13.04.1966
Sameinað þing: 36. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í D-deild Alþingistíðinda. (2979)
140. mál, takmörkun sjónvarps frá Keflavíkurflugvelli
(Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Undanfarin missiri hefur mikið verið rætt og ritað hér á landi um sjónvarp og sjónvarpsmál, svo sem alkunnugt er. Til þess liggja margvísleg rök. Það er fyrst að nefna, að sjónvarp er tiltölulega nýtt, en geysilega áhrifamikið tæki, sem heita má, að hafi lagt undir sig heiminn á undraskömmum tíma. Nú er svo komið, að það er orðið daglegt brauð með fjölmörgum þjóðum, líkt og bækur, blöð og útvarp. Sjónvarp situr svo að segja í öndvegi á heimilum manna með kostum sínum og göllum, albúið þess að miðla fréttum, fróðleik, skemmtun, áróðri og yfirleitt þjóna hverju því hlutverki, sem ráðamenn sjónvarpsstöðva telja henta og ákveða, að það skuli þjóna. Og sjónvarp er að því leyti öflugra og áhrifameira tæki en flest önnur, að það nær ekki einungis til þroskaðra áhorfenda eða lesenda, eins og bækur, heldur til ómótaðra barna og unglinga í mótun. Það hefur jafnvel sérstakt aðdráttarafl fyrir æskufólk. Það er því ljósara en um þurfi að ræða, að sjónvarp hefur og hlýtur að hafa mikilvæg áhrif á hina ungu kynslóð. Það verður sterkur þáttur í mótun hennar og uppeldi.
Þar sem stofnun íslenzks sjónvarps hefur fyrir nokkru verið ákveðin og rekstur þess er á næstu grösum, mætti telja það eitt ærna ástæðu til umr. um sjónvarpsmál. Svo mikið er í húfi, að vel takist til um þá starfsemi, sem Íslendingar ætla nú að hefja, að rökræður um áhrifamátt sjónvarps, um kosti þess og galla, eru sízt að ófyrirsynju né ótímabærar nú af þeirri ástæðu, að við erum að hefja sjónvarpsrekstur. En um þessa hlið málsins, um rekstur íslenzks sjónvarps, mótun þess og höfuðmarkmið, hafa umr. þó fram að þessu orðið næsta litlar, og ég vil segja, að þær hafa orðið stórum minni og einhæfari en vert væri. En ástæðan til þess er vafalaust sú, að við Íslendingar höfum nú um skeið búið við það ástand í sjónvarpsmálum, sem mun dæmafátt eða jafnvel dæmalaust í veröldinni. Hér hefur aðila frá öðru ríki verið heimilaður sjónvarpsrekstur, sem nær eða getur a.m.k. náð til meiri hl. þjóðarinnar. Og þar er ekki um að ræða almennan eða venjulegan sjónvarpsrekstur, sem sniðinn er við hæfi þjóðfélagsborgara yfirleitt, heldur tómstunda- og skemmtisjónvarp, sem er ætlað amerískum hermönnum til dægrastyttingar í einangrun þeirra í framandi landi.
Ég tel ekki þörf á því að þessu sinni að rekja í löngu máli sögu þessa sjónvarps, herstöðvarsjónvarpsins hér, enda býst ég við, að hún sé öllum hv. alþm. nokkurn veginn kunn. Ég mun einnig láta hjá líða, nema þá sérstakt tilefni gefist til, að fjölyrða um það, hverjir beri ábyrgð á þeirri þróun, sem þessi mái hafa tekið. Það er liðin tíð. Og í dag skiptir það vitanlega langmestu máli, hvort íslenzkir ráðamenn, hvort Alþ. og stjórnarvöld gera sér ljóst, að þessi sjónvarpsrekstur er orðinn stórfellt þjóðfélagslegt vandamál, og ef menn gera sér það ljóst, að þeir gangi þá heils hugar að því verki að leysa þennan vanda með skaplegum og skynsamlegum hætti. Fáein atriði, að því er varðar forsögu málsins, tel ég þó óhjákvæmilegt að rekja í stuttu máli.
