03.11.1965
Sameinað þing: 9. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í D-deild Alþingistíðinda. (2784)

21. mál, samdráttur í iðnaði

Flm. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Samhljóða þáltill. þeirri, sem ég mun nú mæla fyrir nokkrum orðum, var flutt á síðasta þingi, en fékk þá ekki endanlega afgreiðslu. Er hún því flutt hér á ný á þskj. 21 og er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram í samráði við Félag ísl. iðnrekenda og fulltrúa iðnverkafólks athugun á samdrætti, sem orðið hefur í ýmsum iðngreinum að undanförnu. Athugun þessi skal beinast að því, að finna þær orsakir, sem samdrættinum valda, og hvaða ráðstafanir megi gera til þess að koma í veg fyrir hann.“

Vegna þess að mál þetta var nokkuð rætt hér á síðasta þingi, tel ég ekki þörf langrar framsögu nú. Ég mun þó leyfa mér að fara um málið örfáum orðum.

Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að í ýmsum greinum iðnaðar hefur orðið verulegur samdráttur á síðustu mánuðum, og hafa nokkur fyrirtæki orðið að leggja rekstur sinn alveg niður, en önnur að draga hann mikið saman og fækka starfsfólki. Vitað er, að ýmsar ástæður liggja til þeirra erfiðleika, sem hér um ræðir, og má þar t.d. nefna minnkaða tollvernd, erlend undirboð, lánsfjárskort, óhagstæð skattakjör o.fl., sem kemur einnig til greina. Í sumum tilfellum hníga fleiri en ein orsök til þessara erfiðleika og vega þá mismunandi þungt. Enn eru að berast fréttir af örðugleikum iðnfyrirtækja og jafnvel gjaldþrotum sumra þeirra, sem fram að þessu hafa verið talin hvað stærst og öflugust í þessari framleiðslugrein. Hér er því um óheillaþróun að ræða, sem áríðandi er að sporna gegn eftir föngum. Til þess að hægt sé að gera nauðsynlegar ráðstafanir til úrbóta, er óhjákvæmilegt að þekkja til fulls þær orsakir, sem samdrættinum valda, og því er það skoðun okkar flm., að umrædd athugun þurfi að fara fram.

Nú er svo komið, að fleira fólk hefur framfæri sitt af hvers konar iðnaðarstarfsemi en nokkurri einni atvinnugrein hér á landi. Þýðing iðnaðarins fyrir íslenzkan þjóðarbúskap er óumdeilanleg og mun án efa fara enn vaxandi, enda hljótum við Íslendingar eins og aðrar þjóðir að stefna að því að efla þennan þátt atvinnumálanna og búa honum skilyrði eftir föngum til jafns við aðrar atvinnugreinar þjóðarinnar.

Það mun víðast hvar vera reynsla þjóða, að þá fyrst hafi þeim skilað verulega áleiðis til bættra lífskjara, þegar iðnaði þeirra fleygði fram. Og undirstaða margra fremstu menningarog framfaraþjóða eða þjóðfélaga heims er einmitt iðnaður í einni eða annarri mynd. Það er líklegt, að svo verði einnig um okkur. Alveg sérstaklega bíða mörg verkefni óleyst ívinnslu innlendra framleiðsluvara, og er það vafalaust eitt brýnasta framtíðarverkefni okkar að búa í haginn á þeim vettvangi sem frekast er kostur.

Einhverjir kunna að álita, að saklaust sé, þótt nokkur fólksfækkun verði í iðnaði, meðan atvinna er næg í landinu af völdum hagstæðs sjávarafla. Því miður getur enginn sagt um það með nokkurri vissu, hversu lengi sú hagsæld kann að haldast. Ef illa tekst til um aflabrögð, getur atvinnuástandið breytzt á stuttum tíma, og hin öra fólksfjölgun getur þá leitt til þess, að hér skapist atvinnuleysi, ef iðnaðurinn heldur áfram að dragast saman, eins og nú virðast horfur á. Þessu til viðbótar má benda á það, sem m.a. kemur fram í umsögn Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri, um þessa þáltill., en þar segir, með leyfi forseta:

„Um það atriði, hvort iðnaðurinn sé nauðsynlegur til að veita fólki atvinnu, hvort það geti ekkí flutt sig íaðrar atvinnugreinar, ef samdráttur ætti sér stað í bili eða yrði varanlegur, er því til að svara, að ílangflestum tilfellum mundi vera um atvinnuleysi að ræða. Eldri konur og húsmæður, sem notið hafa vinnunnar ýmist hálfan eða heilan vinnudag, verða hvað verst útundan, en hafa þó mikla þörf á atvinnu vegna dýrtíðar og annarra erfiðleika, en mundu ekki fá vinnu við sitt hæfi hér í bæ (það er Iðja á Akureyri, sem þetta sendir frá sér), eins og á stendur og ekki geta farið til annarra staða í atvinnuleit.“

Hér er hreyft athyglisverðum þætti í sambandi við þetta mál.

