24.02.1966
Efri deild: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

123. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég mun nú ekki lengja mikið þessar umr., enda hefur hv. flokksbróðir minn, 5. þm. Reykn., gert málinu sérstaklega góð skil í ýtarlegum ræðum, ekki sízt við 1. umr. málsins. Og það er í raun og veru athyglisvert, að í ræðum hans hafa raunverulega komið fram þær einu tölulegu upplýsingar, sem eitthvað er á að byggja í sambandi við þetta mál. Þær hafa ekki komið frá hæstv. sjútvmrh., og þær hafa ekki heldur komið frá hv. frsm. meiri hl. fjhn., sem forðaðist eins og heitan eld að ræða hin raunverulegu efnisatriði þessa máls, og var í raun og veru engu líkara en hann hefði ekki hugmynd um, um hvað frv. væri. En í sambandi við ræðu hans datt mér í hug, að það gegndi furðu, að útgerðarmaður Skagabáta teldi nú útgerð síldarskipanna í landinu vera sérstaklega aflögufæra. Og það væri a.m.k. með ólíkindum, að ræðan hefði verið samin á skrifstofu Heimaskaga, — eða er það ekki það fyrirtæki, sem hv. þm. veitir forstöðu?

Það er auðvitað sannast mála, að það eru þrjú atriði í sambandi við þetta frv., sem maður hlýtur sérstaklega að staldra við og maður verður í raun og veru að fá svör við til þess að geta gert sér grein fyrir því, hvort hér eru á ferðinni ráðstafanir, sem talizt geta réttmætar. Og það er í fyrsta lagi, eins og hér hefur verið komið inn á: Er brýn þörf á þessu fyrir þann atvinnurekstur, sem á að njóta þeirrar skattlagningar, sem hér er á ferðinni? Er sá. sem skattleggja á, aflögufær, og er brýn nauðsyn á þeirri fjárheimtu, sem hér er um að ræða? Ég vil segja, að tvö fyrri atriðin hafa verið rædd hér nokkuð og sérstaklega af hv. 5. þm. Reykn., og ég hef ekki heyrt, að hans skoðunum um þessi efni hafi verið hnekkt á nokkurn hátt. Það liggur fyrir, m.a. í þeim gögnum, sem hv. sjútvn. mun hafa fengið í hendur, að gróði hefur orðið verulegur á frystihúsunum í landinu á tveimur s.l. árum, mjög verulegur gróði. Og það liggur líka fyrir, að verðákvörðunin er tekin út frá þeirri forsendu, að engar verðhækkanir verði nú á þessu ári, enda þótt reynslan hafi verið sú, að verðhækkanir hafi verið frá 4% og upp í 13% á ári. En til þess að standa undir 4% verðhækkun á hráefnisverðinu mun ekki þurfa nema tæpa 2% hækkun á útflutningsverðinu, þannig að mér sýnist það algerlega óhrakið, sem hv. 5. þm. Reykn. hélt fram, að það liggja engar sannanir fyrir um það, að ef frystiiðnaðurinn í landinu, fiskvinnslan í landinu er tekin almennt og tekin sem eitt dæmi og eitt fyrirtæki, sé heildarútkoman þannig, að það sé nokkurt tilefni til þess, að slík skattlagning fari fram. Það auðvitað segir hins vegar ekki, að einstök frystihús eigi ekki í vök að verjast á þeim verðbólgutímum, sem við nú lifum. En það má suðvitað nákvæmlega á sama hátt segja um þann hluta útvegsins, sem á að skattleggja, að þar er verulegur hluti langt fyrir neðan það, að hann sé á nokkurn hátt aflögufær. Að vísu verður það að segjast um millistærðina af bátum, en þeim mundi t.d. hv. frsm. meiri hl. sjútvn. vera kunnugastur, bátunum, sem eru kringum 90 tonn, að þeir stunda nokkurn veginn jöfnum höndum síldveiðar á sumarvertíð og bolfiskveiðar að vetrinum, og það kann vel að vera, að það sé ekki mikið á mununum, það sem tekið er og það sem látið er aftur af hendi. Það er gamla þjóðráðið að skera rófuna af hundinum og stinga henni upp í hann, og það er sennilega það, sem hann átti við, þegar hann sagði, að í þessu frv. birtist langþráð takmark, sem útvegsmannastéttin hefði barizt fyrir í fjöldamörg ár. En það er alveg greinilegt hins vegar, að það hallar á stóru skipin. Það eru þau raunverulega, sem eiga að borga, dýrustu tækin, sem við eigum núna í útveginum. Og það væri vissulega gott að fá um það gleggri upplýsingar en hér hafa komið fram og hv. n. hlýtur að hafa kynnt sér, hversu aflögufær þessi skip eru miðað við það, hvað þau kosta núna. Þau eru flest ný. Þau kosta flest kringum 20 millj. eða þar yfir. Hvað mikið þurfa þau að fiska, og eru þeir, sem standa fyrir þessu frv., bærir um að færa fram einhver líkindi fyrir því, að það sé tryggt, að þau afli það nú á næsta ári? Hér er auðvitað um bráðabirgðaúrræði að ræða, eins og öll önnur úrræði í sambandi við okkar efnahagsmál, meðan það ástand varir, sem nú ríkir. Það getur ekki verið um að ræða nein úrræði nema bráðabirgðaúrræði, og ég er algerlega sammála hv. síðasta ræðumanni um það, að hér getur ekki verið um að ræða, hvort sem farið væri að þessu nákvæmlega eins og hér er að staðið eða kannske með einhverjum öðrum hætti, nema algera skóbótaviðgerð, alger bráðabirgðaúrræði, sem ekki er ætlað að standa nema árið. Og við það hljótum við, sem erum andstæðir þessu frv., líka að miða okkar rök. Hvað sem um má segja útlitið almennt í okkar útvegsmálum, — það er vissulega ekkert bjart, ef verðbólgan heldur áfram sinni þeysireið í okkar efnahagslífi, — er sem betur fer ástandið ekki enn í dag þannig, að það sé tilefni til þeirra aðgerða, sem hér er um að ræða.

