02.12.1965
Sameinað þing: 15. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
1. mál, fjárlög 1966
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Það væri að vísu töluverð ástæða til þess að ræða fjármálastefnu hæstv. ríkisstj. almennt og bregða upp ýmsum myndum af því, hvernig sú stefna birtist í því fjárlfrv., sem hér liggur nú fyrir. Ég ætla þó að neita mér um þetta, enda er það hvort tveggja, að þetta hefur þegar verið röggsamlega gert af öðrum ræðumönnum hér í dag og í kvöld, og auk þess hefur nú eldhúsdegi verið frestað, svo að að því verður komið síðar. Ég mun þess vegna að þessu sinni láta nægja að gera með fáeinum orðum grein fyrir nokkrum brtt. við frv. til fjárl., sem ég flyt á þskj. 130. Þessar brtt. eru allar við 14. gr. fjárl.
1. og 2. brtt. mín snerta námsstyrki og námslán. Sú regla hefur verið tekin upp nú hin síðari ár eða fyrir nokkrum árum, að námsmönnum, bæði hér við Háskóla Íslands og námsmönnum íslenzkum erlendis hefur aðallega verið veittur stuðningur í formi lána, en styrkir aðeins að litlu leyti. Þetta er út af fyrir sig stefna, sem ég skal ekki gagnrýna. Hún kann að hafa eitt og annað til síns ágætis, einkum ef um það væri að ræða, að verðbólga æti ekki stöðugt upp þann lánasjóð, sem ætlunin var að mynda með þessum hætti. En sá galli hefur verið á, að vegna hinnar öru dýrtíðaraukningar hefur ekki tekizt að efla þennan sjóð eins og ætlunin var, og lítur því miður ekki út fyrir, að það takist að öllu óbreyttu. Það hafa orðið miklar hækkanir, eins og allir vita, á verðlagi og þar af leiðandi á námskostnaði, bæði heima og erlendis. En hins vegar hafa þeir styrkir, sem hver einstakur námsmaður hefur hlotið, verið óbreyttir að krónutölu í 3 ár og þar af leiðandi raunverulega verið lækkaðir að gildi. Nú er að vísu lagt til, að lítils háttar hækkun verði á þessum stuðningi við námsmenn heima og erlendis, en þó er ekki að vita, hversu mikil hún verður eða jafnvel hvort hún verður nokkur, þar eð það er vitað mál, að námsmönnum fjölgar mjög ört, og ekki víst, að gert hafi verið nægilega ráð fyrir þeirri fjölgun námsmanna. Ég er þeirrar skoðunar, að þetta framlag hins opinbera til námsmanna, bæði heima og erlendis, verði að hækka nokkru meira en till. er gerð um í fjárlagafrv., ef ekki á að halda áfram á þeirri braut, að þessi stuðningur verði raunverulega skertur að notagildi frá ári til árs. Og ástæðurnar eru, eins og ég áðan sagði, að námsmönnum fjölgar stöðugt, námskostnaður vex stöðugt, og í þriðja lagi er það nú svo, að samkv. óbreyttum úthlutunarreglum, að því er varðar námslán og námsstyrki, eru það ýmsir, sem þessa stuðnings eru þurfi, sem njóta hans ekki nú, en því þyrfti nauðsynlega að kippa í lag. Ég á hér fyrst og fremst við þá menn, sem hafa lokið háskólaprófi, hafa tekið kandídatspróf í einhverri grein, svo sem í læknisfræði eða öðrum greinum, en halda áfram námi, fara til framhaldsnáms og verða að stunda það án þess að komast inn í þetta styrkjakerfi hina opinbera, eins og það er nú.
