17.12.1965
Efri deild: 32. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (324)

91. mál, fjárhagur rafmagnsveitna ríkisins

Frsm. 1. minni hl (Björn Jónsson):

Herra forseti. Í þessu máli get ég að mestu leyti vísað til þess, sem ég hafði um það að segja við 1. umr. í gær, þar sem ég ræddi þetta mál nokkuð. Eins og ég þá sagði, sker það úr um afstöðu mína til þessa frv., að ég tel skattheimtuna, sem með frv. er ákveðin, bæði óheppilega og ranga og tilgang hennar einnig af því tagi, að skattstofninn, sem um er að ræða, kemur raforkunotendum almennt í landinu ekki að nokkru haldi. Það er engum blöðum um það að fletta, að þessi skattheimta er gerð, eins og hæstv. fjmrh. viðurkenndi hér í gær, til þess að rétta við halla á ríkissjóði. Það voru hans óbreytt orð þá. Fæ ég þá ekki séð, að á því sé neinn munur eða því að viðurkenna hreinlega það, sem rétt er, að hér er um raunverulega skattheimtu til ríkissjóðs að ræða, miðað við það fyrirkomulag, sem áður hefur verið. Og það er í raun og veru alveg sami leikurinn, sem hér er verið að leika, eins og í sambandi við benzínskattinn. Hér er um hreinan verðbólguskatt að ræða, sem auka mun verulega framleiðslukostnað og dýrtíð í landinu, án þess að betur en áður sé séð fyrir þeim málum, sem þessi skattheimta er tengd, og þannig er líka þessi skattheimta sama markinu brennd og benzínskatturinn, sem ekki var ætlaður til að auka framkvæmdir í vegamálum, heldur eingöngu til þess að létta útgjöldum af ríkissjóði, til þess að það fé, sem áður hefur farið til þessara mála, yrði notað í almenna dýrtíðareyðslu og eignaeyðslu ríkissjóðs almennt. Hér er þess vegna aðeins um að ræða ráðstafanir vegna bágborinnar afkomu ríkissjóðs í því almenna dýrtíðarflóði, sem nú æðir yfir af auknum þunga, og þetta vita reyndar allir, þó að hv. talsmenn stjórnarliðsins reyni að hafa hér uppi tilraunir til orðaleikja í þessu sambandi.

Ég vil að öðru leyti segja það um þetta mál og afgreiðslu þess í hv. fjhn., að það hefur ekki fengið neina eðlilega afgreiðslu í n. Það hefur hvorki verið vilji hjá meiri hl. né heldur jafnvel tími til þeirra athugana, sem hefðu verið nauðsynlegar og hefðu skapað einhver líkindi fyrir því, að hægt hefði verið að færa ýmis ákvæði frv. eitthvað til betri vegar en til er stofnað. Því var lýst yfir á fundi fjhn. af hv. fulltrúum meiri hl., að þeir mættu hér engum stafkrók breyta og þýddi hvorki að athuga málið í því sambandi né um það að ræða. Slík vinnubrögð eru því miður ekki einsdæmi hér á hv. Alþ., heldur stundum allt að því regla hjá núv. ríkisstj. og hennar stuðningsliði, þegar um slík mál er að ræða sem hér. En ég tel engu að síður ástæðu til þess að víta þá málsmeðferð, sem hér er viðhöfð. Og það má segja í sambandi við þetta mál eins og mörg önnur svipuð, að harðstjórn ríkisstj. yfir líði sínu og óbilgirni um afgreiðslu mála er söm við sig, og ég vil Iíka segja, að það er vond vist á stjórnarheimilinu fyrir að ýmsu leyti sómakæra menn, sem áreiðanlega vildu helzt viðhafa heiðarleg vinnubrögð og sanngjarna málsmeðferð, að vera þvingaðir til þess að hafa þann hátt á, sem hér hefur verið hafður og í fjölmörgum öðrum málum bæði fyrr og siðan af höndum þessarar ríkisstj.

Um frv. að öðru leyti en ég lýsti afstöðu minni hér við 1. umr. vil ég segja það nú, að ég er algerlega samþykkur 1.—3. gr. þessa frv., greinum, sem fela í sér sjálfsagðar ráðstafanir í þá átt að treysta raunverulega fjárhag og fjárhagsafkomu rafmagnsveitna ríkisins. En andstaða mín er eingöngu bundin við skattheimtuna og skattheimtuaðferðina. Sú andstaða mótast í fyrsta lagi af því, að hér er um skatt að ræða, sem hefur dýrtíðaraukandi áhrif og kemur ákaflega misjafnlega niður. Í öðru lagi vegna þess, hversu hún kemur ekki aðeins ósanngjarnlega niður á einstaka aðila, sem framleiða og selja raforku, heldur einnig á einstaklinga, sem rafmagn kaupa og nota. Í þriðja lagi vegna þeirrar stefnu, sem tekin er upp í frv., að skattleggja alla raforkunotendur jafnt, vegna þeirra óheillavænlegu áhrifa, sem slíkt mundi hafa á þróun raforkunotkunar og jafnvel þróun raforkumála í framtiðinni, ef sá háttur yrði hafður á til langframa, sem hér er upp tekinn. Og í fjórða lagi vegna þess, að hér er ekki um neina raunverulega verðjöfnun að ræða, þó að reynt sé að halda því fram með orðaleikjum. Fyrir þessum atriðum öllum gerði ég grein við 1. umr. málsins og sé ekki ástæðu til þess að endurtaka þau rök, sem ég hafði fram að færa í því sambandi.

