17.12.1965
Efri deild: 32. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

91. mál, fjárhagur rafmagnsveitna ríkisins

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og eins og nál. þau, sem útbýtt hefur verið, bera með sér, hefur hún ekki orðið sammála um afstöðu til málsins. Við, sem stöndum að nál. á þskj. 207, leggjum til, að það verði samþ. óbreytt, en aðrir nm. hafa skilað sérálitum og borið fram brtt. eða leggja til, að frv. verði fellt.

Það er óþarfi að fjölyrða um tilgang þessa frv. við þetta tækifæri. Í því efni vil ég leyfa mér að vísa til framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr, málsins. Hv. stjórnarandstæðingar hafa í þessu sambandi talað um nýjar skattaálögur til þess að bæta hag rafmagnsveitnanna. Þetta er að mínu áliti villandi. Þjóðin getur ekki með neinu móti komizt hjá því að greiða kostnað við raforkuframkvæmdir og rekstur rafveitna. Það er ekki hægt undir neinum kringumstæðum að sækja þá fjármuni, sem til þess þarf, eitthvað út í geiminn, þannig að spurningin er aðeins sú, hvernig á að jafna þessum kostnaði niður, og koma í því efni tvær leiðir til greina. Önnur er sú að láta notendur rafmagnsins greiða nauðsynlegan kostnað við að veita þeim þessa þjónustu, hin sú að láta skattgreiðendur bera halla rafveitnanna, en það þýðir í rauninni, að rafmagnsverðið er greitt niður með framlögum úr ríkissjóði.

Það er skoðun okkar, sem þetta frv. styðjum, að fara beri fyrri leiðina eða þá að láta rafveiturnar bera sig. Það getur þjónað skynsamlegum tilgangi að greiða niður úr ríkissjóði almennar nauðsynjavörur, eins og t.d. mjólk. Slíkt leiðir að nokkru til tekjujöfnunar. En ég fæ með engu móti komið auga á skynsamleg rök fyrir því, að borga skuli niður rafmagnsnotkunina með framlögum úr ríkissjóði. Nú hefur það að vísu verið vefengt við meðferð þessa máls af hv. 4. þm. Norðurl. e., að raunverulegur halli á rafveitunum væri slíkur, að verðjöfnunargjaldsins, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, væri þörf eða a.m.k. svo hás verðjöfnunargjalds sem hér er um að ræða. Við því er það að segja, að auðvitað geta ýmsir kostnaðarliðir slíks fyrirtækis verið matsatriði, þannig að um það má deila innan vissra takmarka, hvað sé kostnaðarverð. Ég er að vísu ekki sammála því sjónarmiði hv. þm., að ekki beri að taka tillit til vaxta af eigin fé, þegar framleiðslukostnaður er ákvarðaður. Það er ekki hægt að segja, að fyrirtæki beri sig, ef það skilar engum arði af eigin fé. Hinu er ég út af fyrir sig sammála, að margir kostnaðarliðir, svo sem afskriftir, eru þess eðlis, að þeir verða ekki metnir nema af nokkru handahófi. En hvað sem því líður, er það staðreynd, að á fjárl. yfirstandandi árs voru veittar 40 millj. kr. til þess að standa undir halla rafmagnsveitna ríkisins, þannig að þessari fjárhæð, sem ekki gat komið annars staðar frá en úr vösum skattborgaranna, hefur raunverulega verið varið til niðurgreiðslu á rafmagnsverði. Við, sem að meirihlutaálitinu stöndum, teljum, að slík niðurgreiðsla þjóni ekki skynsamlegum tilgangi, og mælum við því með samþykkt frv.