30.03.1966
Sameinað þing: 34. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í D-deild Alþingistíðinda. (3190)
147. mál, verðlagsmál
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í sambandi við efnahagsráðstafanirnar í febr. 1960 voru sett ný verðlagsákvæði. Í þeim fólst lækkun á hundraðshluta álagningar til samræmingar við þá hækkun álagsgrundvallar, sem leiddi af gengisbreytingunni. En þá voru flestar vörur háðar verðlagsákvæðum og innflutningur að mestu háður leyfum eða bundinn við vöruskiptalönd. Eftir gengisbreytinguna í ágústbyrjun 1961 var verðlagsákvæðum breytt aftur. Höfuðbreytingin fólst þá í því, að nokkrar vörutegundir voru undanþegnar verðlagsákvæðum. Höfðu flestar þessar vörur verið á innflutningsfrílista frá því í maí 1960. Var þess vegna talið, að stóraukið vöruframboð skapaði aukna samkeppni og væri af þeim sökum mögulegt að undanþiggja þessar vörur verðlagsákvæðum. Helztu vörutegundirnar, sem undanþegnar voru verðlagsákvæðum í ágúst 1961, voru þessar: Niðursoðnir ávextir, aldinmauk, niðursoðið grænmeti, kryddvörur alls konar, snyrtivörur, ytri fatnaður, sokkar, kvenskór, búsáhöld úr leir og gleri, baðker og vaskar, lampar, ljósakrónur, skrifstofuvélar og armbandsúr.
Á árunum 1962 og 1963 var verðlagsákvæðum breytt lítils háttar vegna lækkunar á tollum, þ.e. hundraðshluti álagningar var þá hækkaður lítið eitt til samræmis við lækkaðan álagningargrundvöll. Hér var um hið gagnstæða að ræða og átti sér stað í sambandi við gengisbreytinguna 1960. Var hér um að ræða eftirtaldar vörutegundir: Vefnaðarvörur, þ.e. metravöru innan vefnaðarvörunnar, pappír, vatnskrana, blöndunartæki, hljóðfæri, bifreiðavarahluti, reiðhjól og barnavagna. Þessi breyting hafði eingöngu þann tilgang að tryggja verzluninni óbreytta álagningu í krónum talið.
Um áramótin 1963—1964 báru samtök kaupsýslumanna, Samband ísl. samvinnufélaga og Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis fram eindregnar óskir um, að verðlagsákvæðum yrði breytt, og rökstuddu þær óskir með því, að verzlunarkostnaður, einkum þó laun, hefði hækkað stórlega frá því að þágildandi verðlagsákvæði voru sett eða 1961. Eflir að kjaradómur verzlunarmanna kvað upp úrskurð sinn í febr. 1964, ítrekuðu kaupmenn og kaupfélög enn óskir sínar. Kaupmenn og kaupfélög töldu, að verzlunarkostnaður hefði hækkað um 60—70% frá 1961. Efnahagsstofnuninni var þá falið að gera athugun á afkomu verzlunarinnar, og var niðurstaða þeirrar athugunar í meginatriðum sú, að verzluninni nægði ekki lægri álagning en gilt hafði 1958, til þess að afkoma hennar yrði svipuð og þá var. Var verðlagsákvæðum breytt í samræmi við niðurstöður þessarar athugunar Efnahagsstofnunarinnar og nokkrar fleiri vörutegundir undanþegnar verðlagsákvæðum í samræmi við stefnuna í innflutningsmálum að auka innflutningsfrelsið ár frá ári. Helztu vörutegundir, sem verðlagsákvæði voru þá afnumin á, voru þessar: Kex, ávextir, bæði nýir og þurrkaðir, handverkfæri, leðurvörur, þ.e. töskur og veski, rafknúin heimilistæki, fittings, lím, vatnskranar og blöndunartæki.
Á þessu ári hafa kaupmenn enn óskað þess, að verðlagsákvæðum verði breytt vegna hækkunar á verzlunarkostnaði, sem þeir telja, að orðið hafi frá því í marz 1964, þegar núgildandi verðlagsákvæði voru sett. Er það mál nú í athugun hjá verðlagsyfirvöldum og viðskmrn. Á tímabilinu 1960—1965 hafa verðlagsákvæði verið afnumin á eftirtalinni þjónustu: Á útseldri vinnu bifreiðaverkstæða, á leigu fyrir stórvirkar vinnuvélar, á flutningsgjöldum á sjó, öðrum en fyrir flutning á olíu innanlands, og út- og uppskipunargjöldum og pakkhúsleigum hjá skipaafgreiðslum, á akstri leigu- og sendibifreiða, á steinsteypu og þjónustu rakara og hárgreiðslustofa.
