23.03.1966
Sameinað þing: 32. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (2928)

120. mál, endurskoðun á aðild Íslands að Atlantshafsbandalagi og Norður-Atlantshafssamningi

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég álit, að virðing þingsins og sjálfsvirðing þeirra þm., sem tilheyra þeim flokkum, sem hafa staðið með Atlantshafsbandalaginu fram að þessu, liggi við, að þeir sýni núna þann mannskap að hugsa um þessi mál. Það er nú nokkur tími þangað til ákvarðanir á að taka, hvort Atlantshafsbandalagið skuli halda áfram eða ekki, og þeir þm., sem voru hér 1949, þegar gengið var í Atlantshafsbandalagið, fengu ekki mikinn tíma til þess að hugsa. En nú geta menn tekið sér þennan tíma, og ég vil skírskota til manna að nota hann.

Þegar gengið var í Atlantshafsbandalagið, var þm. yfirleitt ekki gefin nein aðstaða til þess að íhuga þetta mál, varla að ræða það. Því síður var mönnum gefin aðstaða til þess að athuga málið í n. Um hánótt var því máli vísað til utanrrmn., og það var haldinn einnar mínútu fundur. Engar venjulegar rannsóknir fóru fram, engar umr. fengust, engin plögg voru lögð fyrir. Það átti að píska málið í gegn, án þess að Alþ. Íslendinga fengi nokkuð um þetta mál að vita raunverulega.

Nú stöndum við brátt, 20 árum eftir þann atburð, frammi fyrir því að eiga að taka ákvarðanir, hvort við ætlum að losna úr þessu bandalagi eða ekki — eða því, sem eftir kann að verða af því þá. Og það er nauðsynlegt, að við förum í tíma að athuga þessi mál, útvega okkur upplýsingar um þau. Það er ekki verjandi gagnvart kjósendum í landinu að ganga þannig að þessu máli, að menn hafi ekkert um það hugsað. Næstu kosningar, sem fara fram til Alþingis á næsta ári, gera út um, hvaða afstaða verður tekin, og Alþ. og þjóðin eiga heimtingu á því, að menn hafi eitthvað íhugað þessi mál og viti eitthvað, hvað sé að gerast, en trúi ekki bara einum eða tveim foringjum í hverjum flokki.

Ég held þess vegna, að það væri mjög heppilegt, að við ræddum þessa þáltill., og ég kvaddi mér hljóðs vegna þess, að mér þótti leitt, að það skyldi enginn verða til þess af þeim, sem fylgja Atlantshafsbandalaginu, að hefja umr. um þetta, því að grunur minn er sá, að reynt verði að leggjast á þetta mál, þegar til n. kemur, og afgreiða það ekki. En það eru alveg að verða ófær vinnubrögð, sem setja þingið lengra og lengra niður, bæði í áliti sjálfs sín og annarra, ef þannig á að hafa það áfram.

Ég ætla ekki að fara hér út í að endurtaka neitt af því, sem verið hefur aðaláróðursatriðið í sambandi við Atlantshafsbandalagið þessi 20 ár: grýlan um kommúnismann og allt saman slíkt, um árásarhættu að austan og annað þess háttar. Það, sem við skulum einbeita okkur að núna, er að athuga það ástand, sem nú er í Evrópu, og það ástand, sem nú er í heiminum og hvaða afstöðu Ísland eigi að taka í því, þannig að þau mál verði betur hugsuð en var 1949.

