15.03.1966
Neðri deild: 55. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (459)
107. mál, sveitarstjórnarkosningar
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er komið frá hv. Ed. og hlaut þar einróma samþykki. Frv. er ekki mikið að vöxtum, og er nánast flutt til leiðréttingar á því, að með breyt. á l. um sveitarstjórnarkosningar frá 1962, sem samþ. voru þá hér á hv. Alþ., hefur láðst að fella hin eldri lög úr gildi. Það framkallaði aftur þau leiðu mistök, að hin eldri lög eru einnig prentuð í núverandi lagasafni, og gæti valdið misskilningi einmitt nú, þegar verið er að undirbúa bæjar- og sveitarstjórnarkosningar um land allt.
Frv. þetta gerir ráð fyrir því, auk þess að fella hin eldri lög úr gildi, að örlítil leiðrétting verði gerð á hinum eldri l.; svo sem 1. gr. frv. ber með sér.
Ég tel ekki þörf á því að útskýra tilgang frv. öllu frekar, en legg til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn. að lokinni þessari umr.