Ljóst er, að stóraukin dýrtíð samfara lánsfjárskorti hefur skapað iðnaðinum margvíslega rekstrarörðugleika. Afleiðingin er sú, að iðnaðurinn stendur mjög höllum fæti í samkeppninni við erlend iðnaðarfyrirtæki, sem búa við miklu betri kjör, bæði að því er snertir vesti og útvegun rekstrarfjár. Oft hefur verið á það bent, að iðnaðurinn hér á landi eigi að geta staðizt samkeppni erlendis frá án verndartolla, eða óeðlilega hárra aðflutningsgjalda. Þessu marki verður að mínum dómi því aðeins náð, að iðngreinunum sé ekki íþyngt svo með ónógu og dýru lánsfé, að samkeppnisaðstaða þeirra sé þegar af þeirri ástæðu gersamlega vonlaus, þegar erlend framleiðsla flæðir inn í landið.

Á síðasta þingi, þegar sams konar þáltill. var borin fram, en fékk ekki endanlega afgreiðslu, var till. send ýmsum aðilum til umsagnar, og til að undirstrika það með örfáum orðum, sem ég hef nú drepið á, vil ég, með leyfi forseta, vitna í nokkur atriði af þeim, sem í þessum umsögnum koma fram.

Í umsögn Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, sem mælir með samþykkt till., er m.a. vakin athygli á, að á undanförnum árum hafa verið gerðar þær ráðstafanir í tolla- og innflutningsmálum, sem leitt hafa til þess, að íslenzkur iðnaður eigi nú í vök að verjast vegna harðnandi samkeppni við erlenda framleiðslu, og hefur, eins og þar segir orðrétt, jafnvel orðið að heyja samkeppni við innfluttar iðnaðarvörur, sem seldar eru undir eðlilegu kostnaðarverði. Á sama tíma hefur verið látið undir höfuð leggjast að veita iðnaðinum þá fyrirgreiðslu, sem nauðsynleg verður að teljast til þess að gera iðnaðinum kleift að mæta hinni auknu samkeppni. Er nú svo komið, að vissar greinar iðnaðarins fara halloka vegna hinnar harðnandi samkeppni, og er atvinnuöryggi þeirra, sem í þeim greinum starfa, stefnt í hættu. — Þetta segir Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, með bréfi, dags. 29/3 til hv. allshn., undirskrifuðu af formanni félagsins, Guðjóni Sigurðssyni.

Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri, tekur mjög í sama strenginn. Af svari hennar kemur m.a. fram, að hinn 1. apríl s.l. höfðu uppsagnir félagsmanna þar numið 10% af heildartölu félagsmanna allra og að þar hafi aðallega verið um að ræða konur, sem eiga erfitt, ef ekki ómögulegt með að komast í aðra vinnu, eins og ég drap á áðan í þeim stutta kafla, sem ég las úr þessu bréfi.

Ég hef hér í örstuttu máli drepið á nokkra þætti og gert mér far um það að hafa ræðuna stutta, en drepið á viðhorf iðnverkafólksins, sem þetta mál varðar. En iðnrekendurnir hafa líka látið til sín heyra. Í umsögn Félags ísl. iðnrekenda segir, með leyfi forseta:

„Það er rétt, sem um getur í till., að um samdrátt í vissum iðngreinum hefur verið að ræða að undanförnu. Álítum við rétt, að rannsókn fari fram á því, hvað samdrætti þessum veldur, og mælum með því, að till. verði samþykkt.“

Mjög í sama streng tekur Samband ísl. samvinnufélaga, sem rekur 12 verksmiðjur og veitir um það bil 600 manns atvinnu í þessari grein. Samband ísl. samvinnufélaga mælir einnig með samþykkt till.

Þannig eru þessir 4 aðilar, 2 frá iðnverkafólki og 2 frá samtökum iðnrekenda, því meðmæltir, að sú athugun, sem till. gerir ráð fyrir, nái fram að ganga eða megi fram fara.

En það er einn aðili, sem ekki sér ástæðu til að samþykkja umrædda till. Það er Efnahagsstofnunin, efnahagsstofnun hæstv. ríkisstjórnar. Þar kveður allmjög við annan tón en í þeim umsögnum, sem ég nú hef nefnt. Þar er þetta vandamál ekki miklað fyrir sér. Að vísu er játað, að samdráttar hafi gætt í nokkrum iðngreinum, en þó talið, að verðmætasköpun iðnaðarins í heild hafi ekki minnkað, þótt mannafla hafi fækkað. Í umsögn Efnahagsstofnunarinnar er talað um, að í skjóli hafta hafi margs háttar framleiðsla byggzt upp og að neytendur hafi orðið að sætta sig við fábreytt vöruúrval og oft orðið að borga fyrir það hærra verð en kaupa mátti fyrir erlendis frá. Síðan segir, að mörg séu dæmi þess, að ýmsar greinar íslenzks iðnaðar muni alls ekki geta framleitt það vöruúrval á heimsmarkaðsverði, sem neytendur óska eftir. Þó er að vísu í umsögninni ekki fullyrt, að iðnaður í þessum greinum eigi að leggjast niður í landinu, en talið líklegt, eins og þar segir, að einhver sérhæfð framleiðsla hans geti dafnað hér á landi, bæði fyrir innlendan og erlendan markað.