Ég sé, að hv. fulltrúar Framsfl. í fjhn. hafa gert brtt, við þetta frv. Um þær vil ég segja það, að ég tel, að fyrstu tvær till. séu ekki raunhæfar till. til lausnar á því vandamáli, sem hér er um að ræða. Þar kemur hvort tveggja til, að það liggja ekki fyrir neinar viðhlítandi upplýsingar um það, hverjar byrðar ríkissjóði væru ætlaðar með samþykkt þeirra till., og þó fyrst og fremst það varðandi síðari till., að um algera verðjöfnun á raforku til notenda getur að mínu viti ekki verið að ræða. Ég tel hana óframkvæmanlega, nema fram fari miklar skipulagsbreytingar og e.t.v. gerbreytingar á eignarhaldi orkustöðva og dreifikerfa, og slíkar breytingar þarf að framkvæma, áður en mögulegt er að skapa öllum notendum raforku sama verð. Slíkar breytingar þyrftu miklu meiri athugana og undirbúnings við en verður komið við með þeirri skyndingu í málsmeðferð, sem hér er viðhöfð, enda sýnist mér 3. till., ákvæði til bráðabirgða um að endurskoða raforkul. og framkvæmd þeirra með tilliti til þess að koma bættu skipulagi á stjórn raforkumála í landinu og ódýrari og hagkvæmari rekstri, eins og þar stendur, benda til þess, að fulltrúar Framsfl. séu einnig þeirrar skoðunar, að hér þurfi að taka málið öðrum tökum en þeir annars leggja til í sínum tveim fyrri till. Ég vil því segja það um þessar till., að ég er eindregið fylgjandi 3. till., um ákvæði til bráðabirgða, sem ég tel raunverulega alveg bráðnauðsynlega.

Ég vil einnig árétta það, sem ég hef reyndar áður sagt hér, að ég tel verðjöfnun á raforku vera réttlætismál, sem þurfi að komast í framkvæmd, svo fljótt sem auðið er. Og ég vil í því sambandi minna á, að ég hef flutt áður á a.m.k. tveimur þingum till. um nauðsynlegan undirbúning að slíkri verðjöfnun. En í sambandi við till. Framsfl. nú minnist ég þess, að framsóknarmenn tóku ekki undir þær till. mínar, þegar þær hafa verið fluttar hér á þingi, og ég get þess vegna ekki tekið mjög alvarlega till. þeirra nú um, að málið verði afgreitt á nokkrum mínútum svo að segja.

Ég tel, að hér sé ekki aðstaða til þess að flytja þær brtt. við þetta frv., sem geri það fært að samþykkja það og una sæmilega við það, og raunverulega tilgangslaust, miðað við það, hve stjórnarliðið hér er handjárnað í þessu máli. En eina brtt. mun ég þó leyfa mér að flytja. Hún breytir að vísu ekki málinu svo, að ég mundi að henni samþykktri að heldur fylgja málinu, en teldi þó, að hún væri til verulegra bóta. Þessi till. er um það, að gildistími l. verði aðeins árið 1966, að við 12. gr. bætist: „og gilda til 31. desember 1966“. Þessa brtt. flyt ég í því trausti, að menn geti á hana fallizt. Það ætti ekki að vera neitt lagt í hættu af hálfu hæstv. ríkisstj., þó að slík till. yrði samþ., því að í þessum málum væri opin leið auðvitað til þess að framlengja lögin, ef ekki hefði unnizt tími til að athuga þessi mál eins og nauðsynlegt er, til þess að þau gætu horfið og önnur skynsamlegri ákvæði komið í staðinn. Ég tel þannig, að með samþykkt þessarar brtt. minnar um gildistíma aðeins næsta ár og samþykkt á till. hv. fulltrúa Framsfl. í ákvæðum til bráðabirgða um að skipa n. til að endurskoða raforkul. og allt skipulag þeirra og framkvæmd væri verulega unnið, jafnvel þó að við þyrftum að búa við það óréttlæti, sem hér er annars á ferðinni, yfir næsta fjárlagaár.

Ég vil aðeins að lokum segja það, að brtt. mín er skrifleg og þar að auki of seint fram komin, og ég vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.