Með þessu vona ég, að í aðalatriðum sé svarað 1.—3. lið fsp. Ég gæti að sjálfsögðu lesið miklu ýtarlegri skýrslu um þetta efni, nánari sundurliðun á þeim vöruflokkum, sem ég hef nefnt, og þær breytingar á hundraðstölu álagningar eða krónuupphæð, sem gerðar hafa verið. Það mundi hins vegar vera of langur lestur, að ég tel, fyrir hv. Sþ., svo að ég hef kosið að leggja ekki út í hann, en er að sjálfsögðu reiðubúinn til að afhenda hv. fyrirspyrjanda nákvæmar skrár um þessi efni, þannig að hann geti kynnt sér þær. Sömuleiðis ef aðrir hv. þm. hafa áhuga á því að kynna sér sundurliðun á þeim upplýsingum, sem ég hef nú gefið almenna grg. um, er ég reiðubúinn til að láta þeim hv. þm., sem þess kynnu að óska, slíkar skrár í té.
Hins vegar get ég því miður ekki veitt upplýsingar um 4. lið fsp., vegna þess að engar skýrslur eru fyrir hendi, sem geri mér kleift að veita þær upplýsingar, sem þar er um beðið, og niðurstaða embættismanna hefur einnig verið sú, að frumgögn muni skorta, til þess að bægt sé að safna þeim upplýsingum, jafnvel þó að í slíka rannsókn yrði lagt, en það mundi taka mikinn tíma og vera mjög fyrirhafnarsamt. Ég hefði þó verið reiðubúinn til þess að efna til hennar, ef embættismenn hefðu ekki tjáð, að a.m.k. mjög hæpið mætti teljast, að nægilega örugg frumgögn lægju fyrir, til þess að unnt væri að gera þá umfangsmiklu skýrslu, sem þar er farið fram á að gerð verði.
Í tilefni af orðalagi 2. og 3. spurningar hv. fyrirspyrjanda, þar sem spurt er um, hvaða álagning hafi verið rýmkuð eða þrengd, tel ég rétt að taka fram og benda á, að þrátt fyrir nokkra hækkun hundraðstölu álagningar til þess að mæta hækkuðum verzlunarkostnaði, munu bæði kaupmenn og kaupfélög vera þeirrar skoðunar, að þó að álagningarhlutfallstala hafi verið hækkuð, þ. e. álagningin hafi verið rýmkuð, svo að þau orð séu notuð, sem hv. fyrirspyrjandi notar, munu bæði kaupmenn og kaupfélög telja, að þar hafi sízt verið um rýmkun að ræða í þeim skilningi, sem þeir vilja leggja í orðið, þ.e. raunverulega hækkun á álagningu, þar eð bæði kaupmenn og kaupfélög munu telja, að hækkun kostnaðar við verzlun hafi á undanförnum árum orðið mun meiri en sú tekjuaukning, sem hækkaður álagningarhundraðshluti hafi haft í för með sér.
Ástæða er til að leggja á það sérstaka áherzlu, að í skiptum verðlagsyfirvalda og viðskmrn. við verzlunaraðila hefur jafnan verið um að ræða mikla, ef ekki algera samstöðu á milli kaupmanna og kaupfélaga. Þær óskir, sem ég gat um áðan, að fram hefðu verið bornar við verðlagsyfirvöld um hækkaða álagningu, og þær óskir, sem nú liggja fyrir, eru fram bornar bæði af fulltrúum kaupmanna og fulltrúum kaupfélaga.
Varðandi að síðustu það, sem hv. þm. gat um, að í verðlagsnefnd ætti nú ekki sæti neinn fulltrúi frá þingflokki Alþb., er þess að geta, að ástæðan til þess, að fulltrúi Alþb. náði ekki kjöri í hópi hinna þingkjörnu fulltrúa í n., þegar síðast var í hana kjörið, var bein afleiðing þeirrar breytingar, sem varð á flokkaskipun Alþ. eftir síðustu alþingiskosningar, þannig að tveir fulltrúar Framsfl. hlutu kosningu, en enginn fulltrúi Alþb. Ég get gjarnan notað þetta tækifæri til þess að láta í ljós þá skoðun mína, að ég tel þetta óheppilegt og þá breytingu, sem með þessu móti varð á samsetningu verðlagsnefndar, ekki hafa verið til bóta. Ekki svo að skilja, að ég sé með þessum orðum að amast neitt við þeim viðbótarfulltrúa, sem þingflokkur Framsfl. fékk kjörinn í n., heldur láta hitt koma skýrt fram, að ég tel óheppilegt, að einn þingflokkanna skuli engan fulltrúa eiga í jafnmikilvægri nefnd og þeirri, sem verðlagsnefndin hlýtur að teljast, þar sem hún fjallar um opinbert verðlagseftirlit og verðlagsákvarðanir. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar, síðan síðustu kosningar fóru fram, á ýmsum 5 manna n. í því skyni að tryggja, að allir þingflokkar eigi þar sæti, og án þess að ég hafi borið mig saman um það við minn eigin flokk eða ríkisstj. í heild, get ég sagt það sem mína persónulegu skoðun og segi það eingöngu á eigin reikning, að ég tel vel geta komið til greina þess konar breyt. á verðlagslögunum, að allir þingflokkar eigi fulltrúa í verðlagsnefnd, eins og upphaflega var gert ráð fyrir, þegar verðlagslögin voru sett.