Það er skiljanlegt, að þeir, sem svona líta á iðnaðinn, telji ekki þörf á frekari athugun á því viðfangsefni, sem þáltill. fjallar um. Ég er ekkert hissa á því. Ef því er slegið föstu, að íslenzkur iðnaður geti ekki framleitt það vöruúrval á heimsmarkaðsverði, sem neytendur óska eftir, eins og þarna er komizt að orði, þá finnst efalaust mörgum það vera rétt að hætta þessu bardúsi og snúa sér að öðru, einhverju, sem við getum. En af því, sem ég hef hér áður sagt, finnst mér þó koma fram, að jafnvel þótt hér væri rétt frá skýrt, jafnvel þótt íslenzkur iðnaður gæti aldrei um aldur og ævi staðizt samkeppni við erlenda aðila, en því held ég þó fram, að það sé alls ekki fullreynt, þá er það mín skoðun, að íslenzkur iðnaður geti samt átt rétt á sér, og vísa ég þar í það, sem ég hef áður sagt um gildi hans fyrir þjóðina og um þá atvinnu, sem hann veitir í mörgum tilfellum fólki, sem getur ekki fengið vinnu við annað, og mundi þá vinnukraftur þess fara algerlega forgörðum. Hitt er svo vitanlega sjálfsagt, að vissar kröfur um vörugæði og vissar kröfur um verð verður iðnaðurinn að sjálfsögðu að uppfylla. Annars á hann ekki neinn rétt á sér. En ég held því fram, að hagur þjóðarinnar af framleiðslu eigin iðnaðarvarnings komi fram í fleiru en þessu og vísa til þess, sem ég hef áður sagt.

Í fyrra, þegar þessi þáltill. var athuguð í hv. allshn., komst það svo langt, að hv. n. skilaði áliti, klofnaði um málið að vísu. Meiri hl. vildi vísa málinu til ríkisstj., minni hl. vildi láta samþ. umrædda þáltill. Nál. meiri hl. var prentað á þskj. 497 í fyrra, og það er vissulega rétt, sem þar kemur fram, að nokkrar ráðstafanir hafa ýmist verið gerðar eða undirbúnar til lausnar á þeim vanda, sem hér er fjallað um. Og ég hef ekkert á móti því að viðurkenna það, að hæstv. iðnmrh. hefur sýnt skilning á því, hvernig ýmsar efnahagsaðgerðir að undanförnu hafa komið illa við iðnaðinn ílandinu. Það hefur hann gert, og það er skylt að viðurkenna. En þrátt fyrir það er það þó skoðun okkar flm. þáltill. á þskj. 21, að sú athugun, sem till. gerir ráð fyrir, eigi að fara fram og þurfi að fara fram. Á athugun samkv. till. og þeim athugunum eða rannsóknum, sem lýst er í nál. meiri hl., er í fyrsta lagi sá meginmunur, að samkv. þáltill. er ætlazt til, að fulltrúar iðnverkafólks og iðnrekenda eigi aðild að þeirri athugun, sem gerð verður, en það tel ég alveg nauðsynlegt. Þar að auki meina ég, að sú athugun, sem þáltill. gerir ráð fyrir, eigi að vera ýtarlegri, það sé heildarskoðun á öllum þessum málum, en mér virðist af því, sem talið er upp í nál. meiri hl., að þar sé meira fjallað um einstaka þætti, án þess að málið sé kannske allt skoðað í heild, þó að ég sé ekkert að gera lítið úr því, sem gert hefur verið. Í þriðja lagi, og það er kannske ekki það sízta, þá sýnir sú þróun, sem orðið hefur í málefnum iðnaðarins, síðan þetta nál. er gefið út, 14. apríl í vor, að þær ráðstafanir, sem hv. nm. bundu svo miklar vonir víð að mundu snúa þróuninni alveg við, hafa ekki reynzt þess megnugar að koma í veg fyrir samdráttinn, sem orðinn var. Samdrátturinn hefur haldið áfram síðan í vor, og hann mun eflaust halda áfram, ef ekki verður að gert.

Með hliðsjón af þessu teljum við flm. þáltill. fulla ástæðu til þess, að Alþ. geri samþykkt eitthvað í þá átt, sem till. gerir ráð fyrir, auk þess sem þáltill. frá því ífyrra fékk aldrei að koma til atkv. á Alþ., og ég tel það lágmarkskröfu um þau mál, sem þm. flytja, að þau fái þinglega afgreiðslu. Ég sé ekki annað en það ætti að vera vel hægt og sé raunar óskiljanlegt, að það skuli ekki vera algild regla.

Ég vil því, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að þessari umr. verði frestað og málinu verði vísað til hv. allshn. til endurnýjaðrar athugunar, m.a. með hlíðsjón af þeim breyttu viðhorfum, sem í þessum málum kunna að vera, frá því að sú n. fjallaði síðast um málið fyrir 6 mánuðum.