10.12.1965
Neðri deild: 29. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

91. mál, fjárhagur rafmagnsveitna ríkisins

Birgir Finnsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta mál á breiðum grundvelli. Það mætti sjálfsagt ýmislegt um það segja, en í stórum dráttum get ég lýst því yfir sem minni skoðun, að ég er samþykkur þeirri stefnu, sem fram kemur í frv., að það þurfi að eiga sér stað verðjöfnun á rafmagni í landinu. Það er meginkjarni þessa máls.

En það er eitt atriði, sem ég hef komið auga á í 8. gr. frv., sem ég vildi biðja þá n., sem fær málið til meðferðar, að athuga. Þar er kveðið svo á, að verðjöfnunargjald skuli greiðast mánaðarlega eftir á með gjalddaga 15. hvers mánaðar. Nú er mér kunnugt um það, að sumar rafveitur hafa ekki þann hátt á að innheimta mánaðarlega, og mér mundi þess vegna þykja ósanngjarnt að gera þeim skylt að skila verðjöfnunargjaldinu mánaðarlega. Þetta vildi ég að sú hv. n., sem fær málið til athugunar, kynnti sér, og að sjálfsögðu er hægt að fá allar upplýsingar um það, hver tilhögun er höfð á mælaaflestri og innheimtum hjá einstökum rafveitum hjá Sambandi ísl. rafveitna.

Eins og ég gat um, tel ég í sjálfu sér réttmætt, að verðjöfnun á rafmagni eigi sér stað. Ég hefði þess vegna einnig talið, að þetta frv. ætti ekki aðeins að ná til þess að rétta við fjárhag rafmagnsveitna ríkisins, heldur einnig annarra rafveitna, en eins og kunnugt er, eru margar aðrar rafveitur reknar af bæjar- og sveitarfélögum. Ég ætla nú ekki að gera það að neinu ágreiningsmáli. Ég bendi aðeins á það hér, að þar sem um er að ræða verðjöfnun á rafmagninu, hefði verið sanngjarnt, að sú verðjöfnun næði ekki eingöngu til rafmagnsveitna

ríkisins, heldur einnig til rafveitna annarra aðila. Þetta á ekki sízt við vegna þess, að vitað er, að ýmislegt mætti betur fara í rekstri rafmagnsveitna ríkisins, varðandi mannahald og fleira, eins og gleggst sést af reikningum þess fyrirtækis. Ég ætla ekki að fara út í þá sálma, ég vildi aðeins koma með ábendinguna varðandi 8. gr., áður en þetta mál fer til n. Það væri ekki úr vegi, að n. athugaði þá ábendingu, að verðjöfnunin, sem í frv. felst, gæti náð til fleiri aðila en rafmagnsveitna ríkisins.