10.11.1965
Sameinað þing: 10. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í D-deild Alþingistíðinda. (3091)

52. mál, rannsóknarskip í þágu sjávarútvegsins

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör við fsp. mínum, sem voru glögg og fullnægjandi. Ég vil aðeins í tilefni þeirra svara ítreka nauðsynina á því, að ríkisstj. taki þegar ákvörðun um að smíða skipin. Það hefur einu sinni áður hent, eins og ég vék lítillega að í frumræðu minni, ég held árið 1960, að miklum tíma og fjármunum var varið til þess að undirbúa smíði slíks skips, ganga frá teikningum og öðru slíku, sem því tilheyrir, en svo varð ekkert úr framkvæmdum og engin ákvörðun tekin um, að smiði skipsins skyldi hafin. Að sjálfsögðu leiddi þetta til þess, að öll sú mikla vinna, sem lögð hafði verið í að teikna skipið þetta árið, og allir þeir miklu fjármunir, sem til þess var varið, fóru að mestu í súginn. Við skulum vona, að það fari ekki eins í þetta skiptið, og ég fyrir mitt leyti er trúaður á, að nú loksins sé komið að því, að hugmyndinni um smiði haf- og fiskirannsóknarskips verði hrundið í framkvæmd.