31.03.1966
Efri deild: 58. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (530)
122. mál, skógrækt
Landbrh. (Ingólfur Jónsson): Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á l. um skógrækt var flutt í Nd. og hefur fengið afgreiðslu þar án breytinga. Hv. landbn. Nd. sendi málið til búnaðarþings til umsagnar. Á búnaðarþingi var samþ., að þessu máli skyldi frestað, með 12:9 atkv., vegna þess að meiri hl. búnaðarþings taldi eðlilegt að fella þetta mál inn í jarðræktarlögin. Hv. Nd. taldi ekki ástæðu til að fallast á þessa skoðun búnaðarþings, vegna þess að ef það sýndi sig, að það færi betur í jarðræktarlögunum, væri alltaf opin leið til að breyta lögunum, en að fresta málinu, þótt ekki væri meira en um eitt ár, væri ekki til gagns. Og þannig vil ég líta á málið, um leið og ég viðurkenni, að það skuli vera til athugunar, það sem meiri hl. búnaðarþings heldur fram, að þetta mál mætti fella inn í jarðræktarlögin.
En megintilgangur þessa frv. er að veita styrk á fjárlögum til þess að rækta skjólbelti. En eins og kunnugt er, er talið og reyndar reynsla fyrir því, að skjólbelti geti haft mjög mikilvæga þýðingu fyrir margs konar gróður, ekki sízt þann gróður, sem viðkvæmastur er. Þess vegna hefur skjólbeltaræktun átt sér stað um langan tíma víða um lönd og þá ekki sízt hin norrænu lönd, þar sem loftslag er kalt.
Skv. 1. gr. er sem sagt gert ráð fyrir því að veita styrk til skjólbeltaræktar, eftir því sem fé er veitt á fjárlögum.
Þá er skv. 2, gr. frv. gert ráð fyrir því, að skógræktarstjóri hafi yfirumsjón með ræktun skjólbelta. Þeir, sem koma til greina að njóta styrks, eru skv. 1. gr. ábúendur lögbýla og garðyrkjubýla, félagsbundin samtök um ræktun korns eða garðávaxta, enda sé land það, sem tekið er til ræktunar, eigi minna en 10 ha. að flatarmáli.
Þá kveður 4. gr. á um það, hvaða skilyrðum beri að fullnægja til þess að geta notið styrks. Það er þá fyrst, að skógarvörður og héraðsráðunautur hafi mælt með framkvæmdum, að fylgt hafi verið fyrirmælum skógarvarðar um legu skjólbelta og gerð þeirra, að eigandi eða vörzlumaður lands eða jarðar hafi annazt jarðvinnslu og lagt til nægan áburð skv. fyrirmælum skógarvarðar, að landssvæði það, sem vernda skal. hafi verið girt löggirðingu, sbr. 16. gr. l. nr. 3 1966, um skógrækt, að lokið sé ákveðnum áfanga gróðursetningar, sem nánar er kveðið á um í reglugerð.
Þá kveður 5. gr. á um það, að girðingarstyrk skuli aðeins miða við girðingar utan um samfellt ræktunarland.
6. gr. kveður svo á, að styrkur skv. 1. gr. megi nema allt að 1/3 af girðingarkostnaði og helmingi af andvirði trjáplantna og kostnaði við gróðursetningu.
Skv. 7. gr. er eiganda skjólbelta eða vörzlumanni skylt að fara eftir fyrirmælum skógarvarða um friðun og hirðingu þeirra.
Þetta eru meginatriði frv., og er það skoðun þeirra, sem þessum málum eru kunnugastir, að með því að lögfesta þetta frv. geti það ýtt undir skjólbeltaræktunina í landinu og orðið til þess að auka margs konar gróður, sem hefur átt erfitt uppdráttar.
Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið að svo stöddu, en vil leggja til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.