14.10.1965
Efri deild: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (394)
4. mál, Bjargráðasjóður Íslands
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er flutt, er um breyt. á l. nr. 8 frá 14. febr. 1961, um Bjargráðasjóð Íslands. Það hefur öllum augljóst verið undanfarin ár, að tekjur bjargráðasjóðs hafa verið of litlar til þess að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum sjóðsins. Einna berlegast kom þessi vanmáttur sjóðsins í ljós nú á þessu hausti, þegar nauðsynlegt reyndist að hlaupa undir bagga með bændum á Austurlandi vegna grasbrests og kals í túnum. Nauðsynlegt reyndist til úrlausnar þessu eina vandamáli, að sjóðurinn tæki 3 millj. kr. lán, sem Búnaðarbankinn veitti sjóðnum og greiðast verður af tekjum sjóðsins næstu ár, en árlegt ráðstöfunarfé sjóðsins, þegar lagt hefur verið inn á sérreikninga sveitarfélaganna, er vart meira en 1.8—1.9 millj. kr.
Með hliðsjón af framansögðu ákvað ríkisstj. að beita sér fyrir helmingshækkun á framlögum til bjargráðasjóðs, og er frv. þetta flutt til staðfestingar á þeirri ákvörðun. Í núgildandi l. er framlag til sjóðsins 5 kr. af hverjum íbúa bæjar- og sveitarfélaga og jafnhátt mótframlag ríkissjóðs. 1. gr. frv. gerir ráð fyrir, að framlögin verði hækkuð úr 5 kr. í 10 kr. af hverjum íbúa frá hvorum aðila. Með samþykkt frv. ættu verulega að aukast möguleikar sjóðsins til að geta í ríkara mæli en fyrr bjargað einstaklingum og hópum manna frá neyðarástandi, er þeir verða fyrir af völdum náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra orsaka. Jafnframt ætti sjóðurinn að verða í framtiðinni færari en nú er til að standa undir þeim fjárhagslegu skuldbindingum, sem hann hefur orðið að taka á sig og verður sífellt að gera í formi styrkja og annarrar aðstoðar. Bjargráðasjóður Íslands heftur á starfsferli sínum gegnt mjög þýðingarmiklu hlutverki í félagslegri samhjálp þrátt fyrir mjög takmarkaða fjárhagslega getu. Stjórn sjóðsins mun fúslega veita þn. þeirri, sem málið fær til meðferðar, allar nánari upplýsingar um starfshætti sjóðsins og fjárhagslega aðstöðu hans nú, verði þess óskað.
Það er von mín, að mál þetta fái greiðan framgang í hv. þd. Sveitarfélögum og ríkissjóði er nauðsynlegt að fá sem fyrst vitneskju um endanlega afgreiðslu málsins vegna fjárhagsáætlana sinna, áður en fjárlög verða afgr. hér á Alþ.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.-og félmn.