10.11.1965
Sameinað þing: 10. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (2802)
22. mál, kaup Seðlabankans á víxlum iðnaðarins
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Þessi till., sem hér liggur fyrir, er orðin nokkuð gamall kunningi hér á Alþ. Upphaf hennar er það, að vorið 1958 átti núv. 10. þm. Reykv. sæti á Alþ. sem varaþm. og flutti þá till., sem hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að Seðlabankinn endurkaupi framleiðslu- og hráefnavíxla iðnaðarfyrirtækja eftir ákveðnum reglum, er settar verði með svipuðu sniði og reglur þær, sem nú gilda um endurkaup framleiðsluvíxla sjávarútvegs og landbúnaðar.“
Þessi till. hlaut góðar undirtektir hér á Alþ. og var samþ. nokkurn veginn óbreytt. Af hálfu þeirrar ríkisstj., sem þá sat hér að völdum, vinstri stjórnarinnar, var, að því er ég bezt veit, hafinn nokkur undirbúningur að því að hrinda þessari ályktun Alþ. í framkvæmd. En nú stjórn sat aðeins skamman tíma, lét af völdum á sama ári, og varð því ekki úr framkvæmdum hjá henni. En vilji Alþ. lá eigi að síður áfram fyrir hendi, og var því sjálfsagt, að þær ríkisstj., sem þá tóku við af vinstri stjórninni, hryndu þessari ályktun þingsins í framkvæmd. En það hefur samt þannig atvikazt, að ár eftir ár hefur liðið, án þess að nokkuð væri gert af hálfu stjórnarvaldanna til þess að framkvæma þessa ályktun.
Þegar það hafði dregizt í ein 3—4 ár, að þetta væri gert, fannst mér rétt að endurflytja þessa till. hér í hv. Alþ. og hef gert það árlega síðan, án þess að það hafi þó enn nokkurn árangur borið. Ég hygg, að það liggi þó alveg ljóst fyrir, að þörfin fyrir það, að iðnaðurinn fái þá jafnréttisaðstöðu við aðra atvinnuvegi, sem hér um ræðir, er enn þá ríkari en hún var fyrir 8 árum. Það hefur t.d. gerzt í fyrsta lagi á þessu tímabili, að gengi íslenzkrar krónu hefur tvívegis verið fellt og það að sjálfsögðu mjög aukið rekstrarlánaþörf iðnaðarins. Þessu til viðbótar hefur svo átt sér stað gífurlegri verðbólguvöxtur 2—3 seinustu árin heldur en nokkru sinni fyrr og það haft að sjálfsögðu þau áhrif, að rekstrarlánaþörf iðnaðarins hefur stórkostlega aukizt.
Mér finnst rétt í þessu sambandi, af því að það kom fram í umr. áðan, að rifja upp nokkrar tölur, sem eiga að geta gefið glögga hugmynd um þetta, en það er vísitala byggingarkostnaðarins, sem m.a. hæstv. iðnmrh. gerði að umtalsefni hér áðan, því að það var alls ekki rétt hjá honum, að það hefði eingöngu verið rætt um framfærsluvísitöluna í sambandi við umr. um landbúnaðarmálin, heldur hafði ekki síður verið rætt um vísitölu byggingarkostnaðarins, vegna þess að hún gefur miklu gleggri mynd um aukningu framleiðslukostnaðarins ílandinu heldur en þó framfærsluvísitalan.
Sú vísitala, sem nú gildir um byggingarkostnaðinn, hennar grundvöllur er frá 1. okt. 1955. Og þróunin í þessum efnum hefur í stuttu máli verið sú, að fyrstu 8 árin, sem þessi vísitala gilti, frá 1955—1963, 1. okt., hækkaði hún úr 100 í 183 stig eða um 83 stig á þessu tímabili eða til jafnaðar um 10 stig á ári. Síðan 1. okt. 1963, eða núna tvö seinustu árin, hefur þessi vísitala hækkað um hvorki meira né minna en 81 stig til viðbótar eða um jafnmörg stig á þessum tveimur árum og á átta árunum áður. Og ef hæstv. ráðh. vilja fá þetta reiknað út í prósentum, kemur það þannig út, að fyrstu átta árin hefur vísitalan eða byggingarkostnaðurinn hækkað um 80% eða til jafnaðar um 10% á ári, en núna tvö seinustu árin hefur byggingarkostnaðurinn hækkað um 46% eða til jafnaðar um 23% á ári.
Hæstv. iðnmrh. var að nefna það áðan, að það hefði orðið mikil hækkun byggingarkostnaðarins á árunum 1950—58, og nefndi í því sambandi, að þessi hækkun hefði orðið til jafnaðar á ári 17%. Ég veit ekki, á hvaða tölum hann byggir þetta. En jafnvel þó að þessar tölur hafi verið réttar, að byggingarkostnaðurinn hafi hækkað um 17% til jafnaðar á ári á þessu tímabili, hefur þó hækkunin orðið enn þá meiri tvö seinustu árin, þar sem hún hefur orðið til jafnaðar 23% á ári. Ég hygg líka, að það geti allir iðnrekendur borið það og það muni t.d. hv. 10. þm. Reykv., sem nú er að kveðja sér hljóðs, vel geta borið, að framleiðslukostnaðurinn hjá iðnaðinum hefur aldrei tekið meira stökk en einmitt núna seinustu árin. Mér þykir a.m.k. mjög furðulegt, ef hann vill ekki við það kannast, að þróunin hafi orðið á þann veg. En þetta gerir það að sjálfsögðu nauðsynlegt, að bætt sé úr rekstrarfjárþörf iðnaðarins, og eðlilegt, að það sé geri með þeim hætti, að hann fái sömu fyrirgreiðslu og aðrir atvinnuvegir hafa fengið, þ.e. að Seðlabankinn kaupi framleiðslu- og hráefnavíxla hans með líkum hætti og hann kaupir þessa víxla af sjávarútvegi og landbúnaði.
