20.04.1966
Sameinað þing: 38. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í D-deild Alþingistíðinda. (3207)
162. mál, Íþróttasjóður
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Meðan Daníel Ágústínusson sat hér á hv. Alþ. í fjarveru minni, flutti hann fsp. þá, sem hér er til umr. Þegar fsp.-tíma lauk, var umr. um fsp. ekki lokið, og hefur hann beðið mig um að koma á framfæri aths., sem hann vildi gera út af ræðu þeirri, sem hæstv. menntmrh. flutti í máli þessu.
Hæstv. ráðh. mun hafa tekið það fram, að fjármál íþróttasjóðs hafi verið í óefni frá því í upphafi. Við þetta vill fyrirspyrjandi gera þá aths., að fjármál íþróttasjóðs hafa þó mjög gengið úr skorðum hin síðari ár. Það var svo, að með fjárveitingu 1955 var fullnægt 20% af fjárþörf íþróttasjóðs, en með fjárveitingu 1966 er aðeins fullnægt 10% af fjárþörf sjóðsins. Það hefur hins vegar verið regla sjóðsins að greiða eftir á til þeirra framkvæmda, sem ákveðnar höfðu verið hverju sinni, en þar til síðustu árin var þetta hóflegt, en nú hefur það mjög gengið úr skorðum.
Í öðru lagi hafði hæstv. ráðh. bent á það, að vald íþróttanefndar hefði verið frá upphafi takmarkað, þar sem í lögunum sé aðeins um heimild að ræða, en n. setti sér reglu þegar í upphafi starfstíma síns og hefur fylgt þeirri reglu um að styrkja íþróttamannvirki um 20—40%. Þessari reglu hefur n. fylgt, og studdist hún þar við það, sem áður hafði gerzt, meðan á fjárlögum var veitt fé til íþróttamannvirkja. Þá var m.a. veitt um 50% til sundhallarinnar í Reykjavík og gufubaðstofa og fleiri íþróttamannvirkja, og þess vegna setti n. sér reglur sínar hóflega. Hins vegar vill fyrirspyrjandi líka benda á, að á síðari árum hafa verið tekin inn í fjárlög framlög til íþróttahúsa og sundlauga og fleiri íþróttamannvirkja og hafa þau þá verið styrkt með 50% framlagi, og sýnir þetta, að n. hefur mjög gætt hófs í þessu, en reglum varð hún að fylgja.
Þá vill fyrirspyrjandi benda á það, að hann flutti hér á hv. Alþ. till. um, að íþróttasjóður fengi sérstakan tekjustofn. Það hafa nokkrir sjóðir fengið, svo sem landgræðslusjóður, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélag vangefinna. Enn fremur hafa Í.S.Í. og Slysavarnafélag Íslands fengið sérstakan tekjustofn við fjárlagaafgreiðslu nú fyrir tveim árum. Fyrirspyrjandi flutti, eins og ég tók fram áðan, hér á hv. Alþ. frv. um, að þetta yrði einnig ætlað íþróttasjóði, en það hefur ekki náð fram að ganga.
Að lokum vill fyrirspyrjandi taka það fram, að árangur af störfum íþróttasjóðs hefur orðið mikill, og gleggsta dæmið um það er landsmót ungmennafélaganna, sem haldið var að Laugarvatni í sumar. Forseti Íslands lét svo um mælt um það mót, að það stæði næst Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930 að glæsileik og myndarbrag. Þetta vill fyrirspyrjandi undirstrika, að ekki hefði verið hægt að leysa af hendi nema vegna starfa íþróttasjóðs, og þess vegna er brýn nauðsyn fyrir þjóðina að bæta úr fjárhag íþróttasjóðs, svo að hann nái þeim tilgangi, sem hann átti að ná, þegar til hans var stofnað, og hann hefur náð að nokkru á undanförnum árum, þótt mjög hafi dregið úr því.