En það var í raun og veru þriðja spurningin, sem ég ætlaði sérstaklega að gera hér að umtalsefni, og í raun og veru var þar frekar um að ræða fsp. til hæstv. sjútvmrh. heldur en miklar hugleiðingar frá eigin brjósti, af því að það atriði málsins hefur ekki komið raunverulega fram í þessum umr. Hversu brýn þörf er á allri þeirri fjáröflun, sem hér er um að ræða? Það liggur fyrir, að um það bil 8/4 hlutar af þeirri skattheimtu, sem hér er framkvæmd í samhandi við útflutningsgjöldin, rennur til tryggingastarfsemi sjávarútvegsins, til þess að greiða tryggingar fyrir fiskiskipin. Ég held, að það sé álit flestra, sem eitthvert skyn bera á tryggingamál, að sá háttur, sem á okkar tryggingamálum hefur verið hafður, hafi verið í alla staði mjög óheppilegur og hafi verið ein höfuðástæðan fyrir því, að tryggingar á okkar fiskiskipum, í okkar útgerð eru dýrari en nokkurs staðar annars staðar og jafnvel svo, að þær hafa a.m.k. sum undanfarin ár verið allt að 100% dýrari en í Noregi, þar sem um algerlega sambærileg áhættuskilyrði er að ræða. Það var einmitt af þessum ástæðum, að hingað var fyrir nokkrum árum fenginn norskur sérfræðingur, Gerhardsen að nafni, til þess að gera ýmsar athuganir á okkar sjávarútvegi og alveg sérstaklega í sambandi við tryggingamálin. Og hann samdi mjög ýtarlega og mikla álitsgerð, sem var lögð fyrir þm. og þeim er áreiðanlega að meira eða minna leyti kunnug, þótt hún sé nokkuð komin til ára sinna. Hann gerði m.a. till. um gerbreytingar á okkar tryggingakerfi og taldi, að ef að till. hans væri farið, væri hægt að lækka tryggingarnar stórkostlega, jafnvel um helming í sumum greinum. Ég ætla ekki að rekja till. hans nákvæmlega, en eitt af því, sem hann lagði mikla áherzlu á, var það, að tryggingastarfseminni yrði þannig fyrir komið, að ábyrgðin yrði meiri á smærri einingum, en það væri hættulegt fyrir alla tryggingastarfsemina að skella allri áhættunni saman í eina stóra heild, vegna þess að það skapaði á margan hátt ábyrgðarleysi og gerði tryggingarnar miklu dýrari en þær þyrftu að vera. Ég vil þess vegna draga það mjög í efa, að sá háttur, sem nú er á tryggingunum, sé í því horfi, að hér sé í raun og veru um að ræða nauðsynlega fjárheimtu. Ég held þvert á móti, að ef væri undinn að því bugur að breyta tryggingakerfinu og færa það í eðlilegra horf, gera þá, sem tryggja, ábyrgari en þeir eru og láta þá greiða tryggingarnar að einhverju leyti beint úr eigin vasa, væri hér hægt að spara stórkostlegar upphæðir og þannig hægt að lækka útflutningsgjöldin einhliða, án þess að taka úr einum staðnum og láta í hinn.

Ég tel ástæðu með tilliti til þess, sem ég hef nú sagt, til þess að spyrja hæstv. sjútvmrh., þegar hér er verið að leggja til nýja og aukna skattheimtu á einn ótryggasta atvinnuveg okkar, sem engar sannanir eru fyrir að sé á nokkurn hátt aflögufær, þá sé ég ástæðu til að spyrja: Hvað líður endurskoðun á tryggingamálum sjávarútvegsins? Er það eitthvað í gangi, eða eru þær skynsamlegu till., sem hafa komið fram í þeim efnum, m.a. frá Gerhardsen hinum norska, allar rykfallnar í skúffum í stjórnarráðinu? Er ekkert verið að vinna í þessum málum? Er ekkert verið að athuga um það, hvort við getum lækkað hæstu útflutningsgjöld, sem þekkjast hjá nokkurri fiskveiðiþjóð? Á engin breyting að verða á því?

