21.03.1966
Efri deild: 53. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

19. mál, eignarréttur og afnotaréttur fasteigna

Frsm. 2. minni hl. (Alfreð Gíslason):

Herra forseti. Í 1. gr. þessa frv. eru sett allströng skilyrði fyrir því, að maður, einstaklingur eða félag, geti öðlazt eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum hér á landi. Skilyrðin eru sundurliðuð í fjórum liðum í þessari grein. En í síðari hluta þessarar sömu gr. er í raun og veru horfið frá öllu, sem búið er að segja, með því að heimila ráðh. að hafa þessi skilyrði að engu. Þetta kemur mér undarlega fyrir sjónir. Að vísu er þetta ekkert nýmæli í þessu frv. Þannig hefur þetta verið og er í gildandi lögum, og sagt er, að þetta hafi ekki komið að sök. Allt um það tel ég ekki rétt, að þetta sé þannig haft í lögunum eftirleiðis, og fylgi brtt. 1. minni hl. í þessu efni. Ég þarf ekki að gera grein fyrir þeirri brtt., því að það hefur hv. frsm. 1. minni hl. þegar gert skilmerkilega.

Jafnvel þó að þetta hafi ekki komið að sök, að veita ráðh. svo víðtæka heimild, þá vitum við aldrei, hvenær slíkt getur komið að sök, allt verður einu sinni fyrst. Og það er jafnvel ástæða til að ætla, að freistingin til þess að notfæra sér þessa heimild verði meiri í náinni framtíð eða á komandi árum en verið hefur til þessa, því að ekki er ólíklegt, að ásókn útlendinga fari vaxandi í þessum efnum frá því, sem verið hefur. Ég tel því fráleitt, að nokkrum ráðh. sé veitt svo víðtækt vald sem ráð er fyrir gert í 1. gr. Það vald á að vera hjá hinu háa Alþingi, og komi til greina með undanþágur frá lögunum, þá er það þess að gefa slíkar undanþágur.

Í 4. tölul. 1. gr. segir, að í hlutafélögum skuli 4/5 hlutafjár vera eign íslenzkra ríkisborgara og íslenzkir ríkisborgarar fara með meiri hluta atkvæða á hluthafafundum. Hér er því sem sagt slegið föstu, að hlutafélög, sem í eru útlendingar að 1/5, geti átt ótakmarkaðan eignarrétt og afnotarétt fasteigna hér á landi. Þetta er nýmæli, því að ákvæði um slíkt finnst ekki í gildandi lögum. Hér er því sem sagt slegið föstu, að hlutafélag, þó að í því séu útlendingar, geti öðlazt eignarrétt og afnotarétt yfir fasteignum hér á landi. Að vísu á það að vera tryggt, að íslenzkir ríkisborgarar séu í ríflegum meiri hluta. En ég tel hér vera um svo mikilsvert atriði að ræða, að ég flyt brtt. um þetta á þskj. 349, og í þeirri brtt. felst það, að allir félagar, hluthafar eða aðilar í slíku hlutafélagi skuli vera íslenzkir ríkisborgarar.

Það er með öllum þjóðum farið varlega í það að veita útlendingum réttindi til atvinnu og rétt til afnota af eignum og auðlindum. Við Íslendingar verðum að fara í þessu efni varlegar en nokkur önnur þjóð, sem við þekkjum. Við megum ekki miða í þessu efni við þjóðir eins og hin Norðurlöndin vegna þess, hve við erum mörgum sinnum fámennari en þær þjóðir. Af þessari ástæðu tel ég, að aldrei sé of varlega farið í þessu efni, aldrei of varlega farið í því að takmarka rétt útlendinga hér á landi, og þess vegna hef ég leyft mér að flytja þessa brtt.