20.10.1965
Sameinað þing: 6. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í D-deild Alþingistíðinda. (3048)
16. mál, tannlæknadeild háskólans
Fyrirspyrjandi (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. svörin við fyrirspurn minni. Það er augljóst af svörum hæstv. ráðh., að hér hafa orðið handvömm og sökin sennilega leggja, hæstv. menntmrh., sem er yfirmaður háskólans, og háskólaráðs. Hæstv. ráðh. tók það fram, að nú ætti að fara að athuga þetta mál gaumgæfilega og frá grunni. En hvers vegna var þetta mál ekki athugað fyrr og í tæka tíð? Hvers vegna er stúdentum gefinn kostur á því í ágúst og fyrri hluta september að innrita sig í þessa deild, 20 ungir menn verða til þess að óska inngöngu í deildina, og þeir verða að bíða fram að mánaðamótum sept.—okt. eftir svari við því, hvort þeir fái inngöngu eða ekki? Og þá kemur svarið, og það er neitandi. 20 ungir menn, sem eru að taka ákvarðanir um framtíðarstarf sitt, eru látnir bíða og fá svo nei hjá háskólanum. Þetta er óþægilegt mörgum þessara manna vafalaust, og er sérstaklega ónærgætnislegt af hálfu háskólans að koma þannig fram við unga stúdenta. Að þessu leyti hefur háskólinn og ég vil segja öll yfirstjórn háskólans brugðizt skyldu sinni. Það er einnig að bregðast skyldu sinni, að háskólinn lokar einni af deildum sínum fyrir stúdentum, sem uppfylla öll skilyrði til upptöku í þessa deild. Vitanlega á Háskóli Íslands að vera öllum opinn, sem til þess hafa rétt, og það á ekki að neita neinum um inngöngu í þá deild, sem hugur hans stendur til og hæfileikar. Í þessu efni hefur háskólinn að þessu sinni brugðizt skyldu sinni, en sérstaklega og fyrst og fremst hefur háskólinn brugðizt skyldu sinni í þessu máli gagnvart þjóðinni.
Hér er mjög mikill skortur tannlækna, svo að til vandræða horfir, bæði fyrir börn og fullorðna. Það hefur orðið að leggja niður tannlæknaþjónustu í skólum í höfuðborginni. Fullorðnir verða að bíða mánuðum saman með sínar skemmdu tennur eftir því að fá meðferð. Vafalaust þyrftu tannlæknar í landinu að vera þrefalt fleiri en þeir eru. Um þetta hirða yfirvöldin ekki. Yfirstjórn háskólans hirðir ekki um þetta, lætur skeika að sköpuðu, og þegar allt er komið í óefni, eins og nú í haust, þá á að fara að athuga málin gaumgæfilega frá grunni og meira að segja fá erlendan sérfræðing sér til hjálpar. Þetta er mergurinn málsins, og fyrir þessu hefur yfirstjórn háskólans enga frambærilega afsökun. Þess vegna get ég af hellum hug tekið undir mótmæli stúdentaráðs, sem birt voru nýlega í blöðunum. Þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta: „Stúdentaráð Háskóla Íslands leyfir sér að átelja harðlega framkomu menntmrn. í þessu máli.“ Undir þessi mótmæli tek ég heils hugar.