10.11.1965
Sameinað þing: 10. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í D-deild Alþingistíðinda. (2788)

21. mál, samdráttur í iðnaði

Sveinn Guðmundsson:

Herra forseti. Þessi þáltill. er 21. mál Sþ., sem hér er borin fram af framsóknarmönnum, að ríkisstj. láti fara fram ísamráði við Félag ísl. iðnrekenda og fulltrúa iðnverkafólks athugun á samdrætti í ýmsum iðngreinum að undanförnu. Ég leyfi mér að spyrja hv. flm., hvers vegna þessi athugun fari ekki einnig fram í samráði við fulltrúa frá Iðnaðardeild S.Í.S. Vita þeir kannske ekki, að samvinnufélögin standa enn þá utan heildarsamtaka iðnaðarins í landinu? (Gripið fram í.) Þetta er aðeins fyrirspurn. Ekki verður því trúað, að viljandi sé hér sneitt hjá samvinnuhreyfingunni. Er það ekki einmitt þetta, að till. er sýndarmennska og þeir hafa ekki trú á, að hún geri nokkurt gagn, og hún er búin til í fljótræði? Ég held það. Varðandi byggingarkostnað, sem hv. 11. þm. Reykv. talaði hér um á undan mér íræðustólnum, hefur kannske þessi hv. þm. trú á því, að það sé um samdrátt að ræða í byggingariðnaðinum? Er það þess vegna, sem hann tekur byggingariðnaðinn hér sérstaklega til umr. Er það ekki einmitt þetta, að stjórnarandstaðan og þessir hv. þm. vilja og óska einskis frekar en einmitt, að verðbólgan verði sem mest, að það komi óðaverðbólga og skapist, svo að núv. ríkisstj. verði að hrökklast frá völdum? Mér skilst það, því að það er alveg nægileg atvinna a.m.k. í byggingariðnaðinum og þurfti ekki að taka hann sérstaklega fyrir. Og miklar kauphækkanir fara mjög illa með þann hluta iðnaðarins, sem beinlínis vinnur í samkeppni við útlönd. Í þetta þarf ekki að skipa n. Þó mun öllum hv. alþm. vera ljóst, að þegar landbúnaðarafurðir til útflutnings eru styrktar með nær 200 millj. kr. og sjávarútvegurinn fær viðlíka stórar upphæðir úr ríkiskassanum, er eðlilegt, að ekki vænkist samkeppnisaðstaða þess iðnaðar, sem keppir ótollað við erlenda iðnaðarvöru.

Við, sem höfum stundað iðnaðarstörf síðasta aldarfjórðung eða lengur, munum tvenna tímana. Við munum haftastefnuna og ríkisafskiptin. Við munum innflutningshöftin á nauðsynlegustu vélum, þannig að marga menn þurfti til þess að vinna sama verk í úreltum tækjum. Þetta hefur breytzt með auknu frjálsræði og fullkomnari vélakosti. Bátagjaldeyrisfyrirkomulag er einnig svo skammt að baki, að það er minnisstætt, þegar iðnaðarmenn og iðnrekendur þurftu að greiða 80% ofan á gjaldeyrinn auk venjulegra tolla á nauðsynlegustu verkfæri. Með frjálsum innflutningi hafa margar iðngreinar getað aflað sér véla, og hefur þannig tækni og sjálfvirkni fleygt fram á mörgum sviðum iðnaðarins, sérstaklega verksmiðjuiðnaðarins. Þannig hefur verið hægt að fækka starfsliði. Þeir, sem hins vegar hafa ekki notað sér frjálsræðið, hafa eðlilega dregizt aftur úr. Handavinnan hefur verið látin víkja, þar sem því hefur verið við komið, og hefur þetta að sjálfsögðu sparað vinnuaflið víða, þó að framleiðsluaukning hafi verið í þessum sömu iðngreinum. Og slíkt er að sjálfsögðu ekki hægt að flokka undir samdrátt í iðnaði, eins og hv. flm. vilja hér gera með þessari till. sinni. Hins vegar er auðsætt, að aukinni framleiðni í iðnaði verður ekki við komið nema með auknu fjármagni.

Ekki er hægt að segja annað en vel hafi verið séð fyrir fjárfestingarfé til iðnaðarins á valdatímabili núv. hæstv. ríkisstj., miðað við það, sem áður var, bæði með aukningu iðnlánasjóðs og iðnaðarlánum Framkvæmdabankans. En þessir sjóðir hafa samkv. upplýsingum hæstv. iðnmrh. við þessar umr. farið ört vaxandi og útlán til fjárfestingar í iðnaði numið 80—90 millj. kr. á s.l. ári. Um framleiðslulán til iðnaðarins, m.a. endurkaup Seðlabankans á iðnaðarvíxlum, er öðru máli að gegna. En ég mun geyma mér að ræða það mál, þangað til betra tækifæri gefst, sem væntanlega verður nú á næstunni.

Fyrr við þessar umr. upplýsti hæstv. iðnmrh., að sú grein iðnaðar, þar sem samdráttur hafi orðið raunverulegur, er í veiðarfæraiðnaði. Þar hafi hann skipað n. á s.l. ári til rannsóknar, svokallaða veiðarfæraiðnaðarnefnd, sem nú hafi skilað áliti. Ég beini þeim tilmælum til hæstv. ráðh., að alþm. verði látið í té þetta nál., jafnframt því sem ég fagna því, að nú skuli vera gengið til móts við sjálfsagðar óskir þessarar nauðsynlegu greinar íslenzks iðnaðar, eins og hæstv. iðnmrh. lét um mælt.