Þegar íslenzk stjórnarvöld veittu bandaríska hernum upphaflega leyfi til að reka sjónvarpsstöð á Keflavíkurflugvelli, þá var það ekki sízt gert á þeim forsendum samkv. yfirlýsingu ráðamanna þá, að með þeirri ráðstöfun mundi draga úr ferðum hermanna út fyrir herstöðina. Þetta upphaflega leyfi var formlega veitt 7. marz 1955 af póst- og símamálastjóra, eftir að hann hafði haft samráð við ríkisútvarpið, sem lögum samkv. hefur einkaleyfi á útvarps- og sjónvarpssendingum hérlendis, og að fenginni heimild utanrrh., sem fer með málefni herstöðvarinnar. Í leyfisbréfi þessu frá 1955 er það tekið fram, að bandaríska herliðinu á Keflavíkurflugvelli sé í bili og þangað til annað verður því tilkynnt veitt heimild til að framkvæma tilraunasjónvarpssendingar. Það skilyrði var enn fremur sett fyrir leyfisveitingunni, að styrkleiki stöðvarinnar yrði ekki meiri en 50 vött og sendingum yrði ekki beint til Reykjavíkur eða út fyrir herstöðvarsvæðið, heldur yrði hringurinn, sem sjónvarpssendingarnar næðu til, takmarkaðar með þar til gerðum skermi. Árið 1956 fóru Bandaríkjamenn fram á leyfi til að stækka sjónvarpsstöðina á Keflavíkurflugvelli, en var þá synjað um heimild til þess af sömu stjórnarvöldum og veitt höfðu sjónvarpsleyfið árið áður, þetta takmarkaða leyfi. Við þetta sat síðan í 5 ár. Fáeinir Íslendingar utan herstöðvarinnar keyptu sér sjónvarpstæki, en munu hafa haft af því takmarkaða ánægju. enda má segja, að sjónvarp væri allan þennan tíma bundið við herstöðina eina, eins og fyrir var mælt í heimild íslenzkra stjórnarvalda. En árið 1961, hinn 17. apríl, veitir svo póst- og símamálastjórnin að fenginni heimild ríkisútvarpsins og utanrrh. leyfi til að stækka sjónvarpsstöðina á Keflavíkurflugvelli úr 50 í 250 vött, þannig að orka hennar fimmfaldaðist. Fullyrt var af ráðamönnum, að þetta væri einungis gert vegna þess, að gamla sjónvarpsstöðin væri of lítil og úr sér gengin, hins vegar mundi stækkunin hafa hverfandi litla breytingu í för með sér, að því er tæki til sjónvarpssendinga út fyrir herstöðina. Þessi stækkun var síðan framkvæmd, og jafnhliða voru gerðar tvær aðrar ráðstafanir, sem ég hygg, að reynzt hafi æði örlagaríkar. Önnur var sú, að hætt var að nota sjónvarpsskerma eða skerm til þess að draga úr sendiorku stöðvarinnar. En hin var í því fólgin, að í stað þess að áður munu venjulegir símastaurar hafa verið notaðir sem loftnet hinnar gömlu og litlu sjónvarpsstöðvar, þá voru nú settar upp nýjar, háar og tiltölulega voldugar sjónvarpsstengur, sem leystu gömlu símastaurana af hólmi. Kunnáttumenn um tækni að því er varðar sjónvarp og sjónvarpssendingar fullyrða, að þessi hin síðastnefnda ráðstöfun ein hafi aukið sendingarmátt stöðvarinnar öllu meira en aukning orkunnar úr 50 í 250 vött. Það stafar af því, að með hækkun loftnetanna var svokölluð sjónlína stöðvarinnar hækkuð mjög verulega. Reyndin varð líka sú, að eftir allar þessar aðgerðir náðu sjónvarpssendingar frá Keflavíkurflugvelli hæglega til Reykjavíkur og raunar um allt Faxaflóasvæðið, þar sem búa nær 3/5 hlutar allra Íslendinga. Þróunin hefur líka orðið á þá lund, að sívaxandi fjöldi íslenzkra manna hefur aflað sér sjónvarpstækja, svo að nú eru þau komin á mörg þúsund heimili. Það veit víst enginn, hversu mörg sjónvarpstæki eru nú í eigu íslenzkra manna. Að vísu mun einhver tilraun hafa verið gerð af hálfu ríkisútvarpsins til að komast að raun um fjölda sjónvarpstækja í eigu Íslendinga, en hætt er við, að sú könnun hafi verið harla ónákvæm. Ég hef heyrt ýmsar tölur nefndar í þessu sambandi, 6, 8 eða 10 þúsund. Ég vil ekkert um það fullyrða, hvort þessar tölur eru nærri lagi, en hitt er hafið yfir allan vafa, að útbreiðsla sjónvarpstækja í þéttbýlinu hér við Faxaflóa er orðin mjög mikil og miklu meiri en flestir gerðu sér í hugarlund að verða mundi, þegar hið síðara leyfi um stækkun stöðvarinnar var veitt 1961. A.m.k. hafa ýmsir áhrifamenn lýst því yfir á opinberum vettvangi, að þá hafi ekki órað fyrir því árið 1961, að útbreiðsla sjónvarpsins yrði slík sem raun ber vitni, og það hefur ljóslega mátt skilja á ummælum þessara manna, að afstaða þeirra til stækkunar sjónvarpsstöðvarinnar mundi hafa orðið allt önnur en varð, ef þeim hefði komið til hugar, að herstöðvarsjónvarpið næði að vörmu spori, þ.e.a.s. eftir örfá ár, inn á gafl á þúsundum, kannske tugum þúsunda íslenzkra heimila. En nú er þetta orðin staðreynd. Þetta er staðreynd, hverju eða hverjum sem þarna er um að kenna.