3. till., sem ég flyt á þskj. 130, er um allmikla hækkun á framlagi til landsbókasafns til bóka- og handritakaupa og bókbands. Það má segja, að helztu bókasöfn okkar hafi allt of lengi staðið í svelti, og skal ég ekki rekja það í löngu máli, það er svo alkunnugt. Nokkur úrbót var gerð í þessu efni, að því er helztu söfnin snerti, í fyrra eða hittiðfyrra, ef ég man rétt, og skal það metið. En sú úrbót er allt of lítil miðað við þörfina, sem er vissulega mikil. Að ætla aðeins 1 millj. kr. til bóka- og handritakaupa og til bókbands við aðalbókasafn landsins er vitanlega allt of lítið, miðað við allt verðlag, eins og það er nú. Hér er sívaxandi þörf fyrir bókakost vegna margvíslegrar sérfræði og aukinna vísindastarfa. Það er rétt, sem á hefur verið bent, til að mynda af hæstv. menntmrh., að samvinna hinna íslenzku safna, svo sem landsbókasafns og háskólabókasafns og ýmissa sérfræðisafna, þarf að komast á í auknum mæli og líka að því er snertir bókakaup. En þó að slík samvinna kæmist á, eins fullkomin og hún getur orðið, verða þessi söfn að fá mjög aukið fé til bókakaupa nú á næstunni, ef sæmilega á að vera búið að þessum hlutum. Ég geri till. um, að landsbókasafni verði veittur aukinn stuðningur til bókakaupa. Það hefði að sjálfsögðu eins mátt hugsa sér það að bera fram till. um hækkun á fé til háskólabókasafns, en sá er munurinn, að ég hygg, að við núverandi aðstæður mundu aukin bókakaup nýtast betur við landsbókasafnið, því að háskólabókasafnið skortir ekki aðeins aukið fjármagn til bókakaupa, heldur mjög aukna starfskrafta og mjög aukið húsrými. En hvort tveggja er þó fremur fyrir hendi í landsbókasafni, og þess vegna býst ég við, að aukin fjárveiting mundi í bili koma að öllu betri notum þar heldur en jafnvel við háskólabókasafn, þó að þörfin á báðum stöðum sé mjög brýn.
4. till. mín snertir lið, þar sem tekinn er upp nýr háttur að því er varðar úthlutun fjár til ritstarfa, til útgáfustarfsemi og rannsóknarstarfa. Slíka styrki allmarga til stofnana, félaga og einstaklinga hefur verið að finna á 14. gr. fjárl. mörg undanfarin ár. Það skal játað, að það hefur gætt nokkurs handahófs í sambandi við ýmsa af þessum styrkjum, sem hv. Alþ. hefur samþ. á ýmsum tímum, og um þá hygg ég að hafi myndazt heldur litlar reglur. M. a. hefur ekki verið mikið mér vitanlega um eftirlit með því, hvernig þessir styrkir hafi verið notaðir, til að mynda ekki krafizt neinnar skýrslugerðar, svo að mér sé kunnugt, af þeim, sem styrkina hafa fengið. Það var því vissulega þörf á breytingum til bóta í þessu efni. Hins vegar held ég, að þótt þarna sé viðurkennd þörfin á, breytingum, sé ekki nauðsynlegt, að Alþ. afsali sér með öllu þessari úthlutun, og það er í rauninni varhugaverð leið að fara meira og meira inn á þá braut, að Alþ. afsali sér öllum rétti í sambandi við úthlutun á slíkum hlutum og feli það einhverju ráðuneyti. Sé það hins vegar vilji Alþ. að gera þarna á umtalsverða breytingu, m.a. til þess að auðvelda það, að hægt sé að fara eftir fastari reglum um þessar úthlutanir heldur en áður og að hægt sé að krefjast skýrslna eða grg. um það, hvernig slíkum styrkjum hefur verið varið, og taka afstöðu til framhaldsveitinga á grundvelli þess, sýnist mér, að það sé ekki endilega sjálfsagt að fela menntmrn. að annast þessa úthlutun. Til þess ætti þá ekki síður að leita til þingkjörinnar n., og ég vil benda á, að bæði er nú kosin árlega n., sem vinnur að skyldum hlutum, þar sem er úthlutunarnefnd listamannalauna, en auk þess er starfandi þingkjörin nefnd eða ráð, sem kosið er til hvers kjörtímabils í senn, þar sem er menntamálaráð, en það hefur með höndum mjög hliðstæð verkefni við þetta, svo sem úthlutun fræðimannastyrkja o. fl. Ég legg sem sagt til, að þessi fjárveiting verði örlítið hækkuð og úthlutunin verði falin menntamálaráði, en hins vegar verði þar farið eftir reglum, sem menntmrn. staðfestir. Ég tel þetta eðlilegra fyrirkomulag en hitt, sem lagt er til í fjárlfrv.