Hvað er það, sem er á seyði nú úti í Evrópu og hefur verið þó nokkurn tíma? Við skulum gera okkur ljóst, að þetta, að Frakkland dregur sig raunverulega út úr hernaðarsamvinnunni, það er afleiðing af íhugunum, sem hafa farið fram um mörg undanfarin ár, og þeirri breytingu, sem verið hefur að gerast á síðustu 10 árum. Það er vitanlegt, að með því að Frakkland fer raunverulega út úr hernaðarsamvinnu NATO, er grundvöllurinn hernaðarlega séð fyrir Atlantshafsbandalagi á meginlandi Evrópu brostinn. Og það munu ekki vera neinir hernaðarsérfræðingar, hvorki bandarískir né aðrir, sem halda því fram, að þær hernaðarfyrirætlanir, sem þeir hafa verið með fram að þessu, varnirnar, sem hugsaðar voru, standist lengur, eftir að það hefur gerzt. Við skulum segja, að það kunni að gerast svo á eftir, að þar að auki verði gerður griðasáttmáli á milli Frakklands og Sovétríkjanna. Þá fara menn að sjá, hvert þetta er að fara, að NATO er að byrja að leysast upp, og sú upplausnarþróun kemur til með að ganga mjög hratt fyrir sig nú á næstu mánuðum og árum.

Það, sem þarna er undirstaðan, er ekki aðeins það, að menn hafa uppgötvað það, Adenauer, eins og hv. síðasti ræðumaður minntist á, og margir fleiri af raunsæjum stjórnmálamönnum Evrópu, að þetta, sem byggt hefur verið á, hættan að austan hefur verið ýmist grýla eða er það nú, heldur er það annað, sem hefur gerzt. Valdahlutföllin á milli hins evrópska hluta Atlantshafsbandalagsins og hins ameríska hluta þess hafa gerbreytzt á þessum árum, alveg eins og efnahagshlutföllin á milli þessara aðila hafa gerbreytzt. Aðstaða Bandaríkjanna, sem var yfirgnæfandi á efnahagssviðinu um 1949, er miklu veikari nú, aðstaða Frakklands og landanna á meginlandi Evrópu aftur á móti miklu sterkari en þá var, og það eru þessi valdahlutföll á efnahagssviðinu samfara uppbyggingunni í þessum löndum, sem fá ná útrás á sviði hernaðaraðstöðunnar og koma endanlega fram í því, að Frakkland segir raunverulega skilið við hernaðarsamvinnuna í NATO. En það er fleira, sem gerzt hefur í þessu sambandi. Bandaríkin eru í vaxandi mæli að einangrast í heiminum. Stjórnlist eða hvað menn vilja kalla það, það, hvernig Bandaríkjunum er stjórnað í utanríkismálum, er að einangra þau meira og meira frá öllum bandamönnum þeirra í Evrópu. Það hefur lengi verið kunnugt, að stjórnmálamenn Bandaríkjanna hafa yfirleitt ekki þótt sérstakir listamenn á sviði utanríkismála, og nú er það alveg greinilegt, að þeim, sem gegna samsvarandi störfum í Evrópu, er farin að ofbjóða afstaða þeirra í þessum málum. Það er það, sem stundum er kallað heimsstjórnlist Bandaríkjanna, það er þessi afstaða þeirra að ætla að skipta sér af öllu, sem fram fer í heiminum, sletta sér fram í hvað sem gerist í hverju landi og þykjast alls staðar öllu eiga að ráða, sem er að gera það að verkum, að þeir eru að festa sig og geta ekki losnað, þar sem þeir af lítilli fyrirhyggju og mikilli frekju hafa fest sig, eins og við skulum segja í Víetnam, og eiga kannske eftir að gera á fleiri stöðum á eftir.

Það er þetta, sem stjórnmálamönnum Evrópu innan Atlantshafsbandalagsins ofbýður meira og meira og vilja ekki lengur eiga það á hættu að vera drifnir inn í hinar og þessar styrjaldir, sem fávitrir stjórnendur Bandaríkjanna kunna að flækja eða reyna að flækja sína bandamenn inn í.

