10.11.1965
Sameinað þing: 10. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í D-deild Alþingistíðinda. (3094)

52. mál, rannsóknarskip í þágu sjávarútvegsins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Það er aðeins í sambandi við lokaorð hv. 5. þm. Austf. (LJós) í hans fyrri ræðu, þar sem hann lagði fram þá ósk sína, að ráðizt yrði einnig í smíði sérstaks síldarleitarskips. Vil ég vísa til þess, sem ég áður sagði, að þessi ósk er áður komin frá okkar færasta manni í þessum efnum fyrir þó nokkrum tíma, þ.e. Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi. Varðandi þá till. hv. þm., að það yrðu jafnframt kannaðir möguleikar á að breyta einhverju þeirra eldri skipa, sem til eru í landinu, til þessarar þjónustu, er m.a. við því að búast, að einhver örlítill dráttur verði á ákvörðun í þessu efni vegna þessa samanburðar. Þess hefur verið óskað, að Jakob léti gera þennan samanburð, þ.e. annars vegar á smiði nýs skips, sem sérstaklega yrði til þess byggt að annast þessa þjónustu, og svo þeim möguleikum að endurbyggja eldra skip, sem þætti geta þjónað þessu hlutverki. Þessi athugun fer nú fram og ríkisstj. mun, eins og ég áðan sagði, taka lokaákvörðun um þessi efni, þegar þessar kannanir liggja endanlega fyrir, og að færustu manna yfirsýn gera endanlegar till. í málinu.