5. till. mín fjallar um stuðning við skáld, rithöfunda og listamenn. Sú upphæð, sem frv. gerir ráð fyrir, er óbreytt frá því í fyrra. Það hefur oft verið um það rætt, að fyrirkomulag það, sem er á úthlutun þessara skálda- og listamannalauna, sé orðið úrelt og þurfi breytinga við, sömuleiðis að það sé óheppilegt á marga lund, að kosin sé árlega nefnd til þess að úthluta þessum launum, nefnd, sem í rauninni telur sig ekki hafa neitt umboð til að starfa nema þær fáu vikur á hverju ári eða þá viku á hverju ári, sem hún vinnur að þessum málum, en þegar hún hefur lokið sinni úthlutun, telur hún hverju sinni, að verkefni sínu sé lokið, og starfar ekki allan hinn tímann. Þetta og fleira í sambandi við úthlutunarmálin þyrfti vissulega að takast til nýrrar athugunar. Ég hef þó ekki gert till. um það að þessu sinni, en hins vegar legg ég til, að upphæðin, sem til þessara mála verði varið á næsta ári, hækki nokkuð, því að það er enginn efi á því, að um mörg undanfarin ár hefur þessi stuðningur við skáld, rithöfunda og listamenn verið að rýrna hlutfallslega. Á sama tíma hefur það hins vegar gerzt, að listamönnum hefur sem betur fer verið stöðugt að fjölga og heilar listgreinar hafa risið á legg á síðari árum og áratugum, listgreinar, sem varla voru til fyrir svo sem 10–20 árum, og aðrar, sem þá voru í algerri bernsku, eins og mátti segja um myndlist og tónlist, hafa eflzt verulega. Sumir segja alltaf: Listamennirnir í dag og skáldin og rithöfundarnir, þetta eru bara svo vondir listamenn, sem við höfum núna, og það er ástæðulaust að vera að kasta í þá miklu af ríkisfé. Þetta eru tóm atómskáld og klessumálarar og óhljóðaframleiðendur, og ég man ekki, hvaða nafngiftir eru hafðar um listamenn okkar af ýmsum. Ég held, að þetta sé hinn mesti misskilningur. Að mínu viti hefur verið að undanförnu og er í dag mikil gróska í íslenzku listalífi á flestum sviðum. Það er um að ræða mjög aukna breidd, eins og það er stundum orðað, a. m. k. á máli íþróttamannanna. Það er stóraukin fjölbreytni, að því er varðar listgreinar, og við eigum vissulega mjög marga ágæta listamenn í dag. Það er skammsýni að spara og skera við nögl stuðning við listir og listamenn. Hækkun á þessum lið er að mínu viti sjálfsögð.
6. till. mín fjallar um dálitla hækkun á liðnum til vísinda- og fræðimanna, þ.e.a.s.sá liður hækki úr 313 þús. í 500 þús. Þessi liður hefur venjulega fylgt breytingum, sem hafa verið gerðar á skálda- og listamannastyrknum, og það má segja, að það hafi verið nokkurn veginn föst regla allmörg undanfarin ár, að styrkurinn til vísinda- og fræðimanna sé um 1/10 hluti af hinni upphæðinni. Ég legg til, að upphæðin hækki í svipuðu hlutfalli og listamannalaunin.
Um 7. till. mína á þskj. 130 gegnir í rauninni sama máli og um 4. till., og skal ég vísa til þess að mestu leyti, sem ég sagði um hana. Í fjárlagafrv. nú er lögð til sú breyting, að í stað margra smástyrkja til tónlistarstarfsemi, sem verið hafa á 14. gr., þá skuli nú ákveða eina heildarupphæð í þessu skyni, en menntmrn. á síðan samkv. fjárlfrv. að sjá um úthlutun á þessum styrkjum til einstaklinga og stofnana. Ég býst við, að það gildi sama um þetta atriði og ýmsa styrki til ritstarfa, útgáfustarfsemi og rannsóknarstarfa, að hér þurfi einhverra skipulagsbreytinga við, því að í þessu efni hefur vissulega ríkt nokkurt handahóf hjá hv. Alþ. En ég tel um þetta eins og hið fyrra, að það sé næsta hæpið, að Alþ. afsali sér þessari úthlutun með öllu í hendur framkvæmdavaldsins og það sé þó a. m. k. að mörgu leyti eðlilegra, að þingkjörin n. hafi þessa úthlutun með höndum, og þess vegna legg ég til, að það verði menntamálaráð, sem framkvæmi þessa úthlutun eins og hina.
8. og síðasta till. mín á þskj. 130 fjallar um nýjan lið til listkynningar innanlands, 300 þús. kr. Það er oft um það rætt hér í sölum Alþ., að mikil nauðsyn sé á því að auka jafnvægi í byggð landsins. Í því sambandi er venjulega talað um atvinnumálin, um samgöngumálin, um raforkumálin og önnur slík mál. Vissulega eru þau mikils virði öll saman og nauðsynleg undirstaða, til þess að blómleg byggð haldist um land allt. En hinu má ekki gleyma, að menningarmálin í víðustu merkingu orðsins eru ekki síður nauðsynleg undirstaða undir það jafnvægi, sem menn vilja koma á í byggð landsins. Hér á ég ekki aðeins við skólamálin, svo sjálfsögð sem þau eru, heldur á ég hér við aðstöðuna til þess að njóta góðrar listar ekki síður en hitt. Þess hefur líka gætt á síðari tímum, að víða úti á landsbyggðinni, víða í héruðum er vaxandi skilningur á þessari hlið málanna og vaxandi áhugi á því að njóta aukins jafnréttis við þéttbýlið, að því er varðar það að njóta góðrar listar. Aðstaðan hefur líka batnað verulega til þess að sinna þessu hlutverki, til að mynda með tilkomu hinna mörgu nýju félagsheimila, sem hafa risið mjög víða, eins og kunnugt er, á síðari árum. Fyrir fáeinum árum var gerð nokkur tilraun á vegum ríkisútvarpsins og menntamálaráðs með það að flytja margvíslega list um landið, eins og það var kallað. Það fóru flokkar um tiltekna landshluta og fluttu skáldskap sinn í bundnu og óbundnu máli. Það var farið með myndlist á nokkra staði og hún kynnt með ræðuflutningi og skuggamyndum, tónlist var flutt o.s.frv. Þessari viðleitni var mjög vel tekið, og áhugi úti á landsbyggðinni fyrir þessu starfi virtist vera mikill. Af starfinu varð að vísu nokkur halli, ekki sízt vegna þess, að ferðalög eru nú býsna dýr og verði aðgöngumiða var hvarvetna mjög í hóf stillt. En mér er kunnugt um það, að hjá sömu aðilum og stóðu að þessari starfsemi sem ég hygg að hafi borið þess vott, að þarna var grundvöllur, sem mátti byggja á, og þarna var vilji fyrir hendi til þess að notfæra sér slíka starfsemi, — ég hygg, að hjá þessum aðilum sé fullur vilji til þess að hefja slíka starfsemi að nýju. Hins vegar skortir fé, a. m. k. að því er menntamálaráð varðar og e. t. v. ríkisútvarpið einnig. Sú fjárveiting, sem ég legg hér til að ríkið verji til þessarar starfsemi, 300 þús. kr., mun vissulega, ef vel er á haldið, geta komið að góðum notum. Ég vil líka benda á það í þessu sambandi, að með slíkri starfsemi og ég hef hér gert svolitla grein fyrir er um að ræða stuðning við íslenzka listamenn í mjög æskilegu formi, þ.e.a.s.með þessari starfsemi er þeim gert kleift að brúa a. m. k. að einhverju leyti bilið á milli listanna og fólksins.
Eins og ég sagði í upphafi, takmarka ég tillöguflutning minn algerlega við nokkur atriði, að því er varðar 14. gr. frv., gr., sem fjallar um menningarmál. Þessar upphæðir, sem ég legg hér til að verði ýmist hækkaðar eða komi nýjar í fjárl., að því er varðar stuðning við menningarmál, munu samtals hækka fjárl., ef samþ. væru allar, um rúml. 8 millj. kr. Þetta er sannarlega ekki há upphæð, þegar um nær fjögurra milljarða fjárl. er að ræða. En með þessum tillöguflutningi mínum hef ég viljað leggja nokkra áherzlu á það, að efnalegar framfarir, þ.e.a.s.það að hafa nóg til fæðis og klæða, hafa góðan húsakost, njóta margvíslegra þæginda o.s.frv. þetta er að vísu allt saman nauðsynleg forsenda, nauðsynleg undirstaða fjölbreytts og auðugs mannlífs og menningarlífs. En ef innihaldið skortir, ef svo mætti segja, — ég vildi segja, að þetta væru umbúðirnar, og þær þurfa vissulega að vera góðar og traustar, — en innihaldið skiptir vitanlega meginmáli, og þar vil ég telja, að menningin og listin hljóti að skipa mjög háan sess.