Hins vegar er rétt fyrir okkur Íslendinga að athuga það, og því vil ég undirstrika nauðsynina á því að fara að hugsa þessi mál snemma, að við komum til með að verða í alveg sérstaklega slæmri aðstöðu, þegar Atlantshafsbandalagið leysist upp. Ég var mikill andstæðingur þess, að við gengjum í Atlantshafsbandalagið, og mér hefur verið ljóst allan tímann, hvaða hættur hafa verið fólgnar í því. En mér er alveg ljóst, að það geta orðið enn þá meiri hættur, sem yfir okkur dynja, um það leyti sem Atlantshafsbandalagið leysist upp, og það er alveg nauðsynlegt, að allir Íslendingar reyni að gera sér ljóst, hvað það er, sem kann að bíða okkar, þegar þannig fer.

Ég hef vakið máls á því nokkrum sinnum undanfarið, að ég væri hræddur um, að þegar Atlantshafsbandalagið leystist upp, mundu Bandaríkin gera tilraun til þess að ná Íslandi sérstaklega undir sín áhrif, undir Bandaríkjanna áhrif beint, án þess að nokkurt Atlantshafsbandalag væri um að ræða. Við vitum, að Bandaríkin byrjuðu með því 1949, 1.okt., áður en Atlantshafsbandalag var til, áður en farið var að tala um nokkra baráttu gegn kommúnismanum eða verndun lýðræðisins, heimtuðu þau þrjár herstöðvar á Íslandi undir sín eigin yfirráð algerlega, undan íslenzku fullveldi, afgirt svæði af Íslandi, sem yrði raunverulega bandarískt land. Það tókst að fá það fram þá, að því var neitað. En það sýndi, að Bandaríkin sem stórveldi voru á því að knýja fram herstöðvar sér til handa á Íslandi um svo að segja ótakmarkaðan tíma eingöngu með tilliti til sinna eigin stórveldishagsmuna, alveg án tillits til allra mögulegra hugmyndafræðilegra átaka eða verndar Evrópu eða nokkurs slíks. Og þessu megum við ekki gleyma, að stórveldishagsmunir Bandaríkjanna hafa áður komið þannig fram gagnvart okkur, að þau hafa gert kröfu til þess að ráða yfir þessu landi, og við vitum ósköp vel, hvað það var, sem þar bjó á bak við. Við vitum ósköp vel, að þegar þeir Churchill og Roosevelt hittust út af Atlantshafsbandalaginu til þess að semja um aðstoð Bandaríkjanna við Bretland, og Bretar fengu sína 50 tundurspilla, þá var samið um það um leið, að allar brezkar herstöðvar í brezkum nýlendum í Vesturheimi yrðu afhentar Bandaríkjunum til 99 ára, og þá eru öll líkindi til og mun vafalaust eiga eftir seinna að koma í ljós, þegar þau skjöl verða birt, sem til hljóta að vera í þeim efnum, þá munu Bandaríkin um leið hafa gert kröfu til þess að fá Ísland inn á sitt yfirráðasvæði og fá slíkar herstöðvar hér og Bretastjórn svarað því, að það væri að vísu ekki á hennar valdi að ráða slíku, en hún gæti hins vegar gengið inn á að afhenda Ísland úr sinu yfirráðasvæði og inn á það ameríska með því að knýja það fram, að íslenzk ríkisstj. bæði um ameríska vernd. Og það var gert í júnílok 1941.

