10.03.1966
Efri deild: 48. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

136. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Við umr. um frv. til l. um útflutningsgjald af sjávarafurðum fyrir skömmu lýsti ég því yfir, að von væri á öðru frv. um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins til staðfestingar á því fiskverði, er yfirnefnd verðlagsráðs samþykkti 6. jan. s.l. Það er þetta frv., sem nú er hér til 1. umr.

Á tveimur undanförnum árum hefur ríkissjóður greitt framlag til framleiðniaukningar og hagræðingar í framleiðslu hraðfrystiiðnaðarins. Framlög ríkisins í þessu skyni námu 43 millj. kr. árið 1964 og 33 millj. kr. árið 1965. Upphaflega ástæðan til þessa stuðnings við þennan undirstöðuatvinnuveg var á sínum tíma talin sú, að þær launahækkanir, sem hér var um samið á árinu 1963, gæti þessi atvinnuvegur þá ekki borið, eins og á stóð um verðlag fiskafurðanna erlendis. Þær endurbætur, sem síðar hafa átt sér stað í þessum mikilvæga iðnaði okkar, m.a. fyrir framlag ríkisins, hafa reynzt nær ómetanlegar og okkur í vil til þeirrar hörðu samkeppni, sem á sér stað á heimsmarkaðnum um sölu fiskafurða. Það er engum vafa undirorpið, að hið jafnt hækkandi verð erlendis á fiskafurðum okkar á s.l. árum byggist a.m.k. öðru fremur á bættum vinnsluaðferðum og þar með aukinni hagnýtingu aflans, sem umræddur styrkur ríkisins hefur stuðlað að.

Svo sem frá er skýrt í grg. frv., tóku frystihúsin að fullu á sig 15% kauphækkun á árinu 1963 og einnig það, sem í þessum efnum bættist við á árinu 1964, ásamt þeirri fiskverðshækkun, 6%, sem einnig bættist við á því ári. Ríkissjóður greiddi þá um sinn til bráðabirgða 5 1/2% fiskverðshækkun, sem þá var ákveðin af yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins.

Af framangreindum ástæðum var því, svo sem áður er frá greint, ákveðið með l. nr. 34 í ársbyrjun s.l. árs að greiða 33 millj. kr. úr ríkissjóði.

Eins og fram kom í umr. um frv. um útflutningsgjald af sjávarafurðum hér á dögunum og fyrr er frá greint, gerði verðlagsráð sjávarútvegsins ýtarlegar athuganir á afkomu frystihúsanna á s.l. ári í sambandi við ákvörðun fiskverðsins fyrir yfirstandandi ár. Niðurstaða þeirra athugana var, að afkoman virtist það góð, að þau ættu að geta tekið á sig 5 1/2% fiskverðshækkunina frá 1965 og þær kauphækkanir, er á því ári áttu sér stað. Niðurstaða verðlagsráðsins eða yfirnefndar þess varð hins vegar sú, að ekki væri unnt að ná samkomulagi aðila um minni fiskverðshækkun en 17% þrátt fyrir gott árferði í afurðasölumálum og bætta aðstöðu heima fyrir í sjálfri framleiðslunni. Var nauðsynlegt talið til að brúa bilíð til samkomulags, að það opinbera hlypi enn undir bagga, ef tryggja ætti sjómönnum og útgerðarmönnum fyrrgreint verð. En allt eru þetta tilvitnanir í rökstuðning yfirnefndar fyrir umræddu verði. Tekjumismunur sjómanna á bolfiskveiðum og síldarsjómanna hafði aukizt verulega með hinu góða árferði á síldveiðum undanfarin ár og því eðlilegt, að tregða væri á sjómönnum til starfa, þar sem minni tekjuvon var. Í áttina til tekjujöfnunar á milli þessara greina sjávarútvegsins var 17% fiskverðshækkun því nú talin algert lágmark, svo sem áður er sagt.

Þetta mat yfirnefndarinnar hefur reynzt rétt að því leyti, að enn hefur treglega gengið að fá menn til bolfiskveiðanna, þótt það hafi að sjálfsögðu einnig mikil áhrif, að allt fram til þessa tíma vertíðarinnar hefur verið tregur afli á þeim veiðum. Þegar frá er tekið landsvæði eins og Vestfirðir, hefur sérstaklega borið á erfiðleikum á því að manna minni vélbáta á línu- og handfæraveiðar, sem þó er tvímælalaust bezta hráefnisöflun bolfiskveiðanna hvað gæði snertir. Á Vestfjörðum hefur hins vegar allt frá haustmánuðum aflazt sæmilega og stundum allvel á línuveiðum og mannaflsskortur þar einnig verið hverfandi lítill miðað við aðra landshluta, sér í lagi þó hér sunnan- og suðvestanlands.