Í þeim umr., sem hafa farið fram um þetta mál á undanförnum þingum, hafa menn stundum verið að reyna að draga línu milli atvinnuveganna eftir því, hvort þeir öfluðu gjaldeyris eða spöruðu gjaldeyri. Það hefur verið sagt, að þær atvinnugreinar sjávarútvegs og landbúnaðar, sem flyttu út vörur og öfluðu þannig gjaldeyris, ættu að njóta sérstakra forréttinda í þessum efnum. Ég sé ekki neinn mun á því, hvort atvinnugrein heldur aflar gjaldeyris, eins og útflutningsatvinnuvegirnir gera, eða sparar gjaldeyri, eins og t.d. landbúnaðurinn og mikill hluti iðnaðarins gera. Hvort tveggja kemur að sama gagni fyrir þjóðarbúið, og þess vegna eiga þessar atvinnugreinar að njóta sömu réttinda, hvort heldur þær framleiða vörur fyrir útlendan eða innlendan markað, hvort heldur þær afla gjaldeyris eða spara gjaldeyri. Þær hafa jafnmikla þýðingu fyrir þjóðarbúið, hvort heldur sem þær gera, og þess vegna eiga þær að njóta jafnræðis í þessum efnum.
Það, sem hefur á vantað hér, eins og á svo mörgum öðrum sviðum, er, að iðnaðurinn nyti jafnréttis við aðra atvinnuvegi. Þrátt fyrir þá þýðingu, sem hann er búinn að sýna að hann hefur, er þannig ástatt enn þá, að menn vilja ekki á mörgum sviðum veita honum sömu aðstöðu og hinir eldri atvinnuvegir þjóðarinnar hafa. Þó er alveg víst og án þess að nokkuð sé lítið gert úr sjávarútvegi og landbúnaði, og það hljóta áfram að verða okkar aðalatvinnuvegir eða undirstöðuatvinnuvegir, að þá er ekki síður nauðsynlegt að efla iðnað í landinu, margbreyttan iðnað, því að ég hygg, að það sé erfitt að benda á þá þjóð, sem stendur á verulega fjárhagslega sterkum grunni, ef hún hefur það sem sína aðalundirstöðu í atvinnumálum að framleiða hráefni. Ég held, að engin slík þjóð hafi sterka aðstöðu, og aðeins þær þjóðir hafi sterka aðstöðu, sem auk þess sem þær framleiða hráefni geta einnig framleitt fullunnar iðnaðarvörur og það sem allra margbreytilegastar. Og eftir því sem þjóðinni fjölgar og aðstaða okkar batnar að öðru leyti, eigum við að sjálfsögðu að keppa að því að hafa okkar atvinnugreinar sem allra fjölbreyttastar, og það gerum við að sjálfsögðu framar öðru með því að efla iðnaðinn í landinu og gera hann sem margbreyttastan. Til þess að svo verði gert, þarf að skapa honum ífjárhagslegum efnum sömu aðstöðu og öðrum atvinnuvegum, ekki lakari. En sannarlega býr iðnaðurinn við lakari aðstöðu í þessum efnum, meðan svo er háttað, að t.d. Seðlabankinn kaupir hráefna og framleiðsluvíxla af sjávarútvegi og landbúnaði, en lætur iðnaðinn vera þar algerlega útundan.
Ég satt að segja skil ekki þá þrjózku, sem þær ríkisstj. hafa sýnt, sem farið hafa með völd á undanförnum árum og ekki hafa viljað viðurkenna rétt iðnaðarins í þessum efnum og framkvæma þar þingviljann, sem hefur legið fyrir í 8 ár. Það er einhver óskiljanleg ástæða, sem veldur því, að þessi vilji Alþ. hefur ekki náð fram að ganga vegna þrjózku ríkisstj. Og það getur ekki verið önnur ástæða, sem hér liggur til grundvallar, heldur en sú, hvað sem þessir háu herrar segja, að þeir vilja ekki enn þá viðurkenna, að iðnaðurinn eigi að hafa sama rétt í landinu og aðrar iðnaðargreinar. Meðan þeir standa á móti þessu réttindamáli, er algerlega tilganglaust fyrir þá að berja sér á brjóst og vilja halda því fram, að þeir vilji jafnrétti í þessum efnum. Í verki skammta þeir iðnaðinum minni rétt en aðrir atvinnuvegir hafa.
Ég leyfi mér svo að leggja til, að þessari umr. verði frestað og till. vísað til allshn.