Annar hluti af því fé, sem heimt er af útflutningsgjöldunum, sem er stór, er svo hlutinn til fiskveiðasjóðs, þ.e.a.s. nærri því 1/5 hluti, rúm 17%, að mig minnir. Ég tel, að það megi vel skoða það líka, hvort þessi skattheimta, sem þangað fer, er nauðsynleg fyrir þjóðarbúskapinn og nauðsynleg fyrir sjávarútveginn. Það er vitað, að eigin aflafé fiskveiðasjóðs, bara af arði af eigin fé, nemur stórkostlegum upphæðum. Ég hef ekki þær tölur nákvæmlega, en ég hygg. að það fari ekki fjarri, að það séu 80—90 millj. á ári, sem sjóðurinn hefur í tekjur af eigin fé, án þess að nokkur skattlagning fari fram á útveginn. Ég tel það a.m.k. vera mál, sem vel ber að athuga, hvort þessi sjálfkrafa fjármagnsmyndun, sem fram fer hjá fiskveiðasjóði. að viðbættum ráðstöfunum, sem hlyti að vera hægt að gera til þess, að uppbygging fiskiðnaðarins í landinu fengi eðlilegan hluta af sparifjármynduninni í landinu, nægði ekki, án þess að sjávarútvegurinn sé skattlagður um stórkostlegar upphæðir til þess að geta fengið þessar sömu upphæðir aftur lánaðar með okurvöxtum. Ég held, að það hljóti að vera mögulegt fyrir ríkisstj., sem tekur þriðjunginn af allri sparifjármynduninni í landinu í frystingu, þ.e.a.s. í sjóð, sem hún getur ráðstafað að eigin vild, að haga svo málum, að uppbygging sjávarútvegsins fengi eðlilegan hluta af þessari sparifjármyndun og þeirri fjármagnsmyndun, sem verður í landinu, en það þurfi ekki á þessu sviði að hafa þann hátt á að skattleggja menn um það fé, sem þeir eiga síðan að fá að láni. Þetta hefur að vísu verið á mörgum sviðum stefna hæstv. ríkisstj., en ég álít hana sérstaklega varhugaverða og endurskoðunarverða og hættulega gagnvart þeirri atvinnugrein í landinu, sem við eigum mest undir og raunverulega stendur á margan hátt verst, miðað við þá efnahagsstefnu, sem fylgt hefur verið. En það er einmitt þetta tvennt, sem er raunverulega grundvöllurinn undir útflutningsgjöldunum. Það eru annars vegar tryggingagjöldin, sem áreiðanlega mætti lækka stórkostlega og væri miklu eðlilegra, ef einhver tilfærsla á annað borð þarf að fara fram, að hún færi þannig fram að taka einhvern hluta af tryggingagjöldunum og láta útveginn beinlínis borga hana. Það er t.d. ljóst mál, að nýtízku síldveiðiskip þarf að borga í tryggingagjöld eða ríkið þarf að borga fyrir það í tryggingagjöld frá 800 þús. kr. til 1 millj. á ári. Ég tel þann hátt miklu eðlilegri og raunar miklu líklegri, til þess að fjármagnið komi að því gagni, sem til er ætlazt.

Ég vil taka það fram, að að svo komnu er hér meira um fsp. að ræða heldur en ég sé að setja fram ákveðnar till. En ég tel fullt tilefni til þess, að þessi mál séu hugleidd í fullri alvöru, bæði af hæstv. ríkisstj. og hv. Alþ., hvort ekki er unnt að lækka stórkostlega eða jafnvel afnema að langmestu leyti útflutningsgjöldin, án þess að nokkur skaði sé skeður.

Þá er það annað atriði. sem ég vildi aðeins minnast á og spyrja hæstv. sjútvmrh. um. Eins og kunnugt er og augljóst af frv., sem hér liggur fyrir, á Landssamband ísl. útvegsmanna að fá verulegar fjárhæðir af útflutningsgjöldunum. Hins vegar er mér kunnugt um, að krafa hefur komið um það frá sjómannasamtökunum, að þau fengju tilsvarandi upphæð til sinnar ráðstöfunar. Og ég verð að segja það, að þar sem útflutningsgjöldin eru tekin algerlega af óskiptu, þar af leiðandi jafnt af útvegsmönnum sem sjómönnum, eiga sjómennirnir vitanlega þarna fullkomlega siðferðislegan rétt á því að fá upphæð, sem stæði í eitthvað svipuðu hlutfalli og hlutur þeirra að afla á móti hlut útgerðarmannsins stendur. Ég sé ekki neitt, sem getur mælt á móti því, að slíkur háttur væri á hafður. Og mér þykir það ofurlitlu máli skipta í sambandi við þetta frv., hvort þessari réttlætiskröfu sjómanna verður sinnt eða hvort á að halda áfram að skattleggja báða jafnt, bæði sjómanninn og útgerðarmanninn, eingöngu til hagsbóta fyrir þau samtök, sem útgerðarmenn mynda og mæta sjómönnunum m.a. í átökum um kaup og um kjör og nota þetta fé m.a. til þess að standa þar betur að vígi.