24.11.1965
Sameinað þing: 13. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í D-deild Alþingistíðinda. (2854)

47. mál, rekstrargrundvöllur togaraflotans og endurnýjun hans

Flm. (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér er til umr., var flutt á hv. Alþ. í fyrra, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Okkur flm. þykir ekki síður ástæða til að flytja hana nú í annað sinn og freista þess þar með að fá hv. Alþ. til að taka afstöðu í þessu máli, sem að okkar dómi er mikilvægt fyrir sjávarútveginn og íslenzkan þjóðarbúskap í heild.

Í grg. fyrir till. er rakinn nokkuð sá mikilvægi þáttur, sem íslenzk togaraútgerð hefur átt í þeirri uppbyggingu, sem hér hefur orðið á þessari öld. Skal það ekki endurtekið hér, sem í grg. segir. Flestir munu og viðurkenna, að togarar hafa átt miklu hlutverki að gegna. Hins vegar hefur þess gætt í vaxandi mæli síðustu árin, að menn tækju að draga í efa þjóðhagslegt gildi togaraútgerðar nú og í framtíðinni. Veldur þar mestu um, að íslenzk togaraútgerð hefur átt í erfiðleikum síðustu árin. Hitt kemur einnig til, að bátaflotinn hefur vaxið mjög og fiskibátarnir hafa stækkað. Álykta ýmsir á þá leið, að tími togaranna sé að öllum líkindum liðinn og vélbátarnir geti komið og muni koma í þeirra stað. Við flm. þessarar till. teljum þá skoðun, sem ég nú lýsti, ranga, a.m.k. studda svo hæpnum rökum, að nauðsynlegt sé að kanna málið álit frá grunni, áður en nokkru er slegið föstu í þessum efnum. Við litum svo á, að erfiðleikar togaraútgerðarinnar stafi að verulegu leyti af því, að flestir íslenzku togararnir eru nú að verða eða eru orðnir gamlir, óhagkvæmir og dýrir í rekstri, m.ö.o. úreltir. Hitt virðist auðsætt, að með bátaflota einum verða íslenzk fiskimið ekki nýtt að fullu. Þar þurfa togskip einnig til að koma, skip, sem geta veitt á djúpmiðum og á öllum árstímum, skip, sem eru ekki bundin við þau tímabil, þegar fiskur gengur á grunnmið.

Frá sjónarmiði okkar flm. er það hið mesta nauðsynjamál, að nú verði gengið að því með atfylgi og framsýni að tryggja framtíð togaraútgerðar á Íslandi, svo að hægt verði á komandi tímum að hagnýta fiskimið okkar sem bezt í þágu landsmanna sjálfra. En til þess að það megi takast, þarf hið stórvirka veiðitæki, botnvarpan, að vera hagnýtt á nútímahátt. Eins og ég sagði, eru togarar okkar nú flestir að verða gömul skip og miður hagkvæm. Á s.l. ári voru gerðir héðan út 29 togarar, en í ár munu þeir vera 27, sem út hafa verið gerðir. Þessir togarar skiptast í 3 aldursflokka. Elztir eru gömlu nýsköpunartogararnir, sem samið var um smíði á árið 1946 og komu til landsins árin 1947 og 1948. Þessi skip eru flest um 650 smálestir að stærð. Í næsta aldursflokki eru nokkrir togarar, sem keyptir voru um og eftir 1950, og er stærð þeirra 700—850 smálestir. Loks voru svo keyptir 5 togarar kringum 1960, og eru þeir flestir tæpar 1000 smálestir. Öll eru þessi skip, jafnt hin yngri sem eldri, svipuð að öllum búnaði og gerð. Aðalmunurinn er sá, að nýrri skipin flest hafa meira burðarmagn en hin eldri og geta því flutt meira aflamagn að landi, þegar uppgripaveiði er að fá.

Á síðari árum hafa hins vegar orðið gífurlegar breytingar, allt að því bylting í togarasmíði, veiðitækni og aflameðferð hjá ýmsum öðrum fiskiveiðiþjóðum. Skuttogarar hafa komið til sögunnar og eru að allra dómi, sem hafa kynnt sér þá skipagerð, stórfelld framför frá eldri skipa. gerðum. Vinnuaðstaða er þar stórbætt frá því, sem er á hinum eldri skipum. Tekizt hefur að koma þar við margvíslegri vinnuhagræðingu og vélvæðingu, sem leiðir m.a. til mikils sparnaðar í mannafla.