Því er ekki heldur að leyna, að ríkjandi ástand í þessum efnum á sína formælendur og það vafalaust ekki mjög fáa. Þá sjaldan reynt er að halda uppi einhverjum rökræðum af hálfu þeirra manna, sem sjá ekkert athugavert við það, að herstöðvarsjónvarpið sé jafnframt sjónvarp handa Íslendingum, er einkum hampað eftirfarandi röksemdum, ef röksemdir skyldi kalla, staðhæfingar vil ég fremur kalla það: Íslendingar eiga að hafa frelsi til að sjá og heyra hvað sem þeim sýnist og það sem kostur er á, segja þessir menn. Það er frelsisskerðing, segja þeir, að takmarka Keflavíkursjónvarpið við herstöðina eina. Síðan halda þeir áfram og segja: Íslenzk menning er svo sterk og svo rótgróin, að henni stafar engin hætta af sjónvarpsrekstri eins og þessum. Það er karlanöldur eitt, vilja þeir halda fram, það er ekki annað en leifar af útkjálkahugsunarhætti þeirra, sem vilja forðast erlend áhrif, vilja einangra sig frá umheiminum, að vera að amast við þessu herstöðvarsjónvarpi. Slíkt er, segja menn, háttur hins þröngsýna heimaalnings, sem hræðist nýjungar og tækni. Þetta hefur maður lesið nýlega. Og enn segja menn: Innan skamms kemur alþjóðasjónvarp. Ætla menn þá einnig að berjast gegn því?
Við þessar og þvílíkar röksemdafærslur eða þessar og þvílíkar staðhæfingar er að mínu viti margt að athuga. Ég skal aðeins drepa á fátt eitt. Það er þá fyrst að nefna, að hér er sízt um frelsi eða eitthvert sérstakt mannréttindamál að ræða. Enginn Íslendingur getur gert neina kröfu til þess, að erlend þjóð sjái honum fyrir ókeypis sjónvarpsefni, og þó að einhver erlend þjóð af einhverjum ástæðum kysi að gera slíkt, þá hníga engin eðlileg rök að því, að íslenzk stjórnarvöld heimili erlendum aðila að beita áhrifaríkasta áróðurstæki veraldar í íslenzku þjóðlífi. Slíkt getur vitanlega hvorki samrýmzt metnaði né þjóðarvitund nokkurrar þjóðar, að öðru ríki sé með svo áhrifamiklum hætti gefinn kostur á að móta einhliða smekk landsmanna og skoðanir.
Því er stundum hampað, að andstaðan gegn herstöðvarsjónvarpinu sé hliðstæð við það, að tekin sé upp barátta gegn því, að menn lesi erlendar bækur, bækur á erlendum málum. Ég tel aftur á móti, að krafan um, að herstöðvarsjónvarpið sé rekið sem eins konar íslenzkt þjóðarsjónvarp, hún sé helzt sambærileg við það, ef tungumál og bókmenntir einnar framandi þjóðar væri gert að ríkismáli hér, kennt sem slíkt í skólum, notað í kirkjum o.s.frv. Og eftir að íslenzkt sjónvarp væri komið með til að mynda tveggja klst. dagskrá, en Keflavíkurdagskráin væri áfram 7—14 klst., þá værum við eitthvað líkt settir og Færeyingar snemma á 19. öld, þegar danskan hljómaði af prédikunarstólnum þrjá sunnudaga af hverjum fjórum, en prédika mátti fyrir náð á færeysku í hæsta lagi fjórða hvern sunnudag. Ég vil spyrja: Hver hefðu orðið örlög íslenzkrar tungu og íslenzkra bókmennta, ef Danir hefðu til að mynda um siðaskipti gert dönskuna að kirkju- og skólamáli hér á landi? Þeir Íslendingar voru vissulega til, ekki sízt á 18. öld, sem vildu, að landsmenn legðu niður tungu sína og tækju upp dönsku af hagkvæmnisástæðum og til þess að rjúfa einangrun landsins. En þeir fengu því ekki ráðið, og munu fáir Íslendingar nú á dögum harma það.
Sú staðhæfing, að andstaðan gegn herstöðvarsjónvarpi inn á íslenzk heimili beri vott um vilja til að einangra Íslendinga frá umheiminum, er fráleit og naumast svaraverð. Ég fullyrði, að í röðum andstæðinga herstöðvarsjónvarpsins er fjöldi manna, sem hefur á því sízt minni skilning en jábræður þessa sjónvarps yfirleitt, að Íslendingar eiga að hafa góð og náin samskipti við aðrar þjóðir, ekki sízt í menningarefnum. En slík samskipti ber okkur að hafa við sem flestar þjóðir, og þau eiga að fara fram á eðlilegan og verðugan hátt. Sama máli gegnir um afstöðu til alþjóðasjónvarps, þegar það kemur til sögunnar, enda má gera ráð fyrir, að það verði háð alþjóðlegu samkomulagi og lúti jafnvel einhverju alþjóðlegu eða samþjóðlegu eftirliti. Það á vissulega ekkert skylt við hneigð til einangrunar eða ótta við eðlileg menningarleg samskipti, þó að menn snúist gegn því, að einu tilteknu stórveldi séu veitt þau dæmalausu forréttindi að hafa gagnger áhrif á og móta smekk, hugsunarhátt og lífsviðherf heillar þjóðar. Hér gildir einu, hvaða erlent ríki á í hlut og hvort við teljum menningu þess góða, miðlungi góða eða miður góða. Vitanlega getum við Íslendingar margt jákvætt lært af Bandaríkjamönnum, ekki sízt á sviði vísinda og tækni. En hitt er fráleitt, að við kynnumst verðmætustu þáttum amerískrar menningar í herstöðvarsjónvarpinu. Til þess eru aðrar leiðir vitanlega eðlilegri og líklegri til árangurs.
Að mínu viti er kjarni þessa máls engan veginn sá, þótt það skipti vissulega máli, hvort sjónvarpsefnið frá Keflavíkurstöðinni er gott eða illt eða blendingur af þessu tvennu. Meginatriðið er vitanlega hitt, að engin sjálfstæð menningarþjóð getur látið sér sæma, að erlendur aðili, hver sem hann er, hafi sérstöðu um sjónvarpsrekstur í landi hennar. Hinn erlendi aðili er ekki bundinn neinum skyldum við íslenzkt þjóðfélag. Hann miðar störf sín við allt önnur viðhorf. Hann lýtur ekki íslenzkum lögum um rekstur né efnisval. Mundi nokkrum detta í hug að veita auðugri milljónaþjóð sérleyfi eða einkaleyfi til bóka- og blaðaútgáfu hér á landi? Slíkt væri vitanlega fjarstæða. En það er þó á margan hátt algerlega sambærilegt við það, sem orðið hefur í reynd í sjónvarpsmálinu.
Nú kann einhver að spyrja: Er ekki stórum minni ástæða en áður til að takmarka herstöðvarsjónvarpið, eftir að íslenzkt sjónvarp tekur til starfa? Þar til er að mínu viti þessu að svara: Með tilkomu íslenzks sjónvarps fjölgar að sjálfsögðu sjónvarpstækjaeigendum stórlega og mjög ört. Þá er og í ráði að innheimta allhátt afnotagjald af eigendum sjónvarpstækja, og það á að standa að verulegu leyti undir rekstri hins íslenzka sjónvarps. Nú gilda að sjálfsögðu þau almennu viðskiptalögmál um íslenzka sjónvarpið, að það verður að greiða fyrir innlent jafnt sem erlent sjónvarpsefni. Er vandséð, hvernig stjórnendur íslenzka sjónvarpsins ætla að standast samkeppni við erlent sjónvarp, kostað af auðugustu þjóð heims, sem munar ekkert um að sjónvarpa hér hvort heldur er 7 eða 14 klst. á dag, á meðan hið íslenzka sjónvarp mun eiga fullt í fangi með að standa straum af 2 eða í hæsta lagi 3 klst. dagskrá.
Með tilkomu íslenzka sjónvarpsins verða slík tímamót í þessum málum, að annað tveggja verður hið erlenda sjónvarp takmarkað þá eða það verður ekki gert um ófyrirsjáanlega framtíð.
Ég sé ekki ástæðu til að rökræða það, hvort sjónvarpsdagskrá Keflavíkursjónvarpsins er góð eða léleg. Frá mínu sjónarmiði er það engan veginn kjarni málsins. Mér hafa tjáð skilríkir menn, sem eiga sjónvarpstæki og eru þessum efnum nokkuð kunnugir, að þessi dagskrá sé afar misjöfn, þar séu ýmsir þokkalegir, jafnvel góðir skemmtiþættir, stöku sinnum og þó sjaldan listrænar kvikmyndir, svo og tónverkaflutningur af ýmsu tagi, en margt sé þar einnig, mjög margt, af lélegu og jafnvel óhæfu efni, einkum ef höfð eru í huga börn og ómótaðir unglingar, sem oft verða hvað fíknust í að horfa á það, sem er hrollvekjandi og veldur sem mestri taugaspennu. Og það gefur að sjálfsögðu auga leið, að öll er þessi dagskrá gagnsýrð af algerlega framandlegum hugsunarhætti, framandlegum viðhorfum, enda við það sniðin að vera dægrastytting fyrir nokkur þúsund ameríska hermenn, sem eru hér í fásinni og einangrun, sjálfum sér og öðrum til leiðinda. Nei, kjarni þessa máls er ekki sá, hvort sjónvarpið á Keflavíkurflugvelli er sæmilegt eða lélegt eða jafnvel gott. Hér er einfaldlega um það að ræða, hvort það sé sæmandi fyrir þjóð, sem telur sig sjálfstæða menningarþjóð og vill halda áfram að vera það, að leyfa rekstur svo áhrifamikils tækis sem sjónvarp er, án þess að hafa um það neinar forsagnir né að það lúti í einu eða öðru íslenzkum lögum eða íslenzkum reglum.
Það er að vísu rétt, sem sagt hefur verið, að um þjóðlegan metnað tjáir kannske lítt eða jafnvei ekki að rökræða. Slíkt er tilfinning, sem menn bera í brjósti. Þeir, sem kunna að vera slegnir þeirri tilfinningu, láta vitanlega sem vind um eyrun þjóta, þótt skírskotað sé til slíkrar kenndar. Hinir ættu að gera sér það ljóst, að ástand þessara mála hér á landi í dag er óviðunandi og niðurlægjandi. Þetta hafa þeir menn fundið, sem fyrr og síðar hafa í ræðu og riti gagnrýnt ríkjandi ástand og varað við afleiðingum þess. Þeirra á meðal eru margir kunnustu menn þjóðarinnar, kunnir menn á vettvangi félagsmála, uppeldismála, lista og vísinda. Og nú síðast hefur þorri íslenzkra háskólastúdenta tekið mjög rösklega og myndarlega í þennan sama streng.
Viðhorf manna til þessa sjónvarpsmáls eru óháð stjórnmálaskoðunum og afstöðu manna til dvalar erlends hers í landinu. Andstaða fjölmargra manna úr öllum stjórnmálaflokkum gegn óheftu herstöðvarsjónvarpi mótast fyrst og fremst af heilbrigðum, íslenzkum þjóðarmetnaði og af ábyrgðartilfinningu gagnvart heilbrigðu uppeldi æskufólks, gagnvart íslenzku menningarlífi.
Menn gera sér það ljóst, að geysilega áhrifamikið tæki, eins og sjónvarpið er, verður að vera í höndum þjóðarinnar sjálfrar. Það kemur beint inn á heimilin, gagnstætt t.a.m. kvikmyndum þeim, sem sýndar eru í kvikmyndahúsum. Sjónvarpið getur fremur en nokkurt annað tæki mótað skoðanir æskufólks og smekk, lífsvenjur og lífsviðhorf, eins og ég lef áður lagt áherzlu á. Það er því afar mikilvægt, að slíku tæki sé vel stjórnað og eðlilegar skorður reistar við allri hugsanlegri misnotkun þess. Engin sjálfstæð menningarþjóð getur látið það viðgangast, að erlendur aðili hafi sérstöðu um rekstur slíks tækis í landinu. Það mundi ekki tjóa fyrir íslenzka einstaklinga, flokka eða félög að sækja um leyfi til sjónvarpsrekstrar. Þó vildi ég segja, að það væri ólíkt nær lagi og háskaminna heldur en hitt, sem nú er látið viðgangast. Slíkum rekstri í höndum félaga eða jafnvel einstaklinga mætti þó setja starfsreglur og margvíslegar skorður að íslenzkum lögum. Slíkur rekstur mundi háður opinberu eftirliti. Það mundi hafa aðhald af frjálsri gagnrýni. Engu slíku er til að dreifa um herstöðvarsjónvarpið.
Allt um það hefur löggjafarvaldið talið langsamlega réttast og eðlilegast að veita ríkisvaldinu einkarétt til rekstrar fjarskiptatækja, svo sem útvarps og sjónvarps, og það má telja líklegt og raunar víst, að undanþága yrði ekki undir neinum kringumstæðum veitt íslenzkum aðila. Er þá nokkur heil brú í því að veita erlendu stórveldi slíkt leyfi, samþykkja án eftirlits eða minnstu takmarkana rekstur sjónvarpsstöðvar, sem nær til meiri hluta þjóðarinnar?
Ég get ekki látið hjá líða að fara um það fáeinum orðum, hver áhrif Keflavíkursjónvarpið hefur nú þegar og hlýtur að hafa í vaxandi mæli, verði engar skorður reistar, á ýmsa menningarviðleitni okkar fámennu þjóðar. Það er reynsla annarra landa, þar sem sjónvarp hefur tekið til starfa og náð verulegri útbreiðslu, að það hefur alls staðar reynzt skæður keppinautur margvíslegrar menningarstarfsemi, einkum þó fyrstu árin. Sjónvarp hefur dregið úr aðsókn að leikhúsum, hljómleikum og kvikmyndahúsum. Blaða-, tímarita- og bókakaup fara minnkandi, a.m.k. um sinn. Við Íslendingar erum að basla við að halda uppi slíkri og þvílíkri starfsemi, við kostum til þess miklum fjármunum og mikilli fyrirhöfn, og öll þessi starfsemi svo að segja á í vök að verjast vegna fámennis þjóðarinnar. En við teljum, Íslendingar, við höfum talið og teljum enn, að þessi og önnur slík menningarviðleitni okkar sé bæði sjálfsögð og nauðsynleg, og við viljum, að hún eflist, en biði ekki varanlega hnekki.
Nú er það vitanlega ljóst, að innlent sjónvarp getur orðið öðrum menningarstofnunum, sem höllum fæti standa, nokkuð þungt í skauti, ég vona, að sjónvarpið okkar verði menningarstofnun og megi þess vegna tala um aðrar menningarstofnanir. En þegar um það er að ræða, íslenzkt sjónvarp, er þó það að aðgæta, að því er ekki ætlað að starfa nema skamman tíma dag hvern, og ætla verður, að það veiti þó nokkra uppbót menningarlega séð fyrir það, sem kynni í bili að tapast á öðrum vettvangi. A.m.k. má gera ráð fyrir, að það flytji íslenzka list að einhverju töluverðu marki og að það ráði í þjónustu sína íslenzka listamenn, sem þannig fengju að töluverðu leyti ný verkefni til nokkurs mótvægis við það, sem þeir kynnu að missa vegna samdráttar, sem óhjákvæmilega gæti orðið hjá öðrum menningarstofnunum þjóðarinnar.
En varðandi hermannaútvarpið frá Keflavík er engu slíku til að dreifa eins og þessu. Það hefur í fyrsta lagi miklu lengri sjónvarpsdagskrá en nokkur gerir ráð fyrir, að íslenzkt sjónvarp hafi í náinni framtíð. Keflavíkursjónvarpið er kostað af auðugustu þjóð heims, og það á þess vafalaust kost að sjónvarpa margvíslegu léttu skemmtiefni, sem höfðar ekki hvað sízt til ómótaðs æskufólks, og það yrði þess vegna oft þungur róðurinn að kenna þessu æskufólki að meta menningarlegri viðfangsefni og að njóta menningarlegra íslenzkra viðfangsefna.
Það er sjálfsagt örðugt að gera sér grein fyrir því, hversu mikið og hversu varanlegt tjón hlytist af óheftu herstöðvarsjónvarpi á komandi árum, að því er varðar íslenzka menningarviðleitni yfirleitt. En eftir að sjónvarp væri komið á nær hvert íslenzkt heimili, hlytu slík áhrif herstöðvarsjónvarpsins að verða stórfelld og mjög örlagarík. Það er eiginlega sama, hvert litið er á vettvangi íslenzkra menningarmála, hvort við lítum til leikhúsanna, til sinfóníuhljómsveitarinnar, til bókaútgáfu, til tímarita- og blaðaútgáfu. Ég fullyrði, að hvarvetna yrði um vaxandi örðugleika að ræða. Og það má nefna kvikmyndahúsin einnig í þessu sambandi, því að þótt menningargildi kvikmynda, sem sýndar eru í þeim húsum, sé vitanlega harla misjafnt, þá standa kvikmyndahúsin íslenzku undir rekstri ýmissa menningarog mannúðarstofnana, en önnur eru skattlögð í sama skyni. Og í því sambandi, að því er snertir kvikmyndahúsin, má minna á það, að hér eiga hlut að máli stofnanir eins og háskólinn, eins og þjóðleikhúsið, eins og sinfóníuhljómsveitin, félagsheimilasjóður, elliheimili og fleiri aðilar.
Ég hef með vilja látið hjá líða að rekja í smáatriðum hina heldur óskemmtilegu sögu þessa sjónvarpsmáls eða hvernig það hefur þróazt. Í dag er það mikilvægast, hvort ábyrgir aðilar hafa gert sér grein fyrir afleiðingum þeirrar þróunar, sem þegar er orðin og hlýtur að verða með stórfelldri fjölgun sjónvarpstækja á íslenzkum heimilum, ef hér verður ekki á móti spyrnt. Hafi hv. Alþ. og hæstv. ríkisstj. gert sér ástandið fullkomlega ljóst, er vissulega mál til komið, að hér verði nú skorður við reistar. Flm. þessarar till. lita svo á, að eigi síðar en við þau tímamót, þegar íslenzkt sjónvarp tekur til starfa, beri stjórnarvöldunum að sjá til þess, að Keflavíkursjónvarpið verði takmarkað við herstöðina eina. Ástæða er til að ætla, að þessi sé vilji meiri hl. Alþ. Þeir alþm., sem frá upphafi hafa verið andvígir leyfisveitingum til rekstrar sjónvarps á Keflavíkurflugvelli, svo og þeir, sem því hafa mótmælt, að slík starfsemi næði út fyrir herstöðina sjálfa, eru vitanlega allir á einu máli um, að sú takmörkun, sem hér um ræðir, sé bráðnauðsynleg. En sömu stefnu hljóta þeir einnig að taka, sem viðurkenna, að afleiðingarnar af stækkun sjónvarpsstöðvarinnar 1961 hafi orðið aðrar og miklu stórfelldari en þeir gerðu sér í hugarlund. Og það er sannast mála, að margir hafa vafalaust gert sér litla grein fyrir því þá, hver þróunin yrði á skömmum tíma í þessum efnum, að Keflavíkursjónvarpið yrði á fáeinum árum eins konar ríkissjónvarp á Íslandi.
Vissulega má áfellast ráðamenn fyrir það að hafa sýnt andvaraleysi í þessu efni og hafa orðið a.m.k. berir að barnalegri trúgirni, þegar þeir samþykktu stækkunarleyfið athugasemda- og kvaðalaust. En þeim, sem festu trúnað á þær staðhæfingar, að stækkunin mundi litlu eða engu breyta um útbreiðslu sjónvarpsins, var vitanlega vorkunn. En nú gegnir allt öðru máli. Það er hverjum manni algerlega vorkunnarlaust að sjá það og skilja nú, að herstöðvarsjónvarpið er orðið stórfellt vandamál, eitt hið stærsta og alvarlegasta, sem leitt hefur af dvöl erlends herliðs í þessu landi. Og þá er vitanlega ekkert sjálfsagðara en að þeir ráðamenn, sem lýsa því yfir, að þeir hefðu ekki fallizt á stækkunina 1961, ef þeim hefði komið til hugar, að afleiðingin yrði sú, sem raun ber vitni í dag, standi nú að því að leiðrétta mistökin og takmarka Keflavíkursjónvarpið við herstöðina. Ég fæ til að mynda ekki betur séð en formaður útvarpsráðs. hv. 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal, sé eindregið þessarar skoðunar. Hann hefur oftar en einu sinni rætt þetta vandamál í blaði sínu, Alþýðublaðinu. Í grein, sem hann birti þar undir nafni 30. maí 1965, komst hann m.a. þannig að orði:
„Svo virðist sem skynsamleg málamiðlun sé fundin í sjónvarpsmálinu. Fleiri og fleiri hafa komizt á þá skoðun, að bandaríska sjónvarpið verði að takmarka við Keflavíkurflugvöll, jafnskjótt og íslenzkt sjónvarp er komið vel af stað.“
Síðan færir greinarhöfundur rök að því, að þessi lausn málsins verði óhjákvæmileg, ekki aðeins frá sjónarhóli Íslendinga, heldur einnig Ameríkumanna.
Hæstv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, hefur oftar en einu sinni látið sömu skoðun í ljós og hann hefur raunar kveðið enn fastar að orði. Á fundi með allmörgum menntamönnum, sem baldinn var í Tjarnarbúð 17. maí í fyrra, svaraði hann ýmsum spurningum um sjónvarpsmál. Samkv. frásögn blaðs komst hann þar að orði á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðh. kvaðst telja núverandi ástand í sjónvarpsmálum óviðunandi fyrir sjálfstæða menningarþjóð. En eins og nú væri komið, yrði ekki ráðin bót á því, fyrr en komið væri á önnur vegamót. Þegar íslenzkt sjónvarp hefði tekið til starfa, taldi hann rétt að taka leyfisveitinguna til varnarliðsins til endurskoðunar, og kvað hann það vera sina persónulegu skoðun, að þá ætti að takmarka hið erlenda sjónvarp við Keflavíkurflugvöll einan, enda væri sjónvarpsleyfið við það miðað að gefa varnarliðsmönnum kost á bandarísku sjónvarpi.“
Í grein, sem hæstv. menntmrh. ritaði fáum dögum síðar og birtist undir fullu nafni hans í Alþýðublaðinu hinn 22. maí 1965, kemur ráðh. nánar inn á þetta atriði og lýsir viðhorfum sínum til málsins á skýran og að því er mér virðist algerlega ótvíræðan hátt. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa stuttan kafla úr þessari grein hæstv. menntmrh., en þar segir á þessa leið :
„Af hálfu íslenzkra stjórnarvalda hefur auðvitað aldrei verið til þess ætlazt né ráð fyrir því gert, að sjónvarp varnarliðsins yrði jafnframt sjónvarp Íslendinga. Sjónvarp er svo áhrifamikið menningartæki, að í sérhverju landi verður það að mótast af viðhorfum og sjónarmiðum þjóðarinnar sjálfrar og stjórnvalda hennar. Íslenzkt sjónvarp mundi ekki fullnægja eðlilegum óskum varnarliðsmanna í Keflavík um sjónvarp, og bandarískt sjónvarp er ekki í samræmi við óskir eða sjónarmið Íslendinga á þessu sviði. Eftir að móttökuskilyrði sjónvarpsins bötnuðu mjög hér í Reykjavík og nágrenni í kjölfar þeirra breytinga, sem gerðar voru á sjónvarpsstöðinni sjálfri og tæknibúnaði hennar 1961, hefur útbreiðsla sjónvarpsins hér orðið mjög ör og miklu örari en flestir munu hafa látið sér til hugar koma. Fáa mun hafa grunað, að á örfáum árum mundi sjónvarp verða keypt á 6—7 þús. heimili. Ég hika ekki við að segja, að ef menn hefðu séð þetta fyrir, annaðhvort 1955, þegar upphaflega leyfið var veitt, eða 1961, þá hefðu margir litið öðrum augum á málið. Jafnsjálfsagt og það er að veita undanþágu frá einkarétti íslenzka ríkisins til sjónvarpsrekstrar, til þess að varnarliðið geti séð sinum mönnum fyrir bandarísku sjónvarpi, jafnóeðlilegt er það, að Íslendingar fái sjónvarpsþjónustu sína frá annarri þjóð. Þegar íslenzkt sjónvarp tekur til starfa, hefur íslenzka ríkið tekizt á hendur að gegna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að verða við mjög almennum óskum um sjónvarp. Þegar Íslendingar hafa fengið kost á að njóta síns eigin sjónvarps, er óeðlilegt, að erlend sjónvarpsstöð hafi sömu eða svipaða aðstöðu til þess að sjónvarpa inn á íslenzk heimili.“ Þetta var úr grein hæstv. menntmrh.
Till. sú til þál. á þskj. 296, sem við flytjum 6 þm. Alþb. og Framsfl., fjallar um lausn þessa sjónvarpsmáls á þeim grundvelli, sem hæstv. menntmrh. og fjölmargir menn aðrir hafa mælt með, að við þau tímamót, þegar íslenzkt sjónvarp tekur til starfa, verði sú breyting gerð á tæknibúnaði Keflavíkursjónvarpsins, að sjónvarpssendingar þaðan takmarkist við herstöðina eina. Áður en þessi till. var lögð fram, leituðum við flm. lengi eftir sem viðtækastri samstöðu um flutning slíkrar till. Mánuðum saman var leitazt við að fá menn úr öllum þingflokkum til að standa að þessari eða þvílíkri till. Því miður tókst það ekki. Ég vil mega vænta þess, að tregða hv. stjórnarþm. við að beita sér fyrir lausn málsins með tillöguflutningi hér á Alþ. sé ekki vottur um það, að þeir séu andvígir slíkri lausn. Ég fæ ekki séð, að Alþ. og ríkisstj. geti skotið sér undan þeirri siðferðilegu skyldu að leiðrétta þau glappaskot, sem gerð hafa verið, að bæta fyrir það þjóðernislega og menningarlega slys, sem þegar er orðið, áður en stærra slys hlýzt af. En það verður aðeins gert á þann veg, eins og málum er nú komið, að Íslendingar eigi og reki sitt sjónvarp sjálfir, en Keflavíkursjónvarpið verði jafnframt takmarkað við herstöðina eina.