Við vitum þess vegna, að stórveldishagsmunir Bandaríkjanna, þegar burt er séð frá öllu Atlantshafsbandalagi og öllu slíku, þeir hafa áður heimtað það, að Ísland yrði sérstaklega á þeirra yfirráðasvæði, og ég fékk að vita það nú, að einn aðaltrúnaðarmaður de Gaulles Frakklandsforseta, einn aðalhernaðarsérfræðingur hans, hefur fyrir nokkru, — ég fékk að sjá það í opinberu svissnesku blaði, — komið fram með hugmyndir, sem munu vera hugmyndir de Gaulles um, hvernig þróunin yrði á næstunni um þau landssvæði, sem nú tilheyra Atlantshafsbandalaginu eða eru í Atlantshafsbandalaginu: Þær hugmyndir, sem þessi náni trúnaðarmaður de Gaulles setti fram, voru þær, að það mundu rísa upp tvö hernaðarbandalög í stað Atlantshafsbandalagsins. Annað bandalagið mundi samanstanda af 4 ríkjum. Hann taldi þau upp með nafni: Bandaríkin, Kanada, Ísland og England. Þetta bandalag, sem yrði eins konar — í þrengri merkingu þess orðs — Norður-Atlantshafsbandalag, yrði annars vegar það, sem þarna tæki við algerlega undir yfirdrottnun Bandaríkjanna, sem hugsaði sér England og Ísland sem svo að segja sína skildi. Hitt bandalagið, meginlandsbandalag Evrópu, yrði Frakkland, Vestur-Þýzkaland, Benelux-löndin, Ítalía og Spánn. Hins vegar yrðu þau lönd, sem ekki eru í þessum tveim hernaðarbandalögum, Danmörk og Noregur annars vegar, Portúgal, Tyrkland og Grikkland hins vegar, utan við þessi tvö hernaðarbandalög. Það er nokkurn veginn greinilegt, að það, sem við, fáfróðir í þessum málum, höfum óttazt undanfarið og reynt að vekja nokkra athygli á, eru sem sé hugmyndir, sem ern efst á baugi hjá helztu hernaðarsérfræðingum þess, sem enn þá heitir Atlantshafsbandalag. Það eru þeir menn, sem gleggst reyna að gera sér hugmyndir um, hvað muni verða. Þeir hugsa eingöngu út frá hernaðarlegu sjónarmiði í þessum efnum. Þeir eru þegar farnir að ræða og skrifa um þessi mál. Ég mundi ekki óska eftír því, að hverjir þeir sem ættu að sitja hér á þingi 1969 ættu að taka ákvörðun út frá einhverjum svipuðum forsendum, eins og menn voru knúðir til að taka ákvörðun 1949, að menn vissu yfirleitt ekki neitt, hvað það væri, sem menn væru að greiða atkv. með, heldur væri á síðustu stundu komið með eitthvert plagg til þeirra og sagt: Þetta eigið þið að samþykkja. Ég mundi ekki vilja óska eftir því, að þeir menn væru í þeirri aðstöðu, að Bandaríkin kæmu svona álíka og þau komu 24. júní 1941 og segðu við ríkisstj.: Nú verðum við að fá samning við ykkur um, að þið af frjálsum vilja gangið inn á, að Ísland geri þetta og þetta innan 24 klukkutíma. — Þess vegna álit ég nauðsynlegt, að menn þori sem hugsandi menn að ræða um þessi mál, þetta sé ekkert feimnismál, og þó að við séum illa að okkur í öllu, sem heitir hernaðarlist og hernaðarþarfir og annað slíkt, þá reynum við af okkar litlu þekkingu að gera okkur hugmyndir um þetta og fræðast um það, eftir því sem við getum. Þess vegna er það eins eðlilegt og hægt er, að n., eins og er lagt til í þessari þáltill., sé skipuð og látin vinna, látin virkilega afla sér upplýsinga. Mér er ekki kunnugt um, að sú upplýsing, sem ég var að gefa hér áðan, hafi verið gefin af t.d. fulltrúum Íslands hjá NATO. Ef svo er, verðum við upplýstir um það, að hún væri a.m.k. ekki neitt leyndarskjal, svo að það hefði verið óhætt að trúa þm. fyrir slíku.

Við skulum gera okkur ljóst, að svo hættulegt sem var fyrir okkur að mínu áliti að vera í Atlantshafsbandalaginu, á meðan mestur háskinn var, að af hálfu Bandaríkjanna yrði lagt út í landvinningastyrjaldir í þeim efnum og við þannig flæktir inn í þau, yrði hitt enn þá háskalegra að vera knýttir saman við Bandaríkin, eftir að Evrópuríkin, sem hafa miklu raunsærri stjórnendur en. Bandaríkin, væru losuð þar út úr. Bandaríkin sýna svo ótrúlega óforsjálni í þessum efnum, að ef við hugsuðum um þessi mál verulega, ættum við að vilja losa okkur við það að vera flæktir inn í þeirra aðgerðir. Við heyrum bara, hvað menn eins og ábyrgustu ráðh. Norðurlanda, Danmerkur og Noregs, segja nú þegar í þessum efnum í sambandi við Víetnam, og sjáum, að það muni vera lítil löngun til þess hjá forustumönnum hinna ýmsu ríkja Atlantshafsbandalagsins á meginlandi Evrópu að bera neina ábyrgð á ævintýrum Bandaríkjastjórnar í slíku efni. Sízt af öllu ættum við Íslendingar að kæra okkur um það, að við yrðum flæktir inn í það, sem Bandaríkin nú virðast vera að búa sig undir að eiga þátt í, sem sé að um leið og friðvænlegar liti út í Evrópu og líkindi séu til þess, að Evrópuríkin yfirleitt geti komið sér vel saman, og meira að segja að væri hægt að leggja niður hernaðarbandalög í Evrópu, muni eflast að sama skapi sú árátta hjá Bandaríkjastjórn að skipta sér af öllu því og það með hernaðaríhlutun, sem gerist í Afríku, Asíu og Suður-Ameriku. M.ö.o.: þegar þessar nýlendur, sem Evrópumenn áður voru búnir að skipta upp á milli sín, þegar þeir réðu svo að segja yfir öllum heiminum, — þegar þær eru að verða pólitískt frjálsar og vilja reyna með miklum harmkvælum og erfiðleikum að feta sig áfram til þess að hrinda af sér líka yfirdrottnun þeirra auðhringa, sem enn þá hafa tök á þeim, ætli Bandaríkin sér að skipta sér af því, í hvert skipti sem þeim finnst pólitík þessara nýju ríkja ekki vera að sínu skapi, m.ö.o.: þá eigi það hernaðarbandalag, sem Bandaríkin ætla að skapa sér, að verða eins konar varðhundur um auðhringana í heiminum og þeirra ítök í því, sem einu sinni voru nýlendur, og þá væri það hörmulegt, ef við Íslendingar ættum að vera í þeirri aðstöðu að verða slíkur hvolpur í slíku varðhundakerfi Bandaríkjanna. Við, sem áður höfum verið í 600 ár nýlenda og vitum, hvað það er, ættum þá að fá að ljá lið okkar til þess, þótt litið væri, að reyna að gera auðhringum Bandaríkjanna og þeirra herveldi mögulegt að reyna að endurreisa svo að segja nýlendukúgunina í þeim ríkjum heims, sem eru að reyna að brjótast undan henni. Það er þetta, sem mundi bíða okkar, ef svona færi. Og ég álít það vera nauðsynlegt, að hv. þm. hafi opin augu fyrir þessum möguleikum, og þeir gefi sér tíma til þess, áður en næstu kosningar fara fram og áður en kemur árið 1969, þegar við höfum rétt til þess að fara úr Atlantshafsbandalaginu, að vera búnir að hugsa þessi mál á þeim grundvelli, að fyrir þeim liggi allar þær upplýsingar, sem hægt er að fá um þessi mál, en ekki bara á þeim grundvelli, að einhverjir foringjar þeirra segi þeim: Þetta hérna eigið þið að gera. Nú eigið þið að hlýða.

Ég vil þess vegna eindregið óska þess, að menn sýni Alþ. og framtíðarverkefni þess þá virðingu í þessum efnum að ræða þessa þáltill., láta hana ekki aðeins fara til n., heldur líka láta hana koma úr n. og þora að afgreiða hana, taka afstöðu um það, hvort menn eigi að gera það vitandi vits, sem menn gera í þessum málum, eða hvort menn eigi bara að heyra og hlýða.