Við Íslendingar stöndum í dag frammi fyrir þeirri staðreynd, að hinum gömlu og úreltu togurum okkar fækkar stöðugt, en þeir, sem enn er haldið úti, berjast mjög í bökkum. Verði lítið eða ekkert að gert, blasir við, að íslenzk togaraútgerð kemst í alger þrot og skipin verða smám saman seld úr landi fyrir brotajárnsverð. En hver yrði afleiðing þessa, ef togaraútgerð legðist hér algerlega niður? Við búum við gjöful fiskimið, sem eiga með hóflegri notkun að geta orðið okkur fengsæl hér eftir sem hingað til. Keppikefli okkar hlýtur að vera að nýta öll þessi fiskimið á skynsamlegan hátt, en eftirláta ekki verulegan hluta þeirra öðrum þjóðum eingöngu, eins og yrði, ef íslenzk togaraútgerð legðist niður. Hverfi íslenzk togaraútgerð úr sögunni, yrðu mikilsverð fiskimið utan landhelgi okkar aðeins nýtt af öðrum þjóðum. Þá mundu og Íslendingar ekki hafa nein teljandi not af fjarlægum miðum, svo sem við Grænland eða Nýfundnaland, en þau hafa verið notuð allmikið á undanförnum árum af íslenzkum togurum.

Íslenzki togaraflotinn í dag er um margt úreltur, eins og ég áðan sagði, og svarar ekki kröfum tímans, það er satt. Þó er engin ástæða til að gleyma því, að jafnvel þessir togarar, sem nú eru taldir úreltir, eru þrátt fyrir allt býsna fengsæl og stórvirk atvinnutæki. Árið 1964 var eitt hið versta aflaár íslenzkra togara. Þau 29 togskip, sem þá gengu á veiðar, fiskuðu þó þetta aflaleysisár um 65 þús. smálestir. Hver íslenzkur togari mun nú hafa um 30 manna áhöfn. Hver togarasjómaður skilaði því í land á árinu 1964 um 75 smálestum af fiski þetta aflaleysisár. Mun láta nærri, að gjaldeyrisverðmæti alls togaraaflans árið 1964 hafi numið 500 millj. kr. eða 575 þús. kr. á hvern togarasjómann.

Enda þótt íslenzkir togarar hafi nú um sinn siglt með nær allan aflann á erlendan markað, vegna þess að þeir hafa yfirleitt fengið þar gott verð, en fiskverð hér innanlands verið óheyrilega lágt, má ekki gleyma því, að oft hafa togararnir tryggt rekstur hinna stærri frystihúsa, bæði í Reykjavík, Hafnarfirði, Akureyri og raunar víða um land. Sá tími kemur vafalítið fyrr en varir, að við þyrftum mjög á slíku að halda að nýju. Verulegur hluti bátaflotans, þ. á m. öll stærstu skipin, er nú farinn að stunda síldveiðar mestallt árið. Það eru nú aðeins minni bátarnir, þeir sem á annað borð eru gerðir út, sem veiða fyrir hraðfrystihúsin, en hinir minni bátar eru að vonum mjög háðir fiskgengd á grunnmið, en hún reynist stundum nokkuð stopul.

Að mínum dómi bíða okkar tvenns konar verkefni í sambandi við íslenzka togaraútgerð og framtíð hennar. Hið fyrra er að leita allra tiltækra ráða til að bæta rekstur og afkomu þeirra togara, sem enn eru í eigu landsmanna. Með ýmsum aðgerðum ætti það að vera hægt að vissu marki. Hitt verkefnið, sem er þó enn þá brýnna, ef litið er til framtíðarinnar, er, að hafizt verði þegar handa um endurnýjun togaraflotans á grundvelli þeirrar tækni, sem nú er fyrir hendi, og nauðsynlegrar reynslu, en hún fæst langbezt með því, að byggð verði hið allra fyrsta t.d. 2 eða 3 skip í tilraunaskyni handa okkur Íslendingum. Um stærð þeirra togara og gerð yrði að sjálfsögðu að hlíta forsögn kunnáttumanna, erlendra og innlendra. Telja má líklegt og raunar fullvíst, að til þess að greiða fyrir þessu máli þurfi aðstoð hins opinbera að koma til, bæði að því er varðar aðild að smíðasamningi og útvegun lánsfjár. Hins vegar tel ég eðlilegt, að starfandi bæjarútgerðum og öðrum togarafélögum verði gefinn kostur á að eignast og reka hina nýju togara, þegar þar að kæmi.

Í þessu máli öllu er vitanlega margs að gæta, og nauðsynlegt er að kanna það sem bezt og frá sem flestum hliðum. Þess vegna er hér lagt til, að hv. Alþ. kjósi 7 manna n., er vinni að þessu máli, afli nauðsynlegra upplýsinga og standi siðan að tillögugerð um úrbætur og framkvæmdir. Skal n. hafa sem bezt samstarf við fulltrúa frá togaraeigendum og togarasjómönnum og afla þeirrar sérfræðilegrar aðstoðar, innanlands og utan, sem þurfa þykir.

Ég vænti þess, að till. þessi fái nú góðar undirtektir hér á hv. Alþ. Ég legg til, að henni verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr. og allshn.