31.03.1966
Neðri deild: 62. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
136. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég lét þess getið við 2. umr. í sambandi við till. á þskj. 385, að ég væri ekki reiðubúinn til að taka afstöðu til hennar, af því að ég taldi, að ekki lægju fyrir nægilega glöggar upplýsingar um, hvað raunverulega væri um háa fjárhæð að ræða í sambandi við auknar uppbætur á línu- og handfærafisk. Það var þar talað um 3—4 millj. kr., en samkv. upplýsingum, sem Fiskifélag Íslands hefur veitt mér, tel ég, að þar sé um allverulega hærri upphæð að ræða en gert var ráð fyrir og hér kom fram við 2. umr.
Samkv. upplýsingum Fiskifélagsins voru greiddar uppbætur á línu- og handfærafisk á tímabilinu 1. jan. til 30. júní s.l. ár samtals 7.3 millj., á tímabilinu 1. júlí til 30. sept. 2.6 millj. og á tímabilinu 1. okt. til 31. des. 4.5 millj., eða samtals 14.4 millj. Ef ganga á út frá, að áætlunarupphæð, sem var 22 millj., yrði fullnotuð, sýnist mér, að þarna sé um að ræða ekki 3—4 millj., heldur 7—8 millj., sem til uppbóta gæti komið, ef upphæðin yrði fullnotuð. Með tilliti til þessa tel ég mjög eðlilegt, — hér er um heimildarákvæði að ræða, – að ríkisstj. fái heimild til þess að greiða uppbætur á línufisk veiddan árið 1965 frá 1. jan. til 31. des. Ég tel ekki ástæðu til að takmarka þetta, hvorki við 1. okt. né 1. júlí, þar sem upphæðin sýnir sig vera önnur og hærri en við höfðum ástæðu til að ætla, þegar málið var rætt hér við 2. umr. Ég hef því leyft mér að flytja brtt. á þskj. 407, sem hljóðar svo, með leyfi forseta: „Orðin „á tímabilinu 1. okt. 1965 til 31. des. 1965“ falli niður.“ Mundi þá till., ef þetta yrði samþ., hljóða svo: „Heimilt er að greiða viðbótaruppbót á línu- og handfærafisk veiddan 1965 umfram þá 25 aura á hvert kg, sem ákveðið er með lögum nr. 34 8. maí 1965. að ríkissjóður skyldi greiða. Heildaruppbætur á línu- og handfærafisk á árinu 1965 skulu þó ekki fara fram úr 22 millj. kr.“ Meðan annað liggur ekki fyrir en þarna sé um verulega hærri upphæð að ræða en við höfðum ástæðu til að ætla við 2. umr., legg ég til, að sú brtt., sem ég hef flutt á þskj. 407, verði samþykkt.