku þjóðfélagi.
6. Fyrirhugað er að veita hinu erlenda fyrirtæki margháttuð forréttindi, svo sem í tolla- og skattamálum, meðferð gjaldeyris, svo og algert frelsi til þess að flytja hagnað sinn af rekstrinum úr landi. Auk þess er fyrirhugað, að það geti skotið deilumálum við íslenzka aðila til erlends gerðardóms, en lúti ekki í þeim efnum íslenzkum lögum, nema það sjálft kjósi.
Af fyrrgreindum ástæðum ályktar miðstjórn A.S.Í., að fyrirhugaður samningur um erlenda stóriðju sé hvort tveggja í senn andstæður hagsmunum íslenzkrar alþýðu og íslenzku þjóðarinnar og gangi í berhögg við þá meginstefnu hennar að byggja lífskjör sín og efnahagslegar framfarir á framtaki þjóðarinnar sjálfrar og því fjármagni, sem hún sjálf skapar eða er fær um að afla sér án annarlegra og óaðgengilegra skilmála, og sé því þjóðinni bæði óhagkvæmur og ósæmandi. Því skorar miðstjórnin á öll þjóðholl öfl í landinu að snúa bökum saman gegn hinum fyrirhugaða stóriðjusamningi og hindra framgang hans.“
Þetta er, eins og menn heyra, brennandi aðvörun A.S.Í. til allrar alþýðu, til þjóðarinnar, til löggjafarvaldsins og til Swiss Aluminium. Stjórnarmeirihl. er hinir tveir þm., íandstöðu eru verkalýðssamtökin, bændasamtökin, ýmis önnur samtök framleiðslustétta og fjöldi einstaklinga úr öllum flokkum og stéttum. Þetta er margbrotið mál og stórt ísniðum, svo stórt, að þjóðin á rétt á því, að það sé lagt undir hennar úrskurð, þjóðaratkv. Og ég spyr, eins og áður hefur verið spurt í þessum umr.: Vill ríkisstj. leggja málstað sinn undir þann sjálfsagða dóm? Við sjáum, hvað setur um það.
Ég undirstrika nú eftirfarandi atriði varðandi það, sem Alþýðusambandið annars hefur tekið fram: Hyggið að þeim reginmun, sem verður á raforkuverði til alúminíumhringsins og til íslenzkra orkunotenda, einkum þegar liður á samningstímann. Hyggið að, hversu undirstöðuatvinnuvegunum muni vegna að tryggja sér nauðsynlegt vinnuafl, þegar samtímis bætast ofan á yfirfylltan vinnumarkað stórframkvæmdir eins og þær, sem nú skal greina, og allar samtímis: hernámsframkvæmdirnar hvalfirðu, Búrfellsvirkjunin, bygging varaaflstöðva, bygging alúminíumbræðslunnar við Straum með öllu því, sem henni fylgir, og heil stórskipahöfn við Straumsvík með meiru. Hyggið að, hversu verðbólguflaumurinn muni magnast og ólga, almennar framfarir innanlands bíða hnekki og ríkisstj. verða alls ómerkur samningsaðili um stöðvun dýrtíðarvandamáls. Hyggið að þeim alvarlegu vandamálum, sem fylgja munu innflutningi erlends vinnuafls í stórum stíl. Hyggið að þeim áhrifum, sem hinn erlendi risi á hinum litla íslenzka vinnumarkaði hlýtur að hafa á glímuna um skiptingu vinnuverðmætanna. Auk þess hefur líka komið til tals, að Swiss Aluminium gangi beint í vinnuveitendasamtökin og efli þannig andstæðinginn beinlínis með fjármunum. Hyggið loks að öllum þeim forréttindum, sem erlendi auðhringurinn á að njóta umfram íslenzk fyrirtæki, og þá ekki sízt að hann flytur allan gróða sinn úr landi, rétt eins og dönsku einokunarkaupmennirnir gerðu áður fyrr. Þá er það toppmæld svívirðing við íslenzka dómstóla og réttarfar, að íslenzka félagið ÍSAL skuli vera samið undan íslenzkri lögsögu og geti flúið með deilumál sin til erlends gerðardóms. SID-samþykktin, sem byggja skal á erlenda gerð, hefur aðeins verið fullgilt af þremur löndum í Afríku, Fílabeinsströndinni, Mið-Afríkulýðveldinu og smáríkinu Máritaníu. Og þarna þóknast þeim að vísa Íslandi til sætis.
Þá er og skylt að geta þess, að það er algert einsdæmi, eftir því sem ég bezt veit, að sjálfstætt ríki semji við einstaklinga annars ríkis, eins og er gert með þessum samningi. Hið versta er þó ekki þetta eina mál út af fyrir sig, svo illt sem það þó er, heldur hitt, að hér er tekin upp ný stefna, sem stig af stigi gæti brotið niður efnahagslegt sjálfsforræði þjóðarinnar.
Herra forseti. Tími minn er víst senn á þrotum. En að lokum vil ég samt segja þetta: Ég mótmæli því eindregið, að við séum á nokkurn hátt til neyddir að leggja út í alúminíumævintýrið, því að án þess getum við ekki leyst raforkumál okkar, eins og stjórnarherrarnir segja. Þetta er rangt með öllu. Þetta er alger falskenning. Ríkisstj., sem vantreystir íslenzkum bjargræðisvegum og íslenzkri þjóð, á og verður að falla. Byggja verður hins vegar upp stjórnarstefnu, sem miði grundvöll sinn við þörf og gengi íslenzkra framleiðsluatvinnuvega. Fullvinnsla íslenzkra afurða til lands og sjávar margfaldar þjóðartekjur og fullnægir allri okkar vinnuaflsþörf eftir hendinni, og þangað ber vissulega geirnum að snúa. Sameinum öll þjóðleg og framsækin öfl um íslenzka efnahagsstefnu, höfnum því að gefa erlendum auðhringum yfirráðaaðstöðu í atvinnulífi þjóðarinnar.
Alþb. er nú að efla skipulag sitt. Stofnað var Alþb.-félag á Húsavík um seinustu helgi, og allir, sem unna málstað Alþb., eiga að mæta á stofnfundi Alþb. í Reykjavík í Lídó á miðvikudaginn kemur. Síðan mun Alþb. leggja sig fram um það að laða vinstri öflin til samstarfs um íslenzka framfarastefnu. Stjórnarstefna byggð á bjargi verkalýðssamtaka og samvinnuhreyfingar og á lýðræðislegum sósíalisma verður að leysa óheillastefnu núv. ríkisstj. af hólmi. — Góða nótt.