Til þess að margnefnt samkomulag um fiskverð gæti átt sér stað, var samkv. athugun yfirn. talið nauðsynlegt að hækka í fyrsta lagi framlagið til framleiðniaukningar um 17 millj. kr. eða úr 33 millj. kr. í 50 millj. kr., sem talið var samsvara 2% fiskverðshækkun. Í öðru lagi, að 25 aura verðuppbót á línu- og handfærafisk, sem greidd var á árinu 1965, héldist áfram óbreytt þetta ár. En auk þess féllust fiskkaupendur nú í þetta sinn á að greiða jafnháa upphæð á móti á þennan fisk. Framlag ríkissjóðs í þessu efni er áætlað 20 millj. kr. Í þriðja lagi: Á s.l. ári var með sérstökum l. samþ. að heimila greiðslu verðuppbótar úr ríkissjóði á útflutta skreið, er næmi allt að 10 millj. kr. Heimild þessi var að fullu notuð, og var nú einnig álitið nauðsynlegt að heimila sömu verðuppbætur í krónutölu. Í fjórða lagi: Til að samkomulag gæti tekizt, var umfram framangreinda aðstoð álitið nauðsynlegt að breyta viðmiðun útflutningsgjaldsins, svo sem þegar hefur verið afgreitt héðan frá hv. Alþ. með sérstöku frv. nú fyrir skömmu. Samanborið við fjárhagslega aðstoð þess opinbera í þessum efnum frá s.l. ári er því hér um 17 millj. kr. hækkun að ræða. Þá nam þessi aðstoð um 60—63 millj. kr., endanleg tala er enn ekki að fullu ljós, en samkv. frv. þessu mun aðstoðin nema um 80 millj. kr.

Þegar fjárlög voru endanlega afgreidd hér á Alþ. fyrir jól, varð ekki séð, að hve miklu leyti aðstoðar þess opinbera væri þörf. Það eina, sem örugglega lá þá fyrir í þessum málum, var, að verulegar hækkanir höfðu orðið á mörgum greinum útfluttra sjávarafurða, eins og frá er skýrt í grg. frv., og því ljóst, að fiskkaupendur gætu af þeim sökum borið nokkra fiskverðshækkun. Það kom einnig á daginn, að í fyrsta sinn í starfi verðlagsráðsins gátu fiskkaupendur nú fallizt á að taka á sig eða bjóða 8% fiskverðshækkun. Fiskseljendur, sjómenn og útgerðarmenn, töldu það boð hins vegar allt of litla hækkun og vísuðu málinu af þeim ástæðum til yfirnefndar, sem endanlega felldi úrskurð sinn 6. jan. s.l., svo sem fyrr er frá greint. Af framangreindum ástæðum er ljóst, að ekki var mögulegt að áætla tekjuþörf í þessu skyni við afgreiðslu fjárl. Að mati ríkisstj. er tekjuöflun fjárl. hins vegar það naum, að ekki er fyrirsjáanlega unnt fyrir ríkissjóð að taka á sig þau útgjöld, er af samþykkt frv. þessa leiðir, án rekstrarhalla.

Með framangreindar staðreyndir í huga er eðlilegt, að hv. alþm. spyrji, með hvaða hætti ríkisstj. hyggist leysa þann fjárhagslega vanda, er af útgjöldum þessum leiðir. Taki ríkisstj. á sig að leysa þann fjárhagslega vanda, sem fylgir 17% fiskverðshækkun, er um tvær leiðir að velja: Í fyrsta lagi að beita sér fyrir almennum skattahækkunum, er brúað gætu bilið. Í öðru lagi að létta af ríkissjóði einhverjum þeim útgjöldum, sem þegar er gert ráð fyrir, t.d. í verklegum framkvæmdum eða niðurgreiðslu vöruverðs.

Varðandi fyrri liðinn er það að segja, að ríkisstj. hefur lýst sig við fjárlagaumr. andvíga almennum nýjum skattahækkunum. Af þeim ástæðum yrði lausn vandans nú ekki fundin með þeim hætti. Hvað síðari liðinn áhrærir, virðist óþarft að minna á það, að á s.l. 2 árum hefur verið notuð heimild í fjárl. til að minnka opinberar framkvæmdir eða draga úr fjárframlögum til þeirra, og yrði þegar af þeim ástæðum ekki horfið inn á þá braut nú enn einu sinni. Í blöðum hv. stjórnarandstæðinga sem og víðar hefur því verið þráfaldlega fram haldið, að niðurgreiðslur ýmissa vörutegunda kæmu neytendum að litlu sem engu haldi, og ríkisstj. sökuð um að viðhalda þessu ástandi þvert ofan í yfirlýsingar sínar um að vilja afnám niðurgreiðslna og til þess eins að falsa kaupgjaldsvísitölu, eins og stundum hefur verið sagt. Hvað sem liður sannindum þessara ásakana, er víst, að afnám niðurgreiðslna á einstökum vörutegundum hefði, áður en kaupgjaldsvísitala var á ný upp tekin á laun, af launþegasamtökunum verið réttilega metin sem bein og óbætt kjaraskerðing, og því lögð áherzla á að fá slíkt bætt í næstu kjarasamningum. Nú á greiðsla verðlagsuppbóta á laun hins vegar að tryggja launþegum bætur fyrir afnám niðurgreiðslna á hverri þeirri vörutegund, sem þær gilda um í dag. Ríkisstj. hyggst, eins og fram kemur í lok grg. fyrir frv., mæta nauðsynlegum útgjöldum vegna frv. þessa eða samþykktar þess með því að draga úr eða afnema með öllu niðurgreiðslur á ákveðnum vörutegundum. Ég tel eðlilegt og skylt að skýra nú þegar frá þessum fyrirhuguðu ráðstöfunum, þó að endanlega hafi ekki verið frá þeim gengið eða gildistöku þeirra.

Herra forseti. Ég tel ekki þörf á að ræða efni einstakra greina frv., svo ljóst sem efni þeirra er og endurtekning frá fyrri þingum. En að lokinni þessari umr. legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.