27.10.1965
Sameinað þing: 8. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í D-deild Alþingistíðinda. (3068)
28. mál, vegaskattur
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Í framhaldi af þeim umr., sem hér hafa farið fram, langaði mig aðeins til þess að segja þá skoðun mína í sambandi við þetta mál, að ég hef skilið frá öndverðu, frá því að þetta mál var fyrst hér til umr. á Alþ., að um vegi, sem gerðir væru undir þeim kringumstæðum, að til þeirra væru tekin stórfelld lán, væri ætlað, að af þeim yrði tekið umferðargjald til þess að standa undir auknum kostnaði, sem við þá vegagerð hlýtur að vera, þegar tekin eru lán og vegir gerðir á skömmum tíma.
Mér virðist, að þær umr., sem hér hafa farið fram, hafi meira og minna snúizt um vegaskattinn eða tollinn, sem á hefur verið lagður. Það getur vel verið, að mönnum sýnist hann of hár, öðrum sýnist hann kannske sanngjarn, og það geta vel verið til menn, sem finnst hann kannske of lágur. Þetta er að sjálfsögðu deiluatriði í dag. Getur vel verið, að þær tölur, sem í dag eru ákveðnar, okkur finnist þær ekki háar eftir eitt ár, það getur vel verið, að okkur finnist þær lágar, og þannig getur þessi hlutur breytzt frá degi til dags. Grundvöllurinn hlýtur að verða, eins og ég gat um áðan, sá, að þegar hraðbraut er lögð, og gert er ráð fyrir því í vegal., að það sé gert, ef umferðin er 1000 bílar á dag, og til hennar aflað fjár með stórfelldum lánum, skipti ekki máli, hvort vegurinn er steyptur, malbikaður eða úr einhverju öðru efni, sem vera kynni að upp fyndist. Atriðið er fjárhagsleg hlið málsins. Og af þeim umr., sem hér hafa farið fram í dag, get ég ekki ályktað annað en þm. þeir, sem hér hafa talað, séu raunverulega allir á þessu máli. Þeir hafa sumir haldið því fram, að það séu brostnar forsendur vegna till., sem eru á frv. til fjárl., sem lagt hefur verið fyrir Alþ. Ég segi: Ef einhvers staðar er kippt undan fjárstofni, er ekki ástæða að mínum dómi til þess að kippa öðrum. Þá er miklu frekar leið til þess að fyrirbyggja, að vegagerð skaðist, þ. e. að afla tekna á annan hátt.
Ég held, að það séu allir sammála um, að hér sé mjög merkum áfanga í vegamálum náð með lagningu steinsteypts vegar suður á Suðurnes, og það hafa aldrei, eftir því sem ég hef bezt til þekkt, orðið neinar deilur um það, með hvaða hætti afla bæri tekna í sambandi við það að standast þann kostnað, sem af þessum vegi hlýtur að verða.
Ég rak augun í málgagn hv. 4. þm. Reykn. fyrir nokkrum dögum, þar sem einmitt þessi mál eru sérstaklega tekin til meðferðar, og þar er sagt, með leyfi hæstv. forseta, — þetta er áður en vegurinn var tekinn í notkun:
„Ráðgert er að innheimta visst umferðargjald af bifreiðum þeim, sem nota Keflavíkurveginn, og er sennilegt, að við Kúagerði eða við Straum verði komið upp aðstöðu fyrir þá, sem innheimtuna annast. Hóflegt umferðargjald“ — hóflegt, það er tekið fram — „á steyptum þjóðvegum landsins er sjálfsagt og þekkist víða erlendis. Það flýtir fyrir framkvæmdum við varanlega gatnagerð og verður áreiðanlega greitt af meiri ánægju en margir þeir skattar aðrir, sem undanfarandi hafa dunið á varnarlitlu fólki.“
Þetta er skoðun þessa málgagns hv. 4. þm. Reykn. Ég hef mætt á fundi með honum í okkar
kjördæmi út af þessum málum, og mér virtist hann hafa einmitt þessa skoðun. En ég veit það ósköp vel, að menn eru ekkert fúsir á það að greiða einn skatt frekar en annan, og þegar verið er að leggja slíkt á, er málið að sjálfsögðu viðkvæmt og verður auðvitað að skoða það eins og það er. Það getur að sjálfsögðu komið fyrir einn ráðh. að athuga ekki mál sem skyldi. Ef eitthvað er athugavert við reglugerðina, sem út hefur verið gefin, eða gjaldið, sem ákveðið er, þá er sjálfsagt af hans hendi að athuga það, og ef í ljós kemur, að þar eru einhverjir vegtollar settir öðruvísi en ætti, á að leiðrétta það.
Ég vildi aðeins mega undirstrika það, sem hér hefur fram komið, og mér virðist, að allir þeir hv. þm., sem hér hafa talað, séu á þessari skoðun í málinu.