02.03.1966
Sameinað þing: 29. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í D-deild Alþingistíðinda. (3176)

126. mál, dánar- og örorkubætur sjómanna

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég get verið samþykkur hv. fyrirspyrjanda um það, að hér er spurt um mjög mikilsvert mál, sem nauðsyn er á að úrlausn fái. En þar sem hann lagði í inngangi sínum og skýringum á þessari fsp. aðaláherzluna á það að spyrja um störf þeirrar n., sem að málum þessum hefur unnið, vil ég upplýsa það, sem er meginástæðan fyrir því, að svar mitt verður að þessu sinni æðistutt, að fyrir 2 dögum, — ég man ekki, hvort það var í fyrradag eða daginn þar áður, — þá barst mér loks í hendur skýrsla þessarar nefndar. Og í meginatriðum er þar bent á tvær leiðir. Skýrslan er æði viðamikil, og ég hef ekki haft ástæðu til þess að kynna mér allt efni hennar, en bent er á tvær leiðir, till. eru nánast tvær, þ.e.a.s. í fyrsta lagi, að sú sérstaka trygging, sem hér um ræðir, verði sett inn sem viðbótartrygging í almannatryggingalögin, og svo hitt, að samin verði sérstök löggjöf um þetta efni, þannig, að hinum frjálsu tryggingafélögum verði falið að framkvæma þessar tryggingar.

En eins og ég áðan sagði, ég hef ekki haft aðstöðu til þess á þeim örskamma tíma, sem síðan er liðinn, að mér barst í hendur þetta nál., að kynna mér það til hlítar og ríkisstj. þaðan af siður, því að hún hefur ekki séð skýrsluna sem slíka. Henni hefur ekki verið útbýtt til ráðh. allra. En ég get lýst þeim vilja mínum, sem ég efast ekki um, að sé vilji ríkisstj. allrar, að þessu máli verði hraðað svo sem kostur er og þær leiðir, sem n. bendir á til úrlausnar þessu, verði kannaðar til hlítar, þannig að afgreiðsla fáist á þessu atriði svo fljótt sem nokkur kostur er á.