03.11.1965
Sameinað þing: 9. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í D-deild Alþingistíðinda. (3084)
44. mál, bygging menntaskóla á Ísafirði
Þorvaldur G. Kristjánsson:
Herra forseti. Hv. 5. þm. Vestf. spurði hér áðan: Hvar er Vestfjarðaáætlunin? Mér virtist þessi hv. þm. koma eins og álfur út úr hól. Ég hélt, að allir, sem eitthvað láta sig skipta Vestfjarðaáætlunina, vissu, hvernig það mál stendur. Þeim mun fremur hefði hv. þm. átt að vita það, þar sem ég sagði í minni fyrri ræðu, að það væri verið að vinna að heildarframkvæmdaáætluninni. Þetta vita allir, sem sýna minnsta snefil af áhuga á þessu máli. Hann segir: Ég hef ekki séð þetta.
— Ég segi: Ég hef ekki heldur séð þetta. — Hver hefur séð það, sem ekki er til? Áætlunin er ekki til enn þá í heild. En það er sumt til. Það er til áætlun um vegaframkvæmdir. En hv. þm. sagði, að það væri tilbúningur. Og hann sagði meira. Hann sagðist ekkert hafa heyrt um slíkt. Hann veit ekki, að það er búið að gera framkvæmdaáætlun í samgöngumálum Vestfjarða, sem þýðir það, að það verði unnið að tilteknum verkefnum á næstu 4 árum fyrir rúmar 170 millj. í vegagerð, í flugvallagerð, í hafnagerð. Og hann veit ekki, að í sumar hefur verið unnið að þessum framkvæmdum fyrir 1/4 af þessari upphæð. Nei, hv. þm. veit þetta ekki. Hann sagði, að honum væri ókunnugt um, að nokkur áætlun hafi verið gerð í samgöngumálum, — ókunnugt um það. Hv. þm. sagði þetta, ég skrifaði það eftir honum, og það er rétt með farið. En hv. þm. virðist vera búinn að gleyma því, að á síðasta Alþ. var gefin yfirlýsing um þessa áætlun og þessari áætlun lýst í umr. hér á Sþ. af fyrrv. fjmrh. Það mætti ætla, að það mætti gera þær kröfur til þessa hv. þm., að hann gegndi þeirri þingskyldu sinni að vita, hvað fram fer á þingi. En hitt er sjálfsagt of mikið, að gera þær kröfur til hans, að hann gegni skyldu sinni við umbjóðendur sína í Vestfjarðakjördæmi, að hann beri skyn á þýðingu þeirra framkvæmda, sem nú er verið að vinna skv. áætluninni um samgöngumál.