16.02.1966
Sameinað þing: 27. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í D-deild Alþingistíðinda. (2886)
80. mál, kaup lausafjár með afborgunarkjörum
Flm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 100 ásamt 4 þm. Reykn. leyft mér að flytja till. til þál. um undirbúning löggjafar um kaup lausafjár með afborgunarkjörum. Tillgr. er svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta semja frv. til l. um kaup lausafjár með afborgunarkjörum og leggja það frv. síðan fyrir Alþ.“
Eins og í grg. þessarar till. segir, verður það stöðugt tíðara hér á landi, að lausafjárkaup fari fram með þeim hætti, að kaupandi gjaldi aðeins lítinn hluta umsamins kaupverðs við afhendingu, en greiði síðan eftirstöðvarnar með tilteknum afborgunum á tilteknum gjalddögum. Jafnframt er æ oftar svo um samið, að seljandi haldi eignarrétti sínum af hinum selda hlut, unz kaupverðið er að fullu greitt. Eru nú margvíslegir lausafjármunir seldir með þessum kjörum, eins og t.d. notaðar bifreiðar, húsgögn, heimilistæki, hljóðfæri, sjónvarpstæki og bækur, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Sjálfsagt hafa þessi samningskjör greitt fyrir viðskiptum og stuðlað að því, að menn eignuðust lausafjármuni, sem þeir ella hefðu orðið að vera án. Að því leyti til er ekki nema gott eitt um þessa söluaðferð að segja. En hinu ber ekki heldur að neita, að á þessum viðskiptaháttum geta verið ýmsir vankantar. Þá má misnota. Og eitt er víst, að við slík afborgunarkaup reynir á ýmis atriði, sem koma ekki til, þegar um er að ræða venjuleg lausafjárkaup. Ákvæði hinna almennu lausafjárkaupalaga eiga því ekki að öllu leyti við um þessi afborgunarkaup.
Hér á landi hafa samt ekki verið sett nein sérstök lög um slík afborgunarkaup. Þvílík lög hafa hins vegar verið sett fyrir löngu í nágrannalöndum okkar og voru reyndar upphaflega sett þar um svipað leyti og lög um lausafjárkaup, í Svíþjóð 1915, Noregi 1916 og í Danmörku 1917. Þau lög voru undirbúin af norrænni samstarfsnefnd. Á þeim tíma hefur sennilega ekki þótt þörf á slíkum lagaákvæðum hér, því að afborgunarkaup munu þá lítið hafa tíðkazt hér á landi. Lög Norðurlandanna um afborgunarkaup voru endurskoðuð um það bil fyrir 15 árum. Íslandi var boðin þátttaka í þeirri lagasamvinnu eða lagaendurskoðun, en ekki var talið hægt að senda fulltrúa af Íslands hálfu þá, þótt því væri lýst yfir, að Ísland hefði mikinn áhuga á málinu. Þessi samnorræna samstarfsnefnd um þetta efni skilaði svo áliti í málinu 1950, og hin endurskoðuðu lagafrv. hafa síðan verið lögð til grundvallar nýrri lagasetningu á Norðurlöndum um þetta efni, í Danmörku voru slík lög t.d. sett 11. júní 1954. En hér hafa enn ekki verið sett nein lög um þetta efni. Er það þó orðið mjög svo tímabært að dómi okkar flm., enda er fullvíst, að afborgunarkaup hafa færzt mjög í vöxt hér á landi á síðustu árum, eins og ég áðan sagði. Það er því orðin þörf á föstum reglum um þessa tegund lausafjárkaupa, því að vegna vöntunar á föstum reglum hefur komizt á ýmiss konar óvandi í sambandi við þessi kaup. Má þar m.a. nefna það, sem talsvert mun tíðkað, að kaupendur eru ekki aðeins látnir skrifa undir afborgunarsamning með eignarréttarfyrirvara, heldur eru þeir einnig látnir gefa út sérstakan víxil fyrir hverri einni einustu afborgun. Af þessu geta óþægindi stafað fyrir kaupanda. Víxlarnir kunna að dreifast á fleiri hendur. Menn gleyma því kannske, þegar þeir greiða afborgun, að heimta þann sérstaka víxil til baka, og þetta er náttúrlega alger misnotkun á víxilforminu. Ég hygg, að dómstólar, t.d. hér í Reykjavík, kannist talsvert við mál af þessum toga spunnin. Ég held þess vegna, að það sé tímabært að láta athuga þessi mál og setja löggjöf um þetta efni.
Í þessu sambandi má geta þess, að fyrir 2—3 árum var hér á hv. Alþ. í sambandi við áskorun til ríkisstj. um það að láta endurskoða veðlög samþykkt, að jafnframt skyldu endurskoðaðar reglur um sölu muna með eignarréttarfyrirvara. Mér er ekki kunnugt um, að það hafi komið fram neinar till. af hálfu ríkisstj. samt um setningu reglna um sölu með eignarréttarfyrirvara, enda vafasamt að blanda því saman við endurskoðun veðlaga. Þess vegna er full ástæða til þess að samþykkja þessa till. nú.
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að æskja þess, að till. þessari verði vísað til allshn. til athugunar.