09.03.1966
Sameinað þing: 30. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (3183)

70. mál, sjálfvirkar símstöðvar í Gullbringu- og Kjósarsýslu

Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 83 að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. samgmrh.:

„Hvenær má búast við, að símkerfi neðangreindra sveitarfélaga verði tengd sjálfvirka símkerfinu:

I. Gullbringusýsla: a. Hafnahreppur, b. Vatnsleysustrandarhreppur?

II. Kjósarsýsla: a. Mosfellshreppur, h. Kjalarneshreppur, c. Kjósarhreppur?“

Það er dálítið umliðið, síðan þessari fsp. var útbýtt, svo að praktískt hefur a-lið í I. verið svarað, þar sem Hafnahreppur hefur þegar verið tengdur sjálfvirka símkerfinu. En ég vildi mega vonast til þess, að hæstv. samgmrh. gæti leyst úr hinum fsp.