17.11.1965
Sameinað þing: 12. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í D-deild Alþingistíðinda. (3114)
207. mál, fávitahæli
Fyrirspyrjandi (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Lög um fávitahæli voru sett árið 1936. Ég lít svo á, að þessi lög hafi verið prýðilega úr garði gerð, sérstaklega miðað við þann tíma, sem þau voru sett á. Helzti gallinn á þessum l. er máske sá, að ekki var séð nægjanlega fyrir fjármagni til þess að byggja fyrir þær stofnanir, sem l. gera ráð fyrir. Það er um þessi lög eins og önnur góð lög, að það er slæmt, ef þau eru ekki framkvæmd, en mér er ekki kunnugt um, að nokkur mikilsverð atriði þessara l. hafi komið til framkvæmda eða a.m.k. séu framkvæmd nú í dag. En um þetta efni ræðir í fsp. minni á þskj. 68.
Í 6. gr. l. um fávitahæli er ákvæði um, að ráðh. skuli skipa þriggja manna n. til eftirlits með heimilum og hælum fávita, heimilum og hælum, sem rekin eru af hinu opinbera. Í þessari þriggja manna n. skulu eiga sæti læknir, kennari og kona. Ég hef gert ítrekaðar tilraunir til þess að hafa upp á þessari eftirlitsnefnd fávitahæla, en án árangurs til þessa. Þess vegna leyfi ég mér að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ríkisstj.: Hefur þessi eftirlitsnefnd fávitahæla verið skipuð, og ef svo er, hverjir eiga þá sæti í henni nú?
Í 8. gr. þessara sömu l. er mjög mikilsvert ákvæði þess efnis, að sett skuli reglugerð, þar sem tiltekið sé, hvernig safna skuli skýrslum um tölu og hagi fávita í landinu, hvernig aðgreina skuli fávita börn, sem ætluð er vist á skólaheimilum eða hjúkrunarhælum, og loks, hvernig eftirliti skuli hagað með þeim fávitum, sem dveljast utan opinberra hæla. Ég hef ekki getað haft upp á þessari reglugerð, sem 8. gr. l. fyrirskipar að sett skuli, og því spyr ég í 2. lið minnar fsp.: „Hafa með sérstakri reglugerð verið sett ákvæði um skýrslusöfnun, aðgreiningu og eftirlit, svo sem fyrir er mælt í 8. gr. laganna?“
Ég vænti þess að fá greinargóð svör við þessu af hálfu hæstv. ríkisstj.