27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í D-deild Alþingistíðinda. (3025)

167. mál, endurskoðun laga um almannavarnir vegna hafíshættu

Flm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Þingsályktunin á þskj. 383 er um endurskoðun laga um almannavarnir. Þau 1. voru sett 1562, og megintilgangur þeirra l. var að skapa viðbúnað gegn hernaðarhættu, en í 1. gr. þeirra er þó einnig gert ráð fyrir víðtækara verksviði. Um það sérstaklega fjallar þáltill. þessi, sem við 4 þm. erum flm. að.

Til náttúruhamfara heyra jarðskjálftar, eldgos og hafís. Um hafísinn er það að segja, að það er eiginlega viðráðanlegast að hafa viðbúnað til að mæta hættum hans. Þar er um að ræða birgðasöfnun á lífsnauðsynjum fólksins fyrst og fremst. Áhrif hafíss eru m.a. lík umsátri hers, hann lokar samgönguleiðum á sjó, og e.t.v. lokast landleiðir einnig. Það er fyrir fram vitað, hvaða landssvæði er í mestri hættu af hafnbönnum hafíssins, og þessi hætta er einnig fyrst og fremst bundin við vissa árstíma. Gildir því annað um jarðskjálfta og eldgos, viss svæði landsins virðast að vísu í mestri hættu, en alls ekki bundið við árstíðir. Ég mun á engan hátt draga úr gildi almannavarna vegna hernaðarhættu, en mér virðist skynsamlegt að gefa meiri gaum en áður hættum náttúruhamfaranna og skipa vörnum gegn þeim í nokkurt kerfi í löggjöfinni sjálfri, gera t.d. viðbúnað gegn hafíshættunni að föstum árlegum lið í starfi almannavarna. Í grg. bendum við flm. sérstaklega á olíuna, sem líf fólksins er orðið svo háð. Segja má, að matvörubirgðir ættu að vera nr. eitt í öryggismálum, og vissulega eru þær það. En þess ber að gæta, að nú orðið er auðveldara að bæta úr matvælaskorti eftir ýmsum leiðum, auk þess sem varúð í þeim efnum er Íslendingum enn þá fremur í blóð borin. En magn olíu er svo mikið, að því fylgir a.m.k. mikill kostnaðarauki, ef ekki er hægt að fullnægja olíuþörfinni að eðlilegum leiðum.

E.t.v. slær þessi þáltill. suma þannig, að ætlazt sé til ráðstafana, sem valdi ríkissjóði verulegum nýjum útgjöldum. Slíkt vakir ekki fyrir mér eða okkur flm., en annars veltur það mest á framkvæmd málsins. Enginn vafi er á, að með heildaryfirsýn um birgðastöðvar fyrir olíu t.d. má koma þeim fyrir á hagkvæmari hátt en ella. Samvinna þeirra, er verzla með olíu, og forstöðu almannavarnanna er nauðsynleg, sjálfsögð og eðlileg, beint hagsmunaatriði, auk öryggis fyrir alla aðila. Samráð við sveitarstjórnir er sjálfsagt í þessum efnum.

Hér hef ég rætt um olíuna, en fleiri nauðsynjar koma og til greina, að birgðasöfnun sé undir eftirliti.

Mér finnst, að hér sé um að ræða þátt í tryggingakerfi nútímans. Það má vel vera, að hægt væri að færa fram líkur fyrir því, að tryggingar dragi úr sjálfsbjargarviðleitni, sjálfsbjargarhneigð, sem auðvitað er grundvallaratriði í farsælu lífi, e.t.v. hvergi fremur en hér í okkar landi. Það er fjarri því, að ég vilji á nokkurn hátt verða til þess að draga úr sjálfsbjargarhneigð, þvert á móti tel ég það grundvallarsjónarmið í allri löggjöf, að hún örvi sjálfsbjargarhvöt. En þjóðfélagið er að þróast til meiri félagshyggju, og öryggið er að verða einkunn nútímans. Það er vandi löggjafans að þræða hinn rétta meðalveg í þessum efnum. Mín skoðun er, að verkanir skynsamlegra lagafyrirmæla og framkvæmda í anda þeirra til öryggis gegn hættum, t.d. hafís, muni fremur verka til örvunar á sjálfsbjargarviðleitni í þeim byggðarlögum, sem búa við hafíshættuna. Aðeins sá andi, sem lýsir sér á Alþ. við setningu löggjafar, sem styður viðbúnað gegn þessari vá og öðrum, hefur jákvæð áhrif á fólkið, og nauðsynlegt er, að menn geri sér grein fyrir þessu.

En nú má um það ræða, hvort ekki séu fleiri náttúruhamfarir en þær, sem þegar hafa verið nefndar, sem skapi vá í lífi fólks. Þannig má t.d. nefna fannfergi, sem lokar vegum og öllum venjulegum bifreiðasamgöngum. Þetta hefur að vísu skeð furðusjaldan marga s.l. vetur, nema þá skamma hríð í senn víðast hvar. En á þessum nýliðna vetri hefur fannfergi mjög víða valdið nærri fullkomnu samgöngubanni með venjulegum bílum. Snjóbílar koma þá til sögunnar og eru þau vélknúnu farartæki, sem bezt duga. Það er e.t.v. hagkvæmast, víðast a.m.k., að héruðin sjálf eða einstaklingar eigi og reki snjóbíla. Mér sýnist þó, að komið geti til mála nokkur viðbúnaður af opinberri hálfu í þessu efni. Ég held, að læknisþjónusta t.d. þurfi helzt á eigin snjóbílum að halda, en e.t.v. er bezt, að það sé mál fyrir sig. En minna má á póstþjónustuna, auk þess sem samskipti öll nú orðið gera nokkrar samgöngur óhjákvæmilegar. Sem opinberan aðila vil ég aðeins benda á Vegagerð ríkisins. Til hennar eru gerðar sífelldar kröfur um snjómokstur. Kæmi ekki til mála, a.m.k. sums staðar, að eðlilegra væri, að vegagerðin ræki snjóbíl? Ég vil drepa á þetta, um leið og þessi þáltill. er rædd, fannfergið skapar víðast stórfellda erfiðleika og meiri nú en áður, þar sem hesturinn má heita horfinn úr þjóðlífinu sem dráttarafl.

Ég vil enn fremur benda aðeins á hið nýja tæki, þyrilvængjuna, sem nú er farið lítils háttar að reyna. Landhelgisgæzlan hefur í sinni umsjá eina slíka vél, og ég hef nokkuð rætt við forstjóra landhelgisgæzlunnar, Pétur Sigurðsson, um möguleika á notkun hennar, m.a. til þess að leysa bráðan samgönguvanda, sem skapast af fannfergi eða öðrum erfiðleikum, og ég er sannfærður um, að þar getur verið um að ræða mikla úrlausn í þeim efnum.

Hjálparsveitir hafa verið stofnaðar á nokkrum stöðum. Þær eru skipaðar áhugamönnum og veita oft ómetanlegt gagn. Þær þyrftu að verða sem viðast. Nokkur þjálfun þeirra er nauðsynleg og nokkur útbúnaður til þeirra. Það kemur vel til greina að tengja starfsemi þessara sveita almannavörnum, og því bendum við á þetta atriði, að það verði einnig tekið til athugunar við endurskoðun laga um almannavarnir.

Ég vil svo vænta, að Alþ. taki vel þessari till. Hún er einföld, og væri e.t.v. ekki þörf á, að hún færi til n., en ef það er talið eðlilegra og réttara, að hún hljóti athugun í n., vil ég gera um það till., að hún gangi til allshn. og að umr. verði þá frestað.