27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (2994)
143. mál, verksmiðja á Skagaströnd, er framleiði sjólax
Gunnar Gíslason:
Herra forseti. Með þessari till. er lagt til, að Alþ. feli ríkisstj. að beita sér fyrir niðurlagningarverksmiðju á Skagaströnd, er framleiði sjólax, síldarrétti og aðrar fullunnar sjávarafurðir.
Ég sá þess getið í blaði, sem ég hygg að sé nokkuð tengt hv. 1. flm. þessarar till., blaðinu Mjölni á Siglufirði, að ég hefði hafnað að vera flm. að þessari till. ásamt 2 öðrum þm. Norðurl. v. Blaðið skýrir réttilega frá þessu. Hv. 1. flm. kom til mín og ég hygg hinna alþm. líka og óskaði eftir því, að við yrðum flm. að till. En við höfnuðum því. Ástæðan fyrir því, að við gerðum það, er að sjálfsögðu ekki sú, að okkur sé ekki fyllilega ljóst, að bæta þurfi atvinnuástandið á Skagaströnd. Það hefur verið, eins og hv. 1. flm. skýrði frá, næsta bágborið á undanförnum árum, og þar þyrfti vissulega úr að bæta. Og því miður er það ekki eini staðurinn í okkar kjördæmi, þar sem atvinnuástand hefur verið lélegt. T.d. hefur það verið á undanförnum mánuðum og síðustu mánuðum s.l. árs einna lakast í sjávarplássi við Skagafjörð, á Hofsósi, og hefði ég álitið það ekkert óeðlilegra, ef það væri talið rétt að byggja slíka verksmiðju nú, að henni hefði verið valinn staður á þeim stað, ekkert síður en á Skagaströnd, án þess þó að ég vilji fara í nokkurn meting á milli þessara tveggja staða.
Okkur er það alveg ljóst, sem þekkjum til, að það, sem skortir á Skagaströnd, er ekki verksmiðja sem þessi. Það eru mikil atvinnufyrirtæki á Skagaströnd. Þar er stór síldarverksmiðja, og þar eru tvö hraðfrystihús, og ef þessi atvinnufyrirtæki hefðu fengið hráefni til að vinna úr á undanförnum árum, þá hefði ekki verið neinn skortur á atvinnu á þeim stað. En það, sem gerði, að ég vildi ekki vera flm. að þessari till., var fyrst og fremst það, að eins og mér sýnist horfa í dag í þessari atvinnugrein, niðurlagningu og niðursuðu sjávarafurða, þá finnst mér ekkí vera raunhæft að byrja á því að fjölga þessum verksmiðjum.
Rétt um svipað leyti og þessi till. var flutt hér í þinginu, þá hygg ég, að það hafi verið sagt frá því í blöðum, að nýbyggð verksmiðja, Norðurstjarnan í Hafnarfirði, hafi orðið að loka vegna hráefnisskorts og ég hygg líka vegna mikilla fjárhagslegra örðugleika. Við vitum það líka, að norður í landi eru fyrir verksmiðjur, sem fyllilega geta annað þeim sölumöguleikum, sem við höfum í dag, verksmiðja Kristjáns Jónssonar á Akureyri og eins niðurlagningarverksmiðja síldarverksmiðjanna á Siglufirði. Þessar verksmiðjur geta unnið miklu meira en þær geta selt í dag. Þess vegna finnst mér það ekki raunhæft að leggja til að byggja verksmiðju í viðbót, eins og horfir í þessum málum nú.
Mér skilst sem sagt, að ef við eigum að fara að skipta þessum litla útflutningskvóta, sem við höfum, á milli enn fleiri verksmiðja, mundi það verða til þess að auka erfiðleika þeirra verksmiðja, sem fyrir eru, og það mundi gera það að verkum, að nýbyggð verksmiðja ætti alltaf í erfiðleikum. Þess vegna efast ég alveg stórlega um, þó að ég efist ekki um það. að þessi till. sé flutt af góðum hug, að þetta yrði til hagsbóta fyrir Skagstrendinga, eins og á stendur í dag, og þess vegna vildi ég ekki verða flm. að þessari till. Mér fannst svona hálft um hálft, svo að ég segi alveg eins og er, að tillöguflutningur eins og þessi mundi verða til þess að vekja vonir hjá fólki, sem á í erfiðleikum, vonir, sem geta ekki að sinni rætzt. Og ég vil ekki standa að slíkum tillöguflutningi. Ég geri það ekki.
Því ber vissulega að fagna, að það hafa náðst samningar við Sovétríkin um stóraukna sölu á þessum afurðum. En ég vil segja það, að margur hefði sennilega haldið, að við mundum ná meiri samningum við Sovétríkin en þetta, að geta selt þeim fyrir 33.5 millj. kr., sem samningarnir hljóða upp á. Margir hafa vonað, að þetta yrði eitthvað stærra í stykkinu, því að ég man ekki betur en að fyrir eitthvað tveimur árum, þá væri frá því skýrt og haft eftir mönnum, sem komu austan úr Sovétríkjunum, að við mundum geta selt slíkar vörur þangað, ég man nú ekki alveg tölurnar, en a.m.k. fyrir 100 millj. kr., og enn þá hærri upphæðir, er lengra liði. En þetta hefur ekki tekizt. Við höfum getað samið við Sovétríkin um sölu á þessum afurðum til þriggja ára, fyrir þessa upphæð, 33.5 millj. á ári, og það þýðir það, að sú sala eykst ekki, eða mér skilst a.m.k., að salan á þessum afurðum aukist ekki á þessu þriggja ára tímabili. Hún er bundin við þessa upphæð.
Það er rétt, sem hv. 1. flm. gat hér um, að við munum geta selt til Tékkóslóvakíu sjólax fyrir hærri upphæðir en við gerum nú. Hann minntist á verksmiðju hér í Reykjavík. Það er einmitt verksmiðja hér í Reykjavík, sem getur framleitt þessa vöru, og mér er sagt, að það sé mjög vel búin verksmiðja að tækjum. En ég er ekki alveg eins viss um það, að hún hafi framleitt svo lítið vegna þess, að hana hafi skort vinnuafl. Ég held, að það sé ekki alveg rétt, því að mér hefur skilizt, að vinnubrögðin í þessari verksmiðju hafi verið þannig, að þegar skorti verkefni í hraðfrystihúsi þess manns, sem á þessa verksmiðju, þá hafi hann látið vinnuafl sitt vinna að niðurlagningunni, svo að ég held, að það sé ekki alls kostar rétt, að verksmiðjan starfi svo lítið sem raun her vitni um, af því að hana skorti tiltakanlega mikið vinnuafl. En ég held, að hún starfi svona lítið vegna þess, að þessi maður, sem hefur þessa starfsemi með höndum, telur sig fá allt of lítið verð fyrir þessa vöru erlendis, þannig að hann verði fyrir verulegu tapi. Það held ég að sé ástæðan. Og því miður er það svo, að það virðist ekki vera mikill gróðavegur að þessu hjá okkur enn sem komið er. Mér er kunnugt um það, að niðurlagningarverksmiðjan á Siglufirði tapaði t.d. árið 1964 hundruðum þúsunda króna, og var henni þó ekki gert að borga neina vexti eftir það fé, sem í hana hafði verið lagt, né heldur húsaleigu.
Eftir því sem ég veit bezt, þá eru nú horfurnar í þessum málum hjá okkur í dag eins og ég hef hér lýst, og af þeim sökum held ég, að það sé ekki raunhæfasta lausnin að ráðast í að byggja nýja verksmiðju nú. Hitt er miklu raunhæfara og þarf að gerast, sem margrætt er hér í þinginu, og það er að snúa sér að því að afla þessari vöru markaða, auka sölumöguleikana. Og það hafa verið samþ. till. um það nú þegar á þessu þingi. Ég vil líka benda á það, að bæjarstjórn Siglufjarðar hefur einmitt gert samþykkt í þessu efni á þá lund, að hún beinlínis skorar á þau stjórnarvöld, sem fara með fjárfestingarmálin, að leyfa ekki nýjar niðurlagningarverksmiðjur, meðan þær, sem fyrir eru. anna þessari framleiðslu og meðan sölumöguleikarnir eru ekki rýmri en þeir eru í dag. Þetta finnst mér mjög eðlilegt sjónarmið hjá bæjarstjórn Siglufjarðar.
Því miður verð ég að segja það alveg eins og er, að ég er ekki trúaður á það, að eins og þessi mál horfa hjá okkur í dag, verði þessi niðurlagningarverksmiðja til hagsbóta fyrir Skagstrendinga. Mér er jafnnær að halda, að hún gæti valdið þeim talsverðum vonbrigðum, og því hefur afstaða mín í þessu máli verið þessi. Þessi mál þarf öll að taka raunhæfari tökum og vinna að þeim skipulegar en gert er nú.