17.11.1965
Sameinað þing: 12. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í D-deild Alþingistíðinda. (3128)

208. mál, sjónvarpsmál

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrst af öllu að þakka hæstv. menntmrh. fyrir sérlega greinargott svar, sem ég held að gæti verið til fyrirmyndar fyrir aðra hæstv. ráðh., þegar þeir svara fsp.

En það, sem kom mér til þess að segja hér nokkur orð út af þessari fsp., var sú yfirlýsing hæstv. menntmrh., að hann teldi, að það væri engin þörf á sérstökum lögum um sjónvarpið og það væri af þeirri ástæðu, að það væri talin heimild til sjónvarpsins í útvarpslögunum. Ég verð að segja, að ég er nú dálítið hissa á þessari yfirlýsingu. Ég hef litið svo á, að það væri ákaflega hæpin heimild til sjónvarpsrekstrar í útvarpsl., og ég held, að það mundi nú sjást, ef það mál væri allt skoðað niður í kjölinn, að sú heimild væri meira en hæpin. T.d. get ég nefnt það, að einu sinni var í reglugerð um útvarpið, með vafasamri heimild að vísu, skotið inn orðinu „myndvarpi“, ef ég man rétt, sem heyrandi undir verksvið útvarpsins. Seinna meir, þegar þeirri reglugerð var svo breytt fyrir allmörgum árum, var þetta fellt niður, þannig að það virtist ljóst, að ráðamenn litu þá svo á, að ekki væri heimild til sjónvarpsrekstrar í útvarpsl., enda er sannleikurinn sá, að útvarp og sjónvarp er sitt hvað. En alveg að slepptu öllu slíku er það auðvitað svo, að það nær ekki nokkurri átt, að það sé hægt að setja á stofn jafnumsvifamikinn rekstur og sjónvarpsrekstur er og svo sem hann er ráðgerður, án þess að sett séu um það lög. Það nær náttúrlega ekki nokkurri átt, að það sé hægt að fara að auglýsa 17 eða 20 stöður á ríkisins vegum lausar til umsóknar, án þess að það sé nokkur lagastafur fyrir því. Það er a.m.k. skylda alþm. að standa fast á því, að það sé ekki stofnað til embætta nema með lagaheimild. Þá lagaheimild skortir í þessu tilfelli. Hennar hefur ekki verið leitað. Hitt er svo annað mál, að það er enginn að saka ríkisstj. út af fyrir sig né hæstv. menntmrh. fyrir þær framkvæmdir, sem að hefur verið unnið í þessu máli, vegna þess, að það er rétt að þær hafa verið gerðar með vitund Alþingis. Og eins og hann réttilega benti á, hefur Alþ. óbeint samþ. það, að unnið væri að sjónvarpinu og framkvæmdum í því efni, sérstaklega með samþykkt á tekjuöflun í því skyni. En þar fyrir verð ég að segja það, að ég hef alltaf álitið það sjálfsagt mál, að á sínum tíma væri komið til Alþingis og lagt fyrir það frv. um sjónvarp. Mér hefði ekki getað dottið annað í hug. O, má ég svo spyrja hæstv. menntmrh.: Hvernig ætlar hann að fara að því að innheimta afnotagjöld af sjónvarpi? Telur hann, að hann geti farið að innheimta afnotagjöld af sjónvarpi, án þess að nokkur lagaheimild sé til þeirrar skattheimtu? Ég verð að telja það mjög vafasamt. Ég bendi aðeins á þetta, og ég geri það af því, að ég tel nauðsynlegt, að það sé spyrnt fæti við svona starfsháttum, að það sé sett upp ein geysileg ríkisstofnun, keypt hús upp á margar millj., stofnuð embætti og ráðnir menn, án þess að formlega sé leitað eftir lagaheimild um það. Þetta er óhafandi og óhæf sú yfirlýsing frá hæstv. menntmrh., að hann ætli sér ekki að leggja neitt frv. um þetta fyrir Alþ. Ég skora á hann að vinda nú bráðan bug að því að undirbúa lagafrv. um þetta efni og leggja fyrir Alþingi.

Ég vil svo bara að endingu þakka hæstv. menntmrh. fyrir það, að unnið hefur verið að framkvæmd þessara mála, vegna þess að á því er út af fyrir sig mikil nauðsyn. Vitaskuld er það ósamboðið virðingu fullvalda þjóðar að veit erlendu ríki einkaleyfi til sjónvarpsrekstrar í landi sínu. Og það er það, sem að mínu viti er meginatriðið í þessu máli, en ekki það út af fyrir sig, hvort sjónvarpið, sem flutt er á hverri tíð, er betra eða verra á einum tíma eða öðrum.

Það er með sama hætti jafnósamboðið virðingu fullvalda þjóðar, eins og það væri, ef það ætti að veita erlendu ríki ótakmarkaðan rétt, einkaleyfi til rekstrar útvarps hér á landi, eða t.d. til þess að reka bókaútgáfu hér á landi. Slíkt einkaleyfi er ekki samboðið virðingu fullvalda þjóðar. Það er á þeim grundvelli, sem auðvitað verður að taka til endurskoðunar reglurnar um sjónvarpsreksturinn. En þó að hæstv. ríkisstj. hafi ekki tekið það til athugunar enn, höfum við ekki misst af tækifæri í því efni, vegna þess að það er Alþingi, sem hlýtur að fjalla um málið, og það reynir þá á alþm., hvað þeir vilja gera í þessu efni.