16.12.1965
Sameinað þing: 23. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í D-deild Alþingistíðinda. (3165)

212. mál, greiðsla sjúkrakostnaðar í einkasjúkrahúsum

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Mér datt í hug að leggja aðeins orð í belg í sambandi við þessa fsp.

Hv. fyrirspyrjandi, 10. landsk., hóf mál sitt með því, að mönnum hefði ekki almennt verið ljóst, um hvað þessi deila, sem hér er verið að ræða um, snerist, og ég hygg, að það sé hverju orði sannara. Og ég tek undir það, að ég hef átt sem heilbrmrh. erfitt með að átta mig til fulls á því, hvað hér væri í raun og veru um að ræða.

Eins og fram kom í svari hæstv. félmrh., hefur heilbrmrn. eða dómsmrn., þeir menn, sem að heilbrigðismálum þar vinna, reynt að stuðla að því að koma á viðunandi lausn þessarar deilu. Ég hef sjálfur verið á fundum með aðilum, sem þarna eiga hlut að máli: príorinnunni í Landakoti hér í Reykjavík, tryggingalækni, fulltrúum frá Læknafélagi Reykjavíkur, forstjóra Tryggingastofnunarinnar og fleiri aðilum, en engu að síður er hitt staðreynd, eins og hér hefur komið fram, að við svo búið stendur enn sem lýst var af hv. fyrirspyrjanda.

Nú hefur það einnig gerzt, eins og menn hafa tekið eftir, á þessu hausti, að læknar við Landsspítalann hafa margir sagt lausu starfi sínu, og ég hef því að undanförnu verið að reyna að gera mér grein fyrir, hvað hér búi í raun og veru á bak við, og það kynnu að vera einhver tengsl á milli allra þessara mála. Ég hef átt viðræður við þá lækna, sem sagt hafa upp störfum sínum, suma hverja, við stjórn Læknafélagsins, og málin hafa verið til athugunar hjá heilbrigðismálastjórninni, landlækni og mér sem heilbrmrh.

Ég hef ákveðið að setja á laggirnar nefnd til þess að athuga um fyrirkomulag læknaþjónustunnar við ríkisspítalana og þá með það fyrir augum, að álítsgerð og till. frá slíkri n. gætu haft viðtækari áhrif en aðeins það, sem að sjálfum Landsspítalanum eða ríkisspítölunum stefnir. Ég hef því nýlega ritað stjórn Læknafélags Reykjavíkur og stjórn Læknafélags Íslands og beðið þær um að tilnefna sinn manninn hvort félag í slíka n. og í öðru lagi yfirlæknaráði Landsspítalans og óskað eftir því, að það tilnefni 2 menn. Fimmta nm. eða oddamanninn mundi ég skipa sjálfur án tilnefningar og yrði hann formaður n. Þegar tilnefningar hafa borizt mér, sem ég vænti alveg á næstunni, verður þessi n. sett á laggirnar. Ég skal engu spá um, hvaða árangur sú nefndarskipun kann að bera, en n. er þó falið að rannsaka og gefa álít sitt um fyrirkomulag læknaþjónustunnar, og mig grunar, að það sé töluverð undirrót þeirrar deilu, sem hér er um að ræða, allvíðtækar og allmismunandi skoðanir læknanna sjálfra á fyrirkomulagi þessara mála. Í þessu felst hins vegar engin ásökun af minni hálfu um það, að þeim sé fremur en öðrum aðilum, spítölunum, Tryggingastofnuninni, sjúkrasamlögum eða öðrum aðilum, um að kenna þá deilu, sem hér hefur risið. Það vakir aðeins fyrir mér, að með slíkri nefndarskipun mætti að einhverju leyti stuðla að lausn deilunnar og betri framtíðarskipun þessara mála, sem ég tel mjög þýðingarmikið og mest aðkallandi mál, eins og á stendur.