20.04.1966
Sameinað þing: 38. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í D-deild Alþingistíðinda. (2960)

129. mál, réttur til landgrunns Íslands

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Efni þessarar þáltill. er, eins og 1. flm. hefur nú getið, að Alþ. kjósi 7 manna nefnd til að vinna ásamt ríkisstj. að því að afla viðurkenningar á rétti Íslands til landgrunnsins alls, eins og í tillgr. stendur. Fyrir réttu ári eða í lok síðasta þings var borin hér fram á Alþ. þáltill., sem var nokkuð svipaðs eðlis og þessi, að vísu gekk hún ekki eins langt, en fjallaði um sama efni, þ.e.a.s. það var þáltill. um útfærslu fiskveiðilandhelginnar fyrir Vestfjörðum. Skal ég fara nokkrum orðum um þær umr., sem þá fóru fram. Hún kom að vísu seint fram og náði ekki afgreiðslu, en í sambandi við umr. um málið, sérstaklega í utanrmn., lét fyrrv. utanrrh. getið nokkurra atriða, sem ég tel rétt að komi hér fram.

Hann sagði eitthvað á þá leið, að á meðan landhelgissamningurinn við Breta var í gildi, hefði lítið verið hægt að gera, en ríkisstj. hefði samt notað tækifærið til þess að kynna stefnu Íslendinga og skoðanir á erlendum vettvangi, eftir því sem tækifæri hefðu gefizt. Í því sambandi var minnt á ráðstefnu um fiskveiðimál, sem haldin hafði verið þá nokkru áður í London, en þar hefðu fulltrúar Íslands skýrt og skilmerkilega skýrt frá því, að 12 mílna landhelgin væri ekki lokatakmark Íslendinga og þeir mundu halda áfram að vinna að landhelgismálinu á þeim grundvelli, að Ísland fengi yfirráðarétt yfir öllu landgrunninu. Ekki hefði þó gefizt tækifæri til þess að koma skoðunum Íslendinga á framfæri á öðrum alþjóðaráðstefnum en þessari.

Um sjálfa till.. sem þá var borin fram, var talið, að það gæti verið varhugavert að taka eitt svæði við strendur landsins út úr heildinni og betra mundi að bíða tækifæris og reyna, þegar tímabært væri, að færa landhelgina alls staðar út. Þá var einnig í þessum umr. bent á það, að réttarstaða okkar væri ekki sterk og við yrðum þess vegna að fara mjög gætilega í sakirnar, eins og hv. frsm. þessarar till. benti líka á. Í sjálfu sér er ekki, að ég ætla, neinn ágreiningur um þetta mál, hvorki hér á þingi né meðal annarra manna, sem um málið hafa fjallað. Stefnan kemur mjög greinilega í ljós í ályktun Alþingis frá 1959, þar sem því er slegið föstu, að Íslendingar eigi ótviræðan rétt til 12 mílna fiskveiðilandhelginnar og að afla beri viðurkenningar á rétti þess til landgrunnsins alls. Þetta var, eins og hér hefur verið nefnt, samþ. samhljóða á Alþ., og ég veit ekki annað en ríkisstj. öll sé þessarar sömu skoðunar og muni vilja láta vinna eftir því. Spurningin er þess vegna ekki um efni máls í þessu sambandi, heldur, ef um nokkra spurningu er að ræða, þá er hún um það, hvernig málið skuli leggja fyrir og hvernig það skuli bera að. Í grg., sem þessari till. fylgir, er því haldið fram, að það sé höfuðnauðsyn, að málið sé vel og rækilega undirbúið, áður en farið sé af stað með það. Ég er alveg sammála þessari ályktun flm. till. Þar verður aldrei of vel vandað til, og raunverulega getum við búizt við, að úrslit málsins, sem kannske mætti segja að á þessu stigi væru nokkuð vafasöm, gætu oltið á því, hversu vel væri vandað til undirbúnings málsins. Ég er þess vegna alveg sammála því, sem í grg. till. segir, að þennan undirbúning verði vel að vanda.

Ég hef ekki átt lengi sæti í því embætti, sem ég nú gegni, en þó nokkrum sinnum og raunar æði oft leitt hugann að því, á hvern hátt væri bezt að haga þessum undirbúningi, sem ég er alveg sammála um að þurfi að fara fram. Og ég held, að það verði ekki á annan hátt betur gert en að ríkisstj. fái þá sérfræðinga, sem hún treystir bezt, til að leggja málið upp og finna fram þau rök, sem þeir telja sterkust og líklegust til áhrifa, og leggja þau fyrir ríkisstj., áður en farið er af stað með málið. Ég er líka sammála því, sem frsm. sagði og raunar stendur einnig í grg., að mjög nauðsynlegt er, að full samstaða geti orðið um málið, og sé ég sannast sagna ekki, að það ætti ekki að geta orðið, vegna þess að stefna Alþ. og stefna ríkisstj. fara fullkomlega saman í málinu. Það er viðurkennt, að hvaða marki skuli stefnt. Það er ekki búið að ákveða, hvaða leiðir skuli fara til að ná þessu marki, en ég efast ekkert um, að með góðum vilja verði hægt að sameinast um þessar leiðir einnig. Þó vil ég segja það, að ég er ekki viss um, að þessi till., sem hér liggur fyrir um að kjósa 7 menn til þess ásamt ríkisstj. að afla þessarar viðurkenningar, sé tímabær í augnablikinu. Ég mundi segja, að það, sem lægi fyrir í augnablikinu, væri fyrst og fremst að fá hin sérfræðilegu álit fram og öll rök, sem gætu stutt að því að málið gengi fram, og þegar það væri fengið, þá væri leitað samstarfs allra flokka um það, hvernig með skyldi fara. Á meðan þessi sérfræðiálit eru ekki til staðar, tel ég vafasamt, að þessi 7 manna n., sem er allstórt bákn, því að væntanlega mundu koma einnig til fulltrúar frá ríkisstj., þá tel ég vafasamt, að hún hafi verkefni til að vinna, fyrr en hún hefur fengið umsögn fræðimannanna, sem leita þarf til. Fræðimennirnir þurfa að vera fyrst og fremst kunnáttumenn í alþjóðarétti, en í öðru lagi þurfum við líka að fá umsagnir líffræðinganna, bíólóganna, sem þurfa að gera grein fyrir því, hvernig háttar með fiskistofninn í kringum landið, hvaða hættur steðja að honum og hvernig bót verður ráðin á þeim hættum, eða réttara sagt komið í veg fyrir þær hættur, og í þriðja lagi þurfum við að fá sérfræðinga til þess að gera grein fyrir því, hvernig lífsafkoma þjóðarinnar er bundin við þessa útfærslu fiskveiðilandhelginnar. Það er alveg greinilegt, að ef svo heldur fram sem horfir, að fiskstofninn í Norður-Atlantshafinu rýrni með hverju ári sem liður, þannig að veiðin á hverja veiðieiningu minnki, þó að heildarmagn enn þá að minnsta kosti hjá okkur hafi farið vaxandi, þá er sú hætta yfirvofandi, að fyrr en varir geti aflamagnið farið niður í það, sem er alls ónóg fyrir okkur Íslendinga til þess að lifa því sama menningarlífi, sem við höfum lífað undanfarin ár og áratugi, tvo að minnsta kosti. Þetta þurfum við allt að hafa í höndunum, þegar við leggjum upp með málið.

Í fyrra, þegar málið var til meðferðar hjá utanrmn., bar það á góma, hvort æskilegt mundi að leita til Sameinuðu þjóðanna um nýja ráðstefnu, svipað því, sem gert var 1958 og 1960. Þetta taldi utanrmn. ekki kominn tíma til að gera enn sem komið væri, og ég er alveg sammála því. Það þarf að koma annað á undan, sem byggt verði á.

Sem sagt, mín afstaða við fljóta athugun á þessu er sú, að ég er að segja má í einu og öllu samþykkur þeim rökum og þeirri till., sem hér liggur fyrir, að öðru leyti en því, að ég tel ekki á þessu stigi málsins nauðsynlegt, að farið verði út í að koma á laggirnar þessari stóru sjö mannanefnd, sem hafi þetta mál til meðferðar, heldur sé réttara að geyma það þangað til við fáum betri og fyllri upplýsingar.

Ég tel sjálfsagt, eins og flm. lagði til, að málinu verði vísað til utanmrn. og hún fái tækifæri til, áður en þinginu lýkur, að gera till. um málið, og mundi ég þá kannske ræða frekar um einstök atriði í þessu sambandi. Ég hef með vilja ekki farið út í að ræða fiskveiðilandhelgismálið málefnalega, því að eins og ég segi, við erum sjálfsagt flestir eða allir sammála um það, en hef eingöngu haldið mig við það, hvernig málsmeðferðin skuli vera, og ég fyrir mitt leyti tel, að hún verði bezt þannig, að við fáum fyrst sérfræðinga og tökum síðan ákvörðun sameiginlega, helzt allir flokkar og alþm., um það, hvernig þessi heimildaratriði og þessar till., sem við frá sérfræðingunum